Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982 37 aðstæður eru mismunandi á hin- um ýmsu stöðum. En þetta skiptir ekki máli vegna þess, að ekki er um að ræða sambærilega vinnslu. I Bandaríkjunum er um að ræða ræktun á sykurreyr og sykurróf- um og vinnslu og hreinsun á sykri úr þeim. Hjá okkur er um að ræða kaup á melassa og vinnslu og hreinsun á sykri úr honum með nýlegri aðferð (Finnsugar-Pfeifer & Langen). Melassi er úrgangsefni frá venjulegum sykurverksmiðj- um með um 50% sykurinnihaldi, sem yfirleitt borgar sig ekki að vinna frekar vegna of mikils orkukostnaðar. Þar sem varma- orka er fáanleg á lágu verði, getur frekari sykurvinnsla úr melassan- um borgað sig. Ennfremur sveifl- ast verð á melassa miklu minna en sykurverð á uppboðsmörkuðum. Þessi aðferð þarf meiri gufu en notuð er við venjulega sykur- framleiðslu. Okkar áætlanir sýna ótvírætt, að fyrirhuguð sykur- vinnsla úr melassa í Hveragerði er gott fyrirtæki. í framhaldi af tilgreindum orð- um koma svo orðin: „Og ætli Norð- menn, sem búa við lágt orkuverð og eru nálægt „melassa" mörkuð- unum væru ekki löngu búnir að reisa sykurverksmiðju ef nokkur grundvöllur væri fyrir því.“ Þessi spurning, sem felur í sér fullyrð- ingu, þarf nánari athugun. í fyrsta lagi hafa Norðmenn aldrei komið sér upp sykurframleiðslu vegna þess, að sykurrófur ná ekki viðhlítandi þroska í Noregi vegna of lágs sumarhita og innflutning- ur á rófum og reyr er of kostnað- arsamur. í öðru lagi er jarðgufu ekki að finna í Noregi, en gufa framleidd með rafmagni, sem kostaði einungis 6 aura/KWh (6 Mille), myndi verað fjórum sinn- um dýrari en jarðgufan í Hvera- gerði. Kostnaðarverð gufu, sem framleidd yrði með olíu, sem að sjálfsögðu er jafndýr í Noregi og annars staðar, yrði margfalt hærra. í greinargerð okkar Guðmundar Björnssonar frá 13. mars 1981 er fjallað um samkeppnisaðstöðu ís- lenskrar sykurverksmiðju gagn- vart erlendri. Þetta var gert vegna rangra staðhæfinga í umsögn starfshóps Iðnaðarráðuneytisins frá jan. 1981 um þetta atriði. Til nánari áréttingar varðandi samkeppnisaðstöðuna er hægt að sýna eftirfarandi sundurliðun og samanburð, og eru tölur miðaðar við verðlag í nóv. 1979. Orkukostnaður, gufa og raforka Vinnsla og pökkun Flutningskostnaður til íslands Kostnaðarverð á íslandi Af þessu sést, að sams konar verksmiðja úti í Evrópu gæti ekki keppt við íslensku verksmiðjuna á íslenskum markaði. „Bandariskir sérfræðingar í gosdrykkjaiðnaði reikna með því að sykur muni kosta þar í landi sem samsvarar 1,19—1,98 finnsk- um mörkum hvert kíló næstu ár- in“ (0,12—0,20 $/Lbs), segir í um- sögninni. Það er auðvitað rangur samanburður að bera þessar tölur saman við verð á sykri frá áætl- aðri sykurverksmiðju í Hvera- gerði, komnum til heildsala hér. Til þess að samanburðurinn verði réttur þarf að bæta við öllum kostnaði við innkaup og flutning á sykrinum frá Bandaríkjunum til heildsala á Islandi og auk þess pökkunarkostnaði og kostnaði af molasykursgerð, þar sem verðið er sennilega miðað við ópakkaðan strásykur eða a.m.k. í 50 kg sekkj- um. Ef þessum kostnaði er bætt við umræddar tölur, yrði vegið meðalverð á ameríska sykrinum, komnum til heildsala hér, a.m.k. 2,24-3,15 FIM/kg eða 4,90-6,90 ísl. kr. Umsagnaraðili telur, að nú- verandi sykurverð í Bandaríkjun- um sé 1,40 FIM/kg (0,141 $/Lbs), en sá sykur myndi kosta, kominn til heildsala á íslandi, a.m.k. 2,48 FIM/kg eða 5,44 ísl. kr. „En hvað myndi þá íslenskur sykur kosta?“ segir í umsögninni undir lokin og síðan er vitnað í Erlend verksmiðja Verksmiðja framleiðsla seld í Hveragerði á íslandi 0,165 FIM/kg 0,778 FIM/kg 1,932 FIM/kg 1,932 FIM/kg 0,153 FIM/kg 0,556 FIM/kg 2,250 FIM/kg 3,266 FIM/kg niðurstöður starfshóps Iðnaðar- ráðuneytisins, sem búið er að gera rækileg skil í skýrslu okkar Guð- mundar Björnssonar frá 13. mars 1981 og vísast til hennar. Þó verð- ur ekki komist hjá því að leiðrétta alvarlegan misskilning, sem fram kemur hjá umsagnaraðila: 1) Á bls. 3 segir orðrétt: „Starfshópur, sem Iðnaðarráðu- neytið skipaði komst að þeirri megin niðurstöðu (miðað við fast verðlag) að sykurverksmiðjan gæti borið sig ef heimsmakaðs- verðið væri yfir FIM 2,50 per kíló.