Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 16

Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 16
88 MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 Guttormur Jónsaon vió tvö verka ginna. MorgunbWMS/Jón Gunnlauguon Tré, steinn og trefjasteypa Myndlíst Bragi Ásgeirsson Það er jafnan ánægjulegt er einstaklingar úr þéttbýliskjörn- um landsbyggðarinnar kveða sér hljóðs á vettvangi listrænna at- hafna i höfuðborginni. Að sjálf- sögðu með þeim fyrirvara að þeim liggi eitthvað marktækt á hjarta. Það má þannig með nokkurri vissu fullyrða að Guttormur Jónsson, er um þessar mundir sýnir í eystri gangi Kjarvals- staða, hafi i sér þann listræna neista, er gerir sýningu hans fullgilda á þessum stað. Guttormur kemur frá Akra- nesi þar sem hann hefur verið búsettur síðastliðin átta ár en annars er hann alinn upp i Laug- ardalnum í Reykjavík, sonur þeirra velþekktu hjóna Jóns heitins Björnssonar málara- meistara og hinnar sænskætt- uðu konu hans, Grétu Björnsson listmálara. Guttormur hefur frá unga aldri verið mjög hagur i ýmis efni hins áþreifanlega rúmtaks og þá einkum tré. Hann er menntaður sem húsgagnasmiður og mun vera þekktur fyrir hag- leik í þvi fagi. öll sýningin að Kjarvalsstöðum ber og völundin- um vitni enda leikur efnið i höndum gerandans svo að hvergi er missmíð eða misfellu að sjá í útfærslu verkanna. Það sem á skortir þó að minu mati er sjálf baráttan við efni- viðinn og hið fjölbreytta form, hér er allt svo fellt, slétt og ágætt en persónueinkenni ger- andans eitthvað svo víðs fjarri. Við sjáum að hann hefur farið í smiðju isienzkra sem erlendra meistara i skúlptúrfaginu, sem er í sjálfu sér í senn lofsvert og rétt. En hér er sá fyrirvari að viðkomandi verður að brjóta þessi áhrif undir eigin skaphöfn og bað er þrautinni þyngra. Eg hef i öðru tilefni sagt frá þvi hvað hinn heimskunni myndhöggvari Auguste Rodin sagði eitt sinn og vil endurtaka það hér. „Hið sanna eðli listarinnar felst í því að stela frá sem flest- um ágætum listamönnum og yf- irfara i list sina og það hef ég einnig óspart gert, en hér skiptir öllu máli að hafa tilfinningu fyrir því hvar eigi að stela.“ Hér er á umbúðalausan hátt sagt frá þvi hve það er mikil- vægt að verða fyrir áhrifum frá öðrum, en að menn verði einnig að kunna að hagnýta sér þessi áhrif á réttan hátt. Þannig verð- ur öll mikil list til. Það er lofsvert hve víða Gutt- ormur kemur við hvað sjálfan efniviðinn snertir, en myndirnar eru útfærðar í birki, grenirót, reyni, eik, furu ásamt granit, grágrýti og tefjasteinsteypu. Eitt myndverk er mér öðrum minnisstæðara á sýningunni og nefnist það „Brotist út“ (25). Mér þykir sem frá henni stafi mag- naöur galdur og seiður — líkast kolbít er ris úr öskustó. Vonandi er þessi mynd fyrirheit um meiri umbrot i smiðju gerandans og að hann mæti magnaðri til leiks i næsta skipti. Sem frumraun er það fágunin og hagleikurinn sem er styrkur Guttorms Jónssonar. Myndverk Valgerðar Hafstað Listakonan Valgerður Hafstað hefur verið búsett erlendis í nær þrjá áratugi, !?ngst af í Paris en síðustu tfu árin í New York. Hún hefur unnið að list sinni á þess- um stöðum en einnig hefur brauðstritið heimtað sinn toll af tíma hennar svo sem 90% allra