Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 151. tbl. 72,árg.________________ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986__________________________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Suður-Afríka: Banni við funda- frelsi var aflétt Jóhannesarborg, AP. STJÓRNVÖLD í Suður-Afríku afléttu í gærkvöldi lögum, sem kveða á um bann við fundum verkalýðsfélaga. í tilkynningu stjómvalda segir að það hafi verið mistök að setja lögin. Fjögur verkalýðsfélög höfðu kært lagasetninguna fyrir dómstól- um, þar sem þau spilltu fyrir samningaviðræðum þeirra við at- vinnurekendur og gætu leitt til verkfalla. Samkvæmt tilkynningu stjómar- innar segir þó að ný lög verði sett um afnám fimdafrelsis í dag. Þau ættu þó aðeins við fundi í Soweto, en skertu ekki fundafrelsi verka- lýðsfélaga. Stéttarfélög hafa þegar gripið til verkfallsaðgerða til að mótmæla handtökum vérkalýðsleiðtoga, og mikil röskun hefur orðið á vinnu- tíma undanfarna daga. Um 18 þúsund félagar í Stéttarsambandi námamanna hafa t.d. iagt niður vinnu nokkra klukkutíma í senn síðustu daga. