Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 25 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö. Innlendur sparnaður — Samkeppni banka að er ekki lengur hægt að auka á erlendar skuldir til að halda íslenzkum atvinnuveg- um gangandi. Það er eitt brýn- asta hagsmunamál landsmanna á líðandi stund, að skapa hvata og skilyrði fyrir auknum inn- lendum sparnaði. Nálægt 80% af útlánum viðskiptabanka og sparisjóða gengur til að fjár- magna atvinnustarfsemi í land- inu, þ.e. til að efla verðmæta- sköpun og stuðla að atvinnu- öryggi. Aukinn innlendur sparn- aður er ein meginforsenda þess að byggja upp atvinnu- og efna- hagslega velferð. Erlend skuldasöfnun hefur keyrt um þverbak. Ragnar Arn- alds, fyrrverandi fjármálaráð- herra, lét svo ummælt árið 1982, að „þjóðin væri að sökkva í ískyggilegar skuldir erlendis". Þá fór skuldastaða þjóðarbúsins í fyrsta sinn yfir 40% af þjóðar- framleiðslu. Síðustu lánsfjárlög fyrrverandi ríkisstjórnar komu þessari skuldastöðu upp í 60% af þjóðarframleiðslu, sem er langt yfir hættumörk efnahags- legs sjálfstæðis. Viðskiptahall- inn við umheiminn var samtals 12.300 m.kr. 1979-1983. Valur Valsson, bankastjóri Iðnaðarbanka, sagði í blaðavið- tali við Morgunblaðið, að Islend- ingar búi fremur við „innlána- kreppu" en „útlánakreppu". Hann telur innlánsvexti einfald- lega of lága til að hvetja til sparnaðar. Það þurfi að sjálf- sögðu að lækka vexti af óverð- tryggðum innlánum samfara minnkandi verðbólgu, en hitt standi eftir, að raunvextir séu of lágir. Stjórnvöld hafi viður- kennt þetta með því að bjóða verðtryggð spariskírteini ríkis- sjóðs meö 4,16% vöxtum á sama tíma og bankarnir geti aðeins boðið 1% vexti. Bankastjóri Iðnaðarbankans gagnrýnir, hve langt er gengið til að koma í veg fyrir alla sam- keppni banka. Vextir séu ákvarðaðir af stjórnvöldum, án þess að bankar fái nokkru um ráðið. Það sé jafnvel gengið svo langt að stjórnvöld ákveði hvaða innlánsform bankarnir megi bjóða hverju sinni. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og formað- ur nefndar sem unnið hefur að endurskoðun laga um viðskipta- banka, segir hvergi tíðkast í öðru lýðræðisríki, að % hlutar peningakerfis séu undir opin- berri stjórn, Hann lagði til í þessari nefnd að ríkisbankarnir yrðu gerðir að hlutafélögum, m sú hugmynd náði ekki fram að ganga. Hann telur miðstýringu í vaxtaákvörðunum of mikla. Stefna beri að því að koma á meiri samkeppni milli banka. Ekki hafi verið gerðar nægar kröfur til þeirra, en að því yrði stefnt í nýrri löggjöf að gera ákveðnar kröfur um eigið fé banka. Nauðsynlegt væri að reisa skorður við samkeppnis- hömlum í vaxtaákvörðunum, af- greiðslutíma og á fleiri sviðum bankastarfsemi. Á spástefnu Stjórnunarfélags Islands um þróun efnahagsmála 1984 sagði Sigurgeir Jónsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabank- ans, að raunvextir yrðu að vera háir og bankakerfið þyrfti að bjóða fjölbreytta þjónustu. Hann taldi og að grípa þyrfti til nýrrar tegundar verðbréfa, til að afla ríkissjóði fjár, s.s. geng- istryggðra skuldabréfa og ríkis- víxla. Verðtrygging höfði minna til sparifjáreigenda á tímum hjaðnandi verðbólgu. Jónas Haralz, bankastjóri Landsbanka, sagði í erindi hjá FÍS að „þeir neikvæðu raunvext- ir, sem verið hafi við lýði hér á landi undanfarin ár, hafi leitt til þess að stórlega hafi dregið úr innlendum sparnaði... Jákvæð- ir