Morgunblaðið - 29.06.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ1982
33
Myndir Isfilm endursýndar:
Útlaginn í dreif-
ingu vestanhafs
ÍKFILM HYGGST hefja endursýningar á kvikmyndum sínum, Útlaganum og
Landi og sonum, nú í byrjun mánaðarins. Verða myndirnar sýndar um allt
land, en fyrstu sýningar verða á Akureyri og Sauðárkróki. Sýningar hefjast í
Nýja bíói á Akureyri strax upp úr mánaðamótum, en á Sauðárkróki hefjast
sýningar á Landi og sonum um sama leyti.
Ástæðan til þess að Land og
synir er endursýnd er, að nokkuð
margir aðilar hafa óskað eftir að
fá hana enn til sýningar. Eins og
kunnugt er, sló myndin öll aðsókn-
armet á sínum tíma.
Kvikmyndin Útlaginn var frum-
sýnd seint á síðasta ári, og lentu
því sýningar á henni á tíma þegar
jólaundirbúningur var í fullum
gangi. Engu að síður hafa tugir
þúsunda séð myndina, þar af
fimmtíu og tvö þúsund í Reykjavík
einni.
Kvikmyndin Útlaginn hefur
verið kynnt víða og verið sýnd á
Filmex í Bandaríkjunum og í
Cannes. Þá hefur ísfilm verið boð-
Símstöðin
stækkuð
StykkLshólmi, 26. júní.
NÚ KK lokið við að stækka símstöðina
í Stykkishólmi um 100 númer, en und-
anfarið hafa margir verið á biðlista
með að fá sima.
Verður stóðin þá 300 númera og hef-
ur aukning verið mikil sl. 25 ár en
fyrir þann tíma voru aðeins 70 númer
handvirk þar. Arið 1967 varð simstöð-
in sjálfvirk með 300 nr. og er þetta
önnur viðbótin sem framkvæmd er. Þá
eru ýmsar framkvæmdir við símstöð-
ina framundan. Þjónustan og þægind-
in vaxa með hverju ári. FréttariUri.
ið að sýna hana á kvikmyndahátíð
í Karlovy Vary í Tékkóslóvakíu nú
í byrjun mánaðarins. Sú hátíð er
m.a. hugsuð til að kynna kvik-
myndir frá Austur-Evrópu og
fyrir fulltrúum þaðan.
Útlaginn hefur vakið mikla at-
hygli erlendis og mikið verið skrif-
að um myndina í blöð. Hið þekkta
blað Variety hælir myndinni mjög
og segir hana m.a. minna á kvik-
myndina Macbeth eftir Polanski.
Kvikmyndin hefur þegar verið
seld til Noregs, Svíþjóðar, Þýska-
lands og Bretlands, en um þessar
mundir er verið að ganga frá
samningum við Crown Internat-
ional Inc. í Los Angeles um sölu og
dreifingu á myndinni í Bandaríkj-
unum og Kanada. Verður það í
fyrsta sinn sem íslensk mynd nær
útbreiðslu á því svæði.
Kvikmyndin Land og synir hef-
ur þegar farið víða um heim og
unnið til verðlauna og viðurkenn-
ingar á kvikmyndahátíðum. Leik-
stjóri að báðum þessum myndum
hefur verið Ágúst Guðmundsson,
kvikmyndaleikstjóri, en framleið-
andi er Jón Hermannsson, tækni-
fræðingur.
ísfilm athugar nú enn frekari
útfærslu starfsemi sinnar, en í ág-
úst í sumar mun fyrirtækið gera
heimildamynd um Daniel Bruun
og Kjalveg. Síðustu forvöð eru að
ná Kjalvegi óbreyttum vegna
Blönduvirkj unar. (Fréttatilkjrnning.)
NÝ RAFTÆKJAVERZLUN, Kafkaup, Suðurlandsbraut 14, var opnuð 19. júni. Eigendur eru hjónin Óskar Rafnsson
og Sólveig Hafsteinsdóttir. Verzlunin hefur á boðstólum inikið úrval af lömpum og Ijósum, sem verzlunin flytur inn
frá Þýzkalandi. Einnig selur Rafkaup almennar rafmagnsvörur til raflagna og viðgerða á raflögnum og rafmagnstæki
til heimilisnota. Þá tekur Kalkaup að sér raflagnir í ný hús og viðgerðir á gömlum lögnum.
Verkefni til að örva mynd-
un smáfyrirtækja í iðnaði
í SAMSTARFI við Framkvæmda-
stofnun ríkisins, Iðnþróunarsjóð og
Iðnrekstrarsjóð hefur iðnaðarráðu-
neytið ákveðið að hrinda af stað
verkefni til að örva myndun smá-
fyrirtækja í iðnaði og nýsköpun í
starfandi iðnfyrirtækjum. f verkefn-
ið er ráðist í framhaldi af setningu
laga um iðnráðgjafa og má líta á það
sem einn þátt af mörgum til að
stuðla að iðnþróun í landinu, segir
m.a. í frétt frá ráðuneytinu.
Norska ráðgjafafyrirtækið
INDEVO a/s mun aðstoða við
framkvæmd verkefnisins, en það
fyrirtæki hefur tekið þátt í hlið-
stæðum verkefnum á öðrum Norð-
urlöndum, m.a. í Norður-Noregi.
Ráðuneytið hefur falið nýskip-
aðri Samstarfsnefnd um iðnráð-
gjöf í landshlutunum að hafa um-
sjón með verkefninu í samvinnu
við iðnráðgjafa, er þar starfa.
Einnig hefur Halldór Árnason,
iðnráðgjafi, verið ráðinn til starfa
við verkefnið frá 1. ágúst næst-
komandi.
