Morgunblaðið - 22.12.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.12.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983 61 ðabókV" \Ok *»» *t£* Í^SSS^&SSS *»»>»* 1 Vpf&i. í ^Snnsat 1 Einstakt verö Góö jólagjöf Ljósmyndir Haralds Lárussonar Blöndal gefnar út í bók Hjá bókaforlaginu Svart á hvítu er komin út bók með Ijósmyndum Har- alds Lárussnnar Blöndal, og nefnist hún „Ljósmyndarinn í þorpinu". Haraldur var einn þeirra manna sem með mikilli elju öfluðu sér menntunar í ljósmyndun ná- lægt síðustu aldamótum. Hann tók mikinn fjölda mynda um land allt. Eru til um 1.500 ljósmynda- plötur í Þjóðminjasafninu eftir hann, og í þessari bók eru birtar 100 þeirra. í fréttatilkynningu sem Mbl. hefur borist, segir: Flestar mynd- anna eru teknar á Eyrarbakka um 1920, en einnig eru myndir frá öðrum stöðum. Allar hafa þær gildi sem heimild um sögu og þjóð- hætti, auk þess að vera listrænar og gleðja augað. Myndunum fylgja skýringartextar, sem Inga Lára Baldvinsdóttir fornminjafræðing- ur hefur samið. Björn Brynjólfur Björnsson hannaði kápu bókar- innar. „Ljósmyndarinn í þorpinu" er 104 blaðsíður að stærð og unnin hjá Prentsmiðjunni Odda og Prentþjónustunni Metra. Jensína Gunnlaugs- dóttir - Kveðja Dauðinn virðist alltaf jafn ótímabær, og eins þótt hann hafi gert boð á undan sér. Við vissum að hjarta vinkonu okkar var sjúkt og hafði verið sjúkt um árabil. En Jensína var ein af þeim manneskj- um i tilverunni, sem manni finnst að þurfi að hljóti að verða þar áfram. Og kannski verður hún það þrátt fyrir sjónarsvifti. Kynni okkar Jensínu hófust fyrir þrjátíu árum. Hún var þá kona á bezta aldri, fríð sýnum og fönguleg. Maður hennar, ólafur Tryggvason frá Kirkjubóli í Skut- ulsfirði, varð strax vildarvinur minn og fóstri, bróðir tengdaföður míns Kristjáns, synir húnvetnska fullhugans Tryggva Pálssonar. Er af þeim ættmennum ölium mikil saga, sem ekki verður sögð hér. Fyrir mín kynni af þeim hjón- um, Jensínu og ólafi, bjuggu þau búi sínu á Kirkjubóli í Skutuls- firði, föðurleifð ólafs. Þeim hafði orðið sex barna auðið. Elztur er Sverrir, verkfræðingur. Þá var Edda, sem lézt af slysförum í Bandaríkjunum í blóma lífsins. Dauði hennar var hinn mesti mannskaði og foreldrunum ógnar- legt áfall. Þriðji er Þórhallur, verktaki í Bandarfkjunum. Fjórði Ólafur, garðyrkjubóndi i ölfusi. Fimmta Brynja, húsfreyja og kennari. Sjötti Snorri, rafvirki á Selfossi. Allt myndarfólk, sem komizt hefir hið bezta til manns og þeirra makar og afkomendur. Dagsverk Jensínu og Ólafs er því mikið, markvert og farsælt. Árið 1946 er það sem þau ólafur bregða búi á Kirkjubóli og flytja til Reykjavíkur. Áttu þau þar heimili síðan, en ólafur gerðist starfsmaður Rafmagnsveitna ríkisins og vann þeim meðan kraftar entust. Undanfarin tvö ár hefir elli mætt hann mjög, enda á hann ekki nema rúmt ár í áttrætt. Að koma í heimsókn til Jensínu og Ólafs var eins og að koma heim til sín. Ég er ekkert viss um að hún hefði verið mér betri og kær- leiksríkari þótt ég hefði verið son- ur hennar, og börnin okkar Gretu eins og barnabörnin hennar. Jensína var skapheit kona og skaprík og ekki allra. En vinur vina sinna óbrigðul og hverjum manni glaðbeittari á góðri stund. Ég mun sakna hennar, en í hug- skoti mínu mun óafmáanlega geymast myndin af góðri konu og móður og kærum vini. Við Greta og börnin okkar kveðjum hann og biðjum henni Guðs blessunar. ólafi frænda sendum við kveðju vináttu og samúðar og biðjum og vonum að við fáum enn um hríð að eiga hann að. Sverrir Hermannsson Engir hnappar Engar snúrur Notist hvar sem Heildsölubirgðir: K.H.B., umboðs- og heildverslun. Sími 45622. isafjöröur, Sería sf. Keflavík, Draumaland. Sauöárkrókur, Skagflröingabúó. Selfoss, Radio- og sjónvarpsstofan og Kaupfélag Árnesinga. Vestmannaeyjar, Kjami hf., Skóiavegl 1. Vopnafjöröur, Kaupfélagiö. ykir spennta vööva Eykur vellíöan Auöveldur í notkun I VINNUNNI: Látiö púöann mýkja spennta vööva í öxlum, baki eöa fótum viö störf. Fyrir þreytta fætur: hvíliö fæturna á púöanum — eyöið spennu og þreytu eftir vinnu, æfingar o.fl. í BÍLNUM: Engar snúrur né innstungur, halliö yöur bara aftur og njótiö akstursins. Reykjavíkursvæöiö: Heimilistæki, Hafnarstræti 3, Sætúni 6. Hagkaup, Skeifunni 15. Fönix, Hátúni 8A. Miövangur, Vörumarkaöur. Búsáhöld og gjafavörur, Glæsibæ. Blómaskálinn, Kársnesbr. 2, Kópavogi. -----SÖLUSTÐAIR: — Úti á landi: Akureyri, Umb. Jóhanna Þorsteinsd., sími 21264. Akranes, Skagaver, Miöbær 3. Borgarnes, Húsprýði hf. Grundarfjöróur, Kaupfélagiö. Húsavík, Grímur og Árni og Bóka- verslun Þórarins Stefánssonar. HEIMA: Setjiö púöann aftan viö axlir eöa undir hnakka og halliö yður aftur. Sjálfvirki nuddpúöinn fer í gang viö þrýsting og stöövast er þrýst- ingur hættir. Fróðleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! ftJnruamM&foífo

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.