Morgunblaðið - 26.02.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.02.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983 "FÉLflól HNOROPOV SEfilR RE> VIÐGCTUM HflFT Þffi) JRFNVEL BETRR" Mótmælin gegn hvalveiðum hafa áhrif: Norskur freðfiskmarkaður í Bandaríkjunum Fimm milljón dala samningi Frionor viö Long John Silver sagt upp Krá J.tn Krik [,aun í ()sln. uni. Sai»l hcfur verió upp cins árs samningi að andvirði fimm milljónir dollara, cða um l(HI milljónir ísi. Króna. við dólturfyrirtæki norska stórfyrirt;ckisins Frionor í Itandaríkjunum. I*ar mcð cr frcðfiskmarkaður Norðmanna í Bandaríkjunum í ha'ttu. Samninj;urinn var við veitinga- húsakeðjuna Long John Silver, sem vildi ekki halda áfram Viðskiptum við Frionor vegna hótana hvalvernd- unar- og annarra náttúruverndun- armanna um að hætta að skipta við fyrirtæki, sem selja fiskafurðir frá hvalveiðiþjóðum. Ástæðan til þessara hótana nátt- úruverndunarmanna var sú að Norð- menn ætla að halda áfram hvalveið- um með köldum skutlum eftir 15. apríl, þegar bann Alþjóðahvalveiðir- áðsins við hvalveiðum á þann hátt gengur í gildi. Norðmenn hafa einnig mótmælt algeru banni við hvalveið- um frá 1986. Félagsskapurinn „The Humane Society of USA“ (Mannúðarfélagið) hefur sent félagsmönnum bréf, sem gerir flestum kleift að bera kennsl á fisk frá hvalveiðiþjóðum. Thor Listau sjávarútvegsráðherra segir að harma beri sé sagt upp stór- um samningum við norsk fyrirtæki vegna afstöðu Norðmanna til hvalv- eiða. „Við ræðum nú hvalveiðimálið við bandarísk yfirvöld og vonumst til að finna lausn, sem leiði til þess að Bandaríkin setji ekki opinbert bann á norskar fiskafurðir.“ Málið var rætt við bandarísk yfir- völd þegar K°are Willoch forsætisr- áðherra var í Bandaríkjunum fyrir er í hættu skömmu. Norðmönnum fannst t.d. formaður utanríkisnefndar Öld- ungadeildarinnar, Charles Percy, sýna mikinn skilning á rökum Norð- manna fyrir því að hvalveiðum yrði haldið áfram. Hins vegar er nafn Percys efst meðal undirskrifta undir óvenjuharðorðu bréfi til bandaríska viðskiptaráðuneytisins þar sem krafizt var refsiaðgerða gegn hvalv- eiðiþjóðum. Uppsögn Long John Silver á sam- ningnum við Frionor hefur hleypt illu blóði í virka stuðningsmenn hvalveiða, sem hugsa sér nú til hreyfings. Frionor seldi í fyrra freðfisk að verðmæti 72 milljónir norskra króna (um 194 millj. ísl. kr.) á Bandaríkj- amarkað og gerði ráð fyrir að selja fyrir 100 milljónir króna (um 440 millj. ísl. kr.) á þessu ári. Long John Silver, sem hótanir hvalverndun- armanna beindust fyrst og fremst gegn, hefur keypt 15% af afurðum Frionor í Bandaríkjunum. Heildarfiskútflutningur Norð- manna til Bandaríkjanna nam 396 milljónum norskra króna (rúmum einum milljarði ísl. kr.) í fyrra. Þar af var seldur freðfiskur fyrir 207 milljónir norskra króna (rúml. 540 millj. ísl. kr. Mengele segist hafa verið verk- færi annarra Ekki er óhugsandi, að draumur Simons W'iesenthals nasistaveiðara að góma „Kngil l)auðans“, Josef Mengele, verði að veruleika, því engillinn er fundinn. I»að var franskur fréttamaður sem hafði upp á Mengele, sem nú er 72 ára gamall, í auðnum Paraguay. ERLENT. Kínverjar og Sovétmenn taka upp þráðinn á ný l’eking, 25. febrúar. AP. HÁTTSETTUR sovéskur embættismaður, Alexandcr Bovin, hélt í dag