Morgunblaðið - 06.12.1984, Side 77

Morgunblaðið - 06.12.1984, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 77 Menn nánast grýttir ef liðinu gengur illa! — spjallað við Sigurð Grétarsson sem leikur með Iraklis Saloniki í Grikklandi SIGURÐUR Grétarsson varö fyrsti íslenski knatt- spyrnumaðurinn til að leika í Grikklandi er hann í haust gekk til liðs viö 1. deildarliðiö Iraklis Saloniki. Liðið er nú i efri hluta deildarinnar, en Sigurður hefur ekki leíkið með að undanförnu, þrátt fyrir nokkuö góöa frammi- stööu í byrjun keppnistímabilsins. Blaðamaöur hitti Sigurð aö máli á dögunum og spuröi hann um grísku knattspyrnuna. „Knattspyrnan er hreint ótrúlega gróf í Grikklandi,“ sagöi Siguröur. „Ég haföi ekkert sóö af grískum fótbolta og vissi því raunar ekkert út í hvaö ég var aö fara. Þeir leika í suörænum stíl þarna niöur frá — er viö náum knettinum er leikurinn róaöur niður; andstæðingunum Köln í 6. sætið 1. FC KÖLN sigraói Bayer Lever- kusen 3:1 (1:0) í Bundesligunni í knattspyrnu í fyrrakvöld. Stefan Engels skoraöi fyrir Köln á 12. min. og William Hartwig bætti ööru viö á 50. mín. Lever- kusen minnkaði muninn á 74. mín. er Herbert Waas skoraöi úr víti — en sex mín. síöar skoraöi Klaus Allofs fyrir Köln, einnig úr víti. Köln er í sjötta sæti eftir sigurinn — Leverkusen í því 12. i fyrrakvöld léku Bayern Miinch- en og Waldhof Mannheim í bikar- keppninni og sigraöi Bayern 1:0 meö marki Dieter Höness á 73. mín. Leikiö var í Munchen. nánast leyft aö pakka í vörnina en ekki stílað á hraöaupphlaup. Og þegar svona er staðiö aö málum liggur þaö auövitað í augum uppi aö maöur er alltaf kominn meö mann „í bakið“ þegar boltinn nálg- ast — og undantekningarlítið er- um viö framlínumennirnir einfald- lega sparkaöir niöur." Þjálfarinn rekinn — Sigurður settur út Siguróur lék fyrstu leikina í deildinni, en náöi ekki aö skora í þeim. Þótti þó standa sig vel. Þjálf- ari liósins var Þjóóverji aö nafni Friedel Rausch, sem gerði Frank- furt aö Evrópumeistara fyrir nokkr- um árum. Hann var skyndilega rekinn, og aöstoöarþjálfarinn, grískur, tók viö liöinu. „Okkur kom aldrei allt of vel saman og um leiö og hann tók viö stjórninni var ég settur út. En ég trúi ekki ööru en ég fái tækifæri fljótlega aftur.“ Siguröur samdi til eins árs viö Saloniki; ég spuröi hann hvaö tæki viö eftir aö samningurinn rynni út — eru líkur á því aö hann veröi áfram í Grikklandi? „Ef ég ætti aö svara í dag segöi ég hiklaust nei. En maöur veit aldr- • Sígurður Grétarsson ... fyrsti íslendingurinn sem leikur meö grísku félagsliöi. ei — leg.“ knattspyrnan er óútreiknan- Leikið í 35 stiga hita í haust Siguröur sagöi þaó hafa verió hroöalegt aö leika í upphafi keppn- istímabilsins. „Viö lékum alltaf seinni partinn á sunnudögum — og hitinn var um 35 gráöur á celcí- us. Það var beinlínis óhæft aö leika. Og þegar Grikkirnir kvörtuöu sjálfir undan hita er skiljanlegt aö ég hafi ekki verið allt of ánægöur. En nú er þetta oröið allt i lagi — hitinn er um 17 til 18 gráöur þegar leikir fara fram.