myndlistarmanna er á þessum stöðum starfa. Á þessu tímabili hefur hún heimsótt gamla landið eins oft og efni og aðstæður hafa leyft og hefur hún þá iðulega komið með sýningu i malnum og þannig er þetta sjötta sýning hennar hér heima. Það verða engar stökkbreyt- ingar i list Valgerðar Hafstað enda yirðist styrkur hennar fel- ast f nostursamlegum vinnu- brögðum og þrauthugsuðu myndefni. Frá hennar hendi eru slíkar myndir lífrænastar og um ieið iangsamlega ferskastar. Myndir stórra flata og umbúða- lausari vinnubragða virka öllu daufari og i þeim minni lifun inn i myndefnið. Þótt myndirnar á sýningunni virki yfírleitt huglægar i allri útfærslu viröist listakonan þó styöjast við eitthvað nálægt sér úr náttúrunni og hlutveruleikan- um. Myndirnar geta leitt hugann að landsiagi, innimyndum, skóg- armyndum, sól- og birtuflæði inni, sem úti í náttúrunni, sjálfri himinhvelfingunni og margvfs- legum formmyndunum hennar svo og hofi og hörg. Skilin á milli þess hlutlæga og huglæga í myndlistinni eru oft næsta óljós, þvi að huglæg skynhrifin geta verið svo sterk, að áhorfandinn skynji eitthvað öflugt og handfast á bak við vinnubrögð myndlistarmanna. Á sama hátt getur hið hlutlæga skort alla burðargrind, jafnt myndræna sem skynræna. Það eru sex tugir mynda á sýningu Valgerðar og eru þær unnar í akríl, vatnsliti, olíu og blandaðri tækni. Efnismeðferðin er því margbreytileg og vinnu- brögðin einnig. Því sem ég hef sagt hér að framan til áréttingar vil ég nefna nokkrar myndir er orkuðu sterkar á mig en aörar fyrir fin- leg, hnitmiðuð og markviss vinnubrögð: „Bergmál" (3), „ónefnd“ (16), „Þeir fá byr sem biða“ (22), „Lagstúfur" (48), „Fyrirheit” (51), „Kurl“ (56) og „Lög“(58. í þessum myndum þyki ég kenna bestu eiginleika Valgerð- ar Hafstað á vettvangi málara- listarinnar. Þjónn á þeytingi Leiklist Jóhanna Krlstjónsdóttir. Leikfélag Menntaskólans í Hamra- hlíð. Tveggja þjónn eftir Carlo Goldini. Búningahönnun og saumur: Katrln Sig., Aslaug, Bryndís, Guðrún H., Hrefna, Steinunn og Þórný. Leilunynd: Kata og Steinþór. Lýsing: Sigvarður Ari og Oddi Ó. Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir. Þýðing: Bjarni Guðmundsson og Sveinbjörn Jónsson. Því miður hefur það nokkuð dreg- izt að sækja sýningu Menntaskól- ans úr Hamrahlíð á Tveggja þjóni. Eftir viðtökum á sýningu á fimmtu- dagskvöld, svo og aðsókn, er þó trú- legt að nokkrar sýningar verði til viðbótar. Ég geri ráð fyrir að menntaskóla- nemum þyki orðið leiðigjarnt að heyra gagnrýnendur tala um leik- gleði sem aðal menntaskólasýninga. En leikgleði er nauðsynleg í Tveggja þjóni, hvort sem verkið flytja atvinnuleikarar ellegar áhugamenn. Því að hér er líf í tusk- unum, flækjurnar eru fáránlegar og er mikill hraði nauðsynlegur. Ekki hvað sízt skiptir máli að vel veljist f hlutverk Arlechino og það hefur tekizt hér. Ólafur Guðmundsson fór á kostum f hlutverkinu og fataðist nánast sjaldan f tilþrifum sínum, framsögn hans furðanlega skóluð og margbreytileg. Vilhjálmur Hjálmarsson var f spaugilegu gervi sem II Dottore og sama má segja um Gunnar Pálsson f Pantalone. Handahreyfíngar voru Úr sýningu MH á Tveggja þjóni eftir Goldoni. ríkur þáttur f túlkun þeirra, þar tókst báðum nokkuð