Morgunblaðið - 05.12.1982, Side 17
Reagan lýsir Rúss-
um og Kúbumönnum:
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
17
„Ogeðslegir
draugar...“
Hra.silíu, 2. desember. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
gagnrýndi Sovétmenn og Kúbumenn
harðlega í ræðu sem hann hélt fyrir
brasiliska viðskiptaleiðtoga í gær.
Hann sagði, að vaxandi nhrif Sovét-
ríkjanna og Kúbu í Suður-Ameríku
væru eins og „ógeðslegur draugur
að laumast um jörðina". Reagan
kom ekki síður inn á samskipti aust-
urs og vesturs í ræðu sinni, en versn-
andi efnahag Brasiliu og bandarisk-
an vilja til að leggja þar hönd á plóg-
inn.
Um umsvif austurs sagði Reag-
an einnig, bæði í ræðu sinni í gær,
svo og öðrum á yfirstandandi ferð
sinni: „Einn er sá hlutur sem er
heiminum ekki síður hættulegur
en hernaður og jafnvel notkun
kjarnorkuvopna. Það eru gervi-
byltingarmennirnir sem grafa
undan löglega kjörnum og sterk-
um ríkisstjórnum og efnahagslífi
þjóða. í heiminum í dag geisar
„gervibylting" af þessu tagi. Sam-
særi og landvinningar eru inni í
dæminu og valdi er beitt. Síðan er
stjórnað með byssuhlaupi og
gaddavír er reistur. Ekki til þess
að óvinir komist ekki inn, heldur
til þess að þjóðin sjálf flýi ekki
ógnarstjórnina." Var almennt álit
manna, að Reagan gæti ekki átt
við aðra en Rússa og Kúbumenn í
þessu sambandi.
Stokkhólmur:
Hommar og
lesbíur með
fund við ísl.
sendiráðið
Stokkhólmi, I. desomber. Krá frétta-
ritara Mbl. (iuAfínnu Kagnarsdóttur.
HOMMAR og lesbíur mótmæltu í
dag við sendiráð íslands í Stokk-
hólmi meðferð íslenzkra stjórnvalda
og íslenzks útvarps á íslenzkum
hommum og lesbíum. Það voru sam-
tök þeirra, sem berjast fyrir kynferð-
islegu jafnrétti, sem stóðu fyrir mót-
mælunum.
Lítill hópur þeirra safnaðist
saman við íslenzka sendiráðið með
kröfuspjöld sem á stóð meðal ann-
ars: „Stoppið niðurlægjandi með-
ferð íslenzka útvarpsins á homm-
um og lesbíum" og „Sömu aldurs-
takmörk við kynmök lesbía og
homma og gagnstæðra kynja".
Mótmælendahópurinn kallaði
fram mótmæli sín í kór og dreifði
kröfublöðum til vegfarenda. Síðan
var sendiherra íslands, Benedikt
Gröndal, afhent mótmælaskjal til
íslenzku ríkisstjórnarinnar.
Þar er þess krafizt að íslenzka
ríkisstjórnin aflétti banni íslenzka
útvarpsins á að nefna lesbíur og
homma í fundarauglýsingum og
tilkynningum sem beinast til þess-
ara hópa.
„Aðgerðir ríkisútvarpsins
skerða tjáningarfrelsi minni-
hlutahóps og möguleika hans á að
taka á móti upplýsingum. Þetta er
skýlaust brot á tjáningarfrelsinu
og brot á Mannréttindaskrá Sam-
einuðu þjóðanna," segir í mót-
mælaskjali samtakanna. Samtök-
in benda einnig á, að Evrópuráðið
hafi í október 1981 mælzt til þess,
að aðildarlöndin kæmu á sömu
aldurstakmörkunum við kynmök
fyrir alla hópa, en á íslandi er ald-
urstakmarkið átján ára fyrir
homma og lesbíur en sextán ára
fyrir aðra.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Utb. fra kr. 3.500.-
íMatilb00
MA
Fullkomið sett
MAGNARI
2x25 W (RMS) 8+ ohm eða 2x35 W (DIN) Tónlistartrekkurinn er tryggður með þessum
magnara.
SEGULBANDSTÆKI
Framhlaðin með léttrofa.
Spólustillingar: Normal CROM og METAL
Dolby sem eyöir suði, teljari þriggja stafa, flúor-upptökumælar, tvö inntök f. hljóðnema.
Timer — Standby.
ÚTVARPSMÓTTAKARI
Allar bylgjur stereo, Ijósa stýring á stöö, Ijósa móttökustyrkmælir.
PLÖTUSPILARI
Léttarmur tryggir bestu hljómgæði ásamt magnetískum pick-up, anti-skeiting og ná-
kvæmri þyngdarstillingu.
HÁTALARAR
Mikilvægur hlekkur í keðjunni, 60 watta bass-reflex hátalarar sem skila kristal-tærum
hljóm.
SKÁPUR
Sá veglegasti í bænum. Tvær gerðir eftir þínu vali.
Jólatilboð
Verö 19.980.- staögr.
útb. 3.500.-
i
fffTfrH
^ I
niTTTTTlTT.T
ÍEfflM
merki unga fólksins
VERSLIÐ i
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÖNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800
V BUÐIN
• A **