Morgunblaðið - 05.12.1982, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
Gestaleikur í
Þjóðleikhúsinu
SUNNUDAGINN 12. desember nk. kl. 20.00 verdur gestaleikur í Þjódleik-
húsinu. Það er finnska leik- og söngkonan Arja Saijonmaa sem flytur
blandaða dagskrá í tali og tónum, leikin atriði og sungin. Eru þar m.a. verk
eftir Mikis Theodorakis, Bertolt Brecht, Kurt Weill, Márta Tikkanen, Erl-
and Josephson, Jean Sibelius, Lars Huldén, Violeta Parra, Cole Porter og
Berndt Egerbladh. Með Arja Saijonmaa í fór er fimm manna hljómsveit
undir stjórn Egerbladh, en leikstjóri er Vivica Bandler og leikmynd, búninga
og lýsingu gerir Ralf Forström, einn fremsti leikmyndateiknari á Norður-
löndum.
Hópurinn sem kemur hingað til lands. Söng- og leikkonan Arja Saijonmaa.
Dagskrá þessi var saman sett
gagngert vegna Scandinavia To-
day í Bandaríkjunum og er þess
vegna flutt á ensku. Hópurinn
kemur hingað á heimleið frá New
York og sýnir aðeins í þetta eina
skipti. Miðasala hefst sunnudag-
inn 5. desember kl. 13.15.
Arja Saijonmaa leik- og söng-
kona er frá Mikkeli í Austur-
Finnlandi. Hún lærði leiklist,
bókmenntir og tónlist við háskól-
ann í Helsinki og stundaði einnig
nám í Bandaríkjunum. Hún lauk
einleikaraprófi á píanó frá Sibeli-
usar-tónlistarskólanum í Hels-
inki. Hún hefur starfað við ýmis
finnsk leikhús, bæði sem leikari og
söngvari og var um skeið leikhús-
stjóri nemendaleikhúss háskólans
í Helsinki. Hún hefur haldið tón-
leika um alla Skandinavíu og flutt
ein dagskrár á sviði og í sjónvarpi.
Hún söng aðalhlutverkið í óperu
Brecht og Weill Dauðasyndirnar
sjö, í finnsku þjóðaróperunni. Þá
lék hún dóttur Púntila í kvik-
myndinni Púntila og Matti, sem
Ralf Lángbakka gerði eftir sam-
nefndu leikriti Brechts, en sú
kvikmynd var sýnd hér á síðustu
kvikmyndahátíð. Hún lék hlutverk
Önnu Swárd í framhaldsþættinum
Charlotta Löwenskjöld, sem
byggður er á sögu Selmu Lagerlöf
og sýndur var í íslenska sjónvarp-
inu í fyrravetur. Hún hefur sungið
inn á nokkrar hljómplötur í Finn-
landi, Svíþjóð og Vestur-Þýska-
landi. Þá fór hún i hljómleikaför
um heiminn með Mikis Theodor-
akis og starfaði einnig með París-
ar óperunni og ferðaðist með
henni um 14 Asíulönd og kom
ÞJÓNUSTU'
MIÐSTÖÐ
s
^ ÁRTÚNSBREKKA J
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ VÉLADEILDAR SAMBANDSINS KYNNIR
VÖRUBÍLA ■ OG TÆKJAVERKSTÆÐI SITT:
Á þessu nýja verk-
stæði þjónustu-
miðstöðvarinnar sem
er sérhæfí í viðhaldi
og viðgerðum á vélum
frá IH (International
Harvester) er boðið
upp á sömu gæða-
þjónustuna fyrir vöru-
bíla, gröfur, ýtur,
dráttarvélar, lyftara
og aðrar gerðir vinnu-
véla.
Nýjung í smur-
þjónustu hérlendis
Vörubíla- og tækja-
verkstæði þjónustu-
miðstöðvarinnar er
svo í stakk búið að
það getur boðið við-
skiptavinum sínum að
koma með vöru-
bifreiðar sínar ásamt
dráttar- og/eða tengi-
vögnum, ekið þeim
beint í gegnum verk-
stæðið og látið smyrja
bæði bílinn og vagninn
samtímis innandyra.
Á þennan hátt sparast
bæði tími og erfiði
og að sjálfsögðu eru
gæði þjónustunnar
ávallt hin sömu.
