Morgunblaðið - 20.06.1985, Blaðsíða 19
19
Einn besti
rallökumað-
ur heims
vill keppa í
Ljómarallinu
GINN BESTI rallökumaður heims,
Svíinn Per Eklund, hefur mikinn
áhuga á því að taka þátt í Ljóma-
rallinu alþjóðlega í haust, en hann
ræddi við Birgi Viðar Halldórsson
um það eftir skoska rallið, sem er
nýlokið. Per Eklund er atvinnuöku-
maður hjá Toyota, en hefur einnig
margsinnis ekið fyrir Audi-verk-
smiðjurnar og náð góðum árangri
bæði í bresku meistarakeppninni,
Evrópumeistara- og heimsmeistara-
keppninni. Hefur hann hug á því að
koma með 360 hestafla Audi
Quattro til íslands, ef honum verð-
ur veitt nægileg fyrirgreiðsla hér-
lendis.
„Eklund og Dave Whitock, að-
stoðarökumaður hans, ætla að
senda mér lista yfir hvað þeir
þurfa að fá til að koma. Þetta eru
náttúrlega atvinnumenn og vilja
sitt. Það þarf að finna einhverja
til að styrkja þá, borga ferðir,
uppihald og slíkt. Ef úr þessu
verður kemur 6—8 manna að-
stoðarlið með þeim að auki,“
sagði Birgir Viðar í samtali við
Morgunblaðið, en hann ætlar að
leita eftir aðstoð fyrir Eklund
hérlendis.
„Þeim er full alvara og þeir
spurðu mikið um land og þjóð,
gerðu sér raunar rangar hug-
myndir um landið. Töldu hlutina
mun frumstæðari en þeir eru.
Það voru líka aðrir þekktir öku-
menn sem spurðu um rallið, Dav-
id Lewwllin og Phil Short á Audi
Quattro einnig. Atvinnumenn
hafa áhuga en það stendur illa á
með skipaferðir því þeir keppa í
rallkeppni á írlandi viku fyrir
Ljómarallið," sagði Birgir.
Það er engin spurning um að ef
Per Eklund kemur mun fylgja
honum fjöldi fréttamanna, því
margir slíkir hafa sýnt því áhuga
að koma og fylgjast með Ljóma-
rallinu, en ekki séð ástæðu til
þess vegna þess að frægan kepp-
anda hefur vantað. M.a. hefur
Alistar Miller, einn fremsti
vídeoupptökumaður Englands,
áhuga á að koma gegn einhverri
fyrirgreiðslu til að gera mynd
um rallið, land og þjóð. Hann sel-
ur myndir sínar til sjónvarps-
stöðva í Evrópu og til almenn-
ings. „Ef Eklund kemur er ég
sannfærður um að á næstu árum
má fara að huga að því að koma
rallinu í Evrópumeistarakeppn-
ina. Það myndi þýða fjölda kepp-
enda, ásamt aðstoðarliði — fulla
flugvél af fólki. Nú er spurningin
hvort menn geta tekið höndum
saman til að fá þessa kappa og
aðra hingað heim,“ sagði Birgir.
G.R.
esiö
reglulega
ölhim
fjöldanum!
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNl 1985
MorgunblaÖid/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Svíinn Per Eklund og Bretinn Dave Whitock sigruöu í maflok í Suöur-
sænska rallinu á Audi Quattro, sem þeir vilja keppa á í Ljómarallinu í haust.
Eklund ekur ýmist fyrir Toyota- og Audi-verksmiöjurnar, bæöi í Evrópu- og
heimsmeistarakeppninni.
Morgunbladiö/Jóhann
Per Eklund (l.t.h.) sést hér ræóa við Birgi Viðar eftir skoska rallið, en á
myndinni er einnig Philip Walker, sem tvívegis hefur tekið þátt í Ljómarall-
inu.
Nýr 2arðsteinabæklin2iir er kominn út
-fylgir Vikunni í dag!
B.M. Vallá framleiðir fjölmargar gerðir af
skrautsteinum og gangstéttarhellum.
Nú bætast Blómasteinar í hópinn.
Þeir fást bæði sem hleðslusteinar og hellur,
gefa því óteljandi möguleika.
Skoðaðu nýja bæklinginn okkar, þar kynnum
við framleiðslu okkar.
B.M. VALLA
~rr
|| STEIN AVERKSMIÐJ A
r Söluskrifstofa, sýningarsvæði
' Breiðhöfða 3, 110 Reykjavík. Sími: (91) 685006
Aðalskrifstofa:
Nóatúni 17, 105 Reykjavík. Sími (91) 26266
Bendum á nýtt glæsilegt sýningarsvæði
við Breiðhöfða.