Morgunblaðið - 15.03.1985, Page 24

Morgunblaðið - 15.03.1985, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 Brezk stjórnarnefnd: Skólakerfið mismunar minnihlutahópum London, 14. marx. AP. Kynþáttamismunun er vidloðandi í Bretlandi, samkvæmt stjórnar- skýrslu, sem birt er í dag. Þar segir að margir hinna 2,5 milljóna brezk- GENGI GJALDMIÐLA Vaxtahækkun styrkir dollar London, 14. marz. AP. Bandaríkjadollar var verðhærri í dag en aðra daga viðskiptavik- unnar gagnvart flestum helztu gjaldmiðla. Gullverð lækkaöi. Sérfræðingar segja vaxta- hækkun í Bandaríkjunum hafa styrkt dollar í sessi. Hækkaði dollar gagnvart brezka pundinu annan daginn í röð. Kostaði pundið 1,0810 doll- ara, miðað við 1,0860 dollara í gær. Verð á dollar á gjaldeyris- mörkuðum var annars svo, að fyrir einn dollar fengust 3,3850 vestur-þýzk mörk (3,3590), 2,8800 svissneskir frankar (2,8500), 10,3525 franskir frank- ar (10,2550), 3,8315 hollenzk gyllini (3,7975), 2.125,50 lírur (2.099,00), 1,3890 kanadískir dollarar (óbreytt) og 260,30 jap- önsk jen (259,70). Unsa af gulli kostaði 291,50 dollara í London og Zurich í dag, miðað viö 293,40 dollara í London í gær og 292,50 í Zurich. fæddra þegna af blönduðum kyn- þætti væri mismunað af hálfu hvíta meirihlutans. í skýrslunni er mis- mununin fordæmd. Bretarnir, sem fjallað er um í skýrslunni, eru afkomendur inn- flytjenda frá Vestur-Indíum, Afr- iku, Indlandi, Pakistan og öðrum Asíuríkjum, sem fluttu til Bret- lands á sjötta áratugnum, er Bret- ar sóttust eftir þessu ódýra vinnu- afli. Fjallar skýrslan einnig um kínverska, kýpríska, ítalska og ví- etnamska minnihlutahópa, einnig sígauna. í skýrslunni, sem samin var eft- ir 5 ára rannsóknir 20 manna nefndar, sem Swann lávarður veitti forystu, að mikill fjöldi þessar brezku þegna hafi orðið fyrir „gífurlegum vonbrigðum" með brezkt þjóðfélag. Vonleysi þeirra væri yfirþyrmandi. Margir þeirra væru þolendur hleypidóma og mismununar. M.a. segir í skýrslunni, sem er 807 síður, að skólakerfið mismun- aði minnihlutahópunum, og hafa m.a. innflytjendur frá V-Indíum miklar áhyggjur af því að frammi- staða barna þeirra í skólum er al- mennt lakari en annarra barna. Helzta niðurstaða skýrslunnar er að gífurleg hugarfarsbreyting þurfi að koma til meðal Breta svo eyða megi fordómum í garð minni- hlutahópanna. Einnig þurfi að breyta menntakerfinu þann veg að öll börn hafi möguleika til að þroska hæfileika sína eins vel og verða m*. Morgunbladið/RAX George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra íslands, í Ráöherra- bústaðnum í gær. Shultz skýrði frá við- ræðunum í Moskvu E1 Salvador: Skæruliðar spilla ekki kosningunum Paaanuborn, 14. nurz. AP. SKÆRULIÐAR vinstrimanna I El Salvador munu ekki spilla kosning- um, sem fyrirhugaðar eru 31. marz, ef berinn heldur sér í skefjum og lætur svæði sem skæruliðar hafa á valdi sínu afskiptalaus, aö sögn skæruliða- leiðtogans Gu Illermo Ungo. Ungo er formaður einnar skæru- liðafylkingarinnar, sem freistað hefur þess að steypa stjórn lands- ins í fimm ára átökum. Sagði Ungo að herinn hefði hins vegar jafnan notað tækifæri af þessu tagi I hernaðarskyni, m.a. með því að slæða svæði sem skæru- liðar væru sterkir á og efla varð- stöðu sína og eftirlit. Jafnframt hvatti Ungo til þess að viðræður vinstriaflanna, sem taka ekki þátt í kosningunum, og stjórnar Jose Napoleons Duarte forseta, hæfust að nýju. Hann sagði samningaviðræður ekki eins Mubarak í Bretlandi tímafrekar og erfiðar og vopnuð átök. GEORGE Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, átti í gær nærri klukkustundar viðræður við Geir Hallgrímsson, utanríkisráð- herra íslands, í Ráðherrabústaðn- um í Reykjavík, en hann var hér staddur á leið frá útför Chernenk- os, forseta Novétríkjanna, í Moskvu og til Kanada, þar sem hann mun, ásamt Reagan forseta og fleiri embættismönnum, ræða við kanadíska ráðamenn. Á fundinum gerði hann Geir Hallgrímssyni m.a. grein fyrir viðræðum sínum og George Bush, varaforseta Bandaríkj- anna, við Mikhail Gorbachev, hinn nýja aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, og stöðu afvopnunarviðræðnanna í Genf. Shultz sagöi eftir fundinn, að þeir hefðu einnig rætt ýmis mál er varða samskipti íslands og Bandaríkjanna. Kvaðst hann telja að nokkur árangur hefði orðið af viðræðunum og sagði að áfram yrði unnið að þessum málum. Geir Hallgrímsson sagði blaðamanni Morgunblaðsins að hann hefði sagt Shultz, að ís- lensk stjórnvöld