“ Ennfremur segir á 4. bls.: „ .. að til þess að sykurverksmiðjan gæti borið sig þyrfti heimsmarkaðs- verðið að vera hærra en FIM 3,00.“ Umsagnaraðili ruglar hér al- gerlega saman verði á hvítum sykri á frjálsum markaði erlendis (heimsmarkaðsverði) annars veg- ar og kostnaðarverði sykurs, komnum í geymslu heildsala á ís- landi, hins vegar. Þetta er sams konar villa og henti starfshóp Iðn- aðarráðuneytisins 1981, þar sem vegið kostnaðarverð sykurverk- smiðjunnar er borið saman við fob-verð á sekkjuðum strásykri í Evrópu. 2) Þegar útreikningar á arðsemi eru byggðir á föstu verðlagi, er ekki óeðlilegt að miða við 3% ársvexti af fjármagni. Þessu til stuðnings má benda á, að verð- tryggð lán eru nú með 2,5% árs- Tæknifræóipróf Véltæknifræöi, sérsviö hita- og hreinlætiskerfi. Flugvélatæknifræöi. Fjarskiptatæknifræöi. Byggingartæknifræöi. Efnatæknifræöi. Námsstyrkir og lán. Sendum bækling. Ný námskeiö hefjast 24. ágúst 1982. Útvegum húsnæöi, ef óskaö er. Goteborgs Tekniska Institut Karl Gustavgt. 5, 411 25 Göteborg, sími 09 546 — 31 17 49 40. vöxtum, sem eru raunvextir, og engin rök eru fyrir hærri vöxtum í jíessum útreikningum. 3) Stofnkostnaðartölur hafa all- ar verið færðar til verðlags í júlí 1981. Allar verðhækkanir frá fyrri áætlQnum (nóv. 1979 og sept. 1980) jafnt innlendar sem erlendar, hafa verið teknar að fullu til greina. Um niðurstöðutölur vísast til greinargerðar Guðmundar Björnssonar frá 4. des. 1981, en fjármagnsþörf er þar talin hafa hækkað um rúm 23% frá nóv 1979. Umsagnaraðili hefur sýnilega ekki kynnt sér þetta mál svo sem vera bæri, áður en umsögn var samin. Getgátur hans um hækk- anir eru með öllu óþarfar, þar sem þær hafa þegar verið áætlaðar til júlí 1981 og niðurstöður legið fyrir undanfarna þrjá mánuði. 4) Ástæðulaust er að hækka áætlanir um 10 af hundraði vegna ófyrirséðs kostnaðar, sbr. 4. tölu- lið á bls. 4. í öllum fyrirliggjandi áætlunum hafa þegar verið inni- faldir ófyrirséðir kostnaðarliðir 10-20%. 5) Umsagnaraðili telur, að nú sé verð á þýskum sykri DM 0,70—0,80 á kíló fob. Ef þessi syk- ur væri keyptur, myndi vegið með- alverð hans, komnum til heildsala hér á landi, verða a.m.k. 2,16—2,38 FIM/kg (4,74-5,22 ísl. kr.), en ekki 1,80—2,00 FIM/kg eins og umsagnaraðili staðhæfir. Þar og víðar er farið full frjálslega með tölur. 6) Spádómar umsagnaraðila um metuppskeru 1982 og sykurverð síðar á árinu eru ekki mikils virði. Telja verður verðsvið alþjóðasyk- ursamningsins traustari vísbend- ingu um þróun sykurverðs. - Það yrði hrapaleg mistök, ef möguleiki til sykuriðnaðar á ís- iandi yrði dæmdur úr leik á grundvelli umsagnar Arnar Hjaltalíns frá 25/2 1982. Til sölu þessi bráöfallegi Skoda 120-L, árg. '77. Aóeins ekinn 44.000 km af einum eiganda og aö sjálfsögöu selst hann meö 6 mán. ábyrgö. KOAVOGi SiMl 4/0(00 Sé§Í Wm ~ * m I f A Ódýrasta vorferðin Mallorca 18. maí. 22 dagar. Allir bestu gististaðirnir. Hagstæð greiðslukjör. Verð frá kr. 7.000,-. Noregur Ódýrt leiguflug til Osló 15.—28. júní. Tvær 13 daga rútuferöir um Noreg. Verð frá kr. 9.000,-. Útvegum einnig gistingu í Osló. Frankfurt Ódýrt leiguflug 16. — 22 maí. Flug og gisting frá kr. 4.920,-. Útvegum bílaleigubíla og skoðunarferðir Hálendi Skotlands 5 vikuferðir i sumar. 21 og 28. maí 4. júní. 3. og 10. sept Ekið um fegurstu staði Skotlands. Verð kr. 7 700,- Flug og bíll — sérgrein Úrvals Luxemborg, London, Glasgow og Kaupmanna- höfn. Otakmarkaður akstur og ótrúlega hag- stætt verð. London Vikuferðir allt árið Brottfarir tvisvar í mánuði maí—sept. Góð og vel staðsett hótel. Verð frá kr. 4.930,-. Mið-Evrópa 28. ágúst 18 dagar. Rútuferð: Luxemborg — Þýskaland — Frakkland — Sviss og Austurríki. Fjölbreytt ferð. Verð kr. 12.100,-. Gisting á Bretlandseyjum Hótelgisting á hagstæðu verði hvar sem er í Bretlandi. Greiðslumiðar á skrifstofunni. Leitið nánari upplýsinga. Með rútubíl um Bandaríkin Ótakmarkaður akstur í 7, 17 eða 27 daga. Hag- stætt verð og skemmtilegir mjöguleikar. St. Petersburg Florida 2. og 3. vikna ferðir allt árið. Gisting á Colonial Gateway Inn — möguleikar á viðdvöl í New Vork. Verð frá 11.300,- í 3 vikur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.