Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö.
Flugstöðvarbygging
á Keflavíkurflugvelli
Mikill meirihluti íslend-
inga hefur lengi verið
fylgjandi byggingu nýrrar
flugstöðvar á Keflavíkurflug-
velli. Til þess liggja þrjár meg-
inástæður. í fyrsta lagi er slík
bygging forsenda þess að koma
fram æskilegum aðskilnaði al-
mennrar flugumferðar og
varnarliðsstarfs. í annan stað
er Keflavíkurflugvöllur and-
dyri íslands gagnvart hundr-
uðum þúsunda flugfarþega,
sem við viljum gjarnan að
geymi fremur góðar en slæmar
minningar um land okkar.
Þriðja ástæðan — og ekki sú
veigaminnsta — er sú, að nú-
verandi flugstöð er löngu úrelt;
aðstaða öll óviðunandi, bæði
fyrir farþega og starfsfólk.
Raunar býður óbreytt ástand
upp á stórhættu, t.d. ef eldur
yrði laus í stöðinni á annatíma.
Bygging nýrrar flugstöðvar
hefur tafizt vegna neitunar-
valds Alþýðubandalagsins í
fyrri rikisstjórn. Þetta neitun-
arvald hefur ekki aðeins dregið
nauðsynlega samgöngufram-
kvæmd á langinn. Það hefur
ekki síður stórhækkað bygg-
ingarkostnað stöðvarinnar,
eins og öllum má ljóst vera
sem sætt hafa verðlagsþróun í
landinu á stjórnarferli Al-
þýðubandalagsins. Seinkunin
tefldi og kostnaðarþátttöku
Bandaríkjanna í hættu, en
fjárveiting Bandaríkjaþings
var bundin tímamörkum. —
Fagna ber því að ný ríkisstjórn
hefur skilað þessu máli svo
skjótt á framkvæmdastig.
Samkvæmt samkomulagi,
sem ríkisstjórnir íslands og
Bandaríkjanna hafa gert,
skuldbinda Bandaríkjamenn
sig til að leggja fram tuttugu
milljónir dala til flugstöðvar-
byggingar, auk þess sem þeir
munu greiða allan kostnað við
framkvæmdir utanhúss, flug-
hlaðs og tilheyrandi. Geir
Hallgrímsson, utanríkisráð-
herra, sem undirritaði sam-
komulagið fyrir íslands hönd,
sagði þrjár ástæður réttlæta
kostnaðarhlutdeild Banda-
ríkjamanna: 1) Varnarliðið
fengi afnot af eldri flugstöðv-
arbyggingu, 2) aðskilnaður
varnarliðsstarfs og almennrar
flugumferðar kæmi því til
góða eins og okkur, 3) það
fengi afnot af hinni nýju
flugstöð í neyðartillfellum, en
mat á því, hvað væri neyðar-
tilfelli, væri íslendinga einna.
Engin ástæða er til að draga
dul á það að þetta samkomulag
tengist varnarsamstarfi vest-
rænna ríkja. í því sambandi
má minna á orð, sem Georg
Bush, varaforseti Bandaríkj-
anna, lét falla í heimsókn sinni
til íslands í fyrradag. Hann
minnti á að frá því Atlants-
hafsbandalagið var stofnað
fyrir um þrjátíu árum hafi
Natóríki búið við frið, þrátt
fyrir það, að yfir eitt hundrað
staðbundnar styrjaldir hafi
verið háðar í heiminum á
þessu árabili. Fátt undirstrik-
aði betur þann árangur, sem
varnarsamstarf lýðræðisþjóða
hefði fært þeim. Því má og við
bæta, að bitur reynsla Norður-
landa af hlutleysi í síðari
heimsstyrjöldinni, þegar þrjár
þeirra vóru hernumdar, færðu
þeim heim sanninn um nauð-
syn á varnarsamstarfi hins
lýðfrjálsa heims.
Allir íslendingar, utan
þröngsýnasta hluta Alþýðu-
bandalagsins, fagna því sam-
komulagi sem nú hefur verið
gert um byggingu nýrrar flug-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli.
