Morgunblaðið - 05.12.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
25
MorKunbladið/Ól.K.M.
Prófkjörid
í Nordur-
landi vestra
Prófkjör sjálfstæðismanna í
Norðurlandi vestra um siðustu
helgi er sterk vísbending um, að
slíkar umbætur séu knýjandi.
Með vaxandi undrun fylgdust
menn með þeirri gífurlegu þátt-
töku, sem varð í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í þessu kjördæmi.
Sjónvarpið mun hafa sagt í frétta-
tíma, að þátttakan í því jafngilti
því að 24 þúsund manns tækju
þátt í prófkjöri sjálfstæðimanna í
Reykjavík! I prófkjörinu tóku þátt
1851 kjósandi. í siðustu alþingis-
kosningum hlaut Sjálfstæðis-
flokkurinn 1606 atkvæði. Frá því
að kjördæmabreytingin var gerð
1959 hefur Sjálfstæðisflokkurinn
einungis einu sinni fengið fleiri
atkvæði en sem nemur fjölda
þeirra, sem nú kusu í prófkjörinu.
Það var árið 1959, fyrir 23 árum.
Einn af frambjóðendum í
prófkjörinu, Jón Ásbergsson, gaf
skýringu á þessari miklu þátttöku
í viðtalí við Morgunblaðið í gær,
föstudag. Hann sagði: „Það er
staðreynd, að á fjórða hundrað
framsóknarmenn og alþýðubanda-
lagsmenn í Húnavatnssýslu létu
hafa sig í að taka þátt í prófkjör-
inu, sem þó er einungis ætlað
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins."
Jón Ásbergsson er ekki einn um
þessa skoðun. Þannig segir Ragn-
ar Arnalds, fjármálaráðherra,
sem er þingmaður Alþýðubanda-
lagsins fyrir Norðurlandskjör-
dæmi vestra, í samtali við Morg-
unblaðið þennan sama dag: „Ég
held, að það sé á allra vitorði, að
framsóknarmenn, sem eiga þrjá
þingmenn í kjördæminu, voru
ákaflega hræddir við, að sjálf-
stæðismenn byðu fram í tvennu
lagi í þessu kjördæmi, því það
hefði fyrst og fremst komið niður
á þeim. Þeir vildu tryggja að
Sjálfstæðisflokkurinn byði fram í
heilu lagi, þó listinn yrði tvíhöfð-
aður."
Annað vitni um það, sem gerðist
í prófkjörinu i Norðurlandi vestra,
kom einnig fram á síðum Morgun-
blaðsins þennan sama dag, en það
er Ingólfur Guðnason, einn af
þingmönnum Framsóknarflokks-
ins í kjördæminu. Hann segir:
„Það kunna nú víst fáir skýr-
ingar á því, sem fylgi Sjálfstæðis-
flokksins." Blaðið hefur eftir þing-
manninum: Þá sagðist Ingólfur
sjálfur hafa orðið var við það fyrir
norðan, að menn, hvar í flokki sem
þeir stæðu, hefðu tekið þátt i
prófkjörinu. Ingólfur sagði einnig,
að forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins á Hvammstanga hefðu sagt, að
ekkert væri því til fyrirstöðu, að
hann tæki sjálfur þátt í prófkjör-
inu, „... en ég notaði mér nú ekki
það ágæta boð“, sagði hann.
Áfram hefur Morgunblaðið eftir
Ingólfi Guðnasyni: „Ég veit ekkert
um hvaða árangur þetta hefur
borið, en ef maður lítur á nýleg-
ustu niðurstöður, þá verða menn
að álykta sem svo, að þarna hafi
góðviljaðir menn lagt hönd að.“
Loks segir í frétt Morgunblaðs-
ins: Aðspurður um hvað hann
meinti með orðinu „góðviljaður",
sagði hann alla eiga sér kunningja
án tillits til hvar þeir stæðu í
flokki. Ingólfur var þá spurður
eins og Ragnar, hvort hann reikn-
aði með, að þeir framsóknarmenn,
sem tekið hefðu þátt í prófkjörinu,
myndu skila sér í komandi kosn-
ingum. Hann svaraði: „Ég er ekki
að segja að þeir hafi gert það, en
við skulum bara líta á þetta, eins
og ég geri sem gamall þankamað-
ur. Ég hef oft lánað fé og fengið
það gjarnan til baka með skilum
aftur. Hafi verið eitthvað um
framsóknarmenn, sem stutt hafa
þarna að, verð ég nú endilega að
vona, að þeir skili sér.“ Ingólfur
sagði í lokin: „Ég tel nú, að þarna
sé endanlega búið að ganga frá
nokkru sem heitir prófkjör með
vitleysu sem þessari."
Pálmi Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra, hefur í útvarpsviðtali
furðað sig á því, að Morgunblaðið
væri að amast við fylgisaukningu
Sjálfstæðisflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra. Ekki skal
standa á Morgunblaðinu að sam-
fagna Pálma Jónssyni, ef þessi at-
kvæði skila sér til Sjálfstæðis-
flokksins í kosningum til Alþingis.
Hitt er ljóst að svo alvarlegur
vitnisburður hefur komið fram um
það hvernig staðið var að próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í þessu
kjördæmi, þar sem því er haldið
fram, að stuðningsmenn annarra
flokka hafi í stórum hópum bland-
að sér í málefni sjáifstæðismanna
og tryggt niðurstöðu, sem ráð-
herrann segir síðan að muni
styrkja sig og sinn málflutning
innan flokks, að miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins hlýtur að taka
þetta mál til sérstakrar rannsókn-
ar. Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu sjálfu og
stjórn þess geta heldur ekki látið
sem ekkert hafi gerzt og þeir aðil-
ar hljóta að eiga hlut að slíkri
rannsókn. Þá verður að gera þá
kröfu til miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins, að hún sjái til þess, að
slíkir atburðir endurtaki sig ekki í
þeim prófkjörum, sem framundan
eru og nú hafa verið boðuð i
Vesturlandskjördæmi, Suður-
landskjördæmi og Norðurlands-
kjördæmi eystra.
Prófkjörid
í Vesturlands-
kjördæmi
Athygli hefur vakið, að annar af
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
í Vesturlandskjördæmi, Jósep
Þorgeirsson, hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér til endurkjörs í
prófkjöri flokksins sem framund-
an er í því kjördæmi. Jósep Þor-
geirsson, sem mjög hefur komið
við sögu í málefnum Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu síðustu
tvo áratugi, hefur ekkert viljað
láta hafa eftir sér um ástæður
þess, að hann hefur tekið þá
ákvörðun, að taka ekki þátt í
prófkjörinu og hætta þing-
mennsku.
Þessi þingmaður hefur skipað
stjórnarandstöðulið sjálfstæð-
ismanna á Alþingi. Hins vegar
hefur hann lagt áherzlu á að halda
friðinn innan kjördæmisins, ef svo
má að orði komast, vegna þess, að
samþingmaður hans, Friðjón
Þórðarson, tók þátt í myndun rík-
isstjórnar Gunr.ars Thoroddsens.
Vafalaust hefur Jósep Þorgeirsson
gengið út frá því sem vísu að
dómsmálaráðherra mundi fyrir
sitt leyti leggja sitt af mörkum til
þess að sæmileg eining gæti hald-
izt í kjördæminu. Ér ástæðan
fyrir ákvörðun Jóseps Þorgeirs-
sonar sú, að þessar vonir háns
hafa brugðizt? Fróðlegt væri að
heyra álit Friðjóns Þórðarsonar á
því.