Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 Utvegsmenn á Norðurlandi: Ríkisstjórnin standi við gefín fyrirheit ÚTVEGSMENN á Norðurlandi komu saman til fundar á Akureyri síðastliðinn laugardag og lögðu með- al annars áherzlu á, að ríkisstjórnin stæði við skuldbindingar sínar varð- andi skuldbreytingu, sem næmi 10% af vátryggingarverði skipa. Eins og kunnugt er af fréttum voru útvegs- menn á llúsavik komnir í vandræði vegna olíuskulda, en því máli hefur nú verið kippt í lag í bili. Vegna þessara mála ræddi Morgunblaðið við Sverri Leósson, formann Utvegsmannafélags Norðurlands. Sagði hann, að þetta hefði verið líflegur fundur og skuldbreytingin megin efni hans. Sagði hann, að skuldbreytingin væri aðeins tímabundin björgun- araðgerð. Það sem megin máli skipti væri, að um áramótin yrði gengið þannig frá málum að rekstrarskilyrði útgerðarinnar væru tryggð og menn gætu þá staðið við skuldbindingar sínar. Ef ekki yrði tekið á þessum málum af festu stöðvaðist útgerð í landinu. Vandanum yrði ekki endalaust fleytt á undan sér. Þá yrði það að fara að koma í ljós hverjir stæðu sig og menn yrðu þá að standa frammi fyrir áætlunum sínum sjálfir. Nauðsynlegt væri að í þessum málum yrði jafnrétti kom- ið á og ef svo yrði færu hlutirnir væntanlega að lagast, þegar í ljós kæmi hverjir stæðu sig og hverjir ekki og mál þróuðust í samræmi við það. Hér fer á eftir samþykkt fundar útvegsmanna á Norðurlandi: „Fundur í Útvegsmannafélagi Norðurlands, haldinn á Akureyri laugardaginn 11. desember 1982, tekur undir ályktun stjórnar LIÚ frá 8. desember síðastliðnum, þar sem skorað er á ríkisstjórnina að standa við gefin fyrirheit um skuldbreytingu til viðskiptaaðilja útgerðarinnar, sem ekki nemi lægri upphæð en 10% af vátrygg- ingarverði skipanna ásamt því að rekstrarskilyrði útgerðarinnar verði bætt frá næstu áramótum, þannig að hægt verði að greiða rekstrarkostnað útgerðarinnar og standa í skilum með greiðslur á uppsöfnuðum vanskilum, skuld- breytingalánum og öðrum lánum, sem á útgerðinni hvíla." Byssan munduð. Enn eru hinar nýju byssur Landhelgisgæzlunnar í geymslu hennar, en hér má sjá einn starfsmanna hennar við eina af byssunum fimm. I.josmynd Mbl. ÓI.K.M. Landhelgisgæzlan fær nýjar byssur LANDHELGISGÆZLAN hefur nú fengið til landsins nýjar byssur fyrir varðskipin. Eru þær af Bofors-gerð og upphaflega upprunnar í Banda- ríkjunum, en hingað fengnar frá danska sjóhernum. Eru þær nokkuð gamlar eða frá síðari heimsstyrjöld- inni, en nýuppgerðar. Að sögn Gunnars Bergsteins- sonar, forstjóra Landhelgisgæzl- unnar, voru byssurnar notaðar af danska sjóhernum, sem hafði þær á láns- og leigukjörum frá Banda- ríkjunum. Eftir að danski herinn hætti að nota þær hefði verið hægt að fá þær á mjög góðum kjörum og nýuppgerðar fra hon- um. Gunnar sagði ennfremur, að þetta hefði átt sér langan aðdrag- anda, enda væru núveradi byssur skipanna orðnar mjög gamlar og erfitt að fá í þær skotfæri. Því hefði verið farið að huga að þessu fyrir allnokkru og þó nýju byss- urnar væru nokkuð gamlar væru þær mjög víða í notkun og því auð- velt að fá í þær varahluti og skot- færi. Ekki væri