Loðdýrarækt
Kaupstaðir og kauptún
byggja atvinnu og af-
komu í ríkara mæli á nærliggj-
andi sveitum, úrvinnslu bú-
vöru og margháttaðri þjónustu
við landbúnað, en fólk gerir sér
almennt grein fyrir. Það er
mjög mikilvægt, fyrir þéttbýli
ekkert síður en strjálbýli, að
samdráttur hefðbundinnar bú-
vöruframleiðslu, sem nauðsyn-
legt er að sníða að innan-
landsmarkaði, leiði ekki til
byggðaröskunar. Þess vegna
ber að fagna því að svokallaðar
hliðarbúgreinar hafa styrkt
stöðu og breikkað atvinnusvið
strjálbýlis. Ein mikilvægasta
hliðarbúgreinin er loðdýra-
rækt, sem virðist falla vel að
íslenzkum aðstæðum.
Uppistaðan í fóðri er fisk- og
sláturúrgangur. Með starf-
rækslu fóðureldhúsa í tengsl-
um við loðdýraræktun er hægt
að breyta úrgangi í verðmæta
útflutningsvöru. Líta má á
loðdýrarækt sem úrvinnslu-
grein í þágu sjávarútvegs og
landbúnaðar. Loðdýrarækt fel-
ur og í sér möguleika á sviði
skinnaiðnaðar. Frum- og úr-
vinnslustörf kalla síðan á
þjónustustörf. Vinnumarkað-
urinn verður traustari eftir en
áður.
Sá þarf til heilbrigðrar at-
vinnustarfsemi með hvetjandi
en ekki letjandi stefnu í
stjórnsýslu. Gildir það bæði
um skattastefnu og lánsfjár-
stýringu, ekki sízt meðan nýj-
ar starfsgreinar eru að festa
rætur og komast yfir byrjun-
arörðugleika.
Forseti tslands, Vigdís Finnbogadóttir, og bandarísku varaforsetahjónin,
George og Barbara Bush, við upphaf kvöldveröarins á Bessastöðum f gærkvöldi.
MwgublaM/ÓULM.
Pað rigndi þegar komið var að hringsjánni á útsýnisskífunni á Þingvöllum. Þjóðgarðsvörður, séra Heimir Steinsson, flutti þar stuttan pistil um sögu Þingvalla.
MorgaablaW/ÓLKJM.
Frá málsverðinum í Valhöll f boði forseta sameinaðs Alþingis. Jón Helgason forseti sameinaðs Alþingis skálar við
George Bush varaforseta Bandaríkjanna.
MorgunblaöíO/ÓI.K.M.
George Bush varaforseti Bandaríkjanna á Þingvöllum:
Látum anda Þingvalla vera okkur leiðarijós í framtíðinni
Varaforseti Bandaríkjanna George
Bush átti rúmlega einnar og hálfrar
klukkustundar viðræðufund með
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráðherrra og Geir Hallgrímssyni utan-
ríkisráðherra í stjórnarráðshúsinu í
gærmorgun. Meðal þeirra máiefna
sem rædd voru á fundinum var vera
bandaríska varnarliðsins á íslandi. Að
fundinum loknum sagði George Bush
að fundurinn hefði verið einlægur og
gagnlegur og í sama streng tók
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra. Geir Hallgrímsson utanrík-
isráðherra sagði: „Viðræðurnar voru
mjög fróðlegar og gagnlegar og það
var komið víða við. Við ræddum efna-
hagsmál í heiminum, viðskiptin milli
landanna og pólitískt samstarf. Komið
var inn á afvopnunarviðræður og ifk-
urnar á árangri af þeim. Þá ræddum
við varnarsamstarf landanna, sam-
skiptin við varnarliðið og hina nýju
flugstöð. Engar ákvarðanir voru tekn-
ar á fundinum".
Viðstaðan í stjórnarráðshúsinu
varð lengri en til stóð í upphafi og
seinkaði komu varaforsetans til
Þingvalla við það um 15 mínútur.
Annars heilsaði annar dagur heim-
sóknar bandaríska varaforsetans til
íslands honum með sólskini í
Reykjavík í gærmorgun. Að loknum
viðræðufundinum í stjórnarráðs-
húsinu, en fyrr um morguninn hafði
varaforsetinn haft um klukkustund-
ar viðdvöl í bandaríska sendiráðinu,
hélt varaforsetinn áieiðis til Þing-
valla í fylgd lögreglu, lífvarða og
fylgdarliðs.
Það rigndi þegar komið var að
hringsjánni, þar sem sér yfir Þing-
velli, en þar var numið staðar og
bauð þjóðgarðsvörðurinn, séra
Heimir Steinsson, varaforsetann
velkominn og rakti sögu Þingvalla.
Síðan var haldið að Þingvallabæ og
skoðaði varaforsetinn Þingvalla-
kirkju.
