Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 29 Jónína á Illuga- stöðum níutíu ára Níutíu ár þykja varla langur tími í þjóðarsögunni, öðru máli gegnir með þann einstakling sem leggur þann tíma að baki. Muna má hann tvenna tíma, sérstaklega er tímabilið frá síðustu áratugum nítjándu aldarinnar og fram að þessum tíma viðburðaríkt í okkar þjóðarsögu. Um það verður auð- vitað ekki fjallað hér, aðeins með nokkrum fátæklegum orðum að því vikið að í dag, þann 31. ágúst, hefur hin mæta heiðurskona Jón- ína á Ulugastöðum náð þessum háa aldri og eru þó þessi orð aðal- lega framsett til að tjá henni ein- lægar þakkir fyrir vináttu hennar og órofa tryggð í minn garð, konu minnar og fjölskyldunnar allrar. Megna orðin að vísu lítils, en votta þó brot af því sem í huganum býr. Ögn Jónína Gunnlaugsdóttir, eins og hún heitir fullu nafni, er fædd á Geitafelli á Vatnsnesi, Vestur-Húnavatnssýslu, 31. ágúst 1894. Foreldrar hennar voru sæmdarhjónin Gunnlaugur Skúla- son hreppstjóra Gunnlaugssonar frá Stöpum og Auðbjörg Jakobs- dóttir Bjarnasonar bónda á Illuga- stöðum. Móðir Auðbjargar, en amma Jónínu, var Auðbjörg Jónsdóttir, dótturdóttir Guð- mundar Ketilssonar á Illugastöð- um. Seinni maður Auðbjargar Jónsdóttur var Ari Árnason. Móð- ir Gunnlaugs var Sesselja Jóns- dóttir í Stöpum. Eru þessar ættir alkunnar hér um slóðir og þótt víðar væri farið. Á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl 1919, gengu þau i hjónaband, Guðmundur Arason bóndi á 111- ugastöðum, síðar hreppsstjóri í Kirkjuhvammshreppi, og Jónína þá á Geitafelli. Var flutningur hennar stuttur til ættarseturs maka síns, ein bæjarleið, en á 111- ugastöðum hefur hún ætíð síðan átt heimilisfang sitt. Stóð búskap- ur þeirra hjóna við rausn og myndarbrag uns Guðmundur lézt þann 15. janúar 1961, má segja að þá hafi orðið sveitarbrestur. Ulugastaðir eru allstór jörð, eft- ir því sem hér gerist. Þar er æð- arvarp og viðarreki til hlunninda, þótt saman hafi dregist hvort tveggja sem víðast hvar annars staðar. Mörg sporin á Jónína um varplandið, enda er natni hennar Mikil smokk- fiskveiði á Patreks- fírði l'atreksnrAi. 29. ágúst. SMOKKFISKVEIÐI hófst hér á Patreksfirði á mánudag og er veiði mjög góð. Veitt hefur verið inni í Grænhólsdýpi sem er inn- an við býlið Hvalssker, innst í Patreksfirði. Átta bátar lönduðu hjá Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar í morgun 2 tonnum og 100 kíl- óum og var aflahæsti báturinn Katrín BA 71 með 490 kíló. í gærmorgun, þriðjudag, lönd- uðu fimm bátar hjá Hrað- frystihúsinu 2 tonnum og 70 kílóum. Á undanförnum tveim dög- um er búið að landa 7 tonnum og 700 kílóum af smokkfiski hjá Fiskverkunarstöðinni Odda. Er mikil eftirvænting meðal manna og eru allir á veiðum sem vettlingi geta vald- ið. Pétur og umhyggja fyrir kollunum sem best má vera. Urðu þær nánast vinir hennar, áttu hreiður sín við bæjarvegginn þangað sem þær leituðu vor eftir vor og var storkið um bakið og talað við. Það er eins og æðarvarpið eigi sér eitthvert seiðmagn, sem dregur þá til sín sem búa þar fuglinum setur. Útræði var áður stundað frá 111- ugastöðum, vor og haust, sem og víðast á Vatnsnesi, en lagðist af er fiskgengd þvarr og fólki fór fækk- andi. Var því oft allmannmargt og í mörgu að snúast fyrir húsfreyj- una. En dugnaður Jónínu var mik- ill, átti