Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
39
fclk í JéÉ
fréttum Á.
Hljómsveitin og stórfyrirtækið
Abba er tíu ára um þessar mund-
ir. Aö vísu var nafniö ekki opin-
berlega notaö fyrr en þau slógu í
gegn og sigruðu í söngvakeppn-
inni 1974 meö laginu „Waterloo",
en sjálf hafa þau alltaf miöað viö
áriö 1973. Upphaflega voru þaö
tvenn hjón, sem stóðu aö Abba,
Björn og Agnetha og Benny og
Frida, en hjónabandshlekkirnir
brustu, þoldu ekki þaö álag, sem
fylgir lífi poppstjarnanna.
Frida býr nú í London og nýtur
enn ávaxtanna af stóru plötunni
„There’s Something Going On“ en
titillagið á henni var á bandaríska
vinsældalistanum í meira en hálft
ár. Björn og Benny eru hins vegar
heima í Stokkhólmi og glíma þar
viö frumraun sína sem söngleikja-
höfundar.
Agnetha Fáltskog
Þá er komið aö Agnethu Fált- Hljómsveitin Abba á mestu velgengnisárum sfnum.
Sænska hljómsveitin Abba tíu ára:
„Munum kveöja með
einni stórri plötu“
— segir Agnetha Fáltskog
skog, sem nýlega sendi frá sér
stóra plötu með enskum textum
og sló í gegn. í Svíþjóð er hún
reyndar í efsta sæti bæöi á listan-
um yfir litlar plötur (The Heat Is
On) og stórar (Wrap Your Arms
Around Me). Þar sem Agnetha er
sú þeirra í Abba, sem sýnt hefur
ótvíræöustu hæfileikana, er eðli-
legt aö segja sérstaklega frá henni.
Agnetha er fædd 5. apríl áriö
1950 í Jönköping. Aöeins fimm ára
gömul var hún tekin til viö aö
semja lög og hefur haldið því
áfram fram á þennan dag. Þegar
hún haföi lokiö námi fékk hún
vinnu sem símastúlka en þaö starf
fór ekki vel saman viö áhugamál
hennar, tónlistina, auk þess sem
hún var þá þegar farin aö syngja
meö hljómsveit. Hún var 18 ára
þegar hún tók sína fyrstu stóru
ákvöröun — aö flytjast til Stokk-
hólms — og fyrr en varðl var hún
komin á sænska vinsældalistann
meö lagið „I Was So In Love“, sem
hún samdi sjálf.
Þetta var áriö 1968 en ári síðar
hitti hún Björn Ulvaeus þegar þau
komu fram saman í sjónvarps-
þætti. Þau giftu sig áriö 1971 og
lögöu um leiö drögin aö Abba.
COSPER
— Ég vil skilja vegna þess aö þessi hjólbeinótti og
nautheimski karlfauskur heldur því fram að ég sé
alltaf að móðga hann.
Enginn dans á rósum
Abba gjörbreytti öllu fyrir Agn-
ethu Fáltskog en þótt hún telji árin
meö hljómsveitinni þau mikilvæg-
ustu í lífi sínu, er hún samt fegin
því, að þau eru aö baki.
„Viö skulum ekki gleyma því aö
á þessum árum átti ég tvö börn
meö öllu, sem því fylgir. Á sama
tíma varö ég aö feröast um heim-
inn þveran og endilangan, eiga
viötöl viö blaðamenn upp á hvern
einasta dag og koma fram í sjón-
varpi. Útávið viröist þetta vera einn
samfelldur dans á rósum, en þaö
veit enginn nema sá, sem reynir,
hvers konar líf þetta er,“ segir
Agnetha.
Agnetha Fáltskog er flughrædd
og segist ekki fara upp í flugvél
nema í böndum. Þess vegna hefur
hún ekki fariö til Bandaríkjanna til
aö fylgja eftir plötunni sinni. Hún
veröur því aö reiöa sig á bílinn
sinn, glæsilegan BMW, og í maí-
mánuöi einum var hún í 14 daga á
feröalagi um Evrópu. Helst af öllu
vill hún þó vera heima hjá börnun-
um sínum.
„Raskenstam"
Agnetha bíöur meö mikilli eftir-
væntingu eftir 19. ágúst nk. en
þann dag veröur myndin „Rask-
enstam" frumsýnd. Fer hún þar
meö stórt hlutverk undir stjórn
sænska Hollywood-leikstjórans
Gunnars Hellström.
„Ég ætla aö halda áfram sem
söngkona og reyna um leiö aö
taka framförum sem leikkona. Hér
eftir ætla ég sjálf aö ráöa ferðinni
og ekki gera neitt, sem ég er ekki
alveg sátt viö sjálf. Þaö var gaman
í Abba en lætln voru svo mikil, aö
mér gafst aldrei tími til aö athuga
minn gang. Ég vona bara, aö fólk
fari á „Raskenstam“ myndarinnar
vegna en ekki vegna þess, aö Agn-
etha í Abba leikur i henni.
Á þessum tíu árum hefur Abba
selt meira en 150 milljón plötur en
nú heyrir hljómsveitin sögunni til.
Eöa hvaö?
„Viö munum kveöja meö einni
stórri plötu, gæti ég trúaö. Hvenær
þaö verður hef ég þó ekki minnstu
hugmynd um,“ segir Agnetha aö
síöustu dálítiö hikandi.
Líttu inn. Það borgar sig
Jú, við höfum alveg dæma-
laust úrval af allskonar
boröum og stólum á hag-
stæöu veröi og eins og þú
veist eru greiöslukjör okkar
sérstaklega góö.
DÆMALAUST
ÚRVAL AF BORÐUM 0G STÓLUM