Morgunblaðið - 26.10.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.10.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984 15 Loksins — eftir Arna Halldórsson Ekki get ég neitað því að hrifinn varð ég þegar ég fletti Mogganum á sunnudaginn var (9. september). Á bls. 30 hefst viðtal við Jón Ingvarsson og ber það fyrirsögn- ina: Frjáls álagning og frjálsir vextir ... hvers vegna ekki frjáls- an gjaldeyrismarkað? Mér flaug í hug það sem kerl- ingin mælti forðum daga: „Mikið var að beljan bar.“. Ef ég hef skilið prófessor Ólaf Björnsson rétt, þegar hann var að reyna að troða hagspeki í haus okkar laganema fyrir nær 40 ár- um, eru frjáls gjaldeyrisviðskipti einn af hornsteinum viðskipta- frelsisins. Ef þeim steini er kippt í burtu er ekki um frjálsa verslun að ræða, rétt eins og friðþæg- ingarkenningin fellur máttlaus, ef helvíti er afnumið. - 0 - Þjónustugeiramenn, eða blý- antsnagararnir, svo notað sé orð- færi Guðna heitins Jónssonar skipstjóra, hafa lengi átt í basli með rekstrargrundvöll sjávarút- vegsins, enda hefir sá grundvöllur oft og lengi verið einhverstaðar úti í hafsauga. Af því hefir leitt að grípa hefir þurft til allskonar bjargráða til þess að það fólk sem brauðfæðir sig af fiskifari og fiskvinnslu hafi eitthvað fyrir sig að leggja. - 0 - Þessi bjargráð hafa verið fólgin í allskonar ölmusum úr ríkissjóði, auk gengisfellinga, enda löngu svo komið að meginþorra þjóðarinnar finnst það harður kostur (val- kostur) að standa undir endalaus- um styrkjum og ölmusum, jafn- framt þvf að þurfa sí og æ að axla ok gengisfellinganna. Eins og gengur hafa slordónar ekki kunnað að meta og þakka það sem fyrir þá er gert, enda eru laun heimsins vanþakklæti og mikið vill meira. Oft hefir vanþakklæti þeirra verið ámóta og Hallgrims lítill hluti þeirra útlendinga sem hingað koma kaupa bækur. En lít- ill hundraðshluti alls ferðamanna- straumsins á ári hverju hlýtur að vera bókmenntafólk, fólk sem vill kynnast því hvernig ort er og skrif- að hér, einmitt á okkar tímum. Vill geta haft heim með sér og lesið i næði eða sent héðan lesefni handa vinum og ættingjum eða jafnvel allt þetta. Auðvitað yrðu slíkar útgáfur hvorki gróðavegur fyrir útgefend- ur né höfunda. En hér verða flestir að sætta sig við ótrúlega lága árs- sölu af bókum sínum og myndu hvort eð væri aldrei lifa af þeim tekjum sem inn koma fyrir bóka- sölu. En vel gæti svo farið að sala á efni eftir suma höfundana, ef bæk- ur þeirra væru gefnar út í þýðing- um og seldar hér á landi, yrðu a.m.k. hálfdrættingstekjulind á við það, sem þeir selja á frummálinu. Bókmenntaiegir útlendingar, sem hingað koma, eru áreiðanlega ekki miklu færri en þeir væntanlegir kaupendur sem kunna að falla í hlut hvers einstaks rithöfundar innanlands. Raunverulegir bók- menntalesendur skiptast á ári hverju á milli þó nokkurra bóka, enginn hefur efni að kaupa allt sem hann kynni að óska sér. Hér yrðu þýddu bækurnar tiltölulega fáar. Hér geri ég ekki nánar grein fyrir þessu máli. Það er nú að koma á dagskrá og verður rætt nánar siðar. En þýðing isl. bóka, ef vel tekst með val þeirra og sölu- skipulagningu, er fyrst og fremst auglýsing fyrir þjóðlíf okkar og menninmi og myndi vekja nýja for- vitni á Islandi. Jón úr Vör. heitins Péturssonar, er hann þakkaði veittan beina með vís- unni: Úti stend ég ekki glaður, illum þjáður raununum. Þraut er að vera þurfamaður þrælanna í Hraununum. - 0 - Finnbogi hét maður Guð- mundsson, kenndur við Gerði á Rosmhvalanesi. Hann var kosinn í fyrstu stjórn LlÚ og fyrstu stjórn SH og sat í stjórn þeirra félaga nær óslitið meðan þrek entist. Finnbogi ritaði margar greinar í Morgunblaðið um „vanda útgerð- arinnar" og ef ég man rétt var hann ákafur talsmaður þess að út- vegsmenn fengju að selja sinn gjaldeyri á frjálsum markaði. - 0 - í viðtalinu við