“ Aö sögn Siguröar eru Grikkir talsvert blóöheitir — „Þegar vel gengur eru allir vinir manns, eins og alls staöar annars staöar, en ef á móti blæs er annað upp á ten- ingnum. Menn eru nánast grýttir ef liöinu gengur illa!“ sagöi hann. SH. Tryggvi í KA? TRYGGVi Gunnarsson, markaskorarinn mikli úr ÍR, hyggst leíka knattspyrnu meö 2. deildarliði KA frá Akureyri á sumri komanda. Tryggvi skoraöi hvorki fleiri né færri en 36 mörk fyrir ÍR í 4. deildinni í sumar og varö aö sjálfsögöu markahæstur í deildarkeppni islandsmótsins. Hann er aöeins nítján ára gam- all. Tryggvi hefur enn ekki til- kynnt félagaskipti í KA, en allt bendir til þess aö svo verði. Þá eru miklar líkur á því aö Þorvaldur Þorvaldsson úr Þrótti gangi í KA. Hann hefur reyndar heldur ekki gengiö frá félagaskiptum ennþá. Mullery rekinn! ALAN MULLERY var rekinn úr framkvæmdastjórastööunni hjá enska 1. deildarliðinu QPR í gær aöeins 24 vikum eftir aö hann var ráöinn til félagins. Hann kom þangað er Terry Venables hætti og réð sig til Barcelona á Spáni. Akvöröunin var tekin skömmu eftir aö QPR sigraöi Stoke 2:0 í fyrrakvöld á heimavelli, en aöeins 8.403 áhorfendur komu á leikinn. Færri hafa ekki séð leik á vellinum undanfarin þrjú ár. „Alan er mjög viökunnanlegur maöur en honum tókst ekki aö feta í fótspor Terry Venables í þessu starfi," sagöi Jim Gregory, formaö- ur félagsins í gær. Er Venables var viö stjórnvölinn komst QPR í úrslit bikarkeppninnar á Wembley, þá í 2. deild, komst síöan í 1. deild og lenti í 5. sæti deildarinnar í vor — náði því sæti í UEFA-keppninni. En síöan Mullery tók viö hefur sigiö á ógæfuhlióina — liðið hefur aðeins unniö tvo af síöustu níu leikjum og er i 16. sæti deildarinn- ar. Morgunblaöið/ Magni. Háskólinn meistari! LID Háskóla íslands sigraöi í karlakeppni Skólamóts KSÍ, sem lauk fyrir skömmu. Liöið sigraöi íþróttakennaraskóla íslands í úrslitaleik á gervigrasvellinum í Laugardal, 4:1. Þorsteinn Hilmarsson skoraðí tvö marka HÍ, Viðar Þorkelsson 1og Sæbjörn Guðmundsson 1. Einar Einarsson skoraði mark ÍKÍ. Hér á myndinni má sjá hiö vaska lið háskólans, en þar er valinn maður í hverju rúmi — flestir leikmenn 1. deíldarliöa. Þeir eru, aftari röð frá vinstri: Steingrímur Bírgisson, KA, Ásbjörn Björnsson, KA, Þorgrímur Þráinsson, Val, Stefán Jóhannsson, KR, Jósteinn Einarsson, KR, Viðar Þorkelsson, Fram, Björn Þór Egilsson, UBK, Atli Geir Jóhannesson, ÍBÍ. Fremri röð frá vinstri: Hákon Gunnarsson, UBK, Sæbjöm Guðmundsson, KR, Þorsteinn Hilmarsson, UBK, Anton Jakobsson, Fylki og Sævar Leifsson, KR. Lið Menntaskólans á Akureyri sigraöi i kvennaflokkí — MA-stúlkurnar sigruöu lið Fjölbrautaskólans atAkranesi, 1:0, í úrslitaleik. Viö reynum að birta mynd af stúlkunum úr MA viö tækifæri. 10. og 11. þáttur á myndbandaleigur í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.