hún þó við megna van- heilsu að stríða árum saman. Gestagangur hefur og ætíð verið mikill á Illugastöðum, sérstaklega var hann umtalsverður um varp- tímann á vorin, komu jafnvel hóp- ferðabílar sem leið áttu um Vatnsnesið þar heim og urðu allir að þiggja góðgerðir. Mörgum gest- inum var fylgt um varplandið, en heima biðu hrokuð borð veizlu- kosts. Á öllum árstímum bar þar tíð- um gest að gerði, margur átti er- indi við hreppstjórann, auk þess sem þar var símstöð um árabil. Þágu allir góðan beina og oft var þar leitað gistingar, raunar boðin fram sem sjálfsagður hlutur af þeirri umhyggjusemi og nærgætni sem þeim hjónum var í brjóst lag- in. En fleiri nutu þar umönnunar en ferðalangar einir. Þar dvöldu einnig sjúkir og sárir lengur eða skemur og einstæðingar áttu þar athvarf. Margt heimilið í sveitinni sem miður mátti sín eða var að einhverju illa sett fékk þaðan oft góðar sendingar og hlýjar kveðjur. Jónína er mannkærleikakona. Ekkert var henni hugstæðara en hjálpa í nauðum. Áttu hún og maður hennar ekki minnstan þátt í stofnun slysavarnardeildarinnar Vorboðans, fyrir fjörutíu árum, þótt margir fleiri góðir menn ættu þar hlut að. Var hún um skeið formaður deildarinnar og starf hennar það mikils metið að stjórn SVFÍ gerði hana að heiðursfélaga á 75 ára afmæli hennar. Mörgum öðrum fremur hefir Jónína áhuga á varðveizlu gam- alla muna, minja og sagna. Studdi hún mjög að söfnun muna til byggðasafnsins á Reykjum í Hrútafirði, þegar það var í undir- búningi. Margt man hún enn frá gamalli tíð, þótt eitthvað sé farið að förlast minni, eins og eðlilegt er. Eins og að líkum lætur hefir Jónína áunnið sér vináttu, traust og virðingu samferðafólks. Sjálf er hún hverjum manni trygglynd- ari og vinfastari. Hún er einörð í hugsun og lætur ekki hrekjast frá skoðunum sínum. Alla tíð hefir hún verið öruggur fylgismaður Sjálfstæðisflokksins og heimili hennar sóttu nokkrir hinna glæsi- legu forvígismanna flokksins, t.d. Gunnar Thoroddsen, Jóhann Haf- stein, Jónas Rafnar, Birgir Kjaran o.fl. En hér á Vatnsnesi var um tíma starfandi sjálfstæðisfélagið Fjölnir, er átti öruggt athvarf hjá hinum áhugasömu Ulugastaða- hjónum. Eins og áður er að vikið hefir Jónína lengi átt við mikla van- heilsu að stríða, sérstaklega þjáð af höfuðveiki um áraraðir. Fyrir löngu fór sjón hennar mjög að hnigna, unz hún missti hana með öllu. Síðan hefir hún dvalið hjá Auðbjörgu dóttur sinni og J6- hannesi manni hennar á Syðri- Þverá í Vesturhópi. Þótt heilsu hennar hafi hrakað í seinni tíð er enn reisn yfir þessari níræðu konu, framganga hennar er höfð- ingleg sem áður og sviphrein og bein í baki gengur hún mót straumi lífsins. Gesti sína og vini þekkir hún á raddblænum, ræðir gjarnan við þá um landsins gagn og nauðsynjar, fylgist með því sem er að gerast, en lætur hugann eins oft reika til liðins tíma. Bjarni Thorarensen segir í eft- irmælakvæði um sæmdarkonu: „Sálar um falið hið forna fögur skein innri konan Skýrt máttu skatnar og líta að skrúðklæði var það.