Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982 Erfiðleikar framundan og vaxandi verðbólga — segir í séráliti bandaríska viðskipta- ráðuneytisins um íslensk efnahagsmál Washington, 30. apríl. AP. ERFIÐLEIKAR blasa nú við í ís- lensku efnahagslífi og útlit fyrir áframhaldandi lítinn eða neikva*ð- an hagvöxt, að því er segir í séráliti bandaríska viðskiptaráöuneytisins, sem birt var í dag, fimmtudag. Horfurnar eru þó enn góðar hvað varðar hinar mikilvægu þorskveið- ar, segir í álitinu, og ekki eru líkur á að greiðslujöfnuðurinn breytist til hins verra mjög skyndilega. „Ekki er líklegt að í kjölfar þessarar þróunar fylgi atvinnu- leysi en greiðslujöfnuðurinn mun áfram verða óhagstæður, þó ekki stórvarasamur, og stjórnvöld munu enn sem fyrr reyna að halda í horfinu í glímunni við efnahagserfiðleika þessarar þjóð- ar, sem vissulega er mjög velmeg- andi. Ný verðbólgualda er hins vegar fyrirsjáanleg," segir í áliti viðskiptaráðuneytisins. í álitinu segir, að þeir þættir í íslensku efnahagslífi, sem ýta undir aukna verðbólgu, ættu að vera mönnum mikið áhyggjuefni og eru þeir taldir þessir helstir: Vaxandi peningaframboð, stöðug þörf atvinnuveganna fyrir meiri lán og/ eða verðhækkanir, geng- islækkunin í janúar og hækkun fiskverðs og kjarasamningarnir, sem nú eru framundan. „Ef gengi dollarans, sem í fyrra hækkaði mjög miðað við 1980, lækkar, sem einhverju nemur, á þessu ári mun dýrari innflutning- ur valda verulegri verðbólgu á ís- landi. Sú þróun er þó ekki óhjá- kvæmileg, þegar höfð er í huga veik staða evrópsks gjaldeyris, en íslenskt efnahagslíf er hins vegar sérstaklega næmt fyrir óhag- stæðri þróun á erlendum gjald- eyrismörkuðum," segir í séráliti bandaríska viðskiptaráðuneytis- ins. Varsjárborg girt miðunarstöðvum Varsjá, 30. apríl. AP. TÆKNIMENN á vegum pólska hersins unnu að þvi í dag að koma fyrir miklu neti af miðunarstöðvum allt umhverfis Varsjá og er tilgangur- inn augljóslega sá að finna útvarps- stöð, sem neðanjarðarhreyfing Sam- stöðumanna rekur, en þeir hafa boö- að útsendingar í kvöld. Herstjórnin er staðráðin í að ná Samstöðumönnunum eða a.m.k. að trufla útsendinguna en gert er ráð London, 30. april. Al*. REIÐKENNARINN Diane Lockett var ekki í neinum vafa hvað gera skyldi er hún sá tvo ræningja ráðast á konu í Hyde Park í London. Hún var að kenna nokkrum nemendum sínum, en lét það ekki hafa áhrif á sig. Hleypti hesti sínum, Brentwood, á sprett og gómaði þjófana. Varð hún að fara um fjölfarnar götur í Knightsbridge-hverfinu og m.a. á móti umferðinni á einstefnu- götu áður en henni lánaðist að króa þjófana af. Reyndust þeir vera tveir fyrir, að þeir hvetji til mótmæla og andstöðu við yfirvöldin á morgun, sem er 1. maí, hátíðisdagur verka- lýðsins. Pólska öryggislögreglan er með mikinn viðbúnað vegna morg- undagsins og hefur nú þegar tekið sér stöðu víða þar sem fólk hefur áður safnast saman til mótmæla, eins og t.d. á Sigurtorginu í Varsjá. í gær, fimmtudag, voru fyrstu fangarnir látnir lausir af þeim óharðnaðir unglingar. „Þeir voru dauðskelfdir," sagði Lockett við fréttamenn eftir atvikið. Öðrum hélt hún með hesti sínum föstum upp við vegg á meðan hún skipaði hinum að afhenda sér pok- ann með peningunum í. Reyndist hann innihalda 1000 pund. Lockett fékk 40 pund fyrir sitt framlag í verðlaun og hesturinn Brentwood varð heldur ekki útundan. Honum var færður stóreflis poki af gulrót- um. 1000, sem herstjórnin segist ætla að sleppa. Búist hafði verið við, að fleiri fengju frelsi í dag, en stjórn- völd segja, að það verði ekki fyrr en á mánudag. I dag var dreifimið- um dreift á götum Varsjárborgar þar sem hvatt var til mótmæla á morgun. Sumir voru í líki dánar- tilkynningar með svörtum ramma þar sem í stóð: „Til minningar um 1. maí.