Morgunblaðið - 05.04.1986, Blaðsíða 34
34
UU
" 5 1, :::::: : X-9
:::::::::::::::::::::::::::::::: :::::::::::::::::::::::::::::::: ::i:iÍiÍ::i
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Ég yrði ákaflega þakklát fyrir
smá vísbendingu um það hvar
hæfíleikar mínir liggja og hvers
konar starf/nám ætti best við
mig. Það hefur verið mér mikil
hugraun að taka ákvarðanir
þessu viðvíkjandi. Fæðingar-
dagur minn er 27.05. 1959 um
kl. 7 að morgni. Eins þætti
mér gaman að vita eitthvað
um mínar jákvæðu og nei-
kvæðu hliðar. Með fyrirfram
þökk fyrir birtinguna."
Kennsla eÖa hjúkrun
Svan Þú hefur Sól í Tvíbura,
Tungl, Miðhimin í Vatnsbera,
Merkúr í Nauti, Venus, Mars
og Risandi í Krabba. Þú hefur
þvi einkenni frá Tvibura,
Vatnsbera Krabba og Nauti.
Hæfíleikar þínir virðast
liggja á félagslegu sviði (Tví-
buri og Vatnsberi) og sviðum
sem hafa með umhyggju og
uppeldi að gera (Krabbi). Því
dettur mér strax í hug kennsla
og öðru lagi hjúkrun eða upp-
eldisstörf.
Tjáskipti
Tviburinn er merki tjáskipta.
Hann er félagslyndur og þarf
að búa í félagslega lifandi
umhverfi. Upplýsingamiðlun er
aðalsmerki hans. Meðal hæfí-
leika Tvíbura er leikni í tungu-
málum. Helsti veikleikinn er
eirðarleysi. Hann á erfítt með
að sitja kyrr og ljúka verkum,
hefur tilhneigingu til að ijúka
úr einu í annað.
Feimni
Hinn dæmigerði Tvíburi er
opinn og hress, léttur í lund,
vingjamlegur og ræðinn. Það
að þú ert Rísandi Krabbi (fas
og framkoma), táknar að þú
hins vegar hefur tilhneigingu
til feimni, til að halda aftur af
þér og draga þig í skel. Krabb-
inn táknar að þú ert tilfinn-
ingalega næm og skilningsrík.
Þetta tilfínninganæmi getur
verið þér til trafala ef þú lærir
ekki að nota það. Þú þarft
þvi að þroska tilfinningar þínar
og vinna með þær, t.d. með
því að beita þeim í vinnu. Störf
sem hafa með umhyggju að ’
gera, það að hjálpa öðrum og
vemda gætu gefíð þér jákvæða
útrás.
Fjölbreytileiki
Helsti vandi þinn liggur senni-
lega í eirðarleysi Tvíburans og
síðan í þeirri mótsögn að hafa
Tungl í Vatnsbera í andstöðu
við Úranus og plánetur í
Krabba. Vatnsberinn táknar
að þú vilt vera sjálfstæð í
daglegu lífí, að þú vilt fara
þínar eigin leiðir og sættir þig
ekki við stöðnun og vanabind-
ingu. Þú þolir ekki tilbreyting-
arleysi og þarft því sífellt að
skipta um stfl og umhverfí en
þráir samt öryggi og varan-
leika (Krabbi). Þér líður því
aldrei fyllilega vel í hvom hlut-
verkinu sem er, í fjölbreytileik-
anum eða í örygginu. Þú þarft
að fínna jafnvægi milli þessara
þátta. Finna þér starf sem
gefur kost á fjölbreytileika og
hreyfíngu, en jafnframt öryggi.
Þú ættir ekki að stefna á eitt
afmarkað og þröngt svið. Það
er í raun ekkert að því að
breyta til, svo fremi sem hvert
starf er rækt af samviskusemi.
Nám sem gefu möguleika á
kennslu og miðlun, störf að
ferðamálum, með sprettum inn
á milli í félagsstörf á líknar-
sviðum gætu átt vel við þig.
