Morgunblaðið - 23.05.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1984
69
ræða spurningu um orðanotkun
eða framsetningu, heldur óskylda
hluti. Annars vegar er um að ræða
rétt barns og hins vegar rétt for-
eldris. Stundum fara þessi atriði
saman og stundum ekki, en líkt og
áður hefur komið fram skiigreina
barnalögin réttarstöðu barna.
Meðlag er til
framfærslu barns
Svo gripið sé aftur niður í grein
HP, kemur fram í máli foreldris
sú skoðun að það sé undariegt
óréttlæti að foreldri sé skylt að
greiða meðlag til framfærslu
barni þótt barnið af einhverri
ástæðu njóti ekki umgengni við
þann er greiðir. Skoðum þetta
nánar. Meðlag með barni er til
framfærslu þess. Því þarf barn, og
á rétt á, framfærslu þess er ekki
fer með forsjá hvort heldur barnið
hefur við foreldrið umgengni eða
ekki. Fásinna er að ætla sér að
nota framfærslueyri barns sem
þvingunarúrræði til að knyja á
umgengni. Slík ráðstöfun myndi
engum koma verr en barninu
sjálfu er i hlut á.
Lögin ekki vandamál
heldur framkvæmd þeirra
Það er skoðun mín að barnalög-
in hafi verið nauðsyn. Ef til vill er
kominn tími til að endurskoða þau
í Ijósi fenginnar reynslu. Því má
m.a. velta fyrir sér hvort ástæða
er til að taka inn í barnalögin rétt
foreldra til forsjár og umgengni
þar sem hagsmunir barna og for-
eldra fara ekki alltaf saman. Af
grein minni má þó skilja að laga-
setningin útaf fyrir sig sé ekki
hindrun heldur hitt að núverandi
lög eru gjarnan misskilin. Hið
mikilvægasta er þó að gera sér
grein fyrir að ekki er mögulegt að
leysa tilfinningalegar deilur for-
eldra um forsjá og umgengni með
lagasetningu heldur verður að
gera ráðstafanir áður en til slíkra
deilna kemur. Aðeins með þeim
hætti er hægt að tryggja stöðu
barna og varna því að þau verði
bitbein foreldra.
Gudjón Bjarnason er fram-
kvæmdastjóri Barnaverndarrids
íslands.
Armstrong
Arma£lex
pípueinangrun
Pípulagningamenn - Húsbyggjendur -
Lesið þessa auglýsingu!
Veruleg verölækkun á ARMAFLEX-pípueinangrun hefir nú nýlega gert þaö aö verkum, aö
þessi vandaöa framleiösla á pípueinangrun, sem hingaö til hefir hér á landi einungis veriö
notuö til einangrunar í frystihúsum og verksmiðjum, mun nú halda innreiö sína á sölumarkað
pípueinangrunar fyrir hverskonar húsahitun og kaldavatnsleiöslur.
FYRIRLIGGJANDÍ: slöngur — plötur — límbönd og tilheyrandi lím og málning.
&
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Hringið eftir ókeypis
sýnishorni-bæklingi.
Ármúla 16, Reykjavík, sími 38640.
Sumarhjólbarðar
Heilsóluð radial-
dekk á verði sem
fáir keppa við
Jkoyþ
155 x 12 Uppseld kr. 1.080.-
155 x 13 kr. 1.090.-
165 x 13Uppseld kr. 1.095.-
175 x 14 kr. 1.372,-
185 x 14 kr. 1.396.-
175/70x 13Uppskr. 1.259,-
185/70 x 13 kr. 1.381.-
VEITUM
FULLA
ÁBYRGÐ
Síöumúla 17, inngangur aö
neöanveröum áusturenda.
Sími 68-73-77.