Morgunblaðið - 07.07.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
23
Sprengingin í bandaríska sendiráðinu í Beirút:
Segja 16-manna samsæri sendi-
ráðsstarfsmanna vera orsökina
Lundúnum, 6. júlí. AP.
BRESKA sjónvarpsstöðin ITN
greindi frá því í gær, aö sprenging-
in í bandaríska sendiráöinu í Beir-
út 18. aprfl síöastliöinn, sem
grandaöi meira en 60 mönnum,
hefði ekki veriö verk hryöju-
verkamanns sem ók bifreið hlaö-
inni sprengiefni á bygginguna,
heldur hefði verið um samsæri 16
starfsmanna sendiráðsins að ræöa
og enginn þeirra hefði látist eða
náðst eftir ódæðið.
Sjónvarpsstöðin greindi ekki
frá því hvaðan hún hefði heim-
ildir sínar, en lagði áherslu á að
þær væru eins öruggar og mögu-
leiki væri á. Sagði stöðin að þessi
niðurstaða væri byggð á um-
fangsmikilli rannsókn á miklum
og flóknum bankayfirfærslum í
Teheran, Beirút og Damaskus. í
fréttinni sagði að tveir samsær-
ismannanna 16 væru líbanskir,
en hinir 14 væru með sýrlensk og
írönsk sambönd og hafi spreng-
ingunni verið ætlað að trufla svo
um munaði fund bandarísku
leyniþjónustunnar sem sjón-
varpsstöðin fullyrðir að hafi
staðið yfir er verknaðurinn var
framinn. Einn Bandaríkjamann-
anna 16 sem létust í sprenging-
unni var Robert C. Ames, hátt-
settur maður hjá bandarísku
leyniþjónustunni CIA.
Þá segir ITN, að samsæris-
mennirnir hafi verið starfsmenn
í sendiráðinu, annað hvort unnið
við ræstingu, eða í mötuneyti
hússins. Þrenn hryðjuverkasam-
tök mikluðu sig af verknaðinum,
fyrst lítt kunn samtök sem kalla
sig Baráttusamtók Islams, síðan
tvö önnur áður óþekkt samtök,
þar á meðal samtök sem sögðust
sjá um hefndir fyrir fjöldamorð-
in á Palestínumönnum í flótta-
mannabúðunum í Beirút á sínum
tíma.
Veður
víða um heim
Akureyri 13 skýjaó
Amsterdam 28 heiðskírt
Aþena 33 heiðskírt
Barcelona 26 heiðskírt
Berltn 30 heiðskírt
Buenos Airea 16 heiðskírt
Chicago 20 heiðskirt
Dublin 22 heiðskírt
Frankfurt 29 heiðskirt
Genf 25 heiöskirt
Helsinki 22 heíöakírt
Jerúsalem 26 heiðskírt
Jóhannesarborg 17 heiðskirt
Lissabon 23 skýjað
London 25 skýjað
LOS Angeles 27 skýjað
Madríd 31 heiðskírt
Malaga 27 heiðskírt
Mallorca 31 þokumóöa
Miami 31 skýjaö
Moskva 21 rigning
New York 31 skýjað
Osló 24 skýjað
París 30 skýjað
Reykjavík 11 léttskýjaö
Róm 30 heiöskírt
San Francisco 21 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskirt
Tókýó 25 skýjað
Vancouver 21 akýjaö
Vin 25 heiðskírt
Shcharansky hitti
móður sína og bróður
Tel Avíy, 6. júlí. AP.
SOVÉSKI andófsmaðurinn Anatoly
Shcharansky fékk í fyrradag að hitta
móður sína og bróður og er þetta í
fyrsta skiptið í 18 mánuði að skyld-
menni hans fá að hitta hann. Eigin-
kona Shcharanskys, Avital, greindi
frá þessu í Tel Aviv í gær, þar sem
bún hefur búið um skeið og unnið
ötullega að því að fá eiginmann sinn
leystan úr haldi.
Shcharansky var dæmdur til 13
ára fangelsisvistar fyrir meintar
njósnir í þágu Vesturlanda árið
1978. Til að mótmæla meðferðinni
á sér, fór hann í fjögurra mánaða
hungurverkfall sem lauk í janúar
á þessu ári. Þegar föstunni lauk,
vó hann að eins 36 kílógrömm.
Avital Shcharansky hafði eftir
móður hans að hann hefði bragg-
ast nokkuð, hefði bætt á sig 20 kg,
en hann hefði misst allt hárið í
hungurverkfallinu. Mæðginin
fengu að ræða við Shcharansky í
tvær klukkustundir og var aðeins
þunn rúða á milli. Þó gekk ekki
áfallalaust að fá viðtalið. Það
fékkst ekki fyrr en eftir mikið
japl, jaml og fuður. Átti heim-
sóknin svo að eiga sér stað á
mánudaginn og mættu mæðginin
þá stundvíslega, en var vísað til
baka og sagt að þau gætu ekki hitt
Shcharansky fyrr en daginn eftir,
í fyrradag.
