Morgunblaðið - 05.12.1982, Síða 48
munið trúlofunarhrin^u
litmvndalistann fffl)
#uU $c ásulfur
Laugavegi 35
.^^iglýsinga-
síminn er 2 24 80
SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
Mjög harður
árekstur í
Hveragerði
MJÖG harður árekstur varð í
Hveragerði á föstudagskvöldið,
þegar fólksbíll ók í veg fyrir vöru-
bíi, með þeim afleiðingum, að öku-
maður fólksbílsins var fluttur
töluvert mikið slasaður á Borg-
arspítalann í Reykjavík. Fólksbíll-
inn er gjörónýtur.
Sjónvarps-
kerfi í Vík
NÚ HEFIJR verid lagt sjónvarps-
kerfi í rúmlega helming íhúðarhúsa
í Vík í Mýrdal. Er það áhuga-
mannafélag bæjarbúa, sem staðið
hefur fyrir lagningu kerfisins og er
reiknað með því að stofnkostnaður
verði um 3.000 krónur á notenda.
Að sögn Karls Ragnarssonar,
sem er einn af forvígismönnum
þessa, hefur verið langur aðdrag-
andi að lagningu sjónvarpskerfis-
ins eða um hálft annað ár, en
tveir dagar eru síðan byrjað var
að reyna kerfið og stilla það og
hefur það reynzt vel. Sagði hann
tilganginn þríþættan; að bæta úr
slæmum móttökuskilyrðum sjón-
varps í hluta þorpsins; að ná
FM-útsendingum, stereo-útsend-
ingum, hljóðvarps, og að nota
kerfið hugsanlega sem aðvörun-
arkerfi.
Karl sagði, að fengin yrðu
myndbönd frá Heimilistækjum og
stafaði það meðal annars af því,
að Myndbandaleiga kvikmynda-
húsanna leigði ekki bönd til sjón-
varpskerfa. Það kæmi þorpsbúum
einkennilega fyrir sjónir, þar sem
ekkert kvikmyndahús væri í þorp-
inu og því varla um samkeppni
þar á milli að ræða. Þá væri mik-
ill áhugi á að taka myndir um
þjóðhætti og þjóðlegan fróðleik úr
héraðinu til sýninga í kerfinu.
Vilji maður ekki fara í jólaköttinn er vissara að vera vel til fara á
jólunum. Því flykktust menn í verzlanir í gær, en þá voru þær opnar
Ljósmynd Mbl. RAX.
til klukkan 16, en líklega viðraði víðast betur til innkaupa en á
útimarkaðnum á Lækjartorgi þar sem þessi mynd var tekin í gær.
Einingahúsainnfhitningur-
inn hefiir tvöfaldast í ár
Innflutningur á innréttingum hefur hins vegar aukizt um 161,3 í peningum talid
GÍFURLEG AUKNING hefur orðið á innflutningi húsgagna, innréttinga
og tréeiningahúsa á þessu ári, sem hefur gert innlendu framleiðslunni
verulega erfitt fyrir, m.a. vinna mörg innlendu fyrirtækjanna aðeins á
hálfum afköstum.
til jóla
Verðmæti innréttingainnflutn-
ingsins fyrstu níu mánuðina í ár
er liðlega 28,2 milljónir króna, en
var um 10,8 milljónir króna á
sama tíma í fyrra. Aukningin
milli ára er því liðlega 161,3%,
samkvæmt upplýsingum Hlöðvers
Arnar Ólasonar hjá Landssam-
bandi. iðnaðarmanr.a. Mest er
aukningin í almennum innrétting-
um, eða 490,9%. Innflutningur
málminnréttinga hefur aukizt á
umræddu tímabili' nm 314,5%,
innflutningur á innréttingum úr
tré um 200,9% og innflutningur á
„öðrum" innréttingum hefur hins
vegar aukizt um 132,6%. Innflutn-
ingur á innréttingum úr'stáli hef-
ur hins vegar dregizt saman um
33,6%.
Innflutningur á stólum hefur
aukizt um um 81,6% á þessu ári,
miðað við sama tíma í fyrra. Mest
hefur aukningin orðið á svokölluð-
um „öðrum" stólum, eða um
473,2%. Aukningin á innflutningi
stóla úr málmi hefur aukizt um
193,6% á þessu ári.
Innflutningur á hillum og skáp-
um úr málmi hefur aukizt um
184,2% á árinu. Innflutningur á
borðumúr málmi hefur aukizt um
174,3% það sem af er þessu ári, og
innflutningur á rúmum úr málmi
hefur aukizt um 133,1% á þessu
ári. Innflutningur á hillum og
skápum úr tré hefur aukizt um
61,2% í ár, miðað við sama tímabil
í fyrra. Innflutningur á svokölluð-
um „öðrum" húsgögnum hefur
aukizt um 271,4% á þessu ári.
