Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 284. tbl. 68. árg. FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kjöt skammtað vegna jólanna Varsjá, 18. desember. AP. PÓLVERJAR undirbúa sig um þessar mundir undir vcnju fremur dapurt jólahald en í dag var byrjað að úthluta skömmtunarseðlum í fyrsta skipti frá því á árunum eftir heimsstyrjöldina síðari. Að sögn sérfræð- inga pólskra yfirvalda í efnahagsmálum eru horfurnar síður en svo bjartar framundan. og mega Pólverjar búast við þrengingum áfram, að þeirra sögn. Útvarpið í Varsjá gerði mikið úr því í dag, að skip væru á leiðinni að utan með kjöt, konfekt og ávexti til að bæta úr brýnustu þörfum. Þá sagði útvarpið í löngu máli frá því að birgðir af karfa yrðu fluttar inn frá Dan- mörku, Júgóslavíu, Ungverja- landi og V-Þýzkalandi fyrir hinn hefðbundna jólarétt. Biðraðir voru þó jafnvel lengri við verzlanir en venju- lega, og birgðir, sem auknar hafa verið vegna jólahátíðar- innar, virðast hvergi ætla að nægja. Samkvæmt kjötskömmtun- arseðlunum, sem gefnir voru út í verksmiðjum og á opin- berum skrifstofum á hver Pólverji kost á hálfu kílói af úrvalskjöti það sem eftir er ársins, og 800 grömm af skinku, en hún hefur varla sést í búðum, þar sem hún hefur svo til eingöngu verið sett til útflutnings. Þá eiga Pólverjar kost á 1,5 kg af pulsum í hverri búðarferð til áramóta, en ferðir af því tagi taka venjulega klukkustundir, og aldrei er nein trygging fyrir því, að allir sem í biðröð standa fái skammt þegar þeir loks komast að afgreiðslu- borði. Embættismenn sögðu í dag, að í bígerð væru varanlegar skammtanir á ýmsum nauð- synjavörum er tækju gildi fljótlega á næsta ári. Peres endurkjörinn Shimon Peres veifar stuöningsmönnum er fögnuðu honum þegar ljós úrslit í leiðtoj?akjöri Verkamannaflokksins í ísrael í gær. t voru leiðtogakjörinu bar Peres sijfurorð af Yitzhak Rabin fyrrum forsætisráð- herra og hlaut Peres um 70 af hundraði atkvæða. Kosningar verða í ísrael á næsta ári og er því spáð að Peres verði næsti forsætisráðherra landsins. Sjá nánar frétt á bls. 15. Símamynd-AP. Fangar hættu föstu London. 18. desombor. AP. SEINT í kvöld skýrði brezka út- varpsstöðin BBC frá því. að óstað- festar fregnir hefðu borizt frá Belfast um að fangarnir 10 í Maze-fangelsinu hefðu hætt hung- urverkfalli sínu í kvöld. Verkfallið hafði staðið i 53 daga og ástand sumra fanganna þannig að þoir voru nær dauða en lífi. Hafði BBC eftir aðstandendum fanganna, að þeir hefðu ákveðið að láta af aðgerðum sínum, þegar ljóst var orðið eftir umræður í brezka þinginu, að brezk stjórnvöld myndu ekki verða við kröfum þeirra um að þeir yrðu meðhöndlaðir sem pólitísk- ir fangar. Thatcher forsætisráð- herra sagði við umræðurnar, að útilokað væri með öllu að verða við kröfum fanganna, þar sem þeir hefðu drýgt hryllilega glæpi, og yrði undanlátssemi við þá einungis til að kynda frekar undir ófriði á N-ír- landi. Frelsissveitir Afgana gera Rússum óskunda Peshawar. 18. desember. AP. FORMÆLANDI hóps afg- anskra frelsissveita skýrði frá því í dag, að sveitunum hefði orðið verulega ágengt í skæruárás á Jala- labadflugvöll í austurhluta Afganistans á laugardag og þá jafnvel unnið sinn mesta sigur í viðureign- inni við innrásarheri Sov- étmanna til þessa, en um Reagan íhugar að lýsa neyðarástandi Washington. 