raunvextir eru skilyrði þess að innlán aukizt, sem aftur er undirstaða þess að bankarnir geti aukið útlán sín og lengt lánstímann". í þessu sambandi er eðlilegt að leiða hugann að því, hvort eitthvert fé sé aflögu hjá fólki til sparnaðar. „Ég tel að svo sé“, segir bankastjóri Iðnaðarbank- ans, „jafnvel þótt að landsmenn hafi þurft að þola kjaraskerð- ingar vegna minnkandi þjóðar- tekna. Þrátt fyrir áföll undan- farinna missera fer það ekki á milli mála, að íslendingar eru ein efnaðasta þjóð heimsins". Sú efnahagskreppa, sem ræt- ur á í utanaðkomandi efnahags- áhrifum, aflasamdrætti, skert- um þjóðartekjum og ekki sízt pólitískum stjórnunarmistök- um, hefur þrengt kjör þjóðar- innar sem heildar og þegnanna sem einstaklinga. Frekari þrenging veiðiheimilda í sjávar- útvegi 1984 skekkir stöðuna enn. Þessar erfiðu horfur undirstrika þá nauðsyn, að verja takmörk- uðum fjármunum af hyggindum með arðsemi að vegvísi. Þar veg- ur þyngst að efla innlendan sparnað. Lánsfjármögun atvinnuvega verður að eiga sér stað heima fyrir. Til þess að svo megi verða þarf að gera sparn- aðinn eftirsóknarverðan sem ábataleið og þróaj^jankakerfi þjóðarinnar í átt til pess sem er í samképpnis- og velmegunar- þjóðfélögum Vesturlanda. Stjórnkerfisnefnd ásamt forsætisríðherra í blaðamannafundinum í gær, þar sem tillögur hennar voru kynntar. Morgunblaðið/ ól.K.M. Tillögur stjómkerfisnefndar kynntar í gær: „Gætu orðið að lögum á yfirstandandi þingi“ — sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra „Þessar tillögur hafa fengið ágætar móttökur í ríkisstjórninni. Þetta er vel unnin úttekt, en hefur þó ekki fengið efnislega umfjöllun innan stjórnarinnar. Það verða vafalítið gerðar á þeim einhverjar breytingar, enda er hér um mjög víðtækt mál að ræða,“ sagði Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðhcrra, á blaðamannafundi, sem boðað var til í gær til þess að kynna tillögur stjórnarskrárnefnd- ar. „Ég er t.d. ekkert yfír mig hrif- inn af að fá bankamálin yfír í for- sætisráðuneytið,“ bætti ráðherra við. Eins og fram hefur komið í Mbl. er meginefni tillagnanna það, að ráðuneytum verði fækk- að úr 13 í 8. Að sögn nefndar- manna verður í raun ekki um það að ræða að neitt raðuneyt- anna verði lagt niður, heldur verða þau fámennustu sameinuð öðrum og einstök verkefni ann- arra færð á milli ráðuneyta. Samkvæmt tillögunum verður viðskiptaráðuneytið lagt niður í núverandi mynd og verkefni þess falin utanríkis- og forsætisráðu- neyti. Þá er gert ráð fyrir auknu valdsviði forsætisráðuneytisins og það verði jafnframt efna- hagsmálaráðuneyti. Einnig verði myndað sérstakt dómsmála- og innanríkisráðuneyti og landbún- aðar- og sjávarútvegsráðuneytin verði lögð niður og eitt ráðuneyti myndað með verkefni þessara tveggja. Loks er lagt til að heil- brigðis- og félagsmálaráðuneyt- unum verði steypt saman í eitt svo og mennta- og kirkjumála- ráðuneytunum. Efling þingræðis Þá er lagt til að Þjóðhags- stofnun verði sameinuð Hagstof- unni í sjálfstæðri stofnun, sem að líkindum heyrði undir forsæt- isráðuneytið. Ennfremur er um að ræða frumvarp til laga um Ríkisendurskoðun, þar sem lagt er til að hún heyri undir Alþingi, en ekki fjármálaráðherra. Sagði Ásgeir Pétursson, einn nefnd- armanna, þetta vera lið í eflingu þingræðis. Loks er lagt til að Kjaradómur ákveði framvegis laun allra embættismanna í stjórnarráðinu. I tillögum