Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986 Persaflóastríðið: Arásír á báða bóga ágerast Nicosia, Kýpur/Manama, Bahrain, 6. janúar. AP. ÍRANSKAR sprengjuflugNélar vörpuðu í dag sprengjum á Kulak-herstöðina í norðaustur- hluta Iraks, að sögn útvarpsins í Teheran. Allar flugvélarnar sneru ólaskaðar aftur eftir að hafa vald- Gengi gjaldmiöla London, G.Janúar. AP. BANDARIKJADOLLAR lækk- aði litillega á gjaldeyrismörkuð- um í Evrópu í dag en kaupmenn kváðust enga skýringu hafa þar á. Að þeirra sögn eru viðskipti ekki komin í eðlilegt horf að loknum jólum. Dollar lækkaði t.a.m. gagnvart sterlingspundinu. Pundið kostaði 1,4375 dollara í dag miðað við 1,4370 í gær. Gagnvart öðrum gjaldmiðlum var gengi dollars á þá leið að fyrir hann fengust 2,4530 v-þýzk mörk (2,4640), 2,06725 svissneskir frankar (2.0685), 7,5075 franskir frankar (7,5600), 2,7610 hollenzk gyllini (2,7785) og 1,40625 Kanadadoll- arar (1,40225). Gjaldeyrismarkaður var lokaður á Italíu í dag, en í London fengust 1.674,50 lírur miðað við 1.681,75 á föstudag. Gullúnsan hækkaði um 30 sent í London, í 328 dollara, og 50 sent í Ziirich þar sem únsan kostaði einnig 328 dollara í kvöld. ið miklu tjóni á herstöðinni. Sadd- am Hussein, forseti Iraks, sagði í dag að Irakar hefðu áætlanir um að ríða írönskum efnahag að fúllu og hótaði að murka liftóruna úr öllum þeim hersveitum, sem Iran- ar kynnu að senda til innrásar í land sitt. Hussein flutti í dag ræðu í íraska útvarpið í tilefni þess að íraksher átti 65 ára afmæli: „Eftir því sem óvinurinn veikist,. styrkjast írakar. Arásarmennimir missa sífellt meira blóð, en vamir okkar færast stöðugt í aukana jafnhliða trúnni á föður- landið," sagði Hussein í ræðu sinni. Irakar sögðu um sprengjuárás Irana að önnur sprengjuflugvél þeirra hefði verið skotin niður og hefði hin flúið samstundis, án þess að sprengju væri varpað. Fyrr í dag lýstu írakar yfir því að herinn hefði hafið mikla árás á víglínunni við suðurlandamæri íraks og hrifsað Majnoon-eyjar úr höndum Irana. Iranar náðu eyjunum á sitt vald fyrir tveimur árum. íranar hafa ekki svarað þessari fullyrðingu ír- aka. Turgut Ozal, forsætisráðherra Tyrklands, sem nú er í opinberri heimsókn í Teheran, sagði í dag að Tyrkjar ætluðu ekki að taka að sér að miðla málum milli frana og íraka, en hann kvaðst vona að stríðinu lyki sem fyrst. AP/Símamynd Fórnarlamb hryðjuverka- manna borið til grafar Eitt fómarlamba hryðjuverkamannanna, sem réðust á saklaust fólk á Rómar- flugvelli, var borið til grafar um áramótin. Var þar um að ræða 11 ára gamla, bandaríska stúlku, Natasha, en foreldrar hennar, Victor og Daniela Simpson, ganga á eftir kistunni. Victor Simpson er fréttastjóri AP-fréttastofunnar í Róm og það voru samstarfsmenn hans, sem báru kistuna. Jarðsprengjur í S-Afríku: Stjórnin ræðir gagnað- gerðir Jóhannesarborg, 6. janúar AP. RÍKISSTJ ÓRNIN í Suður- Afríku ræddi um það í dag hvort og hvar ráðist skuli til atlögu við skæruliða. Um helgina sprakk jarðsprengja undir bifreið við landamærin og varð hún hvítum manni og tengdadóttur hans að bana. Magnus Malan, varnarmálaráð- herra, sagði sl. sunnudagskvöld, eftir að jarðsprengjan hafði sprungið, að ríkisstjórnin ætlaði ekki að láta þessum grimmdar- verkum óhegnt. Á sl. þremur vik- um hafa 13 manns beðið bana þegar jarðsprengjur hafa sprungið og kennir stjórnin um skæruliðum Afríska þjóðarráðsins. Að sögn stjórnvalda hafa skæruliðar þess aðsetur í Zambíu, Botswana, Zimbabwe, Mósambík, Lesotho og Swazilandi. Greint var frá ókyrrð og íkveikjuárásum í nokkrum byggð- arlögum