Morgunblaðið - 02.03.1985, Síða 29

Morgunblaðið - 02.03.1985, Síða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARS 1985 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARS 1985 29 Polonez 1500 er framleiddur í pólskri verksmiðju, hannaður af Italanum Giorgetto Giugiaro, framleiðslul'man hyggist á ítölskum, þýskum oghandarískum einkaleyfum og mikil störf eru unnin af vélmenn og framleidd í handaríska hílaiðnaðinum. Polonez 1500 er nútímabifreið á verði fyrir alla. I ÍTÖLSK HÖNNUN FSO Polonez er hannaður af ítalska bílahönnuðinum Giorgetto Giugiaro. Hann hefur m.a. hannað bíla fyrir BMW, Fíat, Lotus og VW. Þekktastur er hann fyrir hönnun sína á VW Golf og Fíat Uno. ÍTÖLSK-AMERÍSK-ÞÝSK SAMSETNINGARLÍNA Polonez-samsetningarlínan er í al- þjóðlegum vélvæðingarklassa. Utbún- aður er hinn sami, sem tíðkast jafnan í V-evrópskum bifreiðaverksmiðjum. AMERÍSK VÉLMENNI Við logsuðu eru notuð tölvustýrð Unimate-vélmenni frá Bandaríkjunum. Þetta tryggir bað að vinnan er í hvert sinn mjög nákvaem og vandvirk. PÓLSK VERKSMIÐJA Fabryka Samochodów Osobowych hefur framleitt bifreiðar frá árinu 1951. Framleiðslugeta þessarar verksmiðju, sem staðsett er í Varsjá, er 125.000 bif- reiðar á ári. Stór hluti framleiðslunnar fer til útflutnings. Staerstu innflytjend- ur eru England og Frakkland. Vinsæl- asta gerðin er útflutningsútgáfan af FSO Polonez. 1481 SVP, 4 GÍRA í FSO Polonez er fjögurra strokka fjórgengisvél. Vélarrými er 1481 sm'. Vélarafl 76 hestöfl DIN (55,9 kW). STILLANLEG STÝRIÐHÆÐ Hafið þið nokkurn tíma ekið bif- reið, þar sem unnt er að stilla stýrið í samræmi við stærð bílstjórans? Þetta er smáatriði, en eykur akstursþægindi og eykur vald bílstjórans á ökutækinu. 155 sm eða 200 sm hár maður ekur Polo- nez á þægilegan hátt. STILLANLEG HALOGENLJÓS Vegna útbúnaðar ökuljósa, er unnt að stilla þau með fljótlegum hætti í sam- ræmi við þyngd ökutækis hverju sinni. FIMM HURÐIR 5 dyra Polonez er örugglega rýmsti bíll- inn í dag, í hlutfalli við verð. EFNI í SÆTUM Efnið í sætunum er stitsterkt tau- efni, ekki plast eða leðureftirlíkingar, eins og í svo mörgum öðrum bifreiðum. HLIÐARBITAR í HURÐUM Til varnar gegn árekstrum frá hlið hefur verið komið fyrir öryggisbitum í hliðarhurðum. Byggingin er að öllu leyti sterk og örugg. Sem dæmi má nefna að þykkt platna og bretta er nær 50% meiri en í öðrum bifreiðum almennt. FJAÐURMAGNAÐUR STUÐARI Margir bifreiðaframleiðendur tala um fjaðurmagnaða stuðara. Stuðarar Polonez standa undir nafni. Efnið í stuðurunum er gúmmí og plast blanda. DISKAHEMLAR Á ÖLLUM HJÓLUM Sérstakur aflbúnaður fylgir hemla- búnaði sem er tvíþættur. Diskahemlar eru á öllum hjólum. Á afturhjólum er þrýstijöfnunarventill tengdur hleðslu. HÚSVAGN EÐA KERRA EKKERT MÁL Ef þú stundar ferðalög með hús- vagni, þá er Polonez mjög hentug bif- reið. Húsvagn með eigin bremsubúnaði má vega allt að 1140 kg því Polonez hef- ur mikið dráttarþol. Auk þess er Polo- nez afturhjóladrifinn, og það er stutt bil frá afturhjólum að dráttarkrók, eins og vera ber, þar sem þungur vagn dregur úr þyngd bifreiðarinnar sjálfrar. Polonez hefur mikið notagildi, og hentar þar með vel til sumarleyfisferðalaga. * BREYTANLEGUR AÐ INNAN Þegar þú þarft á auknu flutninga- rými að halda, þá fellir þú bak aftursætis niður. Þar með hefur þú til ráðstöfunar fóðrað farangursrými nær því alveg að framsætunum. HAGSTÆTT VERÐ FSO-verksmiðjurnar bjóða upp á marga möguleika eins og margar aðrar v-evrópskar bifreiðaverksmiðjur. Verk- smiðjan hefur aðgang að eigin hráefni, t.d. þarf ekki að flytja inn stál. Hinir ýmsu framleiðsluþættir eru nær alger- lega unniraf FSO-verksmiðjunni sjálfri. Sjálfvirkni framleiðslunnar er í alþjóð- legum gæðaflokki. ÁBYRGÐARSKIL.MÁLAR 12 i.iánaða ábyrgð er á Polonez eða 20.000 km. Polonez-umboðið Ármúla 23 - Símar 685870 & 81733 Varahlutir 31226 Verkstæði 30690 Bílasýning í dag kl. 9—17 og á morgun sunnudag kl. 13—17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.