nefndarinnar um stöðubreytingar og ráðningar- tíma embættismanna stjórnar- ráðsins er gert ráð fyrir að emb- ætti ráðuneytisstjóra verði lagt niður. Ráðherraritarar, skipaðir af ráðherra sjálfum, verði æðstu yfirmenn ráðuneytanna að ráð- herrum frágengnum. Með þessu móti telur nefndin ráðherra eiga auðveldara með að móta stefnu sína og koma henni í fram- kvæmd. Ráðherraritarar yrðu settir yfir skrifstofustjóra hvers ráðuneytis. Æviráöning úr sögunni Þá er gert ráð fyrir að ráðning verði til 6 ára í senn og enginn verði lengur en 12 ár í sama ráðuneyti. Er þetta gert til að koma í veg fyrir svokallaðar æviráðningar. Lagt er til að tek- in verði upp stefna um hæfilega endurnýjun. Segir ennfremur, að ákveðinn stöðugleiki sé nayðsyn- legur, en geti auðveldlega snúist upp í andstæðu sína með of örri endurnýjun. „Við erum ekki að gera upp á milli ráðuneyta. Það er heldur ekki verið að leggja nein ráðu- neyti niður í beinum skilningi, heldur aðeins að sameina þau öðrum. Við erum að gera eðlileg- ar og raunhæfar skipulagsbreyt- ingar," sagði Eiríkur Tómasson er hann útskýrði tillögur nefnd- arinnar fyrir fréttamönnum. „Hér hefur alltaf ríkt viss ótti við breytingar þótt við höfum dæmin fyrir okkur í flestum lýð- ræðisríkjum í Evrópu. Skoðun okkar er sú, að ráðu- neytin séu of mörg. Þau þurfa að vera hæfilega stórar einingar. Það eru ekki nema 9 starfsmenn í því ráðuneyti, sem hefur fæsta starfsmenn. Þegar málum er þannig háttað er hætt við að yfirbyggingin verði of mikil. Til- lögur okkar miða að nokkurri fækkun æðstu starfsmanna og verði þær framkvæmdar eins og nefndin leggur til sparast tals- vert fé.“ Að sögn forsætisráðherra hafa stjórnarflokkarnir, svo og allir ráðherrar fengið tillögur nefndarinnar í hendur. Stjórnar- andstaðan mátti eiga von á þeim í gær. Ráðherra sagðist telja nauðsynlegt, að almenn umræða færi fram um tillögurnar áður en þær yrðu lagðar fram á Al- þingi. Miðað er að því að tillög- urnar komi fyrir Álþingi strax ee jólaleyfi lýkur. „Tillögurnar gætu orðið að lögum á yfirstand- andi þingi, en ég hef ekki lofað að flytja þær óbreyttar," sagði Steingrímur. Lánsfjáráætlun lögð fram á Alþingi: Heimilt að taka erlend lán að upphæð 1.708,7 milljónir króna FRUMVARP til lánsfjárlaga var lagt fram á Alþingi í gær, en í frumvarpinu er fjármálaráð- herra heimilað að taka erlent lán að jafngildi 1.708,7 milljón- um króna. Ennfremur er fjár- málaráðherra heimilað að taka lán á innlendum lánsfjár- markaði að upphæð allt að 478 milljónum króna. Skal lánsfé ráðstafað í samræmi við ákvæði fjárlaga og fjárfestinga- og lánsfjáráætlunar fyrir árið 1984. Samkvæmt frumvapinu er Landsvirkjun heimilað að taka erlent lán að upphæð allt að 900 milljónum króna til fjármögn- unar á raforkuframkvæmdum og fyrirtækjum með eignaraðild ríkissjóðs er heimilað að taka allt að 40 milljóna króna lán. Þá er framkvæmdasjóði heimilt, samkvæmt frumvarpinu, að taka erlent lán upp á 652 millj- ónir. Þá kemur einnig fram í frum- varpinu að Orkubúi Vestfjarða er veitt heimild til lántöícu er- lendis að upphæð allt að 30 milljónum. Þá er ákvæði um heimild til lántöku vegna hita- veituframkvæmda og skuld- breytingar til handa Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og Hitaveitu Akureyrar. Er fyrr- nefndu hitaveitunni heimilað að taka allt að 8,5 milljóna króna lán, en lántökuheimild síðar- nefndu hitaveitunnar