Að Valhöll var matast í boði for-
seta sameinaðs Alþingis og konu
hans. Jón Helgason forseti samein-
aðs Alþingis bauð varaforsetann
velkominn og George Bush minntist
á sögu Þingvalla í stuttu ávarpi og
sagði meðal annars þar vera eina
rót sameiginlegrar lýðræðishefðar
vestrænna þjóða. „í dag erum við
félagar í NATO og það er í hag þjóð-
unum báðum að halda bandalaginu
sterku. Menningar- og menntunar-
leg samskipti auka stórlega á gagn-
kvæman skilning og vináttu, og
viðskipti okkar eru sterk og auka á
gagnkvæma hagsæld. Ég er þess
fullviss að vináttan milli Islands og
Bandaríkjanna mun áfram vera
sterk og djúp. Andi Þingvalla hefur
þjónað okkur vel í fortíðinni. Látum
hann vera okkur leiðarljós í fram-
tíðinni," sagði George Bush síðan.
Að loknum málsverðinum í Val-
höll var haldið með TF-Rán, þyrlu
Landhelgisgæslunnar, og þyrlu frá
varnarliðinu til laxveiða í Þverá í
Borgarfirði.
Þyrlurnar lentu við Þverá laust
fyrir klukkan 14.30 og hélt þá Bush
til veiða í hyl skammt þar frá sem
vélarnar lentu við ána, en þyrlurnar
lentu við bæinn Norðtungu í Þver-
árhlíð. Setti Bush fljótlega í lax og
landaði hann fiskinum fagmann-
lega, en litlu síðar fékk Steingrímur
Hermannsson lax. Báðir voru fisk-
arnir smáir, 4—5 pund að stærð. Er
nóg þótti reynt á fyrrgreindum
veiðistað, voru veiðimennirnir flutt-
ir á annan stað við ána og flugu
þyrlurnar með þá. Hins vegar báru
frekari veiðitilraunir ekki árangur
og hættu menn veiðum laust fyrir
klukkan 18.00. Drukku gestir síðan
kaffi f veiðihúsinu við Þverá, en
héldu síðan með þyrlunum til
Reykjavíkur. Öflug öryggisgæsla
var um bandaríska varaforsetann
og voru bæði innlendir löggæslu-
menn og erlendir öryggisverðir með
honum við veiðarnar. Auk þess
hnitaði varnarliðsþyrla hringa yfir
Að loknum viðræðunum f Stjórnarráðinu f gærmorgun veltu Steingrfmur Her-
mannsson forsætisráðherra, Geir Haiigrfmsson utanríkisráðherra og George
Bush varaforseti Bandaríkjanna vöngum smástund yfír því hvers konar flugu
ætti að nota við fyrirhugaðar laxveiðar sfðar um daginn. Ljósm.: j»h»nnes Long.
^ tengslum við opnun sýningarinnar
Scandinavia Today, en við það tæki-
færi höfðu þau hist. Hann sagði að
hann og kona hans hefðu notið dval-
arinnar hér.
í kvöldverðarboðinu á Bessastöð-
um var fyrst boðið upp á „villibráð-
arkjötseyði", síðan var fram borið
„laxalauf með frægu hvítu smjöri
og spergli í smjördeigi", í aðalrétt
var „laukkryddaður lambageiri" og í
eftirrétt var boðið upp á „appelsínu-
köku með bláberjakraumís".
Kvöldverðarboðið sátu eftirtaldir:
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, George Bush varaforseti
Bandaríkjanna og frú Barbara
Bush, Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra og frú Edda Guð-
mundsdóttir, Geir Hallgrímsson
utanríkisráðherra og frú Erna
Finnsdóttir, Marshall Brement
sendiherra Bandaríkjanna á íslandi
og frú Pamela Brement, Hans G.
Andersen sendiherra og frú Ástríð-
ur Andersen, Ingvi S. Ingvason
ráðuneytisstjóri og frú Hólmfríður
Jónsdóttir, yfirmaður varnarliðsins,
Ronald F. Marryott aðmíráll og frú
Carol Marryott, Richard Burt, að-
stoðarutanríkisráðherra, frú Krist-
ín Claessen, Daniel J. Murphy
skrifstofustjóri, ólafur Egilsson
sendiherra, Guðmundur Bene-
diktsson ráðuneytisstjóri, Jennifer
A. Fitzgerald fulltrúi, Dan Sullivan
ráðgjafi, Daniel Sommer ráðunaut-
ur, Steven Rhodes ráðgjafi, Shirley
Green blaðafulltrúi, frú Guðrún
Björnsdóttir og Halldór Reynisson
forsetaritari.
