Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 39 Brennuvegur 8, sjálfsævisaga Hen- riks Tikkanens ÚT ER komin á vegum 15- unnar bókin Brennuvegur 8, Brennu, sími 35 eftir finnska höfundinn Henrik Tikkanen. Ólafur Jónsson þýddi. Bók þessi er fyrsti hluti sjálfsævisögu höfundar sem er sænskumælandi Finni. Segir hann hér frá bernsku sinni og unglingsárum á eynni Brennu úti fyrir Helsingfors. „Hann er sprottinn af fjölskyldu betri borgara og lýsir hér lífi hennar eins og það var undir fáguðu yf- irborði," segir m.a. í kynningu forlags á kápubaki. Henrik Tikkanen er fæddur ár- ið 1924 og er kunnur rithöfundur Henrik Tikkanen BRENNUVEGUR 8 BRENNU SÍMI 35 og myndlistarmaður. Brennuveg- ur 8 er fyrsta bók hans sem út kemur á íslensku. Bókin er 130 blaðsíður. Prenttækni prentaði. Sagnaþætt- ir mjólkur- bílstjóra á Suðurlandi BÓKAFORLAG Odds Björnssonar Akureyri hefur gefið út bókina Ysjur og austræna, sem er fyrsta bindi sagnaþátta mjólkurbílstjóra á Suður- landi. í bókinni eru skráðir 27 sagna- þættir eftir mjólkurbílstjórum og fleirum. Á bókarkápu segir m.a. um mjólkurbílstjórana; „Hér áður fyrr fluttu þeir mjólkina frá bændum til mjólkurbúa, eins og enn þann dag í dag, en þeir gerðu meira; þeir út,- réttuðu fyrir bændur, keyptu fyrir þá áburð, mat og jafnvel tvinna og saumnálar fyrir húsfreyjurnar. Stundum þurftu þeir að borga víxla og þannig voru þeir í senn sendlar Sagnaþættir mjólkurbílstjóra á Suðurlandi 1. bindi og bjargvættir bændanna. Þeir börðust áfram í hríð og ófærð og lögðu nótt við dag til að koma varn- ingi sínum í áfangastað." Bókin er 360 blaðsíður. í henni eru ljósmyndir og nafnaskrá. Bókin er unnin hjá Prentverki Odds Björnssonar hf. Fööurland vort hálft er hafiö i Bókaúlgáfa /MENNING4RSJÖÐS Skálholtsstíg 7 - Reykjavík Út er komið annað bindi hins mikla ritverks Lúðvíks Kristjánssonar um íslenska sjávarhætti, en fyrsta bindi þess kom út 1980 og hlaut mikla athygli og viðurkenn- ingu. Meginkaflar þessa bindis eru: Verstöðvatal, íslenski árabáturinn, Vertíðir, Verleiðir og verferðir, Verbúðir og Mata og « mötulag. í bátakaflanum eru 363 myndir, smíða- teikningar og yfirlitsteikningar báta, skýringamyndir og Ijósmyndir. Ókunnugt er, að fyrr eða annars staðar hafi því efni verið gerð viðlíka skil. Alls eru í bókinni 482 myndir, þar af milli 50 og 60 litmyndir. MICROMA | er framtíðarúrið þitt | - því getur þú treyst. | Þetta er aðeins hluti af úrvalinu. MK IIII Sl N I w áæþlónusta | FRANCH MICHELSEN URSMiOAMEISTARI = LAUGAVEGI39 SIM113462 .........................................................................................................................................................................................................Hllllllllllllllllllll.lll.llll..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.