vel, strengja- brúðuhreyfingarnar lánuðust ágæt- lega og Vilhjálmur hafði almennt skemmtilega snurðulausar hreyf- ingar. Elskendurnir Beatrice og Silvio í höndum Guðrúnar Jóhannsdóttur og Erlends Helgasonar voru sæt og ástfangin og Guðrúnu tókst mæta- vel upp með svipbrigðin, þótt fram- sögnin væri viðvaningsleg. Aðal- steinn Leifsson var gervilegur Flor- indo, þar sannast enn og einu sinni þó að vegir ástarinnar eru furðu- legir, heldur fannst mér hann gikkslegur og derringslegur og und- arlegt að Beatrice, snöfurmannlega leikin af önnu K. Ólafsóttur og ástæða er einnig til að nefna Mar- gréti Jónsdóttur sem var sposk, væn og létt Columbina. Leikstjórn Hlfnar Agnarsdóttur hefur tekizt vel eins og áður var sagt. í leikskrá kemur fram, að hún virðist hafa staðið fyrir leiklistar- námskeiði f skólanum og getur það í bland verið skýringin á þvf hversu vel tókst til með sem allra mest f þessari sýningu. Og auk þess er leikritið í sjálfu sér fyndið. Ekki svo lítill kostur það. Úr Ólympíuhlauparanum Grænmetissali gerist íþróttagarpur Leíklist Jóhanna Kristjónsdóttir Leikfélag Hveragerðis sýnir í Hótel Ljósbrá: Ólympíuhlauparinneftir Derek Benfield. Þýðing: María Thorsteinsson. Leikstjóri og leikmynd: Ragn- hildur Steingrfmsdóttir. Búningar: Sigrún Bjarnadóttir og Þórunn Friðriksdóttir. Ljós: Sævar Sigurðsson. ólympíuleikarnir eru enn að hefjast í bænum og á litlu hóteli er meðal annars beðið komu stórfrægs hlaupara sem búist er við að sigri með glæsibrag f fímm þúsund metra hlaupinu. Hótelhaldarinn er á hausnum f peningamálum, en veðmál kynnu að bjarga þvf. Inn á gistihúsið fara síðan að slæðast ýmsir kynlegir gestir í hinum ýmsustu erindagjörðum, þar á meðal er Humphrey Pomore Podmore sem er að flýja eiginkonu sfna, en sú er reyndar ekki langt und- an. Podmore er ekki beinlínis íþróttamannslega vaxinn, en fyrir misskilning er talið að hér sé garpurinn kominn og þegar inn f bætast nú alvörusvikamál og ástir, þá er komið hér dáyndis gott efni í gamanleik. Að vísu fer leikritið afar hægt af stað, f fyrsta þætti þarf auð- vitað að undirbúa áhorfendur, en þar hefði leikstjóri átt að reyna að hjálpa nokkuð langdregnum texta með þvf að auka á tempóið. Annars finnst mér leikstjórn Ragnhildar Steingrfmsdóttur skemmtileg og vel gerð. Staðs- etningar og hreyfingar nosturs- lega unnar og margar snjallar hugmyndir skila sér prýöilega. Ragnhildi ber án efa töluvert af heiðrinum af þvf, hversu fram- sögn flestra leikara er skýr og þjál. Hins vegar eru þéringarnar vandræðalegar og leikarar þúuðu og þéruðu fullmikið á vfxl. Steindór Gestsson f hlutverki Podmore stóð sig með stakri prýði, gerði persónuna í senn fyndna og forkostulega án þess að um ofleik væri að ræða. Nicol- ette Margrétar Ásgeirsdóttur var lipur og létt, áreynslulaus og hæfilega jákvæð gagnvart Basil Trent, sem var f höndum Gísla Garðarssonar. Gísli var ögn vandræðalegur í hreyfingum og framsögnin nokkuð stirð til að byrja með, en sótti f sig veðrið. Ingibergur Sigurjónsson bjó til býsna skondna persónu úr hót- elhaldaranum og Inga Wium var ágætur þjálfari. Aðrir leikarar stóðu sig oftar ágætlega en hitt. Ágætis afþreying og vel unnin sýning.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.