er 8,8 milljónir króna. Getur Akureyrarbær sett Landsvirkjun stólinn fyrir dyrnar?: Þarf ekki sérstakt samþykki eigenda fyrir lántökum — segir Halldór Jónatansson framkv.stj. ÞAÐ KOM fram ( frétt í Morgun- blaðinu í gær, að bæjarstjórn Akur- eyrar hafí samþykkt á fundi þann 6. desember sl. að leggja áherslu á það við Landsvirkjun að ekki verði leitað heimildar til að taka ný lán fyrir Landsvirkjun, fyrr en fjárhagslegu uppgjöri vegna sameiningar Laxár- virkjunar og Landsvirkjunar þann 6. september sl. verði lokið. Var þetta í tilefni af því að Landsvkirkjun leit- aði eftir samþykkt bæjarstjórnar sem eignaraðila að Landsvirkjun til lántöku upphæðar allt að 60 milljón- um svissneskra franka, sem verja átti til að greiða dollaralán hjá Ham- bros Bank. Af þessu tilefni leitaði Morgun- blaðið upplýsinga um það hjá Halldóri Jónatanssyni, fram- kvæmdastjóra Landsvirkjunar, hvaða reglur gildi um lántökur Landsvirkjunar í sambandi við eignaraðild: „Almennt séð er Landsvirkjun lögum samkvæmt heimilt að taka lán til þarfa fyrirtækisins án sér- staks samþykkis eigenda Lands- virkjunar sem slíkra, það er ríkis- ins, Reykjavíkurborgar og Akur- eyrar," sagði Halldór. „Jafnframt er Landsvirkjun heimilt að taka slík lán með ábyrgð eigendanna án slíks sam- þykkis, en þó ekki fyrir hærri upp- hæð á ári hverju en nemur 5 pró- sentum af höfuðstóli fyrirtækisins í lok næstliðins árs. I ár er þetta hámark um 11 milljónir dollara, svo dæmi sé tekið. Það er fyrst þegar farið er yfir þetta hámark, sem sérstakt samþykki eigenda þarf fyrir ábyrgð þeirra á lántök- um Landsvirkjunar. í slíkum til- fellum er hverjum og einum eig- enda Landsvirkjunar í sjálfsvaid sett hvort hann veitir ábyrgð sína eða ekki, án þess þó að hann hafi nokkurt neitunarvald gagnvart lántökum Landsvirkjunar, hvað þá gagnvart ábyrgð annarra eign- araðila á slíkum lánum. Lands- virkjun getur því tekið lán með ábyrgð, til dæmis tveggja eigend- anna ef þvi er að skipta, í stað allra þriggja og er ekkert sem mælir því í mót. Um lántökur Landsvirkjunar gilda svo að sjálfsögðu allar al- mennar reglur, svo sem ákvæði lánsfjárlaga og laga sem áskilja samþykki ríkisstjórnarinnar fyrir erlendum lántökum til lengri tíma en eins árs,“ sagði Halldór Jóna- tansson. Halldór sagðist ekki vera í að- stöðu til að tjá sig um uppgjörið vegna sameiningar Landsvirkjun- ar og Laxárvirkjunar, enda heyrði það undir eignaraðilana að ræða það. Nokkrir aðstandenda VISA ÍSLANDS. Frá vinstri: Sveinn Helgason, Iðnaðarbankanum; Margeir Daníelsson, Samvinnubankanum; Sólon R. Sigurðsson, Búnaðarbankanum; Jóhann Ágústsson, Landsbankanum, stjórnar- formaður VISA; Sigurður Hafstein, fyrir sparisjóðina á íslandi og Einar S. Einarsson, forstöðumaður VISA ÍSLANDS. Morgunbladið/ 01. K.M. VISA-greiðslukort til notkunar innanlands FRÁ og með deginumí dag verða VISA-greiðslukort gjaldgeng í innlendum viðskiptum og ^geta nú allir þeir, sem bankar og sparisjóðir innan VISA ÍSLAND ábyrgjast, fengið útgefið greiðslukort sér til handa. Hingað til hafa þessi kort einungis gilt í erlendum viðskiptum. Að VISA ÍSLAND standa 5 bankar, Alþýðubankinn hf., Bún- aðarbanki íslands, Iðnaðarbanki íslands hf., Landsbanki Islands, Samvinnubankinn, auk 13 af stærri sparisjóðum landsins. Að- ildarstofnanir VISA ÍSLANDS eru samanlagt að stærð yfir 80% af bankakerfi landsins. Félagið er aðili að VISA