áleiðis heim frá Kína eftir hálfsmánaðarlanga dvöl þar í landi og viðræður við kínverska ráðamenn. Viðræður Kínverja og Sovétmanna um samskipti land- anna eiga að hefjast á ný í Moskvu á sunnudag. Talið er víst, að Bovin haldi rakleiðis á fund Yuri Andropov til að skýra frá því sem honum og kínversku ráðamönnunum fór á milli. Heimsókn Bovin til Kína hefur lýst á þann hátt, að sá sov- éski hafi „snuðrað" mikið, en orðið lítt ágengt. Kínverjar bundu árið 1979 enda á formlegar viðræður við Sovét- menn um samskipti landanna, sem hafa verið stirð um árabil, þegar sovéski herinn réðist inn í Afganistan. Talið er, að viðræðurnar á milli Kínverja og Sovétmanna í Moskvu á sunnudag snúist fyrst og fremst um gagnkvæmar aðgerðir í þá átt að draga heri sína frá landamær- unum, en Kínverjar hafa ítrekað lýst yfir áhyggjum sínum að und- anförnu vegna sovésks herafla við landasmærin. Ennfremur er talið, að viðskipti, tækniþróun, íþróttir, menntunarmál og eitt og annað beri á góma í viðræðum full- trúanna. Hefndaraðgerðir Hópur reióra franskra vínbænda safnaöist fvrir nokkru saman á brú skammt frá Narbonnc og veltu bifreiö ofan á stafla af brcnnandi hjófbörðum til þess að láta í Ijós óánægju sína meö innflutning á ítölskum vínum. Fréttamaðurinn átti viðtal við Mengele og bar hann sig aum- lega. „Ég er ekkert annað en blóraböggull Júðanna, þeir gera sér ekki grein fyrir að ég var bara peð sem stjórnað var frá æðri stöðum. Adolf Eichman er sökudólgurinn, hann var sjalfur gyðingur, en stóð samt fyrir fjöldamorðunum. Sjálfum var honum stillt upp í sinni stöðu fyrir tilviljun. Það var einungis vegna þess að hann talaði tungu gyðinga." Mengele er sjálfur sagður bera ábyrgð á dauða 250.000 gyðinga. Hann er læknir að mennt og í gereyðingarbúðunum vasaðist hann í umfangsmiklum rannsóknum á því hversu mikið mannslíkaminn þoldi. Hann lét klæðalausa vannærða gyðinga síga ofan í jökulkalt vatn, gaf öðrum bensín í æð og þannig mætti áfram telja. Enginn hinna 250.000 gyðinga sem Mengele sá fyrir lést fyrr en eft- ir óhugnanlegar pyntingar. Ollum ríkisstarfsmönnum gert að stunda líkamsrækt Aa(;an, (>uam, 25. febrúar. AP. VÍÐA KREPPIR skórinn aö í þeirri cfnahag.slægö, scm nú ríkir víöast hvar í hciminum. Ástandiö á eynni Guam í Kyrrahafinu er kcimlíkt því sem víðast gcrist. Því vakti það litla athygli þeg- ar ríkisstjórinn á Guam, Ricardo Bordallo, fyrirskipaði stjórn eyj- arinnar í vikunni að herða sult- arolína. Viðbrögð fólks snerust hins vegar upp í forundran er í ljós kom, að fyrirskipun ríkis- stjórans var bókstaflegrar merkingar. Bordallo lét yfirmenn ríkisins í vikunni útbúa æfingapró- gramm fyrir sjálfa sig og starfs- menn þeirra og framvegis verður þeim gert skylt að stunda lík- amsrækt. Reglulegt eftirlit verð- ur og haft með líkamsþunga starfsmanna. Æfingar þessar eiga að hefj- ast um miðjan næsta mánuð og til þess að auka á áhuga manna verður komið á sérstökum mót- um þar sem menn úr ýmsum greinum ríkisrekstrarins koma saman og etja kappi saman. Um 100.000 manns búa á eynni og ríkið er stærsti vinnuveitand- inn. Segir Bordallo ákvörðun sína um líkamsræktina byggða á því, að tölur hafi sýnt, að starfsmenn séu afkastameiri í vinnu séu þeir vel á sig komnir líkamlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.