Morgunblaðið - 16.03.1985, Side 31
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1985
31
Bókauppboð á Borg
inni á sunnudag
Skákin sem færði Helga
stórmeistaratitilinn
Listmunauppboð Sigurðar
Benediktssonar og Bókavarðan í
Reykjavík efna til 2. bókauppboðs
síns að Hótel Borg, Gyllta sal, nk.
sunnudag kl. 15. Bækurnar og rit-
in verða til sýnis hjá Bókavörð-
unni að Hverfisgötu 52, laugar-
daginn kl. 14—18.
I uppboðsskrá, sem blaðinu hef-
ur borist, eru bækurnar flokkaðar
eftir efni: fslenzk og norræn fræði,
Héraðasaga og ættfræði, Saga
lands og heims, lögfræði, Bók-
fræði, Listsýningaskrár, Skákrit,
skáldsögur, ljóð og kvæði, gamlar
bækur, gamlar erlendar bækur,
Málþing sálfræði-
nema um „afbrigði-
lega kynhegðun“
ÞRIÐJA írs nemar í sálarfræði við
Háskóla íslands halda árlegt málþing
sitt laugardaginn 16. mars í hátíöar-
sal skólans. Yfírskrift málþingsins er
að þessu sinni; „Hvað er afbrigðileg
kynhegðum?" Framsögumenn munu
ræða um efnið, hver út frá sinni
fræðigrein/sviði.
Á málþinginu heldur Dr. Gisli
Guðjónsson sálfræðingur fram-
söguerindi, en honum var sérstak-
lega boðið hingað til lands fyrir
þetta málþing. Dr. Gísli starfar
sem yfirréttarsálfræðingur við
Institute of Psychiatry við Háskól-
ann í London. Aðrir framsögumenn
verða Pétur Guðgeirsson lögfræð-
ingur, séra Sigfinnur Þorleifsson,
Dr. Högni Óskarsson geðlæknir og
Jenný Baldursdóttir frá samtökum
um kvennaathvarf. Fundarstjóri
verður Sigrún Júlíusdóttir félags-
ráðgjafi.
Eftir frarnsöguerindi verða al-
mennar umræður og fyrirspurnir.
Málþingið hefst kl. 14.
(FrétUtilkynniiig)
náttúruvísindi, tímarit og blöð.
Alls eru boðin fram 179 númer
rita og bóka.
Af einstökum bókum og blöðum
má nefna t.d.: Biographiske Eft-
erretninger om Arne Magnusson
eftir Jón Olafsen frá Grunnavik,
Kh. 1835, handbundið skinnband,
Annálar 1400—1800, Sendibrjef til
Húnvetninga eftir Húnrauð Más-
son verzlunarþjón, flest rit Frí-
manns B. Arngrímssonar á Akur-
eyri, gamlar niðurjöfnunarskrár
Reykvíkinga, Bókaskrá um safn
Willards Fiske, gamlar listsýn-
ingaskrár, þ. á m Ásgríms Jóns-
sonar frá 1916 og skrár Listvinafé-
lagsins frá 1919—1925 og um hina
frægu Charlottenborgar-sýningu
íslendinga í Kaupmannahöfn
1927, Sagan af Heljarslóðarorr-
ustu , eftir Benedikt Gröndal,
frumútgáfan 1861, Sagan af
Dimmalimm eftir Guðmund
Thorsteinsson, frumútgáfan, Mað-
urinn er alltaf einn, fyrsta bók
Thors Vilhjálmssonar, frumút-
gáfa hins viðfræga leikrits Ibsens,
Hedda Gabler, Nýja Testamenti,
prentað í Kaupmannahöfn 1750,
útgáfa af Horatio, pr. í Feneyjum
1556, tímaritið óðinn frá upphafi
til enda og Castria, blað 2. bekkjar
Menntaskólans í Reykjavík 1939,
ritstjóri Geir Hallgrímsson.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur fund næstkomandi sunnudag
á Hótel Hofí. Fundarefni er: Staða
Framsóknarfíokksins og samstarfíð
við Sjálfstæðisfíokkinn.
Teiknimynda-
saga um kött-
inn Gretti
ÚT ER komin hjá Forlaginu ný
teiknimyndasaga um köttinn
Gretti. Nefnist hún Grettir mætt-
ur til leiks. Grettir er bandarískur
að uppruna, faðir hans er teiknar-
inn Jim Davis og hefur hann hlot-
ið fjölda verðlauna og viðurkenn-
inga fyrir afkvæmi sitt.
Sjálfur er Grettir feitur, latur,
undirförull, morgunsvæfur,
matgráðugur og sjálfselskur. En
Grettir hegðar sér einmitt eins og
við vildum sjálf ef við þyrðum —
að minnsta kosti stundum. Grettir
naut vinsælda hjá islenskum sjón-
varpsáhorfendum á liðnu ári og
þessi nýja bók er hin fyrsta í röð
teiknimyndasagna um þennan
kenjakött sem Forlagið gefur út.
