Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 21
) Míor tiM p aTiní,anTí/VT'» ntnt rajTtmcn« MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ1984 — £f* Réttur áagsits Margrét Þorvaldsdóttir Langi þig í væna kjötmáltíð án þess að hafa eiginlega efni á henni, þá eru hér handhægar upp- skriftir af fljóttilbúnum kjötboll- um og búlgörskum grjónum. Kjöt- bollur 500 gr. hakkað kjöt % bolli brauðmylsna (fínmöluð) 'h laukur (niðurrifinn) 1 matsk. Worcestershire sauce 1 stk. egg 1 tsk. salt 'A tsk. Oregano 'h tsk. Thyme (Timian) mjólk 2 bollar vatn 2 kjötkraftsteningar 2—3 matsk. hveiti, hrært út með mjólk Hökkuðu kjöti, brauðmylsnu, lauk, eggi og kryddi blandað vel saman. Hrært nægilega með mjólkinni til að úr verði þétt deig. Mótið litlar kjötboliur 2 sm í þvermál. (Þetta magn gefur 30 stk.) Á pönnu er suðan látin koma upp á 2 bollum af vatni og er kjötkrafturinn leystur upp í vatn- inu. Bollurnar eru settar út í sjóð- andi kjötsoðið, pannan er hreyfð um leið svo bollurnar festist ekki við botninn. Lok er sett yfir og soðið í 10 mín. Sósan er jöfnuð með hveiti, hrærð út með mjólk og dekkt með sósulit. Búlgörsk grjón 1 matsk. matarolía 'h laukur niðurskorinn l'A bolli grjón 2‘h boliar vatn 1 ten. kjötkraftur 1 dós tómatkraftur (lítil) 1 tsk. paprika Olían er hituð í potti og laukur- inn látinn krauma í olíunni í 2—3 mín. Grjónin eru sett saman við og steikt með þar til þau hafa fengið hvítan lit. Vatni, kjötkrafti, tómatkrafti og papriku er síðan bætt út í og látið sjóða í 10—15 mín. í lokuðu potti. (Þessar bollur geymast vel frystar.) Suðutími grjóna og það vatns- magn sem þau taka til sín fer eftir því hve langur tími liðinn er frá uppskeru þeirra. Því lengi tími, því meira vatn. Þar sem uppskera sú sem hér er á markaði virðist ekki nýleg, þá skuluð þið bæta 'h bolla af vatni í Sýrlenska Pilafið sem var í Rétti dagsins á fimmtu- dag. Eldhúsráð: Nú er á boðstólum í verslunum iceberg-salat. Það er hægt að lengja geymsluþol þess um 1 til 2 vikur með því að skera þunna sneið af stofni, fara síðan með oddhvassan hníf inn í stofn- inn og skera burtu 2 sm keilu. Salthöfuðið er sett í skál með vatni sem svarar til hæðar keil- unnar. Draga saltblöðin til sín vatn með uppsogi. Áætlið til þess 1 klst. Vatnið er látið renna af salathöfðinu og það geymt í loft- þéttum plastpoka í kæliskáp. Verð hráefnis: Kjöt kr. 47,50 Brauðmylsna kr. 8,20 Egg Laukur Tómatkraftur Kjötten. (3 stk.) Grjón Alls kr. kr. 7,50 kr. 1,50 6,10 kr. 1,80 kr. 9,90 82,50 bjóðum aöeins gæðagripi gKíd <$%) Fullkomin varahluta- og viðgerðaþ|ónusta Þekking - öryggi - reynsla Mesta úrval landsins af þekktum viðurkenndum merk|um 10 ára ábyrgð. Sérverslun i meira en hálfa öld „ Reióhjólaverslunin ORNINN Spítalastíg 8 Símar: Verzl.: 14661 S. 26888 /CVCLES PEUCEOT A) KALKHOFF MAI ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA IRíkissjóður íslands hefur ákveðið að bjóða út ■ ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæði fjár- laga 1984og með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 79/1983. Öllum er heimilt að bjóða í víxlana. 2Í boði verða víxlar að nafnvirði samtals ■ 30.000.000 kr. með útgáfudegi 11. maí 1984 og gjalddaga 10. ágúst 1984. Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og ■ verður innleystur í Seðlabanka íslands á gjald- daga. 4Gera skal bindandi tilboð i heilt margfeldi af 5 ■ víxlum (þ.e. nafnverð 250.000 kr.). Allir tilboðs- gjafar skulu láta fylgja hverjc: tilboði sínu gjald- keratékka, þ.e. tékki sem gefinn er út af innláns- stofnun, sem tilboðstryggingu. Tékkinn skal vera að fjárhæð 10.000 kr. og stílaður á Seðla- banka íslands v/ríkisvíxlaútboðs. Gangi tilboðs- gjafi frá tilboði sínu, sbr. þó 7. lið, glatar hann fjárhæðinni, ella gengur hún upp í ríkisvíxla- viðskipti viðkomandi aðila eða verður endur- send sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð, sem ekki fylgirgreind innborgun, skal meta ógilt. Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru: Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris- sjóðir, sem viðurkenndir eru af fjármálaráðu- neytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru af Tryggingaeftirliti ríkísins. 5Tilboð má senda á sérstökum eyðublöðum sem ■ fást í Seðlabanka. Tilboðin ásamt tilboðstrygg- ingu, ef um hana er að ræða, berist lánadeild Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 9. maí 1984 og séu í lokuðum ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau séu sérstaklega merkt orðinu „Ríkisvíxlaútboð". ■ II 6Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað- ■ festu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu- leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið. 7Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða ■ hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lánadeild Seðjabankans fyrir kl. 14.00 hinn 9. maí 1984. 8Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er, ■ verður tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00 hinn 10. maí 1984. Staðfestingarbréf verða auk þess send til þeirra. Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er eða eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sér- staklega að öðru leyti en með endursendingu tilboðstryggingar í ábyrgðarpósti. 9Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega ■ eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna til- boðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla. Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið ■ verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn geymi víxlana. Berist greiðsla ekki á réttum tíma áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefjast tilboðs- gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrirþann tíma sem greiðsla dregst, auk þess sem tilboðs- gjafi glatartilboðstryggingu sinni. Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þókn- ■ unar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglur og gilda hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja ■ frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar- stræti 10, Reykjavík. Reykjavik, 3. mai 1984 RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.