Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 5
m MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986 5 Tónleikar áDalvflk Dalvík, 30. desember. MILLI jóla og nýárs hélt Samkór Dalvíkur tvenna tónleika ásamt unglinga- og barnakór frá Tón- listarskólanum á Dalvík. Flutt voru jólalög frá ýmsum löndum undir stjórn Colin P. Virr við undirleik Tracy Anne Wheeler. Samkór Dalvíkur hefur starfað undanfarin ár og er það orðið árvisst að kórinn heldur jólatónleika. Þar sem hann flytur fjölbreytta söngdag- skrá. Þá hefur kórinn um hver jól sungið á götum úti undir logandi kyndlum. Stjómandi kórsins er Colin P. Virr en hann er jafnframt skóla- stjóri tónlistarskólans á Dalvík. A jólatónleikum samkórsins nú komu fram bamaskór og unglingaskór frá Tónlistarskólanum og sungu börnin með samkómum auk þess em þau fluttu nokkur lög úr hinum vinsæla sjónvarpsþætti „Á framabraut". Þá léku þau Colin Virr og Tracy Wheel- er tvö lög á píanó og flautu. Egilsstaðir: Friðsæl áramót Egilsstöðum, 2. jauúar. ÁRAMÓTIN voru friðsæl á Héraði. Veður var gott, stillilogn og heið- skírt en frost. Efnt var til tveggja áramótabrenna sitt hvoru megin Lagarfljótsbrúar - önnur var á Þverklettum á Egilsstöðum og hin í Fellabæ. Á miðnætti hófst áramótadans- leikur í Valaskjálf og stóð hann til kl. 5 í morgun. Að sögn Ulfars Jóns- sonar, lögregluvarðstjóra, sóttu um 400-500 manns dansleikinn - sem fór vel fram þrátt fyrir talsverða ölvun. Að sögn Ulfars skapar það oft umtalsverð vandkvæði fyrir lög- gæslumenn hér um slóðir á fjölda- samkomum sem þessari að engin fangageymsla fyrirfinnst nú á Hér- aði og verður því að flytja ölmóða óróaseggi niður á Eskifjörð til geymslu. Slíkir flutningar eru afar kostnaðarsamir - auk þess sem frá- tafír lögreglubifreiðar og löggæslu- manna veikja óneitanlega löggæsl- una heima fyrir í þær tvær klukku- stundir sem flutningamir taka. Það kemur sér því einkar vel að Héraðs- búar eru stilltir menn að jafnaði og seinþreyttir til vandræða hvort held- ur er á nýársnótt eða í annan tíma. Að vísu kvað lögregluvarðstjóri líkur á því að Héraðsbúar fengju sínar fangageymslur með vorinu - þar sem nú væri í athugun að gera nú- verandi húsnæði Skattstofu Austur- lands að lögreglustöð er skattstofan flytur í nýtt húsnæði. Fáir hafa verið á ferli hér á Egils- stöðum í dag, nýársdag, en nokkrir hafa þó notað góða veðrið til útivem, einkum skíða- og hestamenn. Ólafúr Töluverð gróska er um þessar mundir í tónlistarlífí á Dalvík og hafa aldrei verið jafnmargir nemend- ur í Tónlistarskólanum og nú. Við skólann starfa 3 kennarar, en auk colins eru það þau Tracy Anne Wheeler og Gunnar Randversson. Þessi mikla gróska í tónlistarlífi á Dalvík birtist ekki síst um jól. Auk Mikið flogið til Siglufjarðar Siglufirdi 6. janúar. UMFERÐ um flugvöllinn hér í Siglufírði hefúr farið mjög vax- andi og er til dæmis orðin meiri en um flugvöllinn á Sauðárkróki. Vegna þessa sýnist mönnum nú ástæða til að völlurinn verði lýst- ur eins og gert er ráð fyrir í reglugerð um lýsingu flugvalla. Alls fóru 4.960 farþegar um völl- inn á síðasta ári og voru lendingar 1.555. I reglugerð um lýsingu og búnað á flugvöllum er ákvæði um það, að lýsa skuli flugvelli, sem stát- að geta af slíkri umferð og þó mun minni væri. Fréttaritari •-----. ♦ «—--- SL bjóða lág fkrgjöld í Bandaríkjunum: Samkór Dalvíkur og barnakór tónlistarskólans syngja á götum úti nú fyrirjól. þess að Samkór Dalvíkur efndi til tónleika þá stóð Tónlistarskólinn fyrir myndarlegum nemendatónleik- um 15. desember og var gerður afar góður rómur að og greinilegt að unga fólkið er í mikilli framför á tónlistarbrautinni. Fréttaritarar. Afrakstur af starfi fargjalda- sérfræðinga segir Auður Bjömsdóttir „ÞAÐ ER og hefúr alltaf verið markmið okkar að leita leiða til að lækka fargjöld. Hjá okkur starfa margir færir fargjaldasér- færðingar og þetta verð okkar innanlands í Bandarikjunum er árangur af þeirra starfi," sagði Auður Björnsdóttir hjá Sam- vinnuferðum-Landsýn að væri skýringin á hinu lága fargjaldi sem ferðaskrifstofan býður nú innanlands í Bandaríkjunum. I boði er flug til New York og þaðan áfram til Dallas, New Orleans og aftur til Keflavíkur fyrir 19.950 krónur. Auður sagði að þetta lága verð væri fyrst og fremst vegna góðra samninga sem náðst hefðu um ferðir innanlands í Bandaríkjun- um. Hún sagði lækkunina í Banda- ríkjunum vera milli 60 og70%, miðað við lægstu fargjöld sem Islendingum hafa staðið til boða þar. Lægsta Apex-fargjald til New York og aftur til baka er í kringum 17.000 krónur. Auður sagði að það væri mikil vinna að leita uppi hagstæð fargjöld. „Það eru ýmis fargjöld innanlands í Bandaríkjunum sem eru ekki skráð í venjulegum fargjaldaskrám og það þarf mikla vinnu og góð sambönd til að finna þau,“ sagði hún. SUZUKI FOX RUMGOÐUR OG STERKB YGGÐUR JEPPI, ÞRAUTREYNDUR VIÐ ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR. SUZUKI FOX ER SPARNEYTNASTIJEPPINN Á MARKAÐNUM. í SÍÐUSTU SPARAKSTURSKEPPNI B.I.K.R. EYDDISUZUKI FOX 413 AÐEINS 6.4 Itr. Á HUNDRAÐIÐ. VERÐ FRÁ KR. 406.000. FOX 410 PICKUP (gengi 5/1 '86) VERIÐ HAGSYN, AKIÐ Á SUZUKI SPARNEYTNUSTU BÍLUM SEM SELDIR ERU Á ÍSLANDI. é- *,,„-r \ rT'^~rf"J&- K Wi * ‘íák vÉsíTl-*.': ‘ SVEINN EGILSSON HF. Skeifunni 17. Sími 685100. SUZUKI F’AV .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.