Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982 35 fé fyrir sjúkrahús, söfn og leik- hús. Reagan er sannfærður um að það sé til nóg af góðu fólki eins og Barböru Bush til að halda vel- ferðarprógrömmum áfram, þótt ríkið hætti að halda þeim gang- andi með háum ríkisstyrkjum. Þingmenn beggja flokka og full- trúar Reagans hafa rætt fjárlög hans fyrir 1983 fram og aftur undanfarnar vikur og reynt að ná samkomulagi á lokuðum fundum. En viðræðurnar ganga hægt og allir aðilar eru á varð- bergi gagnvart hinum, svo þeir endi ekki uppi sem „vondu karl- arnir". Reagan segist vera reiðu- búinn að líta á leiðir til að afla ríkinu meiri tekna og jafnvel skera útgjöld til varnarmála eitthvað niður. Demókratar treysta ekki orðum hans og segja að hann hafi ekkert lagt til sem getur auðveldað samkomulag. Einhverjar fréttir af umræð- unum heyrast daglega, en þær fjalla yfirleitt um að ekkert gangi. Fólk veltir fyrir sér hvort það sé í rauninni nauðsynlegt að fylgjast svo náið með fjárlaga- umræðunni. Svarið er yfirleitt jákvætt, hún sé svo mikilvæg að fólk verði að fá upplýsingar um hvað sé á seyði. Reagan hefur lagt til mikinn niðurskurð á vel- ferðarprógrömmum, sem mun koma illa við þá sem njóta góðs af þeim og þeim sem starfa við þau. Þetta fólk hefur mikinn áhuga á að vita hvert stefnir. En samningaviðræðurnar fjalla fyrst og fremst um hallann á fjárlögunum og hvernig hægt sé að leiðrétta hann. Óttast er að vextir lækki ekki fyrr en eitt- hvað jákvætt gerist. Hagkerfið mun ekki taka við sér fyrr en vextir lækka og þannig hefur eitt áhrif á annað og allir bíða eftir að pólitíkusarnir komi sér saman um að bjarga heiminum. Það sýndi sig þó í apríl að rík- ið og pólitíkusar þurfa ekki að hafa puttana ofan í öllu. Mjög skemmtilegt útileikhús, Wolf Trap, í námunda við Washington brann og skemmdist illa í byrjun apríl. Slökkviliðið hafði ekki fyrr skrúfað fyrir kranana en fjár- framlög byrjuðu að berast til leikhússins svo það geti verið endurbyggt og starfrækt í sumar. Metropolitan óperan frá New York er fastur gestur í Wolf Trap og leikflokkar, hljómlista- menn og skemmtikraftar hvað- anæva að koma þar fram. Leik- húsið er umkringt skógi og var reist úr fallegu timbri. í sumar verður sætum komið fyrir til bráðabirgða, en það hefur ávallt verið vinsælt að sitja á grasflöt- inni fyrir aftan sætin og gæða sér á nesti og á meðan lista- mennirnir fremja listir sínar. Hvað er hægt að hugsa sér hug- gulegra en sitja undir stjörnu- björtum himni á hlýju sumar- kvöldi og hlýða á fagra tóna hverfa út í himingeiminn? Ríkið þarf ekki að hafa áhyggjur af málefnum eins og Wolf Trap, en færri gefa fé af sjálfsdáðum til t.d. bókasafna í miðborgum eða eliiheimila í smábæjum. Það er ótrúlega fá- tækt aö finna í þessu landi og efnahagsástandið nú leikur marga grátt. Fátækt og glæpir fara oft saman, en þó alls ekki alltaf. Hinckley og von Bulow höfðu það báðir ágætt áður en þeir gripu til morðvopnanna. Þeir þurftu að bíða lengi eftir að dómstólarnir tækju niál þeirra fyrir, en áhugi fólks dvínaði ekki þrátt fyrir það. Þeir gætu líklega orðið margfaldir milljónamær- ingar á því að skrifa ævisögu sína og margir eiga örugglega enn eftir að græða á ódæðisverk- um