Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986 21 Veður víða um heim Lægst Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Berlin Brussel Chicago Dublin Feneyjar Frankfurt Genf Kelsinki Hong Kong Jerúsalem Kaupmannah. h3 Las Palmas Lissabon 9 London 2 LosAngeles 16 Lúxemborg Malaga Mallorca Miami 20 Montreal -16 Moskva -s-12 NcwYork 1 Hæst 2 4-2 11 0 43 16 •r 1 1 46 43 8 8 hálfskýjað 2 skýjað 17 skýjað 10 léttskýjað 2 skýjað 3 rigning 43 heiðskírt skýjað rigning skýjað skýjað snjókoma 15 heiðskírt 16 skýjað 43 skýjað vantar 15 skýjað 3 skýjað 26 skýjað 0 slydda 12 hálfskýjað 11 úrk. igr. 26 skýjað 49 snjókoma 46 snjókoma 6 heiðskirt 47 2 410 Osló París Peking Reykjavík RiódeJaneiro 20 Rómaborg 3 Stokkhólmur 410 Sydney 19 Tókýó 0 Vinarborg 43 Þórshöfn 46 5 0 33 12 45 23 8 + 1 2 skýjað heiðskirt heiðskirt vantar rigning skýjað skýjað heiðskírt heiðskirt skýjað léttskýjað AP/Símamynd Ahöfii Kólumbíu stígur kampakát frá borði enda þótt ákveðið hafi verið á síðustu stundu að fresta geim- skoti vegna smávægilegrar bilunar. Gerð verður önnur tiíraun til geimskots á hádegi í dag að íslenzkum tíma. I áhöfhinni er bandarískur þingmaður, Bill Nelson, sem er annar fi-á vinstri á myndinni. Grænland: Lars Emil Johansen ætlar að hætta í stj órnmálunum Neitar því að deilurnar vð Ellemann-Jensen séu undirrótin Kaupmannahöfn, 6. janúar. Frá Nils Jörg- en Bruun, Grænlandsfréttaritara Morgun- blaðsins. LARS Emil Johansen, sem farið hefur með sjávarútvegs- og iðnað- Frammámenn í fílippeysku atvinnulífí: Vel tekið í hug- myndir Corazon Manila, Filippseyjum, 6. janúar. AP. Atvinnurekendur og frammá- menn í viðskiptalifínu fögnuðu Corazon Aquino mjög inniiega þegar hún lýsti því fyrir þeim hvernig hún ætlaði að „bæta fyrir afglöp“ Marcosar, forseta, ef hún sigraði í kosningunum 7. febrúar nk. því raunar þannig farið með alla valdamestu mennina í heraflanum. Viðbrögðin við ræðu Corazons komu mjög á óvart en viðskiptajöfr- arnir fögnuðu henni svo mjög, að hún varð níu sinnum að gera hlé á máli sínu. armál í grænlensku landsstjórn- inni, hefir ákveðið að segja af sér embætti og hætta að mestu þátt- töku í stjórnmálum. Þess í stað ætlar hann að gerast skólastjóri lýðháskóla launþegahreyfingar- innar í Julianeháb. Hann mun þó áfram eiga sæti á landsþinginu, a.m.k. fram að næstu kosningum. Mikill styrr hefur staðið um Jo- hansen að undanförnu en hvorki vill hann né Jonathan Motzfeldt, for- maður landsstjórnarinnar, viður- kenna, að pólitískur ágreiningur sé undirrótin að afsögninni. Johansen hefur vegna embættis síns átt mik- inn þátt í samningaviðræðum við aðrar þjóðir, m.a. við Evrópubanda- lagið, eftir að Grænlendingar gengu úr því og við Japani, sem fengið hafa leyfi til að veiða innan græn- lenskrar lögsögu, og einnig við Sovétmenn, en við þá hafa Græn- lendingar rætt um samstarf í fisk- veiði- og markaðsmálum. Johansen hefur farið til Leningrad til viðræðna við Sovétmenn og einnig gert sér far til Kúbu í sömu erinda- gjörðum. Varð það til þess, að Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Dana, setti ofan í við hann og minnti hann á, að utanríkismálin heyrðu undir stjórnina í Kaupmannahöfn. Johansen svaraði Ellemann-Jensen þannig, að hann réði því sjálfur við hveija hann ræddi grænlensk sjávar- útvegsmál, nú eftir að Grænlending- ar