18. desember. AP. RONALD Reagan hefur það til „gaumgæfilegrar1 athugunar“ að lýsa yfir „neyðarástandi í efna- hagsmálum“ skömmu eftir að hann tekur við embætti forseta 20. janúar næst- komandi, að sögn eins helzta ráðgjafa hans í dag. Ronald Reagan Ráðgjafinn, James Baker, er verður starfsmannastjóri Hvíta hússins, sagði, að Reag- an og ráðgjöfum hans, þætti „sérstaklega brýnt að grípa fljótt til raunhæfra aðgerða" í efnahagsmálum. Samkvæmt heimildum eiga þingmennirnir David Stock- man og Jack Kemp hugmynd- ina að neyðarástandsyfirlýs- ingunni, en Stockmann verður yfirmaður fjársýslustofnunar Bandaríkjanna í stjórnartíð Reagans. Hefur Stockmann hvatt Reagan til þess að biðja þingið að tryggja afgreiðslu neyðarúrræðaáætlunar fyrir vorið. Stockmann hefur m.a. lagt til, að gerðar verði ýmsar ráðstafanir er tryggi hagvöxt, þ.á m. að ýmsum hömlum verði aflétt, ríkisafskiptum ýmiss konar verði hætt, og að breytingar verði gerðar á stefnu hins opinbera í pen- ingamálum. Baker sagði í dag, að líklega yrði farið fram á breytingar á fjárlögum fyrir fjárhagsárið 1981, sem þegar hafa verið afgreidd í þinginu. þessar mundir er ár liðið frá innrás Sovétríkjanna í Afganistan. I árásinni tókst frelsissveit- unum að bera eld að eldsneytis- birgðatönkum sovézku herj- anna á flugvellinum og að eyðileggja sex þyrlur, sem sér- staklega voru gerðar til loft- árása. Þá féllu tugir sovézkra hermanna í aðgerðunum og fjölmargir særðust. Formæl- andi frelsissveitanna sagði, að 60 skæruliðar hefðu tekið þátt í aðgerðunum á Jalalabadflug- velli, og að þeir hefðu allir komið heilir á húfi úr leiðangr- inum. Skæruliðarnir sóttu að flug- vellinum úr þremur áttum vopnaðir vélbyssum, léttum fallbyssum og eldflaugum. Unnu þeir þá m.a. tjón á ratsjármiðstöð flugvallarins og fjarskiptamiðstöð. Flugvöllur- inn er í 75 kílómetra fjarlægð frá landamærum Pakistans. Hua hættir Pekinjr. 18. desember. AP. DIPLÓMATAR hermdu í dag, að Hua Guofeng hefði fallist á að segja af sér formennsku í Kommúnistaflokki Kína á fundi miðnefndar flokksins í janúar næstkomandi, og að við formennsku taki núverandi framkvæmdastjóri flokksins, Hu Yaobang. Stórblöð styðja útnefningu Haigs London, 18. desember. AP. BREZKU stórblöðin Ti^ies, Daily Telegraph og Guardian fögnuðu í dag þeirri ákvöróun Reagans. væntanlegs Bandarikjaforseta, að velja Alexander Ilaig i embætti utanrikisráðherra í stjórn sinni. Lýstu blöðin stuðningi við útnefn- ingu Ilaigs og i leiðara hvatti Guardian andsta'ðinga Reagans til að láta af þeim ráðagerðum að krefjast rannsóknar á aðild Haigs að Watergate-málinu. en Haig var starfsmannastjóri Ilvíta hússins siðustu mánuðina í vaidatið Nix- ons fyrrum forseta. „Á nýkjörinn forseti ekki ann- arra kosta völ en að velja sér ráðherra, er andstæðingar hans Alexander Haig sætta sig við? Hver vann kosn- ingarnar?" spurði leiðarahöfundur Guardians. Blöðin þrjú ljúka upp einu orði um hæfni Haigs. „Meðmæli hans, þekking á utanríkismálum og reynsla eru af því tagi, að Reagan hefði ekki getað valið hæfari mann, eftir að ljóst varð að Dr. Kissinger kæmi ekki til greina í embættið," sagði Times í leiðara, og bætti því við, að útnefningu hans yrði fagnað í Vestur-Evrópu. Blaðið sagði það einkenna val Reagans á samstarfsmönnum sín- um, að hann veldi fyrst og fremst menn sem náð hafa árangri og getið sér gott orð á viðkomandi sviðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.