þeirra. Furðulegt hvernig heimurinn gengur fyrir sig. Brídge Arnór Ragnarsson Bridgefélag kvenna Eftir tvær umferðir í para- keppninni er staða efstu para þessi: Ragna — Ólafur 377 Ester — Valdimar 374 Dúa — Jón 371 , Erla — Gunnar 370 Halla — Jóhann 360 Nanna — Sigurður 360 Bridgefélag Hafnarfjarðar Nú fyrir skömmu lauk Baro- meter-tvímenningskeppni BH. Úrslit urðu: Stefán Pálsson — Ægir Magnússon 218 Dröfn Guðmundsdóttir — Einar Sigurðsson 182 Ragnar Magnússon — Svavar Björnsson 159 Árni Þorvaldsson — Sævar Magnússon 134 Aðalsteinn Jörgensen — Ásgeir P. Ásbjörnsson 117 Georg Sverrisson — Rúnar Magnússon 113 Ragnar Halldórsson — Þorsteinn Þorsteinsson 53 Óskar Karlsson — Kjartan Magnússon 52 Síðastliðinn mánudag hófst svo tveggja kvölda hraðsveita- keppni með þátttöku níu sveita. Staða efstu sveita: Aðalsteinn Jörgensen 248 Sævar Magnússon 238 Stefán Pálsson 225 Ólafur Torfason 218 Meðalskor 216. Bridgefélag Suðurnesja Þriggja kvölda vortvímenningi félagsins lauk sl. þriðjudag með sigri Einars Jónssonar og Al- freðs G. Alfreðssonar sem hlutu 107 stig yfir meðalskor. Höfðu þeir leitt keppnina allan tímann og voru vel að sigrinum komnir. Hörð keppni var um annað sætið sem endaði með sigri Gísla Torfasonar og Jóhannesar Sig- urðssonar sem fengu 79 stig yfir meðalskor. Röð næstu para: Gísli — Sigríður 77 Óli Þór — Eyjólfur 52 Hreinn — Einar 45 Arnór — Sigurhans 38 Maron — Gunnar 35 Jón — Sigurður 24 Sextán pör tóku þátt í keppn- inni. Spilaðar voru 15 umferðir með barometer-fyrirkomulagi, 5 spil milli para. Á þriðjudaginn er fyrirhugað að spila við Krummana í Reykja- vík en það er árviss viðburður. Bridgefélag Breiðholts Sl. þriðjudag fór fram árleg firmakeppni félagsins og var spilað um veglegan farandbikar. Úrslit: Borgarprent (Hreiðar Hansson) 130 Toyota-umboðið (Óskar Þráinsson) 121 Bólstrun Sig. Hermannssonar (Guðjón Jónsson) 113 Litaver (Bergur Ingimundarson) 103 Á þriðjudaginn verður síðasta spilakvöld vetrarins en þá verð- ur spilaður léttur rúbertubridge. Þá fer fram verðlaunaafhending fyrir mót vetrarins. Félagið þakkar þeim fyrir- tækjum sem styrktu félagið með þátttöku í firmakeppninni. Keppnin á þriðjudaginn hefst kl. 19.30. Spilað er í húsi Kjöts og fisks í Seljahverfi. Bridgedeild Skagfirðinga Eftir fyrsta kvöldið í þriggja kvölda tvímenning eru þessi pör efst: A-riðill (10 pör) Bjarni Pétursson — Ragnar Björnsson Guðrún Hinriksdóttir 135 — Haukur Hansson 132 Anton Sigurðsson — Björn Árnason B-riðHI (8 pör) Haukur Harðarson 130 — Sigrún Steinsdóttir Jón Hermannsson 100 — Ragnar Hansen Sveinn Sveinsson 92 — Valdimar Jóhannsson 92 Önnur umferð verður spiluð þriðjudaginn 4. maí í Drangey, Síðumúla 35. Hægt er að bæta við 4 pörum í annarri umferð upp á miðlung. Spilamennska hefst klukkan 19.30 stundvís- lega. Rýmingarsala Þar sem við erum aö stækka verzlunina bjóðum við 20%—30% afslátt af öllum vörum. — Nú er kjörið tækifæri að fá sér úr eða skartgripi á mjög góðu verði Úr. Pierpont — Tevo — Favre Leuba — Citizen. Gull og silfurskartgripir: Hálsmen — Hringir — Keðjur — Eyrna lokkar og margt fleira. Sendum í póstkröfu. Valdimar (Úr og skartgripir) Austurstræti 22, sími 17650.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.