ljóst hvenær skipt yrði um byssur og hann vonaði, að ekki þyrfti að nota þær mikið, þær væru að minnsta kosti ekki keypt- ar vegna hugsanlegra átaka á sviði gæzlunnar. Mývatnssveit: Vel heppnuö Lúsíuhátíð Karlakórs Akureyrar Mývalnssveit, 13. desember. KARLAKÓR Akureyrar var í gær með Lúsíuhátíó í Skjólbrekku kl. 13. Alls tóku á milli 60—70 manns þátt í þessari samkomu, bæði karlar og konur. Söngstjóri var Guðmundur Jóhannsson, undirleikari Ingimar Eydal. Einsöngur: Inga Maria Eyj- ólfsdóttir, Helga Alfreðsdóttir og Óskar Pétursson. Efnisskráin var fjölbreytt, bæði andleg og veraldleg lög. Var lista- fólkinu frábærlega vel tekið af áheyrendum, sem hefðu mátt vera miklu fleiri. Varð að endurtaka mörg lög. Að lokum sungu allir saman „Heims um ból“. Þetta var sannarlega mikill tónlistarviðburður hér og má raunar svo að orði kveða, að hann lýsi upp bláskammdegið. Ber að þakka þessu ágæta fólki fyrir ánægjulega dagstund, sem lengi verður þeim minnisstæð sem viðstaddir voru. Kristján MorgunblaðiA/ Ólafur í Egilsstaðakirkju. Frá aðventutónleikunum Egilsstaðir: Aðventutónleikar EKÍIsNlöðum, 11. desember. í GÆR hélt Tónkór Fljótsdalshér- aðs aðventutónleika í Egilsstaða- kirkju. Efnisskráin tók vitanlega mið af tilefni tónleikanna, aðvent- unni, og voru bæði flutt verk er- lendra og innlendra höfunda. Kórnum til aðstoðar voru klarinettuleikararnir Armann Ein- arsson og I.udwig Eckhard og sell- óleikararnir Katrín Magnúsdóttir og Ruth Magnúsdóttir. Undirleik- ari með kórnum var Kristján Giss- urarson — sem jafnframt lék ein- leik á orgel kirkjunnar. Ennfremur léku þeir Jón Ólafur Sigurðsson og David Knowles einleik á kirkju- orgelið. Tónkór Fljótsdalshéraðs hóf nýlega sitt 12. starfsár — en kór- inn hefur starfað nær óslitið frá haustnóttum 1971 undir stjórn Magnúsar Magnússonar, skóla- stjóra Tónskóla Fljótsdalshér- aðs. Kórinn æfir að jafnaði tvisvar í viku yfir vetrarmánuð- ina og hefur frá upphafi haft að- stöðu til æfinga í Egilsstaða- skóla. Tíðindamaður Morgun- blaðsins náði sem snöggvast tali af formanni kórstjórnar, Einari Halldórssyni, að afloknum tón- leikunum í gærkvöldi. „Starf okkar sem af er vetri hefur að mestu farið í æfingar fyrir þessa aðventutónleika," sagði Einar. „Hvað síðan tekur við skal ósagt látið, en við höfum hingað til verið óþreytt til tón- leikahalds og ferðalaga," bætti hann við. Þess skal getið í þessu sam- bandi, að Tónkór Fljótsdalshér- aðs hefur víða haldið tónleika á starfsferli sínum. Má þar til nefna stærstu þéttbýlisstaði inn- an fjórðungs, Akureyri og Reykjavík. Þá hélt Tónkórinn upp á 10 ára starfsafmæli sitt með söngferðalagi til Danmerk- ur og Noregs. I Noregi söng kór- inn á Eiðsvöllum, en í Danmörku í Kaupmannahöfn og Soro. í Kaupmannahöfn söng kórinn í Grundtvigskirken 10. júní 1981 og var til þess tekið að hartnær 300 manns sóttu þá tónleika. Kórinn fékk mjög góðar undir- tektir í þessari fyrstu utanlands- ferð sinni. Þá hefur Tónkórinn komið fram í Ríkisútvarpinu. Fjölmenni var á tónleikunum í gærkvöldi og flytjendum mjög vel tekið. — Ólafur Ráðherraskipuð rannsóknarnefnd: Styrkja þarf samgöngu- þætti á