Morgunblaðið - 06.12.1984, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 06.12.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 39 Ný legund rúðuglers virkar sem hitaskjöldur og brennur ekki. Myndbandstæki notað til aö atýra flugvélinni I A lendingaratað. " eoc 75 brúður spenntar niður i illbrennanleg - ' sæti; sætisbúnaður geröur til að taka viö sem mestu 3 Þegar flugvél brot- lendir verður til rok- gjarn eldsneytisúði sem valdið getur sprengingu. Bætiefni í eldsneytinu er ætlað að koma í veg fyrir sprengingarhættu. >'■ Á/ ' f 1 Flugvélin magalendir é 160 mílna hraða og rennur um 300 metra eftir flugbrautinni. Fallhraðinn úr 2000 feta hæð gerir þaö að verkum að þotan skellur é jörðina með tólf sinnum / meiri krafti en eðlilegur þyngdarkraft ur er (12 g). (Y Stalstengur é brautinni rífa vængi og eldsneytis- tanka í sundur svo 48 þúsund litrar af eldsneyti dreifast. Við brotlsndinguna brestur bolur flugvélarinnar og drasl sópast inn í farangursrýmið. Brotlending í þágu öryggis Kdwards-flugstödinni, 4. desember. AP. FJARSTÝRÐRI þotu af gerðinni Boeing-720 var brotlent í Mojave- eyðimörkinni í öryggisskyni, þar sem verið var að gera ýmsar tilraunir, sem ætlað var að leiða í Ijós hvort auka mætti flugöryggi. í þessu skyni hafði sérstöku baetiefni verið blandað við elds- neyti þotunnar og var þvi ætlað að koma í veg fyrir sprengingu og eldhaf sem gjarnan verður er flugvélar brotlenda. Við brot- lendingu myndast rokgjarn elds- neytisúði vegna blöndunar lofts á hreyfingu og eldsneytis og fylgir úðanum mikil sprengi- hætta. Bætiefninu er ætlað að koma í veg fyrir úðamyndun. Brotlendingin var áfall að því leyti að mikill eldhnöttur mynd- aðist er sérstakir stálstaurar á flugbrautinni og aðrar hindranir rifu í sundur vængi þotunnar og 48 þúsund lítrar af eldsneyti helltust úr eldsneytistönkum hennar. Reyndar fjaraði eldurinn út á nánast svipstundu og er talið að rekja megi það til bætiefnisins. Hins vegar kom eldur upp í far- þegarýminu augnabliki síðar og kunna menn enga skýringu þar á. Einnig voru gerðar tilraunir með ný illbrennanleg sætisklæði og sætabúnað, sem taka á við meira höggi en hingað til og þar með auka líkur á að menn sleppi lifandi úr flugslysi. Þotan hóf sig mannlaus til flugs frá Edwards-flugstöðinni og var henni fjarstýrt frá jörð- unni. Var henni flogið í hringi og látin klifra í 2.000 feta hæð áður en henni var stýrt inn til brot- lendingar á flugbraut í flugstöð- inni. Tilraunin kostaði 11,8 milljónir dollara. Andspyrnumenn: Eldflaug and- spyrnumanna á lóð forseta- hallarinnar Nýju I>elhí. 4. desember. AP. AFGANSKIR andspyrnumenn gerðu nýveriö tvær eldflaugaárásir á and- stæðinga sína í höfuðborg landsins, Kabúl, og ein eldflaug sprakk á lóð forsetahallarinnar. Þar varð tjón og nokkrir sovéskir varðmenn særðusL Þá smaug einnig eldflaug fram hjá vegg Intercontinental-gistihússins. Fregnir þessar voru hafðar eftir vestrænum stjórnarerindrekum í þessum heimshluta. Höfðu þeir eft- ir þeim, að eldflaugin hefði hæft lóðina í náttrökkri og hefðu tveir sjúkrabílar verið sóttir. Sjö aðrar eldflaugar sprungu í borginni, ein skammt frá bústað fransks stjórn- arerindreka og brotnuðu allar rúð- ur í húsi hans. Önnur sprakk I stjórnarherstöð og dóu nokkrir her- menn þar. Tvær þyrlur og ein flugvél hófu sig til flugs eins skjótt og auðið var, trúlega