Morgunblaðið - 20.06.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ1985
Laus staða dagskrárþular:
Eitt hundrað
umsækjendur
Útför Jónasar Guðmundssonar gerð frá Dómkirkjunni
ÚTFÖR Jónasar Guðmundssonar, rithöfundar, var
gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gaer að viðstöddu
fjölmenni. Séra Þórir Stephensen jarðsöng. Ólöf
kolbrún Harðardóttir og Dómkórinn sungu. Organisti
var Marteinn H. Friðriksson.
Eftirtaldir báru kistuna úr kirkju: Indriði G. Þor-
steinsson, Matthías Johannessen, Armann Kr. Einars-
son, Helgi Sæmundsson, Sveinn Sæmundsson, Indriði
Indriðason, Gunnar Dal og Sverrir I*órðarson.
Morgunblaðift/Ól.K.M.
Verzlunarskólinn:
Fjármagnar byggingu
með verðbréfasölu
UM 100 karlar og konur hafa sótt um
starf dagskrárþular sjónvarpsins sem
auglýst var laust til umsóknar um
helgina, að sögn Guðbjargar R. Jóns-
dóttur, starfsmannastjóra Ríkisút-
varpsins.
„Það er ekki óvanalegt að svo
margir sæki um Þularstarfið og síð-
ast þegar auglýst var sóttu rúmlega
90 um. í þetta sinn höfum við þó
annan hátt á við val þularins, en
áður. Hver umsækjandi pantar
tíma þar sem hann les upp stuttan
texta. Árni Boðvarsson málfars-
ráðunautur ríkisútvarpsins, hlýðir
á lesturinn og þeir sem hann telur
skara fram úr eru beðnir að mæta í
myndatöku. Með þessu móti spörum
við mikla vinnu og vonumst eftir að
sá hæfasti verði fyrir valinu."
„Við val á dagskrárþular er farið
eftir ýmsu. Hann verður að kunna
vel að lesa, hafa góða rödd og útlitið
hefur líka sitt að segja. Einnig
verður að vera hægt að treysta hon-
um til að leysa úr þeim verkefnum
sem upp gætu komið vegna ófyr-
irsjáanlegra orsaka."
Selfoss í kvöld:
Fyrsti kynning-
arfundur sam-
gönguráðherra
MATTHÍAS Bjarnason,
samgönguráóherra, efnir til funda
um samgöngumál um land allt
dagana 20. til 27. júní. Fyrsti
fundurinn er í kvöld klukkan 21 í
Tryggvaskála á Selfossi.
Á fundinum munu sérfræð-
ingar og stjórnendur stofnana
sem heyra undir samgöngu-
ráðuneytið tala auk ráðherrans.
Á Selfossi kynnir Jón Rögn-
valdsson, yfirverkfræðingur
Vegagerðar ríkisins, vegamál,
Guðmundur Björnsson, forstjóri
fjármáladeildar Póst- og síma-
málastofnunar, kynnir málefni
hennar og Haukur Hauksson,
aðstoðarflugmálastjóri, kynnir
flugmál.
w
w
.ý?
Enn fremur sagði Guðbjörg að
flestir umsækjendanna væri ungt
fólk og stúlkur væru miklu fleiri en
piltar. „Ég treysti mér ekki til að
segja hverjar séu ástæður þess að
svo margir sækja um og án efa eru
þær margar. Þularstarf er tímans
vegna góð aukavinna. Einnig finnst
mörgum spennandi að vinna hjá
sjónvarpinu og andlitið verður
þekkt.
Hvalstööin:
Vinna hefst
á ný í dag
HVALVEIÐIBÁTAR Hvals h/lr lágu
bundnir við bryggju í gær vegna upp-
sagna starfsfólks I vinnslustöðinni í
Hvalfirði. Liðlega 60 menn sögðu upp
vinnu vegna ágreinings um launakjör.
Að sögn Kristjáns Loftssonar verður
vinna með eðlilegum hætti í dag, þar
sem hluti starfsmanna hefur dregið
uppsagnir sínar til baka, en fjallað
verður um uppsagnir annara í sér-
stakri sáttanefnd.
Þegar starfsmennirnir sögðu upp
störfum kom upp ágreiningur um
uppsagnarfrest. Samkomulag var
um að þeir sem hafa starfað minna
en 2 vertíðir hjá fyrirtækinu hafi
aðeins viku uppsagnarfrest. Fyrir-
tækið taldi hinsvegar að eldri
starfsmenn hefðu mánaðar upp-
sagnarfrest en verkafólkið taldi að
hann væri einnig vika. Samkvæmt
kjarasamningum á að vísa slíkum
málum til sáttanefndar, og var það
gert. Þá drógu yngri starfsmenn-
irnir uppsagnirnar til baka, en hin-
ar standa óhaggaðar. Ákveðið var
að allir starfsmenn tækju sér
tveggja daga frí samkvæmt lögum
um hollustuvernd á vinnustöðum,
en að sögn Kristjáns lýkur því á
morgun. Hvalveiðibátarnir silgdu í
nótt og þegar þeir koma að landi
verður afli þeirra unninn eins og
eðlilegt er.
KAUPþlNG hf. hefur auglýst til sölu
bankatryggð skuldabréf fyrir Verzl-
unarskóla íslands og er Verzlunar-
banki íslands skuldari á bréfunum.
