Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1981 35 FÍB stofnar ferðaskrif- stofu 14. LANDSÞING Félags íslenzkra bifreiðaeigenda var haldið í Hótel Borgarnesi fyrstu helgina í nóvem- ber. Á þinginu var samþykkt sam- hljóða að stofna ferðaskrifstofu FÍB. „Undanfarin tvö ár höfum við boðið félagsmönnum flutning á bílum með Hafskip og farseðla með Útsýn. Um 400 manns fóru á síðastliðnu ári á okkar vegum með um 100 bfla. Við vildum auka þessa þjónustu og því var samþykkt að stofnsetja ferða- skrifstofu,“ sagði Hafsteinn Vil- helmsson, framkvæmdastjóri FÍB „Við munum ganga til sam- vtarfs við systrafélög á Norður- óndum. Þau hafa haft eigin ferða- skrifstofu og buðu okkur til sam- starfs okkur að kostnaðarlausu. Um milljón manns eru í félögum bifreiðaeigenda á Norðurlöndum og því er hægt að ná góðum kjör- um. Til að mynda er hægt að ferð- ast ódýrt frá Osló til Spánar, ferð- in skipulögð með gistingu á hótel- um eða í tjaldi. Við teljum að eng- inn aðili geti boðið slíkar ferðir. Þá höfum við gert samninga við bílaleiguna Heartz í Kaupmanna- höfn. Það eru mjög hagstæðir samningar og verður til að mynda hagstæðara að leigja meðalstóran bíl en flytja frá íslandi. Þá er það mikill kostur, að skilja má bílinn eftir í flestum stórborgum Evrópu án aukagjalds ef fólk vill ekki keyra til baka,“ sagði Hafsteinn ennfremur. Um 36 manns sóttu þingið í Borgarnesi. Snæbjörn Jónasson, vegamálastjóri, flutti framsögu sem hann nefndi: „Ný viðhorf í vegamálum". I erindi vegamála- stjóra kom m.a. fram, að þjóðvegir á Islandi eru alls 8600 km. og þar af ættu 3600 km. að vera bundnir slitlagi. Hins vegar er lengd vega með slitlagi um 500 km. Þá flutti Davíð Gunnarsson, forstjóri ríkis- spítalanna, erindi um umferðar- slys. Fram kom m.a. að á meðan umferðarslysum hefur farið fjölg- andi hérlendis, hefur þeim farið fækkandi á Norðurlöndum. Sagði Davíð, að nærri láti að umferð- arslys kosti þjóðfélagið árlega álíka mikið og svarar helmingi rekstrarkostnaðar allra ríkisspít- alanna. 2 af öndvegisverkum “ íslenskrar leikritunar — eru nú aftur fáaiileg á hljömplötum HUO'O Stetónsson ÍSIANDSKLUKKAN B«t Holtdór loxness GUU-NA Eflit Davlö uwl** “ ■töoMtOr' Gullna hliðið Islandsklukkan eftir Davfö Stefánsson Leikstjóri: Lárus Pálsson Tónlist: Páll ísólfsson eftir Halldór Kiljan Laxness Leikstjóri: Lárus Pálsson A þessum upptökum af verkum tveggja af höfuöskáldum íslenskrar tungu koma fram margir af vinsælustu leikurum þjóöarinnar fyrr og síöar. Meö þessum hljómplötum fylgja vandaöir bæklingar meö upplýsingum um verkin, leikstjóra, leikara og höfundana. Einnig eru upplýsingar á ensku. Heildsölubirgðir fyrirliggjandi Verk þessi eru fáanleg í hljómpfötuverslunum um land allt FALKINN Sudurlandsbraut 8 — sfmi 84670. Uiugavsgi 24 — sfmi 18670. Austurveri — sfmi 33360. ' Þegar á bragðið reynir notum við smjör FINNSKT KAFFIBRAUÐ 375 ghveiti 250 g íslenskt smjör 100 g sykur Vz egg eggjahvíta afhýddar, smátt skornar möndlur steyttur molasykur Hafið allt kalt, sem fer í deigið. Vinnið verkið á köldum stað. Myljið smörið saman við hveitið, blandið sykrinum saman við og vætið með egginu. Hnoðið deigið varlega, og látið það bíða á köldum stað í eina klst. Útbúið fingurþykka sívalninga. Skerið þá í 5 cm langa búta. Berið eggjahvítuna ofan á þá og dýfið þeim í möndlur og sykur. Bakið kökumar gulbrúnar, efst í ofni við 200° C í ca. 10 mín. BESSASTAÐAKÖKUR Deig: 250 g íslenskt smjör 250 g flórsykur 250 ghveiti Skraut: 1 eggjarauða möndluflögur Smjörið brætt og látið storkna. Vatninu hellt frá. Deigið hnoðað og flatt út. Lítið glas notað til að stinga út kökurnar (ca. 5 cm í þvermál). Eggjarauðan hrærð lauslega og borin ofan á miðja kökuna. Möndluflögur eru síðan lagðar á eggjarauðuna. Bakið kökurnar ljósar við vægan hita í miðjum ofni. KONÍAKSKRINGLUR u. þ. b. 100 stk. 400 g íslenskt smjör 21/z dl sykur (200 g) 600 ghveiti V2 dl koníak Setjið hveiti (ekki allt, þar sem ekki er víst að þörf sé á því öllu) og sykur á borð. Myljið smjör saman við, og vætið með koníaki. Bætið hveiti í ef þörf er á. Látið deigið standa á köldum stað í allt að 1 klst. Mótið litlar lengjur, 15 cm langar og búið til litlar kringlur úr lengjunum. Bakið á smurðri plötu eða á bökunarpappír við 200°C í 10-12 mín. Kringlurnar má smyrja með bræddu súkkulaði, þegar þær em orðnar kaldar. ROMMKONFEKT 110 g suðusúkkulaði 110 g íslenskt smjör 300 g flórsykur romm eftir smekk Skraut: riíið sudusúkkulaði Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði. Smjörinu blandað saman við í litlum teningum og hrært vel á milli. Síðan er flórsykrinum bætt í, og að síðustu bragðbætt með rommi eftir smekk. Mótað í litlar kúlur og velt upp úr rifnu súkkulaði. Geymist á köldum stað, helst í ísskáp. SPESÍUR 400 g íslenskt smjör 500 ghveiti 150 gflórsykur grófur sykur Hnoðið deigið, mótið úr því sívalninga og veltið þeim upp úr grófum sykri. Kælið deigið til næsta dags. Skerið deigið í þunnar jafnar sn'eiðar, raðið þeim á bökunarplötu (óþarfi að smyrja undir) og bakið við 200°C þar til kökurnar em ljósbrúnar á jöðmnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.