leitarflugvélar fyrir fall- byssudeildir Rússa, en eldflauga- skothríðinni lauk í þann mund og því fannst ekki tangur né tetur af andspyrnumönnunum. Sökk fyrir 3.400 árum Washington, 5. desember. AP. MIKIÐ safn fornminja frá bronzöld hefur fundizt á hafsbotni fyrir utan suðurströnd Tyrklands. Er þarna um að ræða farm af verzlunarvörum, sem sukku með skipi, er fórst fyrir meira en 3.400 árum. Segja fornleifafræð- ingar þennan fund nánast einstæðan og þarna megi finna muni frá þremur mismunandi menningarsvæðum. Haft er eftir George F. Bass við Texas-háskóla, sem stjórnað hefur leitinni að skipinu, að það hafi sennilega farizt um 1.400 árum fyrir Krist. Mun skipið hafa hrakizt af leið í óveðri og rekið upp í kletta. Skipið var um 20 metrar á lengd og sökk það til botns án þess að því hvolfdi. Farmur þess var fyrst og fremst málmstangir, leirker og leirmunir, gull og fílabein. Verðmætasti gripurinn er mikill og veglegur gullbikar en munir þeir, sem þarna hafa fundizt, eru af þrenns konar uppruna. Eru þeir ýmist komnir frá Grikklandi, Kýp- ur eða Föníkíu. Efnavopn í Nicaragua? \V a.shingion, 5. desember. AP. BANDARÍSKIR embættismenn í Pentagon sögðu í dag, að sandin- istastjórnin í Nicaragua hefði ver- ið „að safna að sér efnavopnum í nokkra mánuði" en tóku fram, að þau virtust flest vera í varnar- skyni. Talsmaður Pentagon, Richard Lake, sagði, að tækin virtust flest en ekki öll vera til að verj- ast efnahernaði, en ekkert lægi fyrir um hvort stjórnarherinn í Nicaragua væri fær um að halda uppi efnahernaði sjálfur. Þegar sendiráðsmenn Nicaragua í Washington voru spurðir álits á þessu kváðust þeir ekkert vilja segja um það að svo stöddu. Að sögn Lakes hafa Banda- ríkjamenn vitneskju sína aðal- lega frá hersýningu, sem sand- inistar héldu í bænum Montel- imar 2. september sl. en þar voru sýnd ýmis tæki, sem notuð eru tH varnar efnahernaði. Auk þess voru sýndar eiturefnakúl- ur, sem skotið er úr fallbyssum, og var áletrunin á þeim bæði á ensku og rússnesku. Kvaðst Lake ekki skilja hvers vegna þessi tvö tungumál væru notuð í landi þar sem spænska er aðal- ERLENT málið. önnur þjóð í Mið-Ameríku ráði Ekki er vitað til, að nokkur yfir efnavopnum. Bandaríkjaþing: O’Neill endurkosinn leiðtogi demókrata Washington, 4. desember. AP. ÞINGFLOKKUR demókrata sam þykkti samhljóða á fundi í gær, að endurkjósa Thomas P. O’Neill til embættis forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings til tveggja ára, þegar deildin kemur saman 3. janúar á næsta ári. Demókratar hafa meiri- hluta í fulltrúadeildinni. í þessu felst, að OmNeill verður leiötogi demókrata í deildinni og höfuótalsmaður stjórn- arandstöðunnar á þingi. Thomas O’Neill, sem er 71 árs að aldri, hefur lýst því yfir, að hann hyggist draga sig í hlé árið 1986. Embætti forseta fulltrúadeildar- innar er í senn áhrifa- og virð- ingarstaða á Bandaríkjaþingi. For- setinn getur ráðið úrslitum um framgang lagafrumvarpa og hann er þriðji í röðinni til valda, næstur varaforsetanum, ef forseti Banda- ríkjanna verður að láta af embætti á kjörtímabilinu. Thomas O’Neill. NYTI5KU LATIPAK Litir hvítt og brúnt Kr. 1.995,- L Nýkomnir hinir stílhreinu dönsku STRINI lampar í eldhús og borðstofur. Fagrar línur — frábær hönnun. Skeifunni 8 — Sími 82660 Hverfisgötu 32 — Sími 25390
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.