Um er að ræða bréf til í'/i—2 ára og
er nafnverð þeirra frá kr. 100.000 til
1.000.000 kr. Raunvextir eru 10%.
Bréfin eru gefin út til fjármögnunar
hyggingar Verzlunarskóla Islands
við Ofanleiti í nýja miðbænum í
Reykjavík. Sala bréfanna hefst ann-
að hvort á lostudag eða mánudag.
Að sögn Þorvarðar Elíassonar
skólastjóra Verzlunarskólans fær
skóiinn þessi bréf lánuð hjá bank-
anum til þess að selja þau. Með því
flýtir skólinn því að koma pening-
um í notkum, sem hann mun fá
frá bankanum eftir 1 'Æ ár og get-
ur þar af leiðandi flýtt fram-
kvæmdum við byggingu nýja
skólahússins. Sala bréfanna mun
einnig leiða til þess hægt verður
að hraða sölu gömlu bygginga
V-ÞJÓÐVERJINN Martin Horst
Kilian var dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi og gert að greiða 150 þús-
und króna sekt fyrir að ræna fálka-
hreiður í Þistilfirði í byrjun mánað-
arins. Dómurinn var kveðinn upp í
Sakadómi Reykjavíkur af Jóni Er-
lendssyni, sakadómara. Hvorki
dómþoli né ákæruvaldið áfrýjuðu
dóminum.
skólans við Grundarstíg.
Þorvarður sagði að margir væru
búnir að skoða húsnæði skólans
við Grundarstíg, en ekki er von á
því að húsin verði seld fyrr en líð-
ur á haustið. Um er að ræða þrjár
byggingar og verða þær annað
hvort seldar sem ein heild eða
hver í sínu lagi.
Kilian hóf að afplána refsingu
sína í gær, situr i Hegningarhús-
inu við Skólavörðustíg. Gæzlu-
varðhaldsvist hans frá 3. þessa
mánaðar kemur til frádráttar
refsingu. Ákæruvaldið krafðist 6
mánaða óskilorðsbundins fangels-
is og 300 þúsund króna sektar yfir
Kilian.
Guðmundur Angantýs-
son er látinn
Fálkaþjófnaðurinn í Þistilfirði:
Kilian dæmdur í 3V&
mánaðar fangelsi
og 150 þúsund króna sekt
Esther Guðmundsdóttir, formaður KRFÍ, afhendir frú Auði Auðuns, heiðursskjal félagsins. Sitjandi eru tveir
heiðursfélagar KRFÍ, t.v. Lára Sigurbjörnsdóttir og th. Guðný Helgadóttir, en þær eru báðar fyrrverandi formenn
KRFÍ. Morgunblaftift/RAX.
Frú Auður Auðuns gerð
að heiðursfélaga KRFÍ
FRÚ AUÐUR Auðuns var gerð að heiðursfélaga Kvenréttindafélags íslands
á hádegisverðarfundi sem félagið hélt á Litlu Brekku í gær, í tilefni þess að
70 ár eru liðin frá því að íslenskar konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi
til Alþingis.
Esther Guðmundsdóttir, for-
maður KRFÍ, flutti æviágrip frú
Auðar Auðuns og afhenti henni
þvínæst heiðursskjal félagsins.
Ávarpaði frú Auður fundargesti
og kvað það mikinn heiður fyrir
sig að vera gerð að heiðursfélaga
hins virðulega félags, KRFÍ.
Að borðhaldi loknu flutti Krist-
ín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur,
erindi þar sem hún rakti aðdrag-
andann að því að konur fengu
kjörgengi og kosningarétt til Al-
þingis. Áð síðustu ávarpaði Elín
Bruusgaard, rithöfundur frá Nor-
egi, fundargesti, en hún er hingað
komin á vegum ’85-nefndarinnar
sem KRFÍ á aðild að. Bruusgaard
kynnti söfnun til aðstoðar konum í
þróunarlöndunum, sem íslenskar
konur taka þátt í af tilefni
kvennaáratugs Sameinuðu þjóð-
anna.
GUÐMUNDUR Angantýsson, sem
gekk undir nafninu Lási kokkur, er
látinn í Reykjavík, 84 ára að aldri.
Hann lést á Hrafnistu, dvalarheimili
aldraðra sjómanna, að kvöldi 17.
júní. Guðmundur Angantýsson
fæddist 21. maí 1901 á Gulllaugsá á
Snæfjallaströnd við fsafjarðardjúp.
Lási kokkur var landskunnur
sjómaður, bryti og kokkur. Hann
var um áratuga skeið á togurum,
lengi á síld og starfaði um árabil
hjá Ragnari heitnum Jónssyni í
Þórscafé. Lási kokkur var þjóð-
saga í lifanda lífi og margar sögur
af honum sagðar.
„Þegar ég var lengi hjá henni
frú Margréti á Hótel Heklu, voru
þar þrír Gvendar. Þá fór Margrét
að kalla mig Lása eftir að hafa
spurt mömmu um leyfi. Svoleiðis
var það,“ sagði Lási kokkur í sam-
tali við Morgunblaðið fyrir nokkr-
um árum aðspurður um ástæðu
þess að hann var kallaður Lási.