Morgunblaðið - 07.07.1983, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚtí 1983
33
Svona aksturslag er varla stundað af meðlimum klúbbsins Öruggur
akstur.
Hrægamm-
ur í bíla-
kirkjugarði
Kvikmyndir
Ólafur M. Jóhannesson
Hrægammur í bflakirkjugarði
Nafn á frummáli: The Junkman.
Handrit: H.B. Halicki.
Kvikmvndun: Tony Syslo.
Tónlist: Hoyt Axton.
Leikstjóri: H.B. Halicki.
í prýðilegri grein um „Rue du
Faubourg Saint-Honoré" í París
sem birtist í síðasta hefti Les-
bókar, lýkur greinarhöfundur
máli sínu á að fjalla um mál-
hreinsunarherferð frönsku ríkis-
stjórnarinnar sem gengur svo
langt að „ríkisstjórn herra Mitt-
errands hefur ... sagt öllum er-
lendum slettum í franskri tungu
heilagt stríð á hendur, og al-
menningur í landinu hefur tekið
mjög vel í það“. Lýkur hér til-
vitnun sem er valin í tilefni þess
að undirritaður brá sér fyrir
skömmu að sjá nýjustu kvik-
mynd Regnbogans er ber nafnið
„Junkman" í auglýsingu og á
prógrammi. Látum vera þótt
tökuorð af erlendum stofni festi
hér rætur og auðgi merkingar-
forðann, en þegar svo er komið
að menn nenna ekki lengur að
þýða heiti erlendra kvikmynda
— menn sem hafa af því atvinnu
að snara textum slíkra verka yf-
ir á íslensku — þá er stutt í þann
tíma er við lónum sofandi inná
hið engilsaxneska menningar-
svið. Þegar svo er komið stoðar
lítt að veifa Njálu eða „Klukk-
unni“ framan í heiminn.
Hvað um það, ekki stoðar að
nöldra og kvarta fram í rauðan
dauðann, gagnrýnendur verða
líka að reyna að byggja, bæta og
fegra. Því tók ég mig til og
reyndi að snara heiti nýjustu
myndar Regnbogans yfir á ást-
kæra ylhýra málið okkar. Ég
hafði við fátt að styðjast því
kvikmyndin sjálf rann jafnharð-
an úr minni mínu. Raunar var ég
svo ringlaður í kollinum eftir að
hafa horft á þessi undur og stór-
merki á sviði kappaksturs að við
lá að ég æki í gegnum bílskrjóð
sem stóð þvert á leið mína yfir
Laugaveginn. Ég brá þá á það
ráð að kíkja í prógrammið í
þeirri von að efnisþráður „The
Junkman" rifjaðist upp. Hóf ég
lesturinn eftir að hafa skoðað
grannt myndir af glæsibílum
sem virtust þrá það eitt að rek-
ast á aðra glæsibíla. „Harlan
Hollins hafði byrjað sem brota-
járnssali, þ.e. safnaði saman eða
keypti gamlar bíldruslur, gerði
upp, seldi í varahluti eða press-
aði í brotajárn. Hann var þá
nýgiftur og þau hjón unnu bæði í
þessu." Þannig hófst nú sú rolla
og þegar ég hafði lesið % af
prógramminu rifjaðist upp fyrir
mér að ekki voru liðnar nema 5
mínútur af sýningartíma mynd-
arinnar; að þær fáu línur sem
eftir voru lýstu kvikmyndinni
„Junkman".
Þegar svo var komið, gafst ég
hreinlega upp við að rifja upp
þráð þessa kvikmyndaverks, en
ákvað þess i stað að aka út á
öskuhauga að skoða ónýt bílhræ
er mættu verða til þess að rifja
upp frekar þann efnisþráð.sem
mér hugkvæmdist að gæti falist
bak við heitið „Junkman". Ekki
varð þó neitt úr þessari ferð
rannsóknarblaðamannsins, því
er hann slapp loks yfir Lauga-
veginn á óskemmdum glæsibíln-
um, stökk nafnið alskapað út úr
höfði hans og hér á pappírinn:
Ruslmaður skal „Junkman" heita
og svo ekki orð meira um þá
persónu.
SÉRTILBOÐ
HEIMILISTÆKJA HF:
FRÁBÆRT 26 TOMMU PHILIPS
LITSJÓNVARPSTÆKI
Philips litsjónvörpin eru einstaklega góö tæki,
enda eru þau mest seldu litsjónvörp í heimi.
I tilefni af sumri og sól og sýningum
íslenska sjónvarpsins í júlí bjóöum við nú þessi frábæru tæki
á tilboðsverði.
VIÐ ERUM ÓTRÚLEGA SVEIGJANLEGIR
___________í SAMNINGUM!_____________
IPHÍLÍPS
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655