Morgunblaðið - 30.08.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.08.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 Engar líkur á auk- inni flakaframleiðslu — Því veldur að mestu skortur á starfsfólki, segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja „MENN hafa hingad til verið að framleiða eins mikið og mannafli og aðstæður hafa leyft. I>að eru því engar líkur á þvf að frystihúsin geti aukið flakaframleiðsluna svo nokkru nemur. Fólksskorturinn í vinnslunni gerir þetta ákaflega erfitt. Ennfremur hefur meirihlutinn af karfanum verið fram- leiddur fyrir Rússland til þessa,“ sagði Sigurður Einarsson, framkvæmda- stjóri Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja, í samtali við Morgunblaðið. Eins og fram hefur komið fréttum Morgunblaðsins er nú verulegur skortur á öllum flaka- pakkningum hjá Coldwater og óttast stjórnendur fyrirtækisins að það geti haft alvarleg áhrif á markaðsstöðu þess. Vegna þess hefur þeim tilmælum verið beint til framleiðenda innan SH, að þeir auki framleiðslu sína á flökum. Sigurður Einarsson sagði enn- fremur, að farið væri að ganga á kvóta Eyjaskipa, en ekki þannig að hann væri að verða búinn. Einnig væru margir þar á sókn- arkvóta og gætu því veitt aðrar tegundir en þorsk. Það væri fyrst og fremst skortur á starfsfólki, sem stæði framleiðslunni fyrir þrifum. Þá sagðist hann ekki geta séð að útflutningur á ferskum fiski, hvort sem hann væri með fiskiskipum eða í gámum, hefði nokkur áhrif á flakaframleiðsl- una. Það, sem flutt hefði verið utan í gámum, hefði nær eingöngu verið umframfiskur, sem ekki hefði verið hægt að vinna heima. Starfsmenn Norðurtangans á ísafirði töldu í samtali við Morg- unblaðið möguleika á því að auka talsvert framleiðslu á karfaflök- um. Til þessa hefðu menn aðallega lagt sig eftir þorskinum og þó mikið hefði verið framleitt af hon- um, væru birgðir mjög litlar. Þá hlyti það eitthvað að segja til sín hve mikið hefði verið flutt út af óunnum fiski. Ferskfiskmarkaður- inn gæfi ýmsa möguleika á fram- leiðslustjórnun, en það mætti ekki ganga svo langt að hann skaðaði Vinnudeilan í Svartsengi: Fundurí dag FUNDUR hefur verið boðaður í dag klukkan 10 hjá ríkissáttasemjara í deilu vélstjóra, sem vinna í hitaveitu Suðurnesja og viðsemjenda þeirra. Vélstjórar gera kröfu um sambæri- leg kjör og tíðkast hjá álverinu og ríkisverksmiðjunum. Þeir hafa boð- að verkfall frá og með 1. september og verður framkvæmd verkfallsins skýrð hjá ríkissáttasemjara í dag, verði fundurinn árangurslaus, en samkvæmt yfirlýsingum vélstjór- anna munu Suðurnesjamenn ekki þurfa að óttast heitavatnsleysi vegna freðfiskmarkaðinn í Bandaríkjun- © INNLENT Morgunblaöið/Helgi Bjarnason Fulltrúar á aðalfundi Stéttarsambands bænda hlýða á ræðu Inga Tryggvasonar, formanns Stéttarsambandsins, á Laugarvatni í gær. Aðalfundur Stéttarsambands bænda á Laugarvatni: A furÖasamningur ríkis og bænda aðalumræðuefnið Óbreytt ástand er í vinnudeil- unni f Áburðarverksmiðjunni og hefur nýr samningafundur ekki verið boðaður. Dró ríkissáttasemj- ari í efa að af fundi yrði fyrr en eftir helgi. Samningnum vel tekið af bændum Laugarvatni, 29. ágúst. Frí Helga Bjarnasyni blaðamanni Morgunblaðsins. SAMNINGUR ríkisstjórnarinnar og Stéttarsambands bænda um það magn mjólkur og sauðfjárafurða sem ríkið ábyrgist bændum fullt verð fyrir var aðalumræðuefnið á fyrsta degi aðalfundar Stéttarsambandsins, sem hófst á Laugarvatni í dag. Samningurinn var lagður fram á fundinum til kynningar og afgreiðslu og fjölluðu Ingi Tryggvason formaður Stéttarsambandsins og Jón Helgason landbúnaðarráðherra báðir um hann í ræðum sínum við upphaf fundarins í morgun. í almennum umræðum í dag var samningurmn vinsælasta umræðuefnið og lýstu flestir þeir sem til máls