Previn með
slæma gigt
Lundúnum, 6. júlí. AP.
BANDARÍSKI hljómsveitarstjónnn frægi André Previn
á við slæma slitgigt að stríða í fótunum og hefur neyðst
til að hætta við þrenna tónleika í Bretlandi í þessari
viku.
Aðstoðarmaður Previns, Angela Taylor, sagði í
gær, að Previn væri mjög þjáður í fótunum og ljóst
væri að hann yrði að gangast undir uppskurð. Það
væri hins vegar afar tímafrekt og Previn má hrein-
lega ekki vera að því um þessar mundir. Sagði frú
Taylor, að Previn myndi bíða til næstu jóla með
aðgerðina, hann hefði gert ráð fyrir góðri hvíld um
það leyti og það væri upplagt að nota tækifærið.
Læknar Previns hafa harðbannað honum að svo
mikið sem standa í fæturna þessa dagana og óvíst er
með næstu tónleika hans.
• André Previn ásamt leikkonunni Miu Farrow
Sendiráð tekið í Tyrklandi
Ankara, Tyrklandi, 6. júlí. AP.
MEIRA en þrjátíu nígerískir stúd-
entar tóku sér bólfestu í sendiráði
lands síns í höfuðborg Tyrklands,
Ankara, í dag, í mótmælaskyni við
meintar hömlur ræðismanna á yfir-
færslu gjaldeyris.
Málsvari stúdentanna, Percy
Omoregie, sagði fréttamönnum út
um glugga sendiráðsins að hópur-
inn hefði ekki tekið bygginguna
traustataki í pólitískum tilgangi
heldur aðeins til að láta í ljósi
óánægju sína með tilraunir sendi-
herrans, L.A. Fabunmi, til að læsa
inni fjölskyldufjármuni, sem sett-
ir voru á bankareikninga stúdent-
anna í Tyrklandi fyrir nokkrum
mánuðum.
Tyrknesk lögregla sendi flutn-
ingabifreiðir með sérþjálfaðar
sveitir á vettvang eftir að stúdent-
arnir neituðu að yfirgefa sendi-
ráðið. Hafa yfirvöld bannað
fréttaflutning af umsátrinu þar til
málið hefur verið leyst.
HOISJDA1983
Rúmgóður og sparneytinn fjölskyldubíll. Búinn ýmsum kostum dýrari bíla og að sjálfsögðu
með framhjóladrifi. Bíll er hefur fengið lof gagnrýnenda um allan heim.
Verd 1.7. frá kr. 289.000.-
Honda á Islandi, Vatnagörðum 24, símar 38772 — 39460.
í sumarbústaðinn
og ferðalagið
Útigrill
GRILLTENGUR — GAFFLAR
VIDARKOL — KVEIKILÖGUR
Gasferðatæki
OLÍUPRÍMUSAR
STEINOLÍA, 2 TEG.
PLASTBRÚSAR
SLÖKKVITÆKI
•
Garðyrkjuáhöld
ALLSKONAR
GARÐSLÖNGUR
HRÍFUR OG BRÝNI
GAROSLÁTTUVÉLAR
GARÐYRKJUHANSKAR
BLÓMASTANGIR
(Tonskinstokkar)
•
Handverkfæri
ALLSKONAR
KÚBEIN — JÁRNKARLAR
JARÐHAKAR — SLEGGJUR
MÚRARAVERKFÆRI
DOLKAR — VASAHNÍFAR
•
Málning og lökk
BÁTALAKK — EIROLÍA
PINOTEX — ALLIR LITIR
FERNISOLÍA — VIDAROLÍA
TJÖRUR — ALLS KONAP.
KÍTTI — ALLS KONAR
VÍRBURSTAR — SKÓFLUR
PENSLAR — KÚSTAR
RÚLLUR
•
Björgunarvesti
ÁRAR — ÁRAKEFAR
BÁTADREKAR — KEÐJUR
KOLANET — SILUNGANET
Handfæravindur
MEÐ STÖNG
Sjóveiðistengur
MEÐ HJÓLI
SJÓSPÚNAR — PILKAR
VIÐLEGUBAUJUR
VÆNGJADÆLUR
BATADÆLUR.
ISLENSKIR
FÁNAR
Fánastangir
úr trefjagleri, fellanlegar með
festingu, flciri stærðir.
Fánastangarhúnar
FÁNALÍNUR
FÁNALÍNUFESTINGAR
SÓLÚR
MINKAGILDRUR
MÚSA- OG ROTTUGILDRUR
Stillongs
Ullarnærföt
REGNFATNAÐUR
KULDAFATNAOUR
GÚMMÍSTÍGVÉL
VEIDISTÍGVÉL
FERDASKÓR
Föstudaga
opið til kl. 7
Ananaustum
Siml 28855