Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
3
Rauða stjarnan ræðst á Geir Hallgrímsson:
„Ráðherrann er afar
hallur undir NATO“
ÁRÓÐURSSKRIFSTOFA sovéska sendiráðsins í Reykjavík, Novosti,
dreifði í gær í íslenskri þýöingu árásargrein á Geir Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra, sem birtist í Rauðu stjörnunni, málgagni sovéska hersins,
fimmtudaginn 30. júní. Tilefni árásarinnar eru ummæli utanríkisráðherra
um kjarnorkuhótanir Sovétmanna í garð íslands sem birtust í Rauðu
stjörnunni 21. júní síðastliðinn.
f greininni frá 21. júní er því
haldið fram, að ráðamenn í
Washington séu að breyta ís-
landi, Noregi og Danmörku í
árásarstöðvar á Sovétríkin og
síðan er löndunum þremur hótað
með því að Sovétríkin muni gera
á þau kjarnorkuárás. Athyglis-
vert er að í greininni frá 30. júní
segir Rauða stjarnan, að hótan-
irnar í garð landanna þriggja
eigi rætur að rekja til „stað-
reynda" sem meðal annars hafi
birst í ísienskum blöðum. í því
efni er ekki öðru blaði til að
dreifa en Þjóðviljanum, en það
hefur löngum tíðkast í Sovét-
ríkjunum að vitna í það blað eða
talsmenn Alþýðubandalagsins
eins og Mr. 0. Grímsson (ólaf R.
Grímsson) fyrrum þingmann Al-
þýðubandalagsins því til stað-
festingar að réttmætt sé að hóta
íslendingum öllu illu.
Morgunblaðið birtir hér í heild
greinina úr „Krasnaja Zvezda",
Rauðu stjörnunni, sem áróð-
ursskrifstofa sovéska sendiráðs-
ins dreifði til íslenskra fjölmiðla
í gær:
Til hvers eiginlega?
„Undanfarna daga hefur Geir
Hallgrímsson, utanríkisráðherra
íslands, verið svo virkur, að
undrun sætir. Það leikur enginn
vafi á því, að ráðherrann er afar
hallur undir NATO, en engu að
síður heldur hann því ákaft á
lofti. Fyrir skömmu var haft við
hann viðtal í útvarpi og voru
brot úr því birt í Morgunblaðinu.
Þar lýsti ráðherrann m.a. yfir
óánægju sinni með greinina „í
hlutverki „tindáta". Norður-
Evrópa í árásaráætlunum
NATO“, sem birtist í „Krasnaja
Zvezda" þann 21. júní. Hann hélt
því fram, að þessi grein gerði
Dani, Norðmenn og íslendinga
hrædda og hvetti þessi lönd til
að ganga úr NATO, en Sovétrík-
in reyndu sjálf að fylla það
tómarúm, sem við það mundi
myndast. Ráðherrann sagði
meira að segja, að skrif sovéska
blaðsins væru ekki í anda frið-
FRÉTTAÞJÓNUSTA
samlegra samskipta milli þjóða.
Við minnum á það, að í grein-
inni var verið að fjalla um stað-
reyndir — aðgerðir og áætlanir
um að gera Danmörku, Noreg og
ísland að stökkpalli fyrir árásar-
aðgerðir gegn Sovétríkjunum og
löndum hins sósíalíska smfélags
— staðreyndir, sem teknar eru
upp úr erlendum blöðum, þar á
meðal íslenskum. Og staðreyndir
verða ekki hraktar. Slík stað-
reynd er notkun bandarískra
herstöðva á íslandi í árásaráætl-
unum NATO. Og það er engin
tilviljun, að verið er að undirbúa
stækkun eldsneytisgeyma til að
sjá þessum stöðvum fyrir elds-
neyti, eins og skýrt er frá í ís-
lenskum blöðum.
Sovétríkin hafa aldrei hrætt
neinn. Það er andstætt sovéskri
utanríkisstefnu. Sovétríkin eru
fylgjandi því, að Norður-Evrópa
verði gerð að kjarnorkulausu
svæði og um það vitna hinar
nýju tillögur Sovétríkjanna, sem
J. Andropov, aðairitari mið-
stjórnar KFS og forseti Æðsta
ráðs Sovétrikjanna, setti fram í
nýlegum viðræðum æðstu
manna Sovétríkjanna og Finn-
lands. Framkvæmd þessarra til-
lagna.sem einnig var rætt um í
greininni í „Krasnaja Zvezda“
verða fyllilega í samræmi við
anda friðsamlegra samskipta
milli þjóða.
Hvers vegna þurfti utanríkis-
ráðherrann að láta í ljós
óánægju sína með skrif sovéska
blaðsins? Það er sagt, að með því
sé hann að reyna að skapa hag-
stæðan áróðursgrunn fyrir fyrir-
hugaða heimsókn Bush, vara-
forseta Bandaríkjanna til ís-
lands í byrjun júlí, sem er búinn
að fara í heimsókn til Bretlands
og Vestur-Þýskalands. Alls stað-
ar hefur varaforsetinn hvatt til
frekari aukningar hernaðarund-
irbúnings.