Kvöldverði á Bessastöðum lauk
klukkan tæplega ellefu.
héraðinu á meðan á dvöl Bush stóð
við Þverá.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti
á Reykjavíkurflugvelli kl. 18.40,
klukkustundu á eftir áætlun. Þaðan
héldu varaforsetinn og frú í gesta-
hús forsetaembættisins á Laufás-
vegi, en kvöldverður í boði forseta
íslands átti að hefjast klukkan
rúmlega átta að Bessastöðum.
Þangað komu Bush og fylgdarlið
stundvíslega, þrátt fyrir þá töf sem
hafði orðið. Þar sagði Bush meðal
annars að ísland myndaði tengilið
milli Ameríku og Evrópu vegna legu
sinnar. Hann minntist á komu for-
seta íslands til Bandaríkjanna í
Vistmenn að Dalbraut gáfu
Barböru Bush handofið veggteppi
Meðan bandaríski varaforset-
inn átti í viðræðum í stjórnarráð-
inu í gærmorgun skoðaði kona
hans, Barbara Bush, þjónustu-
miðstöð aldraðra við Dalbraut,
hélt þá í Árbæjarsafn, þar sem
hún hafði stutta viðdvöl, og heim-
sótti loks í blíðskaparveðri Hall-
dór og Auði Laxness á heimili
þeirra að Gljúfrasteini. Að því
loknu lágu leiðir varaforsetahjón-
anna saman aftur og þau fóru til
Þingvalla.
Nokkrir vistmenn þjónustu-
miðstöðvarinnar við Dalbraut
söfnuðust saman fyrir framan
bygginguna í góða veðrinu í
gærmorgun til þess að taka á
móti frú Bush, sem kom þar við
og skoðaði sig um á dvalarheim-
ilinu. Með Barböru Bush voru
Edda Guðmundsdóttir og Erna
Finnsdóttir. Sólveig Sigur-
Halldór Laxness segir Barböru
Bu.sh til staðhátta í Mosfeilssveit.
MorgunblaAiðKmilía.
jónsdóttir, einn íbúa hússins,
afhenti varaforsetafrúnni
handofið veggteppi að gjöf frá
íbúum heimilisins. Barbara
Bush skoðaði einmitt handa-
vinnudeild heimilisins og fylgd-
ist með fólkinu að störfum um
stund.
Að því loknu heimsótti vara-
forsetafrúin Árbæjarsafn og
naut þar leiðsagnar borgar-
minjavarðar, Nönnu Her-
mannsdóttur. Viðkoman var
stutt og síðan haldið áleiðis að
Gljúfrasteini. Þau hjón, Halldór
og Auður Laxness, tóku á móti
frú Bush og þakkaði hún þeim
innilega fyrir gestrisnina svona
árla dags.
Varaforsetafrúnni og fylgd-
arliði var boðið í bæinn að
Gljúfrasteini, en einnig skoðuðu
þau sig um utandyra. Þótti
Barböru Bush m.a. mikið koma
til heljarstórs steins í garðinum
og spurði hvernig hann væri
þangað kominn og svaraði Hall-
dór Laxness því til, að steinninn
hefði verið fluttur með krana-
bifreið úr læknum sunnan við
bæinn og upp á túnið hjá þeim.
Benti Halldór á, að glöggt
mætti á steininum sjá, að hann
hefði slípast í lækjarfar-
veginum í árþúsundir.
Um það leyti er gestirnir
bjuggust til brottferðar frá
Gljúfrasteini dró ský fyrir sólu
og nokkrir regndropar féllu til
jarðar. Öryggisverðirnir, sem
voru til staðar sem endranær í
heimsókn varaforsetahjónanna,
tóku að ókyrrast og litu til him-
ins, en barnabarn hjónanna að
Gljúfrasteini og vinur hennar
létu sér hins vegar fátt um ör-
yggisgæsluna og regndropana
finnast og svömluðu áhyggju-
Iaus í sundlauginni í garðinum.
Laust fyrir klukkan 11 ók
bílalest varaforsetans framhjá
Gljúfrasteini og slógust frú
Bush og föruneyti hennar þá í
hópinn á leið til Þingvalla, þar
sem m.a. beið þeirra hádegis-
verður í boði Alþingis.
I handavinnustofunni í þjónustumiöstööinni við Dalbraut.