tóku yfír ánægju sinni með hann er ráð fyrir að umsömdu magni verði skipt með reglugerð um hér- aðabúmark. I bókun sem fylgir samningnum lýsir landbúnaðar- ráðherra því yfir að hann muni beita sér fyrir því að Framleiðni- sjóður landbúnaðarins veiti fjár- magni til kaupa á búmarki af bændum sem tilbúnir eru að minnka við sig framleiðslu mjólk- ur- og sauðfjárafurða. Vonast er til að með þessu verði hægt að ná búvöruframleiðslunni sem mest niður í það afurðamagn sem samn- ingurinn kveður á um. Þá fylgir samningnum bókun sem báðir samningsaðilar skrifa undir þar sem því er lýst yfir af núverandi birgðum verði haldið fyrir utan samninginn og gerðar sérstaklega upp. Samninganefnd bænda undirritaði samninginn með fyrirvara um samþykki aðal- fundarins. Er samningurinn því lagður fyrir fundinn til samþykkt- ar eða synjunar. „Samningurinn er engan veginn nægjanleg tekjutrygging fyrir ís- lenska bændur. Hann sýnir okkur það að við þurfum að halda áfram að auka tekjuöflun bændastéttar- Samningurinn gildir fyrir næstu tvö verðlagsár. Byggir hann á spá um innanlandsneyslu og þeim fjár- munum sem til ráðstöfunar eru til útflutningsbóta samkvæmt lögun- um um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Útflutnings- bæturnar fara eins og kunnugt er stiglækkandi á næstu árum. Á næsta verðlagsári, sem hefst 1. september nk., er gert ráð fyrir framleiðslu á 107 milljónum lítra af mjólk og minnkun niður í 106 milljónir lítra á verðlagsárinu 1986-1987. Á sama hátt er gert ráð fyrir 12.150 tonna framleiðslu af kindakjöti og tilsvarandi af öðrum sauðfjárafurðum á næsta verð- lagsári og minnkun niður í 11.800 tonn verðlagsárið 1986-1987. Eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu felst í samningnum að bændur verða að draga úr mjólk- urframleiðslunni um 4 milljónir lítra á næsta ári miðað við það sem útlit er fyrir að framleitt verði í ár, en kindakjötsframleiðslan verður svipuð og var á síðasta ári. Samningurinn er í 12 greinum og honum fylgja tvær bókanir. 1 honum kemur m.a. fram að gert innar," sagði Ingi Tryggvason er hann kynnti samninginn. Nefndi hann í því sambandi þörf á aukinni fjölbreytni í atvinnu til sveita, könnun á útflutningsmöguleikum og áherslu á aukna hlutdeild hinn- ar hefðbundnu búvöruframleiðslu á innanlandsmarkaði. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra sagðist vonast til að með framlögum úr Framleiðnisjóði yrði sem minnst eða jafnvel engin skerðing á framleiðslu þeirra bænda sem eftir verða. Sagði hann að það væri í samræmi við þann tilgang laganna að gera búrekstur- inn hagkvæman og afkomu bænda betri. Landbúnaðarráðherra gerði út- flutningsmöguleika á dilkakjöti til Bandaríkjanna að umtalsefni í ræðu sinni. Hann sagði: „Nýstofn- uð samtök sauðfjárbænda hafa vakið athygli okkar á þeim mögu- leikum sem kunna að vera til sölu á dilkakjöti til Bandaríkjanna, sérstaklega vegna þess að það er framleitt í ómenguðu umhverfi." Jón sagðist hafa óskað eftir því að fá verkefnislýsingu vegna slíkr- ar tilraunar. Þegar hún lægi fyrir yrði athugað hvernig stuðla mætti að því að þessi möguleiki verði Fjörutíu ár eru nú liðin frá stofnun Stéttarsambands bænda og verður þess minnst hér á fund- inum, m.a. með hátíðarhófi síðasta fundardaginn. 