G. Ivanov, „Krasnaja Zvezda"
30.6.1983“
Doktorsritgerð
íslendings vekur
athygli í Svíþjóð
Þann 13. maí sl. varði Gfsli H. Sig-
urðsson, sérfræðingur f svæfingar- og
gjörgæslulækningum doktorsritgerð
sína við háskólann í Lundi. Doktors-
rit Gísla heitir Svæfingar á börnum
með enflurane- og halotane-lyfjum.
Hjartsláttartruflanir og viðbrögð
spennu undir aðgerð við kirtlatöku í
nefí og hálsi.
Ritgerðin hefur vakið athygli í
Svíþjóð, því greint hefur verið frá
henni í útvarpi og dagblöðum, s.s. í
Málmey og Stokkhólmi. Þannig
segir í Svenska Dagbladet 14. maí,
að með hinni nýju svæfingaraðferð
minnki hætta fyrir barn, sem skor-
ið er upp í hálsi eða nefi, á að verða
fyrir hjartatruflunum, en svæf-
ingaraðferð þessi hafi verið að þró-
ast á svæfingardeild sjúkrahússins
í Lundi síðan á árinu 1980 undir
handleiðslu Gísla Sigurðssonar. Þá
er þess getið, að mörg dæmi séu til
þess, að börn, sem annars hafi ver-
ið vel hraust, hafi látist af svæfing-
um við slíkar aðgerðir, án þess að
hægt hafi verið að skýra það. Síðan
þessi aðferð hafi verið upptekin,
hafi færri börn orðið fyrir hjarta-
truflunum en áður. Loks segir, að
við eldri svæfingaraðferðir, hafi
hjartatruflanir komið í ljós hjá allt
að 40 af hundraði tilfella og í 15%
tilfella hafi verið um alvarlegar
truflanir að ræða. — Þá segir, að
aðferð þessi, sem Gísli hafi viðhaft
og prófað, hafi vakið athygli í öllu
landinu og að farið verði að nota
Doktor Gfsli H. Sigurðsson
hana við mörg sjúkrahús þegar á
þessu sumri.
Gísli H. Sigurðsson er fæddur á
Akureyri 22. janúar 1949. Hann út-
skrifaðist úr læknadeild HÍ 1976 og
fór til sérnáms í læknisfræði í
Lundi 1977. Hann lauk sérnámi í
svæfingar- og gjörgæsludeildar-
lækningum um sl. áramót, en hefur
jafnhliða unnið að doktorsritgerð-
inni. Gísli er giftur Birnu Hjalta-
dóttur frá Akranesi og eiga þau
þrjú börn. Foreldrar hans eru
hjónin Þorbjörg Gísladóttir og Sig-
urður M. Helgason.
Dauði minkahvolpanna:
Líklega fóðureitrun
-segir Eggert Gunnarsson, dýralæknir á Keldum
„Við höfum krufíð um 30 minka-
hvolpa frá þessum þremur búum í
Suður-Þingeyjarsýslu en engin merki
hafa fundist um sjúklegar breytingar
á dýrunum.
Það bendir því allt til að þeir
hafi drepist úr einhverskonar eitr-
un, líklega fóðureitrun, þó ekki sé
hægt aö slá neinu föstu um það,“
sagði Eggert Gunnarsson, dýra-
læknir á tilraunastöðinni á Keld-
um, í samtali við Mbl. í gær, er
hann var inntur eftir niðurstöðum
rannsóknar á dauða um þúsund
minkahvolpa á þremur loðdýrabú-
um í Suður-Þingeyjarsýslu.
Eggert sagðist ekki hafa fengið
nein fóðursýni að norðan og væri
því erfitt um vik að meta hvar eitr-
unin hefði myndast. Sagði hann að
þetta atvik sýndi mönnum að koma
þyrfti á reglubundnu eftirliti með
fóðri loðdýra og fóðureldishúsum,
því í þessari búgrein væru miklir
fjármunir í húfi. Sagði hann að
nauðsynlegt væri að taka sýni úr
hverri einustu fóðurlögun og
geyma til rannsóknar síðar ef at-
vik sem þetta kæmi til.
KVÖLDSÝNING
fimmtudaa
Nú breytum við til og höldum bílasýningu
til klukkan 10 í kvöld.
Við bjóðum ykkur að koma og skoða
verðlaunabílana
MAZDA 626 og MAZDA 323
og ennfremur úrval affyrsta flokks
notuðum MAZDA bílum,
sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð.
Hr Reynsluakið MAZDA 626 og kynnist af
eigin raun afhverju hann varkosinn bíll
ársins bæði í Japan og Bandaríkjunum
Sjáið hvernig bensínsparnaðarmælir
vinnur
ÍT Prófið MAZDA 323, rúmbesta og
fallegasta bílinn í sínum stærðarflokki
og sem er mest seldi japanski bíllinn í
allri Evrópu
Að þessu loknu er síðan hægt að ræða málin
yfir kaffibolla. Ekkert sjón varp í kvöld
— Afhverju ekki að bregða sér á
kvöldsýninguna? Verið velkomin!
Í1 n B Zl oa
Mest fyrir peningana!
BlLABORG HF.
Smiöshöföa 23 sími 812 99