Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 48
Bítlaæöiö n LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Bensín og olía lækka í verði VKRDLAGSRÁÐ samþykkti í gær að lækka verð á benzíni og olíuvör- um frá og með deginum í dag. Lækk- unin er á bilinu 2,1% til 3,4%. Benzínlítrinn lækkar úr 22,90 i 22,30 krónur eða 2,6%, gasolía (til skipa o.fl.) lækkar úr 8,80 í 8,50 krónur lítrinn eða um 3,4%, gas- olía (til bíla) lækkar úr 9,40 í 9,20 krónur lítrinn eða um 2,1% og svartolía lækkar úr 7.500 í 7.250 krónur tonnið eða um 3,3%. Að sögn Gunnars Þorsteinsson- ar varaverðlagsstjóra eru ástæður lækkunarinnar fyrst og fremst tvær. í fyrsta lagi hefur staða inn- kaupajöfnunarreikninga olíuvara batnað og halli, sem orðinn var, hefur verið greiddur upp. í öðru lagi hefur gengi Bandaríkjadoll- ars í íslenzkum krónum verið til- tölulega stöðugt undanfarið. Jólasveinarnir eru á leið til byggða. Ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á þá í gær, þar sem þeir voru að klöngrast með poka sína fulla af gjöfum. Askasleikir er foringinn og hann og félagar hans ætla að heilsa upp á börnin á jólaskemmtun á Kjarvalsstöðum, sem hefst klukkan 15 í dag. Allir eru velkomnir. Farið verður í leiki, dansað í kringum jólatréð og fleira skemmtilegt verður gert. Á sunnudaginn klukkan 15.30 verða jólasveinarnir að venju á Austurvelli, eftir að kveikt hefur verið á jólatrénu stóra. Verðbólguhraðinn síðasta ársþriðjung nemur 25,9% VÍSITALA framfærslukostnaðar fyrir desembermánuð er 1,23 eða 15,8% miðað við ársgildi. Samsvar andi tala var 37,7% í síðasta mánuði. Meðalhækkun verðbólgunnar síð- ustu fjóra mánuði, þ. e. frá 1. ágúst til 1. desember, eða það tímabil sem vísitalan hefur verið reiknuð mánað- arlega, er 25,9%. Lánskjaravísitalan hefur einnig verið reiknuð út, hún er 23,9%. Síðustu þrjá mánuði ársins reikn- ast hún 28,2%, en var á sama tíma í fyrra 88,7%. Vísitala fram- færslukostnaðar hækkaði milli mánaða á sama tíma í fyrra um 5,5%, sem nam 90,1% í ársgildi. Axel Axelsson starfsmaður Klausturhóla með hina fornu gripi, útskorn- ar rúmfjalir og kistil með höfðaletri frá árinu 1730. Myndina tók Ragnar Axelsson. Rúmfjalir frá 1649 og 1769 og útskor- inn kistill frá 1730 — meðal muna á listmunauppboði Klausturhóla FORNAR rúmfjalir og útskorinn kistill frá árinu 1730 eru meðal muna, sem seldir verða á listmunauppboði Klausturhóla í Breiðfirðingabúð á morgun, sunnudag. Rúmfjalirnar eru hver úr sinni áttinni, önnur með ártalinu 1649 en á hina er grafið ártalið 1769. Kistillinn er nýlega kominn hingað til lands frá Danmörku, en rúmfjalirnar eru komnar úr eigu einstaklings hér á landi. Bæði gripir að uppruna. Ekki er vitað hver gripina hef- ur gert, en á kistlinum má finna þessa áletrun, skorna í höfðalet- ur: „Mig hefur skorið maður, sem virtist sjá illa, var blindur á báðum augum. Þess ber jeg sannalega merki. 25 mars 1730. þegar jeg lauk.“ Auk framangreindra gripa kistillinn og fjalirnar eru íslenskir verða ýmsir aðrir gripir á upp- boðinu á morgun, svo sem vasar, húsgögn og tveir uppstoppaðir, íslenskir fálkar. Munirnir verða til sýnis í Klausturhólum í Breiðfirðingabúð í dag milli kl. 13 og 18, en uppboðið fer fram á morgun og hefst klukkan 15. Níu Víetnamar koma til lands- ins á midvikudag „Við eigum von á níu til landsins á miðvikudag og höfum reyndar beð- ið eftir þeim meira og minna í hálft annað ár,“ sagði Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross ís- lands, er Morgunblaðið innti hann eftir því hvort von væri á fleiri Víet- nöraum hingað til lands. Að sögn Jóns er hér um að ræða hóp ættingja fólksins, sem kom til landsins þann 20. september 1979. Þá kom 34 manna hópur og þá þegar lá fyrir heimild um að 15 ættingjar þess fólks mættu flytja hingað til lands. Jón sagði að Rauði krossinn hefði af og til fengið ábendingar um að von væri á 11 manna hópi, en núna virtist loks ljóst, að ekki kæmu nema 9. Einkum munu það vera tafir í skrifstofubákninu í heimalandi flóttafólksins sem komið hafa í veg fyrir að það kæmist úr landi fyrr en nú. Rauði krossinn sér um alla aðstoð við þetta fólk í umboði ríkisstjórnar Islands. Felst hún m.a. í útvegun húsnæðis og vinnu, barnagæslu og kennslu. Á þeim 34 manna hópi, sem kom upphaflega til landsins, hafa orðið talsverðar breytingar. Eitt barn- anna lést skömmu eftir komuna hingað og síðan héldu sjö til Kan- ada og þrír til Bandaríkjanna. Einn bættist í hópinn fyrir ári og þrír komu í mars sl. Þá lést einn í sumar þannig að 26 eru nú hér á landi. Með þeim 9, sem koma á miðvikudag, hafa því alls komið 47 Víetnamar til fslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.