Grettir mættur til leiks er 32
bls. Bókin er prentuð í Noregi.
Fundurinn hefst klukkan 15.00.
Frummælendur verða Steingrím-
ur Hermannsson, forsætisráð-
herra og Haraldur Ólafsson, al-
þingismaður.
Frá Halldórj Leifssyiii í Kaupminnihofn.
HELGI Olafsson náði þriðja og
síöasta áfanga að stórmeistaratitli
þegar hann sigraði Englendinginn
Plaskett í síðustu umferð alþjóð-
lega skákmótsins f Kaupmanna-
höfn. Þar með er Helgi orðinn
þriðji stórmeistari íslendinga,
fylgir í fótspor Friðriks Ólafsson-
ar og Guðmundar Sigurjónssonar.
Helgi er fyrsti stórmeistarinn af
ungum og upprennandi skák-
mönnum íslenzkum, en þegar
hafa Jóhann Hjartarson og Mar-
geir Pétursson náð áfanga að
stórmeistaratitli og Jón L Árna-
son er til alls líklegur.
Góður árangur hinna ungu
skákmanna hefur orðið Helga
Ólafssyni hvatning til afreka og
með góðri skákþjálfun má
vænta betri árangurs í framtíð-
inni.
Helgi tók snemma frumkvæð-
ið í viðureign sinni við Plaskett,
en það nýttist honum ekki sem
skyldi. Plaskett sneri vörn í
sókn, en lék af sér hrók. Þá átti
hann eftir að leika 7 leiki á 3
mínútum á meðan Helgi átti
eftir 23 mínútur. Stórmeistara-
heppnin fylgdi Helga, en hann
er þó vel að titlinum kominn. í
31. leik bauð Helgi andstæðingi
sínum jafntefli, en hann þáði
ekki en lék af sér hrók i næsta
leik og Helgi stóð uppi sem sig-
urvegari og stórmeistari. Helgi
náði fyrsta áfanga að stór-
meistaratitli með frábærri
frammistöðu í Reykjavíkur-
skákmótinu í fyrra og fylgdi því
eftir með sigri í alþjóðlegu
skákmóti í Neskaupstað.
Hér á eftir fer sigurskák
Helga gegn Plaskett — skákin,
sem gerði hann að stórmeistara.
Hvítt: Plaskett
Svart: Helgi Ólafsson.
I. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. Bb5+
— Rc6, 4. 0—0 — Bd7, 5. Hel —
Rf6, 6. c3 — a6, 7. Ba4 — c4, 8.
Bc2 - Hc8, 9. Ra3 — b5, 10. b3
— Re5, 11. Rxe5 — dxe5, 12.
bxc4 — bxc4, 13. d4 — cxd4, 14.
Dxd3 — e6, 15. Hbl — Bc5, 16.
Rc4 — Dc7, 17. Dg3 — 0—0, 18.
Bh6 — Rh5,19. Dxe5 — gxh6, 20.
Dxh5 - Bxf2+, 21. Kxf2 -
Df4+, 22. Kgl — Hxc4, 23. Hfl
— Dg5, 24. Dh3 — Dc5+, 25. Khl
— Hxc3, 26. Dxh6 — De5, 27.
Hf4 - Dg7, 28. Dh4 — e5, 29.
Hf3 — Hc6, 30. Bb3 — Hh6, 31.
De7 — Be6,
32. Hg3 — Dxg3, gefíð. Helgi
bauð jafntefli eftir 31 leik en
hvítur hafnaði jafnteflisboðinu.
Eitthvað virðist jafnteflisboðið
hafa sett Plaskett úr jafnvægi,
því hann lék hrók beint í dauð-
ann.
Framsóknarfélag Reykjavíkur:
Heldur fund um stöðu
flokksins og ríkisstjórnina
Viðurkenning á yfirburóum
OAS GOcOtNt LF.NKfl
T-----
■■■ " * -dífS
ulitíl
BISHIGRLRNT
MITSUBISHI GALANT ' 85
hiaut hina efíirsóttu viöurkenningu
„GULLNA STÝRIÐ" sem veitt er af írlrsu virta
vikuriti Bíld Am sonntag í vestur-Þýskalantií.
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Allar tegundir bifreiða á markaðnum í
landinu komu til álita, en dómendur,
sem eru sérfróðir á þessu sviði, úrskurðuðu
Mítsubishi galant sigurvegara í
stærðarfiokknum 1501-2000 cm5.
Nokkrir bílar fyrirliggjándi.
Verö frá kr. 498,900,-
MITSUBISHI
M0T0RS