International, sem er samstarfsvettvangur um 15 þúsund banka og sparisjóða um allan heim. Handhafar VISA- korta eru nú yfir 100 milljónir, en íslenskir korthafar eru rúmlega 5 þúsund talsins og hefur þeim fjölgað um helming síðan VISA ÍSLAND tók til starfa nú í sumar. Kortin eru gjaldgeng hjá 4 millj- ónum fyrirtækja í 160 löndum. Eindagi hálfum mánuði eftir síðasta úttektardag Aðstandendur VISA ÍSLANDS boðuðu til fundar með frétta- mönnum í gær til að kynna þessa nýjung. Kom fram á fundinum að útskriftartímabil breytast og verða nú frá 18. hvers mánaðar til 17. næsta mánaðar. Útskriftir verða sendar út þann 22. hvers mánaðar, en eindagi greiðslna er 2. hvers mánaðar, þ.e.a.s. 15 dög- um eftir lok úttektartímabils. Desembermánður í ár verður þó undanteknig frá þessari reglu, þar sem úttektartímabilið verður viku lengra, eða frá 10. desember til 17. janúar. Jafnframt seinkar út- skriftum þessa tímabils um fimm daga. Sama kortið innan- lands og utan Það verður á valdi banka- og sparisjóðsstjóra að ákvarða út- tektarheimildir einstaklinga. Lág- markið er 10 þúsund krónur, en sérstakt hámark hefur ekki verið ákveðið. Fer það eftir tekjum við- komandi hve mikil hámarksupp- hæð getur orðið. Eitt og sama kortið gildir fyrir viðskipti innanlands og utan. Út- tektarheimildin er hins vegar að- skilin: korthafi getur tekið út há- marksupphæð bæði hér á landi og erlendis í einum og sama mánuð- inum, en getur ekki tekið út inn- anlands fyrir þá úttektarheimild sem hann hefur erlendis. Þóknun til VISA ÍSLANDS á bilinu 2—3% Þóknun af viðskiptaveltu til VISA ÍSLANDS verður lægri en tíðkast hefur í hliðstæðum við- skiptum hér á landi, eða á bilinu 2—3%. Þóknun af mánaðarlegri veltu hjá verslunar- og þjónustu- aðilum verður 3% af fyrstu 250 þúsund krónunum, 2,5% af næstu 250 þúsund og 2% af þeirri upp- hæð sem fer yfir 500 þúsund. M.ö.o. þóknunin fer stiglækkandi miðað við veltuaukningu. Aðrar nýjungar Sú nýbreytni verður tekin upp að korthöfum er heimilt að taka út reiðufé af tékkareikningum gegn framvísun kortsins í öllum VISA- bönkum og sparisjóðum innan- lands, en þó ekki hærri upphæð en sem nemur 5 þúsund krónum. En þetta fé er ekki lánað og því verð- ur innistæða að vera fyrir upp- hæðinni á ávísanareikningnum. Þá verður við endurnýjun korta á næsta ári bætt við svokölluðu PIN-númeri, eða lykilnúmeri á segulrönd kortsins, sem gerir korthöfum kleift að taka út skot- silfur erlendis úr „skyndibönkum", það er bankasjálfsölum. Hve ber ábyrgð þegar kort tapast? I 9. grein í samningi VISA ÍS- LANDS við korthafa segir orðrétt: „Glatist greiðslukort ber korthafa tafarlaust að tilkynna það til VISA fSLANDS, eða næstu umboðsaðila VISA hvar sem er í heiminum. Sé tilkynningin gefin símleiðis, skal staðfesta hana skriflega innan þriggja daga. Þeg- ar skrifleg yfírlýsing þar um hefur borist, ber korthafí eftir þann dag ekki ábyrgö á misnotkun kortsins, og getur þá fengið nýtt kort útgef- ið sér að kostnaðarlausu. SÉRSTÖK ATHYGLI ER VAK- IN Á AÐ KORTHAFI BER FULLA ÁBYRGÐ Á ÚTTEKTUM MEÐ GLÖTUÐU KORTI SÉ TIL- KYNNINGARSKYLDU EKKI FULLNÆGT. (Feitletrun Mr:-g- unblaðsins, en hástafirnir eru í samningnum.) Þessa grein má túlka svo að korthafi beri ábyrgð á úttektum glataðst korts á tímabilinu frá því að hann tilkynnir tapið símleiðis og þar til skrifleg staðfesting hans hefur borist bréflega. Það fer eftir því hvaða