Hjólbarðasala
f tengslum við hið
nýja verkstæði
þjónustumiðstöðvar-
GÆÐAEFTIRLIT MF.Ð GÆÐAVÖRUM
innar er hjólbarðasala
þar sem bjóðast allar
stærðir og gerðir hinna
viðurkenndu Yoko-
hama og Franco hjól-
barða fyrir vöru-
flutningabíla á ótrú-
lega góðum kjörum.
<gsVÉlADEILP
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Höfðabakka 9 0 38900
fram á tónleikum í Olympia-höll-
inni í París.
Vivica Bandler er leikstjóri sýn-
ingarinnar. Hún fæddist í Hels-
inki og var aðstoðarleikstjóri við
franskar kvikmyndir fyrir stríð,
m.a. hjá Jacques Feyder og Maur-
ice Cloche. Gegndi herþjónustu
1939-1943. Við nám í Frakklandi
eftir stríðið hjá Jean-Louis Barr-
ault og Louis Jouvet. Leikstjóri við
ýmis leikhús, sjónvarp og útvarp í
Finnlandi 1947—1955. Leikhús-
stjóri Lilla Teatern í Helsinki
1955—67. í stjórn Oslo Nye Teater
í Noregi 1967—69. Leikhússtjóri
Borgarleikhússins í Stokkhólmi
1969—1979. Forseti sænska leik-
listarsambandsins og í fram-
kvæmdanefnd Alþjóðaleiklistar-
sambandsins. Setti nýlega upp
sðyningu á Dramaten í Stokk-
hólmi og leikstýrði kvikmyndinni
Avskedet.
Ralf Forsström gerir leikmynd,
búninga og lýsingu fyrir þessa
sýningu. Hann hefur gert leik-
myndir og búninga fyrir hátt á
annað hundrað sýningar á óper-
um, leikritum og ballettum og
fyrir kvikmyndir og sjónvarp.
Hann hefur verið leikhússtjóri
fyrir Pistol Teater og Sænska
leikhúsið í Abo, yfirleikmynda-
teiknari við Sænska leikhúsið í
Helsinki og Borgarleikhúsið í
Stokkhólmi. Hann starfar nú við
Borgarleikhúsið í Helsinki. Næsta
stóra verkefni hans verður að gera
leikmynd og búninga fyrir frum-
uppfærslu á nýrri óperu eftir Aul-
is Sallinen fyrir Savonlinna-
óperuhátíðina og Covent Garden-
óperuna og BBC-sjónvarpið.
Berndt Egerbladh píanóleikari,
tónskáld, útsetjari og hljómsveit-
arstjóri fæddist í Svíþjóð. Hann
var upphaflega jassleikari og hef-
ur sem slíkur haldið einleikstón-
leika um alla Evrópu, en einnig
leikið með mönnum eins og Dexter
Gordon, Phil Woods og Art Farm-
er. Hann hefur samið tónlist fyrir
fjölmargar kvikmyndir og sjón-
varpsleikrit, en auk þess eru á
hljómplötum um 200 laga hans í
flutningi ýmissa söngvara.
Skáldsaga um
„heitan snjó“
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf.
hefur sent frá sér skáldsöguna „Heitur
snjór“ eftir Viktor Arnar Ingólfsson og
er það önnur skáldsaga höfundarins.
Saga Viktors Arnar er samtíma-
saga og gerist að mestu í Reykjavík,
þótt sögusviðið sé reyndar einnig í
útlöndum, segir í frétt útgefanda og
ennfremur: I bókinni fæst Viktor
Arnar við mál sem segja má að
brenni heitt á mörgum um þessar
mundir — eiturlyfjavandamálið, en
heitur snjór er einmitt það fíkniefni
kallað sem nú stendur mest ógn af,
þ.e. heróínið.
Eftir lestur bókarinnar mun sú
magnþrungna spurning myndast
hvort þvílíkt gerist í raun í Reykja-
vík — hvort slík „dýragarðsbörn"
séu til í raunveruleikanum. Svarið er
til. Það þarf ekki annað en að fylgj-
ast með blaðafréttum til að vita að
allt sem gerist í þessari skáldsögu
gæti verið raunveruleiki."
„Heitur snjór“ er sett, umbrotin,
filmuunnin og prentuð í Prentstofu
G. Benediktssonar en bundin hjá
Arnarfelli hf. Kápuhönnun önnuðust
Karl Óskarsson og Fanney Val-
garðsdóttir.