Verkefnið byggist jöfnum hönd-
um á miðlun þekkingar og sjálfs-
námi. Leitað verður eftir þátttak-
endum frá öllum landshlutum og
fyrst og fremst skírskotað til
þeirra sem búa yfir hugmyndum
um ný viðfangsefni í iðnaði eða
nýsköpun í starfandi fyrirtækjum.
Með aðstoð leiðbeinenda eiga
þátttakendur að glíma við að
kanna tæknilegar og hagrænar
forsendur fyrir rekstri smáfyrir-
tækja. Hér er ekki um að ræða
námskeið í venjulegum skilningi
heldur þekkingaröflun sem fram
fer bæði á sameiginlegum vinnu-
fundum og með sjálfstæðu starfi
þátttakenda, segir í frétt frá iðn-
aðarráðuneytinu.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
í þjónusta j y^tiísöiu 5
I -- AM. yWL-jvM . ... J
360 titilar
Víxlar og skuldabréf
i umboössölu.
Fyrirgreiösluslolan, Veslurgötu
17, simi 16223, Þorleifur Guö-
mundsson, heima 12469.
Steypum heimkeyrslur
bílastaeöi og göngubrautir. Uppl.
í sima 81081 og 74203.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþ. og dómt. Hafnar-
stræti 11, sími 14824.
af aspiluöum kassettum. Einnig
hljómplötur, islenzkar og erlend-
ar. Feröaútvörp meö og án kass-
ettu. Bílautvörp og segulbönd,
bilahátalarar og loftnet. TDK
kassettur, kassettutöskur. Póst-
sendum. Radióverslunln, Berg-
þórugötu 2, sími 23889. Opiö kl.
13.30—18 og laugardaga kl.
10—12.
Kvenfélag Keflavíkur
Aríöandi fundur í Tjarnarlundi
þriðjudaginn 29. júní kl. 20.00.
Tekin veröur afstaöa til sölu
Tjarnarlundar.
Stjórnin.
UlL
UTIVISTARFERÐIR
Lækjarbotnar — Hólmsborg
(hringhlaöinn fjárborg). Létt
kvöldganga. Verö 60 kr. Fariö
frá BSi, bensinsölu. Frítt f. börn
m. fullorönum. Sjáumst.
Ferðalólagiö Útlvist.
Fíladelfía
Tjaldsamkomur viö Fellaskóla í
Breiöholti hefjast í kvöld kl.
20.30. Síöan hvert kvöld vikunn-
ar. Innlendir og erlendir raeöu-
menn. Fjölbreyttur söngur. Allir
velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Miðvikudagur 30. júní
1. Kl. 08.00. Þórsmörk (Fyrsta
miövikudagsferðln í sumar).
2. Kl. 20.00. Esjuhlíöar/ steina-
leit (kvöldferö).
Feröafélag Islands.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Helgarferðir, 2.-4. júlí
1. Kl. 20.00, Veiöivötn — Snjó-
alda. Gist i húsi.
2. Kl. 20.00, Þórsmörk. Gist í
húsi.
3. Kl. 20.00, Hveravellir. Gist í
húsi.
Farmiöasala og allar upplýsingar
á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Feröafélag Islands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Sumarleyfisferöir
1. 3.—10. júlí (8 dagar): Horn-
vík — Hornatrandir. Dvaliö í
tjöldum i Hornvík.
2. 2.—10. júli (9 dagar): Reykja-
fjörður — Hornvik. Göngu-
ferö með allan viöleguutbun-
aö
3. 3.—10. júlí: Aöalvik. Dvaliö í
tjöldum í Aöalvík.
4. 3,—19. júlí (8 dagar): Aöalvík
— Hornvík. Farið á land viö
Sæból i Aöalvik. Gönguferö
meö viöleguútbúnaö.
5. 9.—15. júli(7 dagar): Esjufjöll
— Breiöamerkurjökull. Gist í
húsum.
6. 9,—14. julí (6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gönguferö meö svefnpoka og
mat. Gist i húsum.
7. 9 —18. júli (10 dagar): Norö-
austurland — Austfiröir. Gisf
i húsum
Allar upplýsingar og farmiöasala
á skrifstofunni, Öldugötu 3. Velj-
iö sumarleyfisferö hjá Feröafó-
lagi islands. fjölbreytt feröaúr-
val.
Feröafélag Islands.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
húsnæöi i boöi
húsnæöi óskast
tilkynningar
Verkamannabústaðir
Auglýstar eru til sölu íbúðir í fyrsta áfanga
verkamannabústaða í Vatnsleysustrandar-
hreppi. Rétt til kaupa á íbúöum eiga allir þeir
sem uppfylla ákvæði 47. greinar laga nr. 51
1980 frá Húsnæðismálastofnun ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí.
Áætlaður afhendingartími er 1. júní 1983.
Við staðfestingu kaupsamnings greiöist 5%
af kostnaðarverði og 5% viö afhendingu.
Einnig er óskað eftir viljayfirlýsingum á
næsta áfanga verkamannabústaöa.
Eyðublöð liggja frammi á skrifstofu hrepps-
ins
Stjorn verkamannabústaða í
Vatnsleysustrandarhreppi.
íbúð óskast
Okkur vantar 4ra herb. íbúð til leigu í ca. 1 ár,
frá 1. ágúst. Helst í Árbæjarhverfi. Fyrir-
framgr.
Uppl. í síma 77017.
Lokað
verður á skrifstofu okkar allan júlímánuð
vegna sumarleyfa.
Hárgreiðslumeistarafélag íslands,
Hallveigarstíg 1.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl AIGLYSIR L'M AI.LT
LAND ÞEGAR Þl AUG-
LÝSIR í MORGUNBLAÐINl