Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 16

Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNl 1985 Davíð Oddsson kosinn formaður borgarráðs Kosið í ráð og nefndir á vegum Reykjavíkurborgar MAGNÚS L. Sveinsson var kosinn forseti borgarstjórnar á fundi borgar- stjórnarinnar á fimmtudag, eins og sagt hefur verið frá hér í blaðinu. Þá var einnig kosið í borgarráð og ýmsar nefndir og ráð á vegum borgarinnar. A fyrsta fundi nýkjörins borgarráðs var Davíð Oddsson borgarstjóri, sem er varamaður í borgarráði, kosinn formaður ráðsins, og Magnús L. Sveinsson varaformaður. í borgarráði eiga sæti: Magnús L. Sveinsson, Ingibjörg Rafnar og Hulta Valtýsdóttir frá meirihlut- anum og Sigurjón Pétursson (Abl.) og Kristján Benediktsson (F). Eina breytingin frá því sem verið hefur er sú að Kristján kem- ur í stað Guðrúnar Jónsdóttur (Kvl.). Kvennaframboðið hefur í staðinn tilnefnt Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur sem áheyrnar- fulltrúa. Sigurður E. Guðmunds- son verður áheyrnarfulltrúi fyrir Fer inn á lang flest heimili landsins! 4 hönd Alþýðuflokksins eins og ver- ið hefur. Ingibjörg Rafnar var endurkjör- in formaður hafnarstjórnar. í hafnarstjórn voru einnig kosnir sjálfstæðismennirnir Guðmundur Hallvarðsson og Jónas Elíasson, auk Guðmundar Þ. Jónssonar (Abl.) og Jónasar Guðmundssonar (F). Magnús L. Sveinsson var endurkosinn formaður Innkaupa- stofnunar Reykjavíkurborgar og með honum Valgarð Briem (S), Ólafur Jónsson (S), Sigurjón Pét- ursson (Abl.) og Sigrún Magnús- dóttir (F). Magnús var einnig kos- inn formaður atvinnumálanefndar og meö honum í nefndina þau Jóna Gróa Sigurðardóttir (S), Barði Friðriksson (S), Guðmundur Þ. Jónsson (Abl.) og Guðríður Þorsteinsdóttur (A). Þá var Guð- mundur Hallvarðsson kosinn full- trúi í stjórn Fiskimannasjóðs Kjalarnesþings og Alfreð Guð- mundsson endurskoðandi Styrkt- arstjóðs sjómanna- og verka- mannafélaganna í Reykjavík. VEtDl Viðskiptavinir Heklu! Við bendum á hagstætt verð á dempurum. Komið og gerið góð kaup Demparar í: Verðkr.: Golffr. . 1.390 Jetta fr. . 1.390 Pajerofr. . 1.250 Coltfr. . 1.550 Galantfr. . 1.550 Galant aft. 990 Range Rover 1.220 VIÐURKENND VARA E MEÐ ÁBYRGÐ SAMA VERÐ UM LAND ALLT! A (^) (Qþ PflNOEROVEH Sonja Símonardóttir Ijósmóðir og maður hennar Sigvaldi Guömundsson. Nú fæða allar konur í sjúkrahúsum Rætt við Sonju Símonardóttur ljósmóður í Búðardal Sonja Símonardóttir er Ijósmóðir og vinnur á Heilsugæslustöðinni í Búðardal. Hún hefur verið Ijósmóðir í Suðurdölum í Dalasýslu frá því árið 1960. Sonja er færeysk en lærði Ijósmóðurfræði á fslandi og giftist íslenskum manni, Sigvalda Guðmundssyni, og búa þau hjón í Kvisthaga, sem er nýbýli úr jörðinni Hamraendar, þau eiga fjögur börn. Á seinni árum hefur það æ færst í vöxt að konur fæði á sjúkrahúsum en undan- tekning að konur alí börn sín í heimahúsum. Við þessi umskipti hafa orðið töluverðar breytingar á starfssviði Ijósmæðra út um land. Sonja Símonardóttir fæddist í Vogi á Suðurey í Færeyjum, dóttir Símonar Péturssonar fisk- matsmanns og konu hans, Jak- obínu. „Við vorum sjö systkini," segir Sonja. „Það var yndislegt að vera barn í Færeyjum. í Vogi er um tvö þúsund manna byggð og maður þekkti alla. Svo breytt- ist allt þegar ég missti móður mína tíu ára gömul. Það var mér mikið áfall. Eg var yngst af systkinum mínum. En skömmu eftir að móðir mín dó giftist bróðir minn og hann og kona hans gengu mér nánast í for- eldra stað. Sautján ára gömul hleypti ég heimdraganum og fór til Danmerkur þar sem ég dvaldi í þrjú ár og eitt ár dvaldi ég í Noregi. Til íslands kom ég árið 1957 til að vinna í fiski í Kefla- vík, ætlaði að vera þar í þrjá mánuði. Þar kynntist ég Sig- valda manninum mínum sem fæddur er og uppalinn að Hamraendum í Dalasýslu. Þá breyttust allar mínar fyrirætl- anir. Við ákváðum að giftast og taka við búskap hér. Ég hafði verið búin að tryggja mér skóla- vist í Danmörku en nú tók ég aðra stefnu. Ég vissi að þaö vantaði ljósmóður í þetta hérað hér, sú sem fyrir var ætlaði senn að hætta svo ég fór í Ijósmæðra- skólann í Reykjavík og var þar veturinn ’58 til 59. Ljósmæðrask- ólinn var þá heimavistarskóli, maður varð aðvera kominn heim klukkan hálf tólf á kvöldin. Við vorum 12 nemendur og eins og ein stór fjölskylda. Þetta var ákaflega skemmtilegur tími. Við hittumst alltaf öðru