legðu á það áherslu, að fylgjast með öllu því sem gerist og okkur snertir á vettvangi Atlantshafsbanda- lagsins og fá að hafa áhrif á gang mála. Hann sagði að meðal þess, sem borið hefði á góma í Ráðherrabústaðnum, hefði verið ágreiningurinn við Bandaríkja- menn um skipaflutninga fyrir varnarliðið í Keflavík. Kvað hann enn unnið að lausn þess máls. , 14. nn AP. HOSNI Mubarak forseti Egypta- lands kom í dag í þriggja daga opin- bera heimsókn til Bretlands á leið sinni beim frá Washington, þar sem hann ræddi við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta. Tilgangur heimsóknar Mubar- aks til Bretlands er m.a. að leita eftir stuðningi Breta við nýjar til- raunir til að stilla til friðar í Mið- austurlöndum. Mubarak snæddi hádegisverð með Elisabeth drottningu og síðar ræddi hann við Margaret Thatch- er forsætisráðherra að Down- ingstræti 10. Við komuna til Heathrow- flugvallar skoðaði Mubarak heið- ursvörð brezka flughersins. Urðu hermennirnir að standa á rauöa dreglinum, sem rúllað var út að flugvél forsetans, vegna roks í London. Gorbachev örugglega við stjórnvölinn í Moskvu — segir Richard Burt, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna „VIÐBÚNAÐUR Bandaríkjamanna hér miðar eingöngu að því að verja ísland og önnur ríki Atlantshafsbandalagsins,“ sagði Richard Burt, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkj- anna, á fundi með blaðamönnum á Hótel Sögu í gær. Burt, sem fer málefni Evrópu- ríkja í bandaríska utanríkisráðu- neytinu, var hér í för með George Shultz, utanríkisráðherra, og öðr- um embættismönnum á leið frá útför Chernenkos, forseta Sovét- ríkjanna, í Moskvu og til Kanada, þar sem þeir munu, ásamt Reag- an forseta, eiga viðræður við kanadíska ráðamenn. Richard Burt var spurður álits á fréttum um að í Bandaríkjun- um hefðu verið gerðar áætlanir um flutning kjarnorkudjúp- sprengja til íslands, ef hættu- ástand skapaðist í alþjóðamálum, sem ríkisstjórn íslands hefði ekki verið látin vita um. Áhersla lögð á samráð við íslendinga „Um þetta vil ég segja tvennt," sagði Burt. „I fyrsta lagi hefur forseti Bandaríkjanna ekki veitt samþykki sitt fyrir neinum slík- um áætlunum. 1 annan stað er hlutverk Bandaríkjahers hér á landi eingöngu að verja ísland og önnur ríki, sem aðild eiga að Atl- antshafsbandalaginu." Hann sagði að skjöl þau, sem vísað væri til, væru eingöngu vinnublöð inn- anhúss, sem einhverjir starfs- menn i stjórnarskrifstofum heföu liklega samið að eigin frumkvæði í samræmi við almennar starfs- reglur. Um samráð í málum af þessu tagi sagði Burt, að það lægi í aug- um uppi að þegar bandarísk stjórnvöld væru að semja áætlan- ir, sem hefðu áhrif á samskiptin við ísland, legðu þau kapp á, að hafa sem mesta samvinnu við ríkisstjórn landsins. Gorbachev örugglega við stjórnvölinn Blaðamaður Morgunblaðsins spurði Burt um það hvernig Mikhail Gorbachev, hinn nýi leið- togi Sovétríkjanna, kæmi honum fyrir sjónir. Er hann öðruvísi, kannski „nútímalegri", en fyrir- rennarar hans? „Við vitum allt of lítið um sov- Richard Burt, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, á blaða- mannfundi á Hótel Sögu í gær. éska leiðtoga, miðað við það sem við vitum um okkar eigin forystu- menn vegna þeirrar athygli sem fjölmiðlar veita þeim, til að geta kveðið upp dóma um þá,“ sagði Burt. Hann benti á, að Gorbachev væri rétt að hefja leiðtogaferil sinn og því of snemmt að draga nokkrar ályktanir um stefnu hans og fyrirætlanir af gjörðum hans fram að þessu. „Það er hins vegar engum vafa undirorpið, að hann er við stjórnvölinn f Moskvu,“ sagði Burt. „Eftir að hafa verið útförina í Moskvu og átt viðræður við ráða- menn þar,“ sagði Burt, „virðist okkar að Sovétmenn leggi mikla áherslu á samvirka forystu. Inn- an leiðtogahópsins í Kreml skipt- ast menn í flokka og fylkingar og ef Gorbachev ætlar að halda völdum til frambúðar verður hann að hafa samstarf við alla þessa hópa og taka tillit til mis- munandi sjónarmiða þeirra og hagsmuna. Surnir tilheyra hern- um, aðrir iðnaði eða landbúnaði o.s.frv." Richard Burt sagði, að Gorb- achev kæmi sér fyrir sjónir, sem leiðtogi er legði áherslu á sam- fellu í stjórnarstefnunni. Það hefði Gorbachev raunar sjálfur sagt við George Bush, varafor- seta Bandaríkjanna, á fundi þeirra í Moskvu að lokinni útför Chernenkos. Burt sagði, að hinn nýi aðalritari sovéska kommún- istaflokksins ætti líklega auð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.