væru farnir úr EB. í viðtali við grænlenska útvarpið vildi Johansen þó ekki viðurkenna, að þessar deilur við danska utanríkisráðherrann hefðu einhveiju ráðið um afsögnina. Lars Emil Johansen er 39 ára gamall, kennari að mennt og einn af stofnendum stjórnarflokksins Siumut ásamt Jonathan Motzfeldt og Moses Olsen, sem nú fer með efnahagsmál í landsstjórninni. Hefur hann setið á landsþinginu frá 1979 en þar áður átti hann sæti á danska Geimskoti frestað um sólarhring Canaveral-höfða, 6. janúar. AP. BILUNAR varð vart á siðustu stundu í eldsneytiskerfi geimfeij- unnar Kólumbíu og því var geim- skoti frestað um sólarhring a.m.k. Með geimfeijunni áttu að fara sex geimfarar og bandariskur þing- maður. Áhöfnin hafði beðið geimskots um borð í feijunni í hartnær fjórar stundir er viðvörun kom um að ekki væri allt með felldu, aðeins 31 sekúndu áður en skotið skyldi. Bilunin var rekin til tölvu, sem lokaði ekki eldnseytiskrana á réttu augnabliki. Gerð verður önnur tilraun til geim- skots klukkan 12:05 að íslenzkum tíma á morgun, þriðjudag. Ferð Kól- umbíu er fyrsta geimferðin af þremur, sem gagngert verða famar til rann- sókna á Hallys-halastjömunni. Lars Emil Johansen þinginu í sex ár eða frá 1973. Hann átti sæti í nefndinni, sem undirbjó heimastjórnina grænlensku, og var formaður Siumut á ámnum 1979- ERLENT . í fremur stuttri ræðu gerði Coraz- on forystumönnum í atvinnulífinu grein fyrir áætlunum sínum í efna- hagsmálum og m.a. því, að hún hyggst leysa upp einokunarfyrirtæki í kókoshnetu- og sykurræktinni. Kvaðst hún ekki hafa í hyggju að „hampa einkafyrirtækjum" en hins vegar ætlaði hún að sjá til, að ríkið væri ekki að keppa við þau. Brýnast sagði hún að draga úr atvinnuleys- inu, ef það tækist þyrfti enginn að óttast, að kommúnistar kæmust til valda. Corazon var spurð hvemig hún ætlaði að fást við herinn og svaraði hún því til, að það yrði hennar fyrsta verk að víkja frá yfirmönnum, sem komnir væru á eftirlaunaaldur. Er Hartvill verða forseti Ever^reen, Colorado, G.janúar. AP. GARY HART, sem keppti um út- nefhingu demókrataflokksins við forsetakosningarnar í Bandarikjun- um, segist ekki munu sækjast eflir þriðja kjörtimabilinu í öldunga- deildinni, en kveðst enn „hafa áhuga á forsetaembættinu". Hart sagðist ekki mundu bjóða sig fram við kosningar til öldungadeildar- innar á næsta ári. Hann hefur verið fulltrúi Colorado í deildinni. Hart, sem er 49 ára, þykir líklegastur frambjóð- andi demókrata við forsetakosning- amar 1988. Treholt-málið íyrir borgardómi í Osló: Veijendur vilja að málið verði tekið upp að nýiu Osló, G.jamiar. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morerinblaðsins. TREHOLT-málið er komið fyrir rétt í Noregi á nýjaleik. Nú á að endurmeta sönnunargögn í máli Arne Treholts fyrir borgardómi í Osló og verða niðurstöður borgardóms notaðar þegar hæstiréttur fjallar um áfrýjun Treholts. Oryggisviðbúnaður var mikill fyrir utan dómshúsið í Osló í dag þegar Arne Treholt kom til réttarins brosandi og að því er virtist, sigurviss. Treholt áfrýjaði 20 ára fangels- isdómi sínum til hæstaréttar og einnig því að hann skyldi dæmdur fyrir að þiggja eina milljón norskra króna fyrir njósnir. Hann heldur fram að málið þurfi að taka upp að nýju vegna brotalama í máls- sókninni á hendur sér. Treholt áfrýjaði einnig þyngd dómsins