Norðurlandi Samræma má ferðir skóla- og póstbifreiða Ráðherraskipuð nefnd hefur kom- izt að þeirri niðurstöðu að gera þurfi bragarbætur á samgöngukerfi Norð- lendinga til að stuðla að auknum samskiptum og samvinnu milli svæða í landshlutanum. Nefndin leggur m.a. til að komið verði upp þrennskonar flutningamiðstöðvum í Norðlendingafjórðungi. Austurland: Tólf bjóða sig fram 1 profkjor Framsóknarmanna TÓLF manns gefa kost á sér í opið prófkjör Framsóknar- flokksins í Austurlands- kjördæmi, sem fram fer dag- ana 29. og 30. janúar. Þeir eru: Aðalsteinn Valdimars- son, Eskifirði, Einar Bald- ursson, Reyðarfirði, Guð- mundur Þorsteinsson, Fá- skrúðsfirði, Guðrún Tryggva- dóttir, Egilsstöðum, Hafliði Pálsson Hjarðar, Hjarðar- haga, Halldór Asgrímsson, Höfn, Hermann Guðmunds- son, Vopnafirði, Jón Krist- jánsson, Egilsstöðum, Sveinn Guðmundsson, Sellandi, Sveinn Sighvatsson, Höfn, Tómas Árnason, Kópavogi. Þórdís Bergsdóttir, Seyðis- firði. í fyrsta lagi almennum vöru- og pakkaafgreiðslum, sem opnar verði alla virka daga, á Akureyri og Húsavík. í annan stað flutn- ingamiðstöðvum, „sem heppi- legast er að reka í tengslum við sjálfstæða veitingaþjónustu", á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Sauðárkrók, Varmahlíð, Blönduósi og Staðarskála í Hrútafirði. í þriðja lagi miðstöðvar, með lág- marksþjónustu og aðstöðu fyrir ferðamenn, á Þórshöfn, Raufar- höfn, Kópaskeri, Mývatnssveit, Grenivík, Hofsósi, Skagaströnd og Hvammstanga. Nefndin telur að í ýmsum til- fellum aki póstbifreiðir og skóla- „ÉG HEF ekki tekið neina ákvörðun um hvort ég sæki um stöð- una aftur,“ sagði Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri, er Mbl. innti hann eftir, hvort hann myndi sækja um stöðu þjóðleikhússtjóra á ný, en hún hefur verið auglýst laus til umsóknar frá 1. janúar nk. Umsóknarfrestur rennur út 29. desember nk. Samkvæmt lögum er ráðn- ingartími þjóðleikhússtjóra fjögur ár og rennur ráðningartími Sveins bifreiðir svipaðar leiðir á svipuð- um tíma dags og þar megi koma við samræmingu. Skólaflutningar á Norðurlandi 1981 kostuðu kr. 6.820.000.- Á sama tíma greiddi Póst- og símamálastofnunin kr. 2.987.000.- fyrir póstdreifingu út frá póststöðum. Þá kom fram í áliti nefndarinn- ar að vöruflutningar á sjó frá Reykjavík til hafna á Norðurlandi hafa ekki verið nægilega reglu- bundnir. Einnig sé þörf á beinum vöruflutningum frá öðrum löndum til hafna á Norðurlandi. Nefndin var skipuð fulltrúum ráðuneytis, Fjórðungssambands Norðlendinga, Áætlunardeildar Framkvæmdastofnunar, auk sér- hæfðra ráðunauta. út um áramótin. Sveinn sagði að samkvæmt lögum veitti mennta- málaráðherra stöðuna. Þar er og gert ráð fyrir að fráfarandi þjóð- leikhússtjóri sé í starfi með nýjum fyrstu mánuðina. Sveinn sagði í lokin að það væri alls óljóst, hvort hann myndi sækja um annað ráðningartímabil, eða hvort hann hlyti starfið á ný ef hann sækti um það. Staða Þjóðleikhússtjóra laus til umsóknar: Ekki tekið ákvörðun um hvort ég sæki um stöðuna — segir Sveinn Einarsson Þj'óðleikhússtj’óri, en ráðningartími hans rennur út um áramótin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.