hverju, skólasysturnar, enn þann dag í dag. Ég hafði unnið í sjúkrahús- um í Danmörku og það sem vakti sérstaka athygli mína hér á sjúkrahúsum var hve lítil stétta- skipting var hér meðal starfs- fólks. Eg fann verulega fyrir stéttaskiptingunni í Danmörku en hér var og er hún nánast eng- in. Mér hefur fundist þetta mjög skemmtilegt starf. Það snart mig alltaf djúpt að sjá lítið barn fæðast og hjálpa því í heiminn. Þá fæddu margar konur í heima- húsum en nú er þetta allt breytt. Mér leið alltaf ákaflega vel þeg- ar fæðing var yfirstaðin og allt hafði gengið að óskum. Sérstak- lega eftir að ég kom út í sveit. Það voru mikil viðbrigði þegar ég var ein um ábyrgðina, en ég hef yfirleitt verið mjög hepppin í starfi. Einu sinni kom það fyrir að barn dó sem ég tók á móti, en það barn fæddist töluvert fyrir tímann, það var mjög erfitt. Frá því ég tók við starfi hér sem ljósmóðir um 1960 hef ég ekki tekið á móti tvíburum og sjaldan komið uppá að fæðingar væru á nokkurn hátt afbrigðilegar. Eft- irminnilegasta atvikið frá þess- um árum er tvímælalaust þegar ég þurfti að fljúga suður með barn í snarhasti til að láta skipta um blóð í því. Móðirin var rhesus-neikvæð en faðirinn já- kvæður. Barnið var komið í sjúkrahús sólarhring eftir að það fæddist og blóðskiptin heppnuðust vel, þótt ekki mætti tæpara standa. Starf mitt núna er fólgið m.a. í að fylgjast með vanfærum kon- um frá upphafi meðgöngu, síðan fara þær í sjúkrahús til að fæða en þegar þær koma aftur annast ég eftirlit með þeim og börnum þeirra og þar sem ég vinn á heilsugæslustöðinni fylgist ég með börnum jafnt og þétt. Aðstæður kvenna sem fæddu heima hér í sveit voru yfirleitt mjög góðar. Ég var hjá þeim eft- ir fæðinguna nokkra daga og auk þess höfðu margar þeirra ein- hverja hjálp aðra. Þetta voru yf- irleitt góð heimili og þrifaleg, ég hef aldrei í mínu starfi séð fóst- ureitrun. Eitt hefur mjög mikið breyst í sambandi við fæðingar síðan ég hóf störf. Á þeim árum kom aldrei fyrir að feður væru viðstaddir fæðingu barna sinna. Oftast nær voru þeir ekki einu sinni inni við. Flestar konur hér í sveit áttu mörg börn, fjögur til sex var algengt. Tækni í fæðingarhjálp hefur fleygt mikið fram síðan ég kom til starfa sem ljósmóðir. Ég hafði að visu lítið hláturgastæki til deyfingar en ég notaði það sjaldan, þær hafa líklega verið svona rólegar, konurnar hérna. Nú eru komnar alls konar deyf- ingar. Flestar konur hér um slóðir fara út á Akranes til að fæða börn sín en sumar fara suð- ur til Reykjavíkur. Ég hóf störf sem heilsugæslu- ljósmóðir 1974 og þá voru konur hér í sveit hættar að fæða heima. Umskiptin urðu um 1968. Læknar hvöttu konur eindregið til að fara í sjúkrahús, flest allir læknar sem hér hafa komið hafa verið á móti fæðingum í heima- húsum. Það er margt sem því veldur, m.a. alls konar próf sem gerð eru á börnum eftir fæðingu sem auðveldara er að gera á sjúkrahúsum og svo er talið miklu öruggara að fæða í sjúkra- húsi. Ég átti tvö fyrstu börnin min heima, ljósmóðirin í Lax- árdalnum tók á móti þeim. Ég held að reynsla mín í starfi hafi fremur gert mig öruggari þegar kom að fæðingu en hitt. Starf mitt sem heilsugæslu- hjúkrunarkona er miklu um- fangsmeira en það sem ég hafði með höndum áður. Það er engin hjúkrunarkona á heilsugæslu- stöðinni svo ég annast ýmis verk sem ella hefðu verið í hennar verkahring. Við erum sex sem störfum á heilsugæslustöðinni. Ein ljósmóðir, tveir læknar, að- stoðarstúlka, ritari og fjárhalds- maður. Hjúkrunarkona er á Reykhólum. Heilsufar Dala- manna er fremur gott og aðbún- aður barna hér góður. Það hefur aldrei komið fyrir síðan ég hóf hér störf að hafa þyrfti afskipti af heimilum vegna lélegs aðbún- aðar barna, það er vel fylgst með börnum hér, fyrst ungum og síð- an eftir að þau koma í skóla. Kaup og kjör ljósmæðra hafa breyst. Hér áður fyrri voru ársl- aunin tólf þúsund krónur og út- borgað einu sinni á ári. Svo fékk ég greitt eftir efnum og ástæð- um hjá fólkinu. Maður reyndi að setja eins lítið upp og hægt var. Hvað menntun ljósmæðra í dag snertir þá er ég mjög hlynnt því að þær læri fyrst hjúkrun og síð- an Ijósmóðurfræði. Menntun er alltaf til góðs. Launakjör Ijós- mæðra i dag eru ekki góð þó skárri séu en þegar ég var að byrja. Ef betri menntun er fyrir hendi ættu launin að verða betri."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.