Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 72
FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Pétur Einarsson flugmálastjóri um at- burðinn við Keflavíkurflugvöll: Ekki albestu starfsaðferðir - segir þó að aldrei hafi verið hætta á árekstri vélanna „SAMKVÆMT rrumrann.sókn þeirri sem fór fram í dag, þá kom ekkert fram sem benti til þess að neitt þeirra fjögurra meginatriða sem slíkar rannsóknir beinast að hafí verið brotið,“ sagði Pétur Einarsson, fíugmála- stjóri í samtali við Morgunblaðið í g*r, er hann var spurður fregna af rannsókn Loftferðaeftirlitsins á atviki því sem greint var frá á baksíðu Morgunblaðsins í gær. Þar sagði frá því er þota Flugleiða kom inn til Keflavíkur í aðflugi, og er hún kom niður úr skýjunum úr blindflugi, þá var hún „óþægilega nálægt“ lítilli flugvél, eins og Dagfínnur Stefánsson, flug- stjóri orðaði það í samtali við blm. Mbl. Pétur sagði að hjá flugumferð- arþjónustunni væru svona mál greind niður í fjóra þætti: í fyrsta lagi væri um frávik frá starfsregl- um að ræða, í öðru lagi um missi aðskilnaðar, í þriðja lagi um árekstrarhættu og í fjórða lagi raunverulega árekstrarhættu. „Við teljum ekki að neitt af þessu hafí verið brotið og fjarlægðin á milli vélanna hafi i sjálfu sér ekki verið óvenjuleg, en samkvæmt því sem við sjáum, þá bendir allt til þess að þarna hafi verið um 800 feta hæðarmismun að ræða,“ sagði Pétur, „og þær voru báðar í sjónflugi og allir flugmenn vissu hver af öðrum. Það má segja sem svo að þetta séu ekki þær albestu starfsaðferðir sem hægt er að hugsa sér, og mætti eitthvað leið- rétta þær,“ en þar átti Pétur við fyrirskipanir flugumferðarstjórn- ar í Keflavík, að gefa flugmanni litlu vélarinnar fyrirmæli um að beygja þvert fyrir flugstefnu far- þegavélarinnar. „Það hefði bara mátt láta litlu vélina eiga sig, og halda sinni stefnu,“ sagði Pétur. Pétur sagði að rannsókn þessari væri lokið, nema eitthvað nýtt kæmi fram í málinu. Sjá nánar bls. 5. Bátum undir 10 tonnum bannaðar veiðar fram yfir páska: Teljum okkur misrétti beitta — segir Sigurjón Ólafsson, trillukarl í Vestmannaeyjum „ÞAÐ var víst síðasti dagurinn í gær sem við máttum fara á sjó, en ná- kvæmari veit ég ekki tímasetninguna á þessarri svívirðingu. Hitt veit ég að menn taka þessu heldur illa og fínnst að þeim sorfíð hér. Menn telja sig miklu misrétti beitta, þegar sumir mega fara á sjó og ekki aðrir,“ sagði Sigurjón Ólafsson, triliukarl í Vest- mannaeyjum, í samtali við Mbl., en bátum undir tíu tonnum eru bannað- ar veiðar fram yfír páska samkvæmt boði Sjávarútvegsráðuneytisins. „Hér voru allir bátar á sjó í dag, nema þessir smábátar. Eg kann enga skýringu á þessu nema þá, að sá maður sem þessu ræður þyrfti að fara > rannsókn Eins og allir mega vita, þá geta þessir smábátar ekki nema einstöku sinnum farið á sjó, það er þegar best og blíðast er veðrið. Þeir menn sem eru að þessu hafa þar af leiðandi minnsta mögu- leika til þess að vinna meö þessu móti fyrir brauði sínu, og þeim er bara settur stóllinn fyrir dyrnar. Sigurjón kvað mjög lítið hafa fiskast á þessum bátum að undan- förnu og þeim mun frekar þyrftu menn að fá að gutla eitthvað. Á síðasta hausti hefði einnig verið tekin af þeim atvinnan í lengri tíma, svo kæmi þetta aftur núna. „Þetta skiptir ekki nokkru einasta máli. Þetta á víst að heita einhverj- ar friðunarráðstafanir, en það sér hver maður að þó einn og tveir menn á bát séu að píska nokkra fiska, breytir það engu. Ég hef ver- ið að píska upp þetta 2—300 kíló á dag. Þetta stórskemmir stofninn, en það er allt í lagi með togarana sem drepa smáfiskinn, það er ekk- ert athugavert við þá,“ sagði Sigur- jón. AP/Sfmamynd Vilborg og Árni Hjaltaaon með dóttur sína, Ástu, í Boston eftir velheppnaða aðgerð. Vel heppnuð nýmaígræðsla í íslenzka stúlku í Boston: Var veik frá fæðingu en snýr heim heilbrigð Allt útlit er fyrir að vel hafí tekist að græða nýra í litla íslenska stúlku á Ríkissjúkrahúsi Massachusetts í Boston. Litla stúlkan heitir Ásta Árnadóttir, tveggja og hálfs árs gömul, og er hún þriðji