48 fulltrúar, 2 úr hverri sýslu landsins, sækja fund- inn auk fjölda gesta. Meðal gesta eru fulltrúar búgreinafélaganna og fulltrúar frá bændasamtökum hinna Norðurlandanna. Fundinum lýkur á laugardag. Sjá ræðu Inga Tryggvasonar á bls. 26 og 27. Fjórðungsþing Norðlendinga: Umræður um há- skóla á Akureyri Laugum í Rejkjadal, 29. ágúst Frá blaðamanni Morgunblaösins Arnari Sigfússjni. FJÓRÐUNGSÞING Norðlendinga hófst hér í dag klukkan 13.30. Helstu mál þingsins eru atvinnu- og menntamál á Norðurlandi. Þá eru einnig til umræðu tillögur frá Fjórðungsráði um ný lög fyrir sambandið. Helsta mark- mið tillagnanna er að gera starfsemi sambandsins skilvirkari og léttari í vöfum. Aðalfundur SSA á Reyðarfirði: „Verðum að stöðva fólksflótt- ann til höfuðborgarsvæðisins — segir Þorvaldur Jóhannsson, formaður SSA, í setningarræðu sinni Egilsstöðum, 29. igúst AÐALFUNDUR Sambands sveitar- félaga á Austurlandi hófst á Reyðar- fírði í dag. Fyrir fundinum liggja fjölmörg mál, en tvö meginmálin eru þó samstarf sveitarfélaga á Austur- landi um verkmenntaskóla og byggðamál frá sjónarhóli heima- manna er ber yfírskriftina „Frá orðum til athafna“. Formaður SSA Þorvaldur Jó- hannsson gat þess í setningarræðu sinni að sveitarfélögin á Austur- landi yrðu nú að sameinast gegn þeirri óheillaþróun er fælist í sí- auknu streymi fólks til höfuð- borgarsvæðisins í kjölfar erfiðrar stöðu undirstöðuatvinnuveganna sjávarútvegs og landbúnaðar. Leita verður leiða til að breyta núverandi leikskipulagi, sem er hreinn varnarleikur í stórsókn til framfara í fjórðungnum, sagði Þorvaldur. Ennfremur lagði hann áherslu á það í setningarræðu sinni, að sveit- arfélögin fengju full yfirráð yfir eigin tekjustofnum og sjálfsfor- ræði yfir eigin málum en forsenda þess væri sterk og samstæð heild sveitarfélaga í fjórðungnum. Að lokinni setningu voru lagðar fram hinar ýmsu skýrslur stofn- ana og nefnda er tengjast á einn eða annan hátt störfum SSA. Síð- an fluttu gestir aðalfundar ávörp. Að kaffihléi loknu var tekið til við umræður um samstarf sveitarfé- laganna um verk- og tæknimennt- un. í kvöld verða svo byggðamál frá sjónarhóli heimamanna á dagskrá, auk þess sem Logi Kristjánsson mun fjalla um tölvuþjónustu sveit- arfélaganna. Aðalfundi SSA verð- ur framhaldið á morgun, en honum lýkur annað kvöld. Ólafur Formaður sambandsins, Helgi N. Bergs á Akureyri, setti þingið og bauð gesti velkomna. Fram kom í ræðu hans að landsbyggðin hafi á undanförnum árum farið mjög hall- oka gagnvart Reykjavíkurvaldinu. Kvað hann byggðastefnuna hafa farið rækilega úrskeiðis og stærsta verkefnið framundan væri að gera sér grein fyrir hvað farið hefði af- laga og leita í framhaldi af því nýrra leiða til eflingar raunhæfrar byggðastefnu. Að lokinni ræðu hans voru starfs- menn þingsins kosnir og gengið til dagskrár. Félagsmálaráðherra Alexander Stefánsson og Björn Frið- finnsson, formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, fluttu ávörp. Framsögumenn gerðu grein fyrir fjölmörgum tillögum og var þeim vísað til nefnda þingsins. Þá flutti Áskell Einarsson, framkvæmda- stjóri sambandsins, skýrslu um starfsemina á síðast aári. Að loknu kaffihléi hófust umræð- ur um menntamál á Norðurlandi. Tryggvi Gíslason, skólameistari á Akureyri, flutti framsöguerindi um háskólakennslu á Akureyri. Urðu allmiklar umræður í kölfar ræðu Tryggva og voru ræðumenn á einu máli um nauðsyn þess að hefja þessa kennslu sem fyrst. Einar Páll Svav- arsson, bæjarritari á Sauðárkróki, flutti framsögu um rekstur fram- haldsskóla og skiptingu kostnaðar við hann milli ríkis og sveitarfélag- ana. Trausti Þorsteinsson, skóla- stjóri á Dalvík, ræddi um rekstur grunnskóla og kom fram hjá honum að hann væri þungur baggi á mörg- um dreifbýlishreppum. Madonna enn í fyrsta sæti Vinsældalisti rásar 2 var valinn í gærkveldi. Hann lítur þannig út: 1. (2. ) Into the Groove/Madonna. 2. (2. ) WeDon’tNeed AnotherHero/ TinaTurner. 3. (5. ) Tarsan Boy/Baltimore. 4. (- ) Dancing in the Street/David Bowie —MickJagger. 5. (4. ) Money for Nothing/Dire Straits. 6. (6. ) Á rauðu ljósi/Mannakorn. 7. (3. ) LivelsLive/Opus. 8. (13.) PeepingTom/RockwelI. 9. (9. ) Endless Road/Time Bandits. 10. (7. ) Hittlagið/Fásinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.