Þetta virðist flókið ekki satt,
en við því er ekkert að gera,
lífið er nú einu sinni oft snúið
og mótsagnakennt.
féUéf- Þu
/OAfr/ toAf4/t,yt/fi/. y
B/U*///2J'/P, /
z'T'/v'/víxa/ /AÞ/y/u.
lf!!!!??!!!!!!!f!!?f!??!!f!!.r!!!??!!!!!i!!!!!!!!!?!!?f!!??!?????!f!!!?!?!!!?!!!.,!!?!H??!!?!!!!?!!!?!!!!!!?!!!!?f!?!!!!!!!!!!!?!!!!!!!!!i!i!!!!!;!!!
::::::::::i::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: i::: i1 ! 1:!
iiii •':•'. . . ' .i:. :. . ' .'!. !i::::
DYRAGLENS
TRÚ£?U MÉR, l/ALDI/)j }
... þl!l STEMDUR. T
m 'a 'övöggas-ta
STAE> í ALLfcl
iAMKJl ■'
LJOSKA
TOMMI OG JENNI
ÞÓ HBFUÞ EKK/
ér/e? neitt /
V/Ku.. ■
þÚHEFÚ/Z EKKt
zr/Ð mtrr
i’ V/KU /
r af Hi/eeju
I GER&HZ&U
(>ETTA ? NÚ,
1//LL HANNETA
OKKUe'/
Tnehe/.
s \
h/\hn fek '
og éru/e.
ALLT
ÚR...,
FERDINAND
Vestur Norður ♦ D ¥- ♦ 4 ♦ 85 Austur
♦ 10 ♦ -
V 109 V-
♦ G ♦ d
♦ - ♦ D76
Suður ♦ - ¥- ♦ - ♦ KG104
SMAFOLK
i'll holp you up, anp
UJHEN HALLEV'5 COMET
C0ME5 BY, YOU BARK...
50RRY, IT U)AS JU5T
THEM00N REFLECTING
OFF MY SUPPER PISH..
Ég skal lyfta þér upp og Voff!
þegar Halley-halastjarnan
fer hjá geltir þú ...
Hvar? Hvar?
Afsakaðu, þetta var bara
tunglið sem endurspeglaðist
í matardollunni minni...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er kannski ástöða til að
skoða lokastöðuna í spili gær-
dagsins aðeins nánar en tök
gáfust á í gær. Það er ekki á
hveijum degi sem menn sjá
sjálfsmorðsþvingun í einum lit.
Ef einhver er í vafa um hvað
sjálfsmorðsþvingun er, þá er það
kastþröng sem sagnhafí kallar
yfír sig sjálfur með því að taka
vinningsslag.
Suður er sagnhafí í fjórum
spöðum og er í þessari stöðu
staddur í blindum og má engan
slaggefa.
Hann verður að taka tromp-
drottninguna til að vestur fái
ekki á spaðatíuna. Austur hendir
tíguldrottningunni, en suður má
ekkert spil missa! Ef hann hendir
lauffjarkanum getur hann ekki
svínað laufínu nema einu sinni
og drottning austurs verður því
slagur. Og ekki dugir að hendar
lauftíunni og spila síðan laufátt-
uni úr blindum, því þá getur
austur einfaldlega lagt á og
tryggt sér slag á sjöuna.
Þessi staða kom næstum því
upp á íslandsmótinu í sveita-
keppni um páskana, þ.e.a.s.
spilið gaf tilefni til þess, en
vömin þróaðist á annan veg. En
„næstum því" er alveg nógu
gott, þegar um er að ræða svo
sjaldgæfa og fallega stöðu.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á IBM-skákmótinu í Vín í jan-
úar kom þessi staða upp í skák
Austurríkismannanna Roth sem
hafði hvítt og átti leik og Pöck-
steiners.
22. Hxg7! - Hxg7, 23. Bxg7+
Kxg7, 24. Hg3+ Kf8, 25. Dh6+
og svartur gafst upp, því það er
orðið stutt eftir í mátið. Þeir
Beljavsky og Korchnoi sigruðu á
IBM-mótinu, en Karpov varð í
þriðja sæti ásamt fleirum.