og því að þurfa að greiða í sekt það fé, sem hann er sakaður um að hafa þegið fyrir njóspir. Enn sem komið er hefur hæsti- réttur í Noregi ekki gefið Arne Treholt og veijendum hans, Arne Huagstad og Alf Nordhus, leyfi til að fjalla um spurninguna um sök Treholts og hæstiréttur hefur kveðið skýrt á um að í borgardómi megi aðeins fjalla um réttmæti refsingar Treholts og þess að hann var dæmdur til að láta af hendi 1,1 milljón norskra króna, sem hann er sakaður um að hafa þegið fyrir njósnir sínar. Þó er ekki loku fyrir það skotið að íjallað verði um sök Treholts í réttinum. Ein sakargiftanna, sem fjallað skal um, er hin svokallaða „peningasönnun". Þar er átt við um 50 þúsund dollara í seðlum, sem lögreglan fann í umslögum í skjalatösku Treholts, og veijendur Treholts halda fram að ekki hefði verið unnt koma fyrir í umræddum umslögum. Sérfróðir menn munu meta sannleiksgildi Ijósmynda lögreglunnar af umslögunum fyrir réttinum og ummæli þeirra til þessa benda til þess að umsögn þeirra verði veijendum Treholts í vil. Þar með, segja veijendurnir, er grunnurinn að máli ríkisins á hendur Treholts að miklum hluta brostinn og málið verði að fara fyrir rétt að nýju - þar með talið hvort Treholt sé sekur. Treholt bar ekki vitni í máli sínu á fyrsta degi réttarhaldanna. Upphaflega var ákveðið að Treholt léti af hendi skriflegar skýringar, en sakir slæmrar vinnuaðstöðu í fangelsi hans - Treholt fékk m.a. ekki að hitta lögfræðinga sína að vild - varð ekki af því. Miklar deilur spruttu upp milli veijenda Treholts, ríkissaksóknara og (iómara og svo fór að Treholt fékk tvær vikur til að ganga frá yfirlýsingum sínum. Ritari réttar- ins á að taka þær niður og skulu þær lagðar fyrir hæstarétt. Alf Törstad, kennari við alþjóð- legan skóla Sameinuðu þjóðanna í New York, var eina vitni réttarins í dag. Hann umgekkst Treholt meðan hann starfaði í sendinefnd Noregs hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Veijendur Treholts kvöddu hann til að bera því vitni hvernig Treholt varði fé sínu. Veijendurnir reyna nú að útskýra hvers vegna innistæða Treholts á bankareikningi í Sviss var svo há sem raun bar vitni og leitast þeir við að færa sönnur á að peningarn- ir séu frá Treholt sjálfum og ekki greiðslur frá sovésku leyniþjón- ustunni KGB. Að sögn Törstads dró Treholt aldrei dul á það að hann ætti miklar fjárhæðir á bankareikningi í Sviss. Treholt greindi Törstad einnig frá því að hann ætlaði að nota 20 þúsund dollara til að fjár- festa á silfurmarkaðinuin. Törstad hafi sjálfur fest 40 þúsund dollara í silfri og auðgast talsveit þegar verð á silfri hækkaði. Treholt kvaðst hafa fengið 20 þúsund dollara fyrir bifreið, sem hann flutti tollfrjálst til Bandaríkj- anna og seldi þar. Vitnið sagði að Treholt hefði ekki eytt miklu fé og hann hefði lagt lítið undir í fjárhættuspilum og veðreiðum í Noregi og Banda- ríkjunum. Meðal þeirra átján vitna, sem kölluð verða fyrir borgardóm nú, eru fyriverandi yfirmaður norska heraflans, Sven Hauge, núverandi yfirmaður heraflans, Fredrik Bull- Hansen, Anders ('. Sjaastad, varn- armálaráðherra, Svenn Stray, utanríkisráðheira, og yfirmaður rannsóknarinnar á Treholt-málinu, Örnulf Tofte. Geit er ráð fyrir að lokið verði við að endurmeta sönnunargögn í málinu 1. febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.