“ Enn sveipast fögur skrúðklæði um innri mann hinnar öldnu höfð- ingskonu, húsfreyjunnar á Illuga- stöðum. Guðjón Jósefsson, Ásbjarnarstöðum. Náttúruverndarfélag Suðvesturlands: N áttúr uskoðunar- og söguferd um Kjósarhrepp í ferðaröðinni „Umhverfið okkar“, 8. ferð, fer Náttúru- verndarfélag Suðvesturlands náttúruskoðunar- og söguferð um Kjósarhrepp laugardaginn 1. september. Farið verður frá Norræna húsinu kl. 13.30 og frá Reynivöllum kl. 14.15. Áætlað er að ferðinni ljúki kl. 19.00 við Reynivelli og kl. 19.45 við Norr- æna húsið. Fargjald er 200 kr. og ókeypis er fyrir börn í fylgd full- orðinna. Allir eru velkomnir. Sérstaklega viljum við benda Kjósverjum á að notfæra sér þessa alhliða fræðsluferð. Leiðsögumenn verða: Kristján Sæmundsson jarðfræðingur, sem skýrir fyrir okkur jarð- inn. Þó er fiskirækt æ meira að ryðja sér til rúms og er Laxá í Kjós ein mesta laxveiðiá lands- ins. Skógrækt er stunduð í aukn- um mæli. Náttúrufegurð er mik- il í Kjósinni, lífríkið er fjölbreytt og jarðfræðin áhugaverð- Vog- arnir eru mikilvægir fyrir vað- fuglana til fæðuöflunar. Merkar fornminjar er að finna á svæð- inu og verið er að grafa upp hluta þeirra og fáum við leiðsögn um það svæði með fornleifa- fræðingi. Starfandi er Sögufélag Kjalarnesþings. Sérstök samtök áhugamanna um náttúru og um- hverfisvernd eru ekki starfandi á svæðinu. Frá Reynivöllum verður farið Við Luá í Kjós. myndanir og landslag á svæðinu. Jóhann Oli Hilmarsson sýnir okkur fugla og fjörulíf. Þorvaldur Örn Árnason líf- fræðingur fjallar um gróðurfar- ið almennt. Séra Gunnar Kristjánsson fer yfir sögu og örnefni svæðisins. Við fáum einnig gesti til okkar í bílinn. Lítil breyting hefur orðið á byggðinni í Kjósarhreppi í seinni tíð, flest bæjarnöfn eru nokk- urra alda gömul, ennþá er land- búnaðurinn aðalatvinnuvegur- kl. 14.15 inn í Brynjudal að Ing- unnarstöðum. Þaðan verður haldið inn að Botnsá. Þar verður snúið við og haldið til baka að Kiðafellsá. Á leiðinni verður stoppað á Hálsnesi og merkar fornminjar skoðaðar og fjörulíf í Laxárvogi. Frá Kiðafellsá verður farinn Miðdalur, Eilifsdalur og yfir að Meðalfellsvatni og kring um Meðalfell og farið yfir Laxá hjá Kjósarrétt og ekið út Lax- árdal að Reynivöllum. Til Reykjavíkur verður ekið um Kjósarskarð. (Frá NVSV) HcÁIU^hXcfíi^ eru flutt í húsnæði að Bolholti 6 Fjölbreytt námskeiö hefjast í september fyrir ungar stúlkur, konur á öllum aldri og herra. Hvaöa hópur hentar þér??? Sérfræöingar leiöbeina meö snyrtingu, hárgreiöslu, fataval, hreinlæti, framkomu, borö- siði, gestaboö, ræöumennsku, göngu og fl. 12 sinnum tvisvar í viku. nr. 7 nr. 2 nr. 3 nr. 4 nr. 5 nr. 6 Fyrtr ungar konur Stutt snyrtinámskeiö. Fyrlr startsMpa, Fyrir ungar stúlkur Fyrir herra á öllum aldri A öllum aldri Þrievar sinnum. saumaklúbba. 14-16 ára. Skólahópa. Sex sinnum Afta slnnum Tnar W kl. stund Sex sinnum Átta sinnum •inu sinni i vlku. •inu slnni I vtku. Handsnyrting sinu sinni í viku. sinu sinnl I viku. Hárgrelðsia — Hrelnlætl Framkoma — Hárgreiösla Andlltshreinsun Snyrting Framkoma — Hreinlæti Fatnaöur Snyrling Snyrting Framkoma — Hárgreiðsla Fatnaður — Snyrting Snyrtlng Fatnaöur — HrelnlaBtl Dagsnyrtlng — KvöWsnyrtlng Borösiöir Borösiöir — Ganqa Ftæóumennska — Framkoma Borösiðlr Sex í hóp. Átta—tíu I hóp. Hagsýnl. Tiu—flmmtán í hóp. Tíu I hóp. Tíu i hóp. fyrir verðandl (ýnlngartófc. Dömuogherra. Fimmtán sinnuin •inu slnnl I vlku. Snyrtlng Fatnaður — Hralnlœti Qanga. Tíu—flmmtán I hóp. Innritun og upplýsingar daglega frá kl. 2—7 í síma 68-74-80 og 68-75-80 Unnur Arngrímsdóttir, sími 36141.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.