“ Á öðrum var krepptur knefi með þumalfingurinn milli vísifingurs og löngutangar, en það er pólskt fyrirlitningartákn. Sakharov-nefndin í Kaup- mannahöfn hefur farið fram á það við danska verkalýðsleiðtoga, að þeir skori á pólsk stjórnvöld að sleppa Lech Walesa úr haldi. „Vegna þess, að hann er leiðtogi verkalýðsins og nú er hátíðisdagur hans.“ Dean Fischer, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis- ins, sagði í dag, að fyrirheit pólsku herstjórnarinnar um að sleppa 1000 mönnum úr haldi hrykki hvergi til að Bandaríkjastjórn breytti afstöðu sinni til hennar. Hann ítrekaði einnig fyrri yfirlýs- ingar um, að ef frelsi Samstöðu- daganna yrði komið á aftur myndu Bandaríkjamenn ekki skera að- stoðina við Pólverja við nögl. Elti þjófa á hestbaki og króaði þá síðan af Fjöldafundur var haldinn í Buenos Aires sl. mánudag til stuðnings herfor- ingjastjórninni í Falklandseyjadeilunni. Á myndinni sést hvar argentínskir æskumenn berja bumbur og hrópa slagorð um órofa samstöðu þjóðarinnar í átökunum við Breta. Veður víða um heim Akureyri +6 skýjaó Amsterdam 10 skýjaó Aþena 18 heióskirt Barcelona 17 alskýjaó Berlín 9 rigning Briissel 8 skýjaó Chicago 14 heióskfrt Dublín 10 skýjaó Feneyiar 13 alskýjaó Frankturt 11 rigning Fasreyjar 4 rigning Gent 16 heióskirt Helsinki 10 skýjaó Hong Kong 21 rfgning Jerúsalem 20 skýjaó Jóhannesarborg 17 heióskírt Kaupmannahöfn 9 rigning Las Palmas 21 léttskýjaó Lissabon 24 heióskirt London 13 skýjaó Los Angeles 21 skýjaó Madrid 23 heióskirt Mallorca 21 skýjaó Malaga 20 hetðskirt Mexicoborg 28 heióskírt Miami 25 heióskírt Moskva 17 Iteióskirt Nýja Delhi 32 heióskfrt New York 19 heióskirt Osló 8 sólskin Paris 15 skýjaó Perth 17 skýjaó Reykjavik +4 snjóól á sió. klst. Rio de Janeiro 25 heióskírt Róm 19 heíóskírt San Francisco 19 heióskirt Stokkhólmur 7 rigning Sydney 21 heióskfrt Tel Aviv 24 skýjaó 12 ára tekur háskólapróf Boise, Idaho, 30. apríl. AP. ROBERT Hughes, prófessor í stærð- fræði í ríkisháskólanum í Boise í Ida- ho, hefur kynnzt mörgum áfburðanem- endum áður, en engum eins frábærum og Jay litla Luo, 12 ára, sem innan skamms verður yngsti maðurinn í sögu Bandaríkjanna sem lýkur háskólaprófi. Luo útskrifast í stærðfræði í júní og hyggst stunda framhaldsnám við Stanford-háskóla. Luo var 9 ára þeg- ar hann innritaðist. „Hann er gáfað- asti 12 ára nemandinn sem ég hef komizt í kynni við,“ segir Hughes. Samkvæmt Metabók Guinness er yngsti nemandinn sem hefur tekið háskólapróf í Bandaríkjunum Merr- ill Kenneth Wolf, sem tók B.A.-próf í Yale 1945 þegar hann var 14 ára. Faðir Luo, Zong Luo tölvufræðing- ur, innritaði hann í háskólann þegar hann hafði lesið grein um afburða- nemendur. Hann er ættaður frá Taiwan. Dr. William Mech, sem hefur haft veg og vanda af að kenna Luo, segir að það kæmi sér ekki á óvart þótt Luo fengi Nóbelsverðlaun, ef hann sneri sér að einhverju öðru en stærðfræði, en Nóbelsverðlaun eru ekki veitt fyrir stærðfræði. 