íslend- ingurinn, sem nýra er grætt í á þessu sjúkrahúsi í Bandaríkjun- um á sl. þremur árum. Ásta var væntanleg til lands- ins í gær, ásamt foreldrum sín- um. En faðir hennar, Árni Hjaltason, lagöi til nýrað sem grætt var í hana. „Þetta verður eins og að koma heim með nýtt barn,“ sagði Árni og bætti því við að Ásta hefði verið orðin svo máttfarin, að hún gat ekki staðið í fæturna, þegar hún kom til Boston í november sl. „Við fórum til Boston með barn, sem hefur verið veikt frá fæðingu, en hlökkum nú til að snúa heim með hrausta og heil- brigða litla stúlku,“ sagði Arni. Talsmaður Massachusetts- sjúkrahússins, Jean L. Souden, kvað lækna Ástu vera þeirrar skoðunar, að hennar biði „björt framtíð og ekkert, eða fátt a.m.k., ætti nú að hindra hana í að lifa fullkomlega eðlilegu Iffi*. Ásta er þriðja barnið með meðfæddann nýrnagalla, sem flogið er með til Bandaríkjanna til meðferðar við Massachus- etts-sjúkrahúsið í Boston, þar sem talað er um „íslenska sam- bandið". Öll þörfnuðust börnin ígræðslu og í öllum tilfellunum lögðu foreldramir til líffæri. Talsmaður sjúkrahússins sagði að fyrsta barnið af þessum Íremur væri við góða heilsu á slandi. Líkami barnsins, sem var næst í röðimi, hafnaði hins vegar nýrum bæði föður og móð- ur, sem reynt var að græða í það. Það barn er drengur, sem hefur farið tvisvar til Boston, en fór síðast heim til íslands í haust sem leið. Talið að áburður þurfi að hækka um rúm 80 % Framleiðsluráð leggur til að ríkið greiði gengistap Aburðarverksmiðjunnar MILLJÓNATUOA tap varð á rekstri Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi á síðastliðnu ári og samkvæmt heimildum Mbl. er talið að miðað við ákveðnar gengisforsendur þurfí verksmiðjan allt að 58% hækkun áburðarverðs frá og með 1. apríl nk. þegar ný gjaldskrá tekur gildi, ef stjórnvöld grípa ekki til sérstakra aðgerða verksmiðjunni til stuðnings. Við slíka hækkun færi áburður- inn upp í um 13 þúsund kr. tonnið, en það er 85% hækkun til bænda vegna þess að áburðarverðið var greitt niður með fé úr kjarnfóðursjóði á sl. ári. Stjórnendur Áburðarverksmiðj- unnar hafa ekki lagt fram form- lega hækkunarbeiðni en þeir og forystumenn bænda hafa verið að ræða við landbúnaðarráðherra um þetta mál og er búist við að málefni verksmiðjunnar verði til umfjöll- unar á ríkisstjórnarfundi í dag. Taprekstur verksmiðjunnar er rakinn til gengistaps sem verk- smiðjan varð fyrir á árinu og nem- ur töluvert á annað hundrað millj- ónir kr. Verksmiðjan hefur verið rekin með tapi sem nemur eitthvað á fjórða hundrað milljónir á und- anförnum árum vegna þess að hún hefur ekki fengið að hækka áburð- arverðið eins og þörf hefur verið á. Tapið brenndi upp rekstrarfé verk- smiðjunnar og hefur verksmiðjan síðan verið fjármögnuð með doll- aralánum og orðið fyrir barðinu á óhagstæðri þróun dollarans. Geng- istapið í fyrra er einnig rakið til þess að bændur og kaupfélög hafa frest allt fram í nóvember til að greiða hluta þess áburðar sem keyptur er að vori, auk þess sem vanskil viðskiptaaðila verksmiðj- unnar, sem einkum eru kaupfélög, voru mikil um áramót og meiri en nokkurn tímann áður. Þessa lána- starfsemi hefur verksmiðjan þurft að stunda með erlendum dollara- lánum með tilheyrandi gengis- áhættu. Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur lagt til að gengistapið í fyrra verði greitt að ríkinu. Er það gert á þeirri forsendu að verksmiðjan sé ríkisfyrirtæki og beri hún ábyrgð á rekstri hennar. Þá hafi verksmiðj- unni ekki verið heimilað að að gera ráð fyrir gengisbreytingum við verðlagningu í fyrravetur, þar sem ríkisstjórnin hafi lofað stöðugu gengi út árið, sem ekki stóðst. Er talið að verksmiðjan þurfi 170 til 190 milljónir til að geta haldið áburðarverðshækkuninni til bænda um 30%. Framleiðsluráð hefur einnig Iagt til að rekstrarlán til bænda verði hækkuð um 77%, það er úr 470 í 835 kr. á hvern dilk, m.a. til að hægt sé að breyta greiðslu- skilmálum verksmiðjunnar þannig að bændur greiði stærri hluta áburðarins að vori.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.