skilning mennleggja í orðin „eftir þann dag“. Er átt við daginn sem hringt er eða daginn sem bréfið berst VISA ÍSLANDI? Aðstandendur VISA á blaða- mannafundinum tóku af allan vafa þar um, sögðu að korthafi væri laus allrar ábyrgðar frá og með símtalinu. Hins vegar væri nauðsynlegt að hann staðfesti það bréflega. f þessu sambandi voru fulltrúar VISA ÍSLANDS spurðir um það, hvers vegna ekkert þak væri á hugsanlegu tjóni korthafa sem hlýst af því að annar aðili taki út á tapað kort hans, en slíkt tíðkast viða erlendis. Svöruðu þeir því til að reglur VISA ÍSLANDS væru sniðnar eftir þeim almennu regl- um sem í gildi væru hjá VISA Int- ernational og þar væri ekki gert ráð fyrir þaki. Eins voru þeir inntir eftir því hvað gerðist ef það færist fyrir af einhverjum ástæðum hjá korthafa að kvitta fyrir úttekt með kortinu. Sögðu þeir, að korthafi yrði að greiða fyrir úttektina, en ef hann gerði athugasemd og teldi að út- tektin væri ekki á sinum vegum, mundi bankinn taka málið til rannsóknar og endurgreiða upp- hæðina ef í ljós kæmi að einhver mistök hefðu orðið. Kaupsamningi rift og gamla Akraborgin er enn óseld GAMLA Akraborgin, sem lengi var í siglingum milli Reykjavíkur og Akra- nesK, liggur nú í Akranesshöfn, og hafa ekki fengist -viðunandi tilboð í skipið, að því er Arnmundur Back- mann, stjórnarformaður Skallagríms, útgerðarfélags Akraborgarinnar, sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins. Arnmundur sagði, að á sín- um tíma hefði verið búið að selja skip- ið fyrir um 700 þúsund dollara til eyj- arinnar St. Lucia í Karabíska hafínu, en þeim kaupum var rift af kaupend- unum. Arnmundur sagði, að skipið væri í mjög góðu ástandi nú, hefði verið klassaö upp fyrir sölu, og væri það því ekki fyrirstaða sölunnar. f upp- hafi sagði Arnmundur stjórn Skallagríms hafa kannað hvernig horfur væru á sölu skipa af þessu tagi. Innleadir skipamiðlarar hefðu metið horfurnar allgóðar og gefið upp hugmyndir um verð. Tilbq||^ frá St. Lucia hefði komið í fram- haldi af því, og verðið þótt viðun- andi. Skrifað hefði verið upp á kaupsamning með kurt og pí, sagði Arnmundur, en ákvæði hefðu þó verið um riftun, ef tilskilin leyfi fengjust ekki í heimalandinu. Málið virtist því hafa strandað þar. „Síðan höfum við verið í stanslausum sölu- tilraunum," sagði Arnmundur, „nokkrum sinnum hafa hugsanlegir kaupendur komið hingað til að skoða skipiðr en ekki gengið saman. Nú eru ákveðin tilboð I gangi, en fyrir allmiklu iægra verð en farið hefur verið fram á. Þá eru innlendir aðilar einnig áhugasamir og varla hefur þótt koma til greina að selja skipið utan fyrir lágt verð, ef til greina gæti komið að það yrði nýtt hér, svo sem til flutninga á Breiða- firði. Þar er verið að undirbúa margfalt dýrari skipakaup, en þetta skip hentar mjög vel þar.“ Dræm loðnuveiði LOÐNUVEIÐI hefur verið ákaf- fimmtudag Júpíter RE, 600 lest- lega dræm síðustu daga. í gær ir, og Sæberg SU, 200, og í gær og fyrradag tilkynntu aðeins Keflvíkingur KE með 450 lestir. þrjú skip loðnunefnd um afla. Á Ögri seldi í Bremerhaven Skuttogarinn Ögri RE seldi mjög blandaður, karfi, ufsi, síðastliðinn fimmtudag 231,4 grálúða og þorskur meðal ann- lestir í Bremerhaven. Heildar- ars. Ekkert íslenzkt fiskiskip verð var 5.184.900 krónur,' seldi afla erlendis í gær, föstu- meðalverð 22,41. Afli Ögra var dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.