Þá hefur orðið gríðarleg aukn-
ing á innflutningi einingahúsa úr
tré, eða um um 250,3% fyrstu ‘níu
mánuðina. Verðmæti innflutn-
ingsins í ár er tæplega 24,6 millj-
ónir króna, borið saman við lið-
lega 7 milljónir króna í fyrra. í
tonnum talið er aukningin milli
ára liðlega 104%, eða úr 864 tonn-
um í 1.767 tonn.
Af einingahúsum kom mest frá
Noregi þessa níu mánuði, en það-
an var flutt inn fyrir um 12,4
milljónir króna, sem er um sex-
földum frá sama tímabili í fyrra.
Frá Danmörku voru flutt inn ein-
ingahús fyrir um 10 milljónir
króna, sem er um þreföldun frá
fyrra ári.
Farþegum Flugleiða
frá Bandaríkjunum
hefur fjölgað um 67%
Framsóknarflokkurinn í Norðurlandi vestra:
Uppstillingarnefnd sagði
af sér vegna óeiningar
Uppstillingarnefnd Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
vestra kom saman til fundar á
Sauðárkróki í vikunni til að taka
ákvörðun um skipan framboðslista
flokksins við næstu alþingiskosn-
ingar. Mikil óeining var í nefnd-
inni og endirinn varð sá, að nefnd-
in sagði af sér og vísaði málinu til
kjördæmisþings Framsóknar-
flokksins.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu höfðu Húnvetn-
ingar lagt fram tillögu þess efn-
is, að Páll Pétursson, aiþingis-
maður og formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, yrði færð-
ur úr 1. sæti listans í það 3. Hins
vegar myndi Stefán Guðmunds-
son flytjast upp í 1. sæti og Ing-
ólfur Guðnason upp í 2.
Á fundi uppstillinganefndar-
innar í vikunni kom síðan fram
tillaga frá Siglfirðingum þess
efnis, að Páll Pétursson yrði yf-
irhöfuð ekki á listanum. Loks
kom fram tillaga frá fulltrúum
Skagfirðinga þess efnis, að Iist-
inn yrði óbreyttur.
Eftir miklar umræður varð
síðan ljóst, að samkomulag næð-
ist ekki og sagði nefndin þá af
sér og vísaði ákvörðun um skip-
an framboðslista flokksins til
kjördæmisþings eins- og áður
sagði.
Farþegaflutningar Flugleióa frá
Bandarikjunum til Evrópu hafa auk-
izt um liölega 67% á þessu ári, sem er
mun meiri aukning en oröið hefur
almennt á markaönum, aö sögn Sig-
fúsar Erlingssonar, forstöóumanns
Vestursvæðis Flugleióa, en hann hef-
ur aósetur í New York.
Sætaframboð félagsins var aukið
um í kringum 37% á þessu ári og
stefnt er að því, að auka það um
30—33% á þessu ári. Sætaframboð
hefur því verið aukið um í námunda
við 80% á tveimur árum.
Aðspurður um ástæður þessarar
miklu aukningar sagði Sigfús að
þar kæmu nokkrar ástæður til.
„Gengisþróunin hefur gert mun
hagstæðara fyrir Bandaríkjamenn
að ferðast til Evrópu en verið hefur
um árabil. Við höfum aukið sölu-
starfsemi okkar verulega og það
sem hefur kannski ekki sízt haft
áhrif á þessa hluti, er að tiltrú fólks
á Flugleiðum hefur aukizt gífurlega
á síðustu tveimur árum og staðan
því styrkzt að sama skapi. Eg tel, að
félagið sé í raun búið að ná fyrri
tiltrú farþega á því, en eins og
kunnugt er áttum við mjög undir
högg að sækja á erfiðleikaárum fé-
lagsins í lok síðasta áratugar og
fram á árið 1980,“ sagði Sigfús Erl-
ingsson.
Aðspurður um fargjöldin sagði
Sigfús þau vera of lág vegna sam-
keppninnar, sem væri ennþá tölu-
vert erfið. „Ég tel að fargjöld þyrftu
að hækka um á bilinu 10—12% til
að verða raunhæf. Það bendir hins
vegar ekkert til þess að þau hækki
neitt á næstunni, eða ekki fyrr en
undir páska sem eru óvenju
snemma að þessu sinni, í marz. Það
hefur enginn áhuga á að selja
páskaferðirnar á þessum lágu far-
gjöldum," sagði Sigfús Erlingsson.
Sigfús Erlingsson sagði að fyrir-
frambókanir væru betri á næsta ári
en í ár. ^
I vetraráætlun eru flognar fimm
ferðir milli Bandaríkjanna og Evr-
ópu, en með sumaráætlun, sem
hefst 26. marz nk., verða ferðirnar
16 í viku. Sigfús Erlingsson sagði,
að ferðatíðnin væri með þessu að ná
fyrra hámarki ef undan er skilið
tímabilið fyrir sameiningu Loft-
leiða og Flugfélagsins, þegar eitt
árið var farin 21 ferð í viku.