Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Tékkóslóvakía: Andófsmaður í hungurverkfalli Lundúnum. 18. desember. AP. RUDOLF Battek. einn þeirra sem undirrituðu Mannréttindayf- irlýsinguna '77, hefur hafið hungurverkfall í fangelsi þvi sem hann er hafður i haldi i Prag. Battek hóf hungurverkfall sitt þann 12. desember siðastliðinn. bað var Palach-fréttastofan, — fréttastofa andófsmanna, en hún hefur aðsetur í Lundúnum. sem skýrði frá þessu. Rudoif Battek er einn þeirra. sem undirrituðu Mannréttindayf- irlýsinguna 1977. í yfirlýsing- unni voru tékknesk stjórnvöld hvött til þess að virða mannrétt- indaákvæði Helsinki-samkomu- lagsins. Ástæður þess að Battek hefur nú hafið hungurverkfall er neitun yfirvalda að lofa honum að hitta lögfræðing sinn. Battek fór fram á að fá að hitta lögfræðing sinn að máli þann 7. desember. Það var ekki virt og hann hótaði því „róttækum aðgerðum" frá og með 12. desember, fengi hann ekki að hitta lögfræðing sinn. Þrátt fyrir það, fékk Battek ekki að hitta lögfræðing sinn að máli. Þann 15. desember síðastliðinn var konu hans tilkynnt að fangelsisvist hans hefði verið framlengd til 14. janúar næstkomandi. Battek hef- ur verið í haldi síðan í júní. réttarhöld hafa farið fram í máli hans. Norska ríkisstjórn- in ákveður að byggja skuli Alta-orkuverið Frá Jan-Erik Lauró. írétta- ritara Mbl. í Osló, 18. desember. NORSKA ríkisstjórnin heíur endanleKa ákveðið að byKfíja skuli Alta- vatnsorkuverið í Norður- Noregi. Þingílokkur Verkamannaílokksins hef- ur samþykkt þessa ákvörð- un ríkisstjórnarinnar með 62 atkvæðum gegn 4. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær framkvæmdir hefj- ast. en það verður fljótlega upp úr áramótum, líklega 5. janúar. Þessi ákvörðun ríkisstjórnar- innar hefur valdið miklum von- Veður víða um heim Akureyri +11 snjókoma Amsterdam 6 skýjaóg Aþena 18 heióakírt Berlín 3 heióskírt Brussel 10 rigning Chicago 2 skýjaó Feneyjar 2 rigning Frankfurl +1 þoka Færeyjar ■í-2 snjókoma Genf 4 skýjaó Helsinki 1 skýjaó Jerúsalem 13 heióskírt Jóhannesarb. 25 heiðskírt Kaupmannahöfn 4 slydda Las Palmas 20 skýjað Lissabon 15 skýjað London 6 heiðskírt Los Angeles 26 heióskírt Madrid 10 heióskírt Mallorka 9 alskýjaó Malaga 16 léttskýjaó Miami 21 heiðskýrt Moskva 2 skýjaó New York +1 skýjaó Osló 4 skýjað París 7 skýjaó Reykjavík +10 léttskýjað Ríó de Janeiro 39 heióskírt Rómaborg 7 heiöskirt Stokkhólmur 3 rigning Tel Aviv 18 heióskýrt Tókýó 11 heióskírt Vancouver 5 heióskýrt Vínarborg 8 skýjaö brigðum meðal hreyfingar al- mennings í Noregi sem er á móti byggingu versins. Hreyfingin tap- aði máli fyrir rétti um byggingu versins og verður dómnum líklega vísað til hæstaréttar. Meðlimum hreyfingarinnar finnst það eðli- legt, að ríkisstjórnin bíði eftir úrskurði hæstaréttar. Stórþingið hefur tvisvar samþykkt byggingu orkuversins og finnst ríkisstjórn- mni það vera skylda sín að fá vilja stórþingsins framgengt. Hreyfingin móti byggingu Alta-vatnsorkúversins hefur þeg- ar ráðgert mótmælaaðgerðir og ætlar að reyna að hindra fram- kvæmdir. Búist er við, að þúsund eða fleiri fari til árinnar Alta í Norður-Noregi til mótmælaað- gerða. Lögreglan hefur einnig sín- ar áætlanir tilbúnar. Um 500 lögregluþjónar frá öllum Noregi auk þeirra sem þegar eru til staðar í Finnmörku, eru tilbúnir til að fara á vettvang. Þeir eiga að koma í veg fyrir, að mótmælend- urnir komist að framkvæmdunum og fjarlægja þá sem ef til vill komast alla leið. Búist er við átökum á svæðinu og upp úr áramótum verður það ljóst, hver vinnur slaginn um Alta-ána. Obote skip- ar ráðherra Kampala, 18. desember. AP. MILTON Obote, forseti Úganda. skipaði í gær Otema Allimadi, fyrrum utanríkisráðherra, í stöðu forsætisráðherra landsins. Allimadi verður einnig æðsti maður þjóðþingsins. Obote skipaði í gær einnig aðra ráðherra í stjórn sína og eru 7 þeirra frambjóðendur sem töpuðu í kosningunum í sl. viku, eða menn utan þingsins. Sjálfur mun Obote gegna embætti utanríkisráðherra. 22. umferð lokið VlnarborK. 18. desember. AP. FULLTRÚAR Atlantshafsbanda- lagsins og Varsjárbandalagsins luku 22. umferð viðræðna um fækkun herliðs í Mið-Evrópu í Vín í dag. Báðir viðræðuaðilar kenndu hinum um að enginn árangur náðist. Sjö ár eru síðan þessar viðræður hófust. Þeim verður haldið áfram í lok janúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.