svartra manna í dag en ekki er vitað til, að neinn hafi látið lífið. VEX ÞER I AUGUM A0 kaupa inn fyrir fyrirtœkið? • # # Líttu þá inn til okkar í Griffli. Viö höfum allt til aö koma skipulagi á skrifstofuhaldiö, og fyrir utan eru nœg bílastœöi. Skrifstofuvörur Meöal annars höfum viö möppur í mörgum geröum, milliblöö, eyöubiöö, Ijósritunarpappír, diskettur, diskettugeymslur, tölvu- möppur, bréfabakka, penna, fallblýanta og öll almenn ritföng. Tímarit og bœkur íslensk, ensk, dönsk, þýsk og amerísk tímarit og vasabrots- bœkur. Úrval af íslenskumbókum. Unlbind Gangiö frá skjölum skrifstofunnar í Unibind plastkápu. Unibind kápan er úr níösterku plasti, svo skjölin varöveitast vel og rifna ekki úr kápunni. Unibind — Einfaldur og fallegur frágangur skjala. Síðumúla 35 — Sími 36811 Crtstopher Isherwood látinn á nírœðisaldri ^anhi Mnnicj léolifnrni■ ■ (l iannap A P RITHOFUNDURINN Cristoph- er Isherwood lést á laugardag að heimili sínu í Santa Monica í Kaliforníu. Hann var 81 árs gamall og banamein hans var krabbamein. Þekktustu verk Isherwoods voru frásagnir af ástandinu í Berlín undir heimsstyijöldina síðari, sem gefnar voru út undir heitinu „The Berlin Stories" og munu margir þekkja sögupersónuna Sally Bowles úr bók- inni „Goodbye to Berlin" og kvik- myndinni „Cabaret". Þessar sögur voru að hluta til sjálfsævisögulegar. „Hann færði mér heim sanninn um hversu indælt það getur verið að vera áttræður," sagði gamall vinur Isherwoods, Armistead Maup- in, rithöfundur og blaðamaður frá San Francisco. „Hann var alltaf reiðbúinn til að veita rithöfúndum góð ráð og heimili hans var ungum rithöfundum og listamönnum ætíð opið.“ Don Bachardy, 33 ára gamall sambýlismaður Isherwoods, sagði að Isherwood hefði verið að skrifa hluta sjálfsævisögu sinnar, sem honum hefði ekki enst ævi til að gefa nafn. Fyrir nokkrum árum gaf Isherwood út bókina „Cristopher and his Kind“, þar sem hann m.a. segir opinskár frá tilgangi farar sinnar til Berlínar á lokaskeiði Weimar-lýð- veldisins, en í Berlínarbókum sínum. Þaðan er fræg setningin: „For Cri- stopher, Berlin meant boys.“ Bachardy sagði að ekki væri ráð- gert að jarða Isherwood með við- höfn. „Isherwood var mótfallinn því og arfleiddi hann læknarannsókna- stofnun UCLA-háskóla að jarðne- skum leifum sínum til rannsókna," bætti vinur hans við. Isherwood fæddist í High Lane í Cheshire á Englandi 1904. Hann nam í Cambridge og flutti til Banda- ríkjanna 1939. Isherwood varð bandarískur ríkisborgari árið 1946. Áhugamál og hæfileikar Isher- woods voru af ýmsum toga. Hann var um skeið ritari strengjakvartetts tónlistarfélagsins í London og lagði Cristopher Isherwood einnig stund á læknisfræði. Isher- wood var handritahöfundur Metro Goldwin Mayer og Wamer Brothers kvikmyndaveranna um tíma og pró- fessor við ýmsa háskóla í suðurhluta Kalifomíu, þ. á m. UCLA. Þekktastur er Isherwood fyrir „The Berlin Stories", sem gefnar vom út 1935. Þessar sögur urðu kveikjan að leikriti John van Druten, „Ég er myndavél" (I am a Camera) frá 1952 og síðar söngleiknum „Cabaret", sem hlaut verðlaun leik- húsgagnrýnenda í New York 1966- 67. Leikstjórinn Bob Fosse gerði kvikmynd eftir söngleiknum 1972 með Lizu Minelli og Michael York í aðalhlutverkum og hlaut myndin átta óskarsverðlaun. Isherwood skrifaði nokkur leikrit ásamt W.H. Auden, þ. á m. leikritið „On the Frontier" og skrifaði nokkr- ar bækur í samvinnu við austur- lenska dulspekinginn Swami Prab- havananda. Að sögn Bachardys á Isherwood enga eftirlifandi ættingja. i OMi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.