Morgunblaðið - 06.12.1984, Side 59

Morgunblaðið - 06.12.1984, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 59 Leiðarljós samningamaiina ASI: Áhyggjur af kjarkleysi verkalýðshreyfingarinnar — og skorti á samstilltri forystu í kjarabaráttunni KJARA-, atvinnu- og efnahags- málancfnd Alþýðusambands- þingsins, sem haldið var í síðustu viku nóvember, hafnaði tillögu tveggja Dagsbrúnarmanna, Guð- mundar J. Hallvarðssonar og Páls Valdimarssonar, um að ASÍ og BSRB gengju sameinuð til mótun- ar krafna og vinnubragða fyrir næstu kjarasamninga. Að öðru leyti tók nefndin undir ítarlega tillögu þeirra um stöðu og næstu verkefni verkalýðshreyfingarinn- ar án þess að viíja leggja þær til- lögur fyrir þingið; þess í stað varð nefndin sammála um að vísa til- lögunni í heild til „þeirra aðila, sem fara munu með undirbúning nýrra kjarasamninga og felur miðstjórn að kynna hana öllum félögum innan sambandsins“, eins og segir í samþykkt nefndar- innar. í tillögunni segir m.a., að verk- fall BSRB hafi á margan hátt ver- ið lærdómsríkt fyrir verkalýðs- hreyfinguna í heild og að það verkfallið hafi sýnt og sannað: „1. Að aukið lýðræði, víðtækt upplýsingastreymi og almenn virkni hins breiða fjölda er for- senda árangurs. 2. Að það er samtakamátturinn, sem er styrkur hreyfingarinnar, en ekki „samningatæknin" eða klókir samningamenn. 3. Að ástæðan fyrir því, að árangurinn varð ekki meiri en raun ber vitni, stafaði af því að Marco POlo Ridumi Humble Marco Polo endurútgefinn BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hcfur sent aftur á markað bókina Marco Polo eftir Richard Humble í þýðingu Dags Þorleifssonar en bók- in kom fyrst út hjá forlaginu 1982. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „För Marco Polo til Kína og margra annarra landa, sem tók næstum aldarfjórðung, varð að vonum fræg; stuttorð en furðu nákvæm ferðasaga hans hefur verið meðal helstu sígildra verka í þeirri grein bókmennta allar þær sex aldir og hálfri betur sem liðn- ar eru frá dauða höfundarins." Bókin um Marco Polo er filmu- sett og umbrotin í Prentstofu G. Benediktssonar en prentuð og bundin á Bretlandi. heildarsamtökin báru ekki gæfu til að leggjast á eitt, þ.e. að knýja í gegn með sameinuðu afli kjara- samninga með raunhæfri kaup- máttartryggingu." ( tillögunni, sem samninga- mönnum ASÍ er ætlað að hafa að leiðarljósi við gerð næstu kjara- samninga, eru allir félagsmenn sambandsins hvattir til að nota komandi mánuði til að móta kröfugerð og raunhæfa baráttu- áætlun fyrir endurheimt þess kaupmáttar, sem tapast hefur. Til að slík vinna hafi félagslegan bakhjarl og þjóðfélagslegan þunga verði m.a. að leggja áherslu á að miðstjórn ASl skipuleggi allsherj- arumræðu um kröfugerð og bar- áttuáætlun í sérhverju aðildarfé- lagi sínu. Þetta verði forgangs- verkefni miðstjórnar að loknu þinginu. I öðru lagi verði skipulögð kerf- isbundin umræða í þessu skyni á vinnustöðunum, grunneiningum samfélagsins. Skipulag þess starfs verði í höndum einstakra stéttar- félaga og sambanda í samráði við miðstjórn ASÍ. Loks verði boðað til kjaramálaráðstefnu mcð þátt- töku forystumanna og starfandi trúnaðarfólki úr hinum ýmsu at- vinnugreinum, þar sem saman yrðu dregnar helstu niðurstöður úr þessu starfi. í forsendum þessara tillagna Dagsbrúnarmannanna segir m.a. að núverandi ríkisstjórn hafi með „fádæma þjösnaskap og gerræði" og VSÍ og Verslunarráðið að bakhjarli tekist að rýra kaupmátt launa um 25—30% á síðasta ári. „Andspænis þessum árásum hefur verkalýðshreyfingin lítið megn- að,“ segir síðan. „Hana hefur skort áræði og dug til að snúast með markvissum hætti gegn sóknar- þunga ríkisstjórnarinnar og at- vinnurekenda. Hana hefur skort markvissa áætlun fyrir endur- heimt hins tapaða kaupmáttar. Hana hefur skort samstillta for- ystu til að fylgja slíkri baráttu- áætlun eftir og veita henni leið- sögn.“ I tillögunni er lýst áhyggjum „yfir því kjarkleysi, sem víðast hvar er ríkjandi innan samtak- anna, þar sem slæm staða til átaka er sífellt notuð sem röksemd fyrir aðgerðarleysi, á sama tíma og skerðing almennra launakjara í landinu nemur 25—30%“. Segir að þessi þróun sé „stórháskaleg fyrir einingu samtakanna. Ef fram heldur sem horfir er veruleg hætta á því, að samtökin gangi sundruð til leiks, jafnvel liðist í sundur. Eining verkalýðshreyf- ingarinnar og samtakamáttur fjöldans er í húfi. Stofnun sam- taka fiskverkunarfólks og sam- taka kvenna á vinnumarkaðnum eru dæmi um það hvernig óánægj- an grefur um sig meðal almenns launafólks." Stórmarkaðir, heildverslanir, verkfræðistofur, raðuneyti, menntastofnanir, haía valið Wang PC. ......... Og ekki að ástæðulausu: Það er álit jafnt innlendra sem erlendra aðila, sem þekkingu hafa á tölvumálum, að Wang PC sé einn besti valkostur þeirra fyrirtækja, sem eru að hefja tölvuvæðingu eða auka vinnslu- möguleika þess kerfis sem fyrir er. Wang PC býður í senn fullkomið áætlana- og bókhaldskerfi, örugga möguleika til stækkunar og tengsl við stærri tölvu- einingar. Wang PC er eina PC-tölvan, sem býður Wang ritvinnslu, en Wang er leiðandi afl í þróun rit- * vinnslukerfa í heiminum. Wang PC er ianghraðvirkasti PC-inn á íslenskum markaði og er jafnframt með alíslenskt lykiiborð. Heimilistæki hafa selt og þjónustað Wang tölvur í 7 ár með árangri sem fjöldi ánægðra viðskiptavina staðfestir. Við verðum hérna líka á morgun! Þú svalar lestrarþörf dagsins astóum Moggans! Heimilistæki hf TÖLVUDEILD -SÆTÚNI8 - SÍMI27500

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.