Jón Ingvarsson er haft eftir honum: „Nú er mikið talað um aukið frelsi á öllum sviðum viðskipta- lífsins. Frjáls álagning og frjálsir vextir. Hvers vegna getur gjald- eyririnn sem útflutningsatvinnu- vegirnir afla ekki fundið sitt rétta verð á frjálsum gjaldeyrismark- aði. Ef til vill fengist með því hin eina rétta gengisskráning." Um Ieið og ég þakka Jóni Ingv- arssyni fyrir þessi orð heiti ég á hann að fylkja liði til framgangs þessu máli. Það ætti varla að verða mjög erfitt, því: Vilja ekki útvegsbændur, sjó- menn, starfsfólk i fiskiðnaði og allir aðrir slordónar reka af sér ómagaorðið? Vill ekki þjónustugeirinn losna undan eilífum ölmusugjöfum til framfærslu öllum þeim, sem hafa uppeldi sitt af fiskifari? Árni Halldórsson „Þjónustugeiramenn, eða blýantsnagararnir, svo notað sé orðfæri Guðna heitins Jónsson- ar skipstjóra, hafa lengi átt í basli með rekstrar- grundvöll sjávarút- vegsins, enda hefir sá grundvöllur oft og lengi verið einhverstaðar úti í hafsauga.“ Vilja ekki stjórnvöld, og sá herskari sem með þeim vinnur að útreikningi bjargráðanna, losna undan þeim vanþakkláta vanda er fylgir fjáröflun til fátækrafram- færslu og útdeilingu náðarbrauðs- ins? Eru ekki allir sammála um að best sé að hver éti úr sínum dalli, svo sem kostur leyfir? Egilsstöðum, 11. september 1984 Árai fUlldórsson er hæstaréttsr- lögmaður, búsettur á Kgilsstöðum. VETRARAÆTLUN innanlandsflugs Arnarflugs tók gildi 15. september og er (logió til tíu staða, alls 38 sinn- um í viku, og notaðar flugvélar af gerðunum Twin Otter með 19 far- þegasæti og Cessna 402C með níu farþegasæti. Nú hefst flug að nýju til Grund- arfjarðar, eftir tveggja ára hlé. Fyrst um sinn verður flogið þang- Sölumaður óskast Óskum eftir sölumanni á islandi til aö sjá um sölu á loftpressum, (ýmsar gerðir), þrýstiloftsknúnum tækjum og ýmsum iðnvarningi. Þeir sem áhuga hafa snúi sér sem fyrst til: BAHIBFT Postboks 112, 2680 Solred strand, Danmark. Sími 45-3-14 14 89 LITGREINING MEÐ CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF. Ut um allan heim Við erum skiptinemasamtök sem störfum í 23 lönd- um í 6 heimsálfum. Allir á aldrinum 18—25 ára eiga möguleika á að koma sem skiptinemar árið 1985—1986 ef þeir sækja um fyrir 1. desember nk. Alþjóðleg ungmennaskípti. Fríkirkjuvegi 11. 101 Reykjavík. Sími 24617. Arnarflug aftur með áætl- unarflug til Grundarfjarðar að tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum. Til annarra áætlunarstaða Arn- arflugs er flogið sem hér segir: Til Gjögurs og Hólmavíkur tvisvar í viku, til Bíldudals þrisvar í viku, til Blönduóss, Flateyrar og Suður- eyrar fjórum sinnum í viku, til Siglufjarðar fimm sinnum í viku og sex sinnum í viku til Rifs og Stykkishólms. Krétt frá Arnarnu{i. ALLTAF A LAUGARDÖGUM Tónleikar í Háskólabíói laugardaginn 27. októ- ber kl. 14.00. Efnisskrá: Atli Heimir Sveinsson, Infinitesimal Fragment of Eternity L.v. Beethoven: píanókonsert nr. 3. Jóhannes Brahms synfónía nr. 2, stjórnandi: Jean- Pierre Jacquillat. Einleikari: Nicolas Economu. Aógöngumiöar í bókaverslun Sigfúsar Eymundsson- ar og Lárusar Blöndal og ístóni, Freyjugötu 1. Sintóníuhljómsveit fslands. Hjá Tomma og Tótu Þau ástunda lífsstíl, sem telst ekki almennur, boröa langlífisfæöi samkvæmt austurlenzkum kenningum um yin og yang. Eftir Guöbrand Gíslason. Meö 13 í taumi Nú aö göngum og réttum afloknum er rifjuö upp svaöilför yfir Kjöl i fjallferö fyrir 38 árum. Gísli Sig- urösson segir frá. Út í dagsljósið Sú breyting hefur oröiö í Listasafni Einars Jónsson- ar, aö búiö er aö steypa mörg verk í eir og koma þeim fyrir í einkar fallegum garöi, sem er borgar- prýöi. Listamaöur meö barnshjarta Minnst 100 ára afmælis alþýöulistamannsins Sam- úels í Selárdal. Vönduð og mennirigarleg helgarlesning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.