8 Pólverjar ræna flugvél 8 Berlín, 30. apríl. AP. ÁTTA menn rændu í dag, föstudag, farþegaflugvél pólska flugfélagsins Lot, af gerðinni AN-24, þegar hún var á leið frá Wroclaw til Varsjár og neyddu flugstjórann til að lenda á Tempelhof- flugvelli í Berlín. Einn öryggisvörður mun hafa særzt í átökum. Síðan í desember 1980 hafa flug- vélaræningjar fjórum sinnum neytt pólskar farþegafiugvélar til að lenda á Tempelhof. Þungur dómur á Alþingi eftir Pétur Björns- son, forstjóra Velferð lands og þjóðar liggur ekki alltaf í fyrirrúmi á Alþingi þegar kosningar eru á næsta leyti. Það sést bezt á frumvarpinu um sykurverksmiðju, sem óvænt hef- ur skotið upp kollinum aftur í þingi, eftir hljóðláta svæfingu í kjölfar röksemda. Ef frumvarpið nær fram að ganga er þungur dómur kveðinn upp yfir lífskjör- um þjóðarinnar. Tæknilegar for sendur bresta Hugmyndin, sem lögð er til grundvaliar sykurverksmiðju í Hveragerði er byggð á kenningum tveggja Finna, þeirra H. Hongisto deildarstjóra og H. Heikkilá efna- fræðings, sem báðir eru starfs- menn Finnsugar Company í Finn- landi. Þeir hafa gefið út kenningu sína á prenti undir heitinu „Finn- sugar Chromatograpic Separation Process", sem byggir á vinnslu á sykri úr „mólössum", úrgangsefni sem myndast við hefðbundna framleiðslu á sykri. Þegar unnið er úr „mólassar" innihalda mikinn raka, myndast mjög fljótt tvísykrungur og gerjun (fermentation + buteric acid), sem eftir ákveðinn tíma gerir „molass- ana“ nær óhæfa til áframhaldandi sykurvinnslu. Þess vegna fer ofangreind framleiðsla eingöngu fram á sykurvinnslusvæðinu. Ef flytja á „molassana" yfir hafið frá Finnlandi til íslands, þarf til þess sérhæfðan flutninga- og kæliútb- únað og óvíst að dugi til. Hugmyndasala frá 1976 Allt frá því að Finnarnir tveir kynntu fyrst kenningar sínar árið 1976 hafa þeir unnið sleitulaust að því að selja hugmyndina. Framan af voru þeir heldur framlágir og vonlitlir um undirtektir, þar til nokkrir íslenskir frændur gripu hugmyndina á lofti, þá lyftist á þeim brúnin. Þegar þeir eygðu fæðingu syk- urverksmiðju hér á landi, þá má til marks um trú þeirra á fyrir- tækinu nefna, að þeir settu þau skilyrði fyrir þátttöku Finnsugar í ævintýrinu hér á landi, að sett yrðu sykurlög sem bönnuðu inn- flutning sykurs til landsins, sam- fara verðlagningu, sem tryggði 10% arðsemi á þeirra framlag. Þessar ráðstafanir mundu auð- vitað tryggja Finnsugar losun á „mólössum" og um leið tryggða arðsemi á eigið fé. Það væri of langt mál hér að taka fyrir hverja grein kenningar- innar fyrir sig frá tæknilegu og hagkvæmu sjónarmiði, heldur mun ég láta þetta sem hér birtist nægja til viðvörunar. „Aldrei verið gert áður“ Svör sem okkur hafa borist frá stærstu sykurframleiðendum beggja vegna Atlantshafsins um þessi mál, hafa verið á þessa leið. „Við höfum aldrei heyrt þess getið að þetta hafi verið gert áður.“ Jafnframt var þess getið að á pappírnum er tæknilega séð möguleiki að ná sykri úr „mólöss- um“, en aldrei þótt fýsilegt vegna gífurlegs kostnaðar og flókinnar aðferðar. Það er einnig talið nær óhugs- andi að ætla sér að ná 99,9% hreinum, krystölluðum sykri úr slíkri framleiðslu, en hann er ein- mitt sá sykur sem krafist er af allri betri gosdrykkja- og sælgæt- isgerð um heim allan. Markaðurinn Sykurverksmiðjan í Hveragerði þarf 550 $/tonn til að komast á núllpunkt fjárhagslega. Aðeins tvisvar á síðastliðnum 10 árum hefur alþjóðlegt heimsmarkaðs- verð náð því hástigi sem til þarf. Til marks um þetta má nefna að sykurverð í dag er á bilinu 250-300 $/tonn. Megineinkenni sykurmarkaðar undanfarinna áratuga hafa verið gífurlegar verðsveiflur. Ýmislegt bendir nú til að svo verði ekki á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.