Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 1. deildar baráttan í alqleymingi: Hverjir falla niður í 2. deild? NÚ Á aöeins eftir aö leika þrjár umferöir í 1. deild karla í ístandsmótinu í knattspyrnu og spennan hefur varla veriö meiri nú síöari ár, þó svo mótió í fyrra hafi veriö spennandi. Segja má að Skagamenn séu nokkurnveginn öruggir um aö vinna mótió og eins telja margir aö Keflvíkingar séu nokkuð öruggir meö annaö sætiö, en hvorugt þessara s»ta er alveg fastskipaö því fræöilega séö er möguleiki að Skaginn nái ekki aö vinna mótió, þó sá möguleiki sé lítill, og enn er alsendis óvíst aö Keflvíkingar séu öruggir meö annaö sætið. Þau lið sem nú eru á botninum, Fram, KA og Breiöablik eiga öll möguleika á aö komast hátt upp í töfluna þó svo þau geti ekki ógnaö ööru sætinu. Lítum aöeins á þá leiki sem hvert félag um sig á eftir aó leika og veltum fyrir okkur um leiö þeim möguleikum sem hvert félag hefur. • Keflvíkíngar eru öruggir um aö halda sæti sínu (1. deild en Breiöa- blik er hins vegar í mikilli failhættu. Nú er spurningin hvort næsta ár verói leiknir 1. deildar leikir á Kópavogsvelli eöa ekki. Þessi skemmti- lega mynd var tekin í leik Breiöabliks og Keflvíkinga á Kópavogsvelli í sumar. Þaö eru þeir Siguröur Björgvinsson frá Keflavík og Ómar Rafnsson úr Breiðabliki sem hér eigast vió. Skagamenn eru nú meö 34 stig i fyrsta sæti og hafa aöeins tapaö þremur leikjum og gert eitt jafn- tefli. Ekki ætti aö vera mikil hætta á því aö þeir nái ekki titlinum í ár, til þess hafa þeir allt of reynt liö til aö þeir láti hann fara frá sér núna þegar þeir hafa haft aöra höndina á honum megniö af sumrinu. Skagamenn eiga eftir aö leika þessa leiki: KR-ÍA Þróttur-ÍA ÍA-Breióablik. Ekki er aö efa aö ailir þessir leikir veröa erfiöir þvi öll þessi liö sem ÍA á eftir aö leika viö eru í fallbaráttunni og mega ekki viö því aö missa stig. Skagamenn munu örugglega reyna aö fá eins mörg stig og þeir geta út úr keppninni, en þó er sú hætta fyrir hendi aö þegar bikarinn er tryggöur, eftir næstu tvö stig þeirra eöa næsta tap ÍBK, þá leiki liöið ekki eins markvisst og þá gætu liöin sem leika gegn þeim í síöari umferöun- um notiö góðs af því. Keflvíkingar eru í ööru sæti og eru búnir aö vera þar í allt sumar. Fræöilega eiga þeir möguleika á Islandsmeistaratitlinum en fæstir telja þó möguleika á aö þeir veröi meistarar í ár. Þeir eru meö 27 stig og eiga þrjá leiki eftir: ÍBK-Þór. ÍBK-KR. Vikíngur-ÍBK. Tveir heimaleikir og síöasti leik- urinn gegn Víkingum. I þessum leikjum ættu þeir aö ná sér í nokk- uö mörg stig, en eins og þeir vita sem fylgst hafa með knattspyrn- unni í sumar er ekki nokkur leiö aö spá fyrir um úrslit leikja. Bæði KR og Þór hafa sýnt þaö í sumar aö þau geta sigraö hvaöa liö sem er. Þau hafa leikíö mjög vel en svo hafa komið leikir þar sem hvorki stendur gengur né rekur hjá þeim. Sömu sögu er aö segja af Víking- um. Þeir geta alveg gjörbreist dag frá degi og ef þeir veröa enn í fall- baráttu þegar þeir leika gegn Keflvikingum í síöasta leiknum þá er sigurinn trúlega þeirra. Valur er í þriöja sæti núna eftir aö hafa vermt botninn all lengi í sumar. Þeir hafa hlotiö 23 stig og hafa ekki tapaö í siöustu fimm leikjum sínum og þaö er álit allra sem fylgst hafa meö þeim aö þeir leiki oröiö mjög skemmtilegan og, upp á síökastiö, mjög árangursrík- an fótbolta. Leikirnir sem þeir eiga eftir eru: . X Valur-Breiöablik. Fram-Valur. Valur-Þór. Ef allt gengur eölilega í þessum leíkjum þá ættu Valsarar aö geta fengiö níu stig út úr þeim. En eins og margoft er búiö aö tönnlast á þá eru aöstæöur alls ekki eöli- legar. Spennan er geysileg og leikmenn, jafnt sem áhorfendur, vita aö þeir veröa aö gera allt sem i þeirra valdi stendur til aö falla ekki niöur i 2. deild. Þessi staö- reynd getur og mun iíklega hafa áhrif á þá leiki sem hér um ræöir. Allt liö sem geta falliö og þyrstir í stig og þaö gerir þaö aö verkum aö leikir Vals veröa aö teljast erfiö- ir. Víkingar kræktu sér í þrjú dýr- mæt stig á miövikudaginn þegar þeir sigruöu nýbakaöa bikarmeist- ara KSÍ á Akranesi. Þeir eru nú meö 20 stig og eiga þrjá leiki eftir, tvo heimaleiki og einn útileik. Víkingur-Fram. Þór-Víkingur. Víkingur-IBK. Þetta veröa allt saman erfiöir leikir, Framarar eru illa settir ef þeir ná ekki í stig á mánudaginn gegn Víkingum, og Þórsarar veröa aö ná sér í stig. Leikurinn viö Keflvíkinga gæti oröiö mjög þýö- ingarmikill fyrir bæöi liöin því Valsmenn hafa fullan hug á því aö krækja sér í annaö sætiö í deild- inni og því þurfa Keflvíkingar aö hala inn stig til aö láta þá ekki taka af sér sætiö sem þeir eru búnir aö vera í i allt sumar. Þróttur er í fimmta sæti meö 19 stig og standa þeir mjög illa aö vígi. Ársæll Kristjánsson, einn af lykilmönnum þeirrar veröu ekki meira meö í sumar og þeir eiga tvo erfiöa útileiki eftir. ÍA-Þróttur. KR-Þróttur. Margir töldu aö Þróttur ætlaói aö veröa meöal efstu lióa, þeir höföu leikiö ágætlega og voru lengi vel í þriöja sæti en um síö- ustu helgi töpuöu þeir óvænt fyrir KA og þá eru þeir skyndilega komnir í fallhættu. Leikir þeir sem Þróttur á eftir er hæpiö aö jjeir nái aö vinna, en þeir ættu aö geta náö einu stigi og þá er bara spurningin hvort 20 stig nægja til aö falla ekki. Þaö verður aö teljast líklegt. KR-ingar standa einnig illa aö vígi nú í lokabaráttunni. Þeir eru meö 18 stig og eiga þrjá leiki eftir: KR-ÍA. ÍBK-KR. KR-Þróttur. Erfiöir leikir og ef þeir tapa gegn ÍA á laugardaginn þá er útlitiö reglulega svart. Markatalan þeirra er mjög slæm, 16:23, og gæti þaö komið þeim í koll þegar upp er staöiö. Leikurinn í Keflavík veröur erfiöur, hér í bænum vann KR 1:0, og var þaö tæpt. Leik Þróttar og KR úr fyrri umferöinni lauk meö markalausu jafntefli og var meö slökustu leikjum sumarsins, líklega veröur þaö mikill baráttuleikur þann 15. september. Akureyrarfélagiö Þór var lengi nokkuö framarlega í deildinni, þeir hafa leikiö vel í mörgum leikjum en vantaó aö skora mörk. Þeir eiga tvo útileiki og einn heimaleik eftir: ÍBK-Þór. Þór-Víkingur. Valur-Þór. Geysilega erfitt prógram miöaö viö hvernig þessi liö hafa leikiö aö undanförnu. Þórsarar veröa aö fá stig ef þeir ætla sér aö vera áfram í 1. deildinni. Úr hvaöa leikjum þaö verður er ekki gott aö segja, þeir geta dottiö niöur á góöan dag og þá standast fá liö þeim snúning, en t>eir geta líka leikið eins og byrj- endur og eru þá auöveld bráö hvaöa liöi sem er. Breiöablik er nú í þriöja neösta sæti með 16 stig, þeir hafa aöeins unniö einn leik á sínum heimavelli. Leikirnir sem þeir eiga eftir eru: Valur-Breíóablik. Breiöablik-KA. ÍA-Breióablik. Blikarnir eiga tvo útileiki, gegn Val og Skaganum, og teljast verö- ur erfitt fyrir þá aö ná sér í mörg stig þar, en ekkert er öruggt í heimi knattspyrnunnar. Leikurinn gegn KA veröur geysilega mikil- vægur, þrjú stig úr innbyröis leikj- um botnliöanna eru mjög mikilvæg og nauösynleg fyrir liöin ef þau ætla aö halda sér í deildinni. Blik- arnir geta leikiö vel en hefur vant- aö meiri grimmd upp við mörkin og ef þeir skora ekki mörk þá fá þeir ekki þrjú stig úr leikjum sín- um. KA stendur einna verst aö vígi allra liöa, búnir meö 16 leiki og eru með 16 stig. Voru seigir aö ná sér í þrjú stig gegn Þrótti á dögunum og eru staöráönir í aö fá sex stig úr þeim tveimur leikjum sem eftir eru. Leikir þeirra: Breiðablik-KA. KA-Fram. Þetta eru trúlega þýóingarmestu leikirnir fyrir botnbaráttuna. KA á eftir aö leika viö þau liö sem skipa sætin sitt hvorum megin viö þá í töflunni eins og hún lítur út núna. Erlingur Kristjánsson, hinn sterki varnarmaöur þeirra, veröur fjarri góöu gamni í lokabaráttunni því hann var settur í tveggja leikja bann vegna 15 refsistiga á dögun- um og missir af báöum leikjunum. Ef ég þekki noröanmenn rétt þá eflast þeir viö þetta og því skyldi enginn afskrifa þá fyrr en loka- staöan er Ijós. Framarar, liöiö sem rétt tapaði úrslitaleiknum í bikarkeppninni skipar neösta sæti deildarinnar. Þeir hafa veriö á uppleiö í síóustu leikjum sínum en spurningin er hvort þaö sé ekki oröiö of seint. Þeir eiga eftir aö leika eftirtalda leiki: Víkingur-Fram. Fram-Valur. KA-Fram. Úr leikjum viö þessi liö í fyrri umferöinni fengu þeir fjögur stig. Víst er um aö þaö veröur mikiö barist og allir leikmenn liösins veröa aö einbeita sér til hins ítrasta ef þeir ætla sér aö ná því aö halda liöinu í 1. deild. Þeir hafa innan sinna raöa markahæsta leikmann deildarinnar og ef aörir leikmenn gætu skoraö eitthvaö af mörkum þá ætti liöiö ekki aö þurfa aö örvænta en hingaö til hefur þaö gengið erfiölega fyrir þá. Af því sem hér að framan er rak- iö er Ijóst aö baráttan um áfram- haldandi sæti í 1. deildinni er mjög höró. Innbyröis leikir botnliöanna geta skipt sköpum og þar veröur annaö hvort iiöiö aö fá þrjú stig ef þeir ætla sér aö breyta stööunni eitthvaö sér í vil. Frekari spádómar eru tilgangs- lausir því þaö er algjörlega útilok- aö aö ætla sér þá dul aö geta sagt fyrir um hvernig lokastaöan í deild- inni veröur, flest liöin eru í einum hnapp og sem dæmi má nefna aö Staöan í 1. deild ÍA 15 11 1 3 29:16 34 ÍBK 15 8 3 4 18:14 27 Valur 15 6 5 4 21:14 23 Víkingur 15 5 5 5 17:17 20 Þróttur 16 4 7 5 17:17 19 KR 15 4 6 5 16:23 18 Þór 15 5 3 7 22:22 18 UBK 15 3 7 5 15:16 16 KA 16 4 4 8 23:34 16 Fram 15 4 3 8 15:20 15 • Ögmundur Kristinsson og fé- lagar hans í Víkingi hafa trúlega tryggt sér áframhaldandí sæti í 1. deild meö sigri sínum yfir Skag- amönnum á miövikudaginn. Hér sést Ögmundur grípa vel inn í einn af fjölmörgum leikjum sumarsins. ef Fram, neösta liöiö, vinnur alla sína leiki þá eru þeir komnir meö 24 stig en líklegt er aö þau llö sem falla veröi meö 19 stig. Akraprjóns- golfmótið NÚ HEFUR veriö ákveöiö að halda Akraprjónsmótiö í golfi um helg- ina sem nú er um þaö bil aö skella á, en eins og við skýrðum frá var mótinu freataö um síöustu helgi. Ákveöiö hefur veriö aö halda mótiö á golfvelli Golfklúbbsins Leynis á Akranesi á sunnudaginn kemur og á aö byrja aö ræsa út kl. 11 árdegis. Þessi keppni er opin kvenna- keppni þar sem keppt verður um mörg og góö verölaun bæöi meö og án forgjafar. Fylkir og Reynir í kvöld Leik Fylkis og Reynis frá Sand- j gerði, sem vera átti á morgun, laugardag, hefur nú verið flýtt og fer leíkurinn fram á Árbœjarvelli í kvöld kl. 18.30. Þetta er úrslita- leikurinn í A-riöli 3. deildar og veröur örugglega um hörku leik aÓ ræöa. Ástæöa þess aö leiknum hefur veriö flýtt er sú aö Cmar Björns- son, aöal markaskorari Reynis, er í haustprófum í Háskólanum og Fylkismenn féllust á aö færa leik- inn til þannig aö hann gæti leikiö meö. Fylkir er meö 34 stig í riölinum en Reynir meö 31 stig. Reynir veróur aö vinna ieikinn til þess aö komast upp i aöra deild en Fylki nægir jafntefli. Reynismenn þurfa meira aö segja aö vinna meö þriggja marka mun til þess aö verða fyrir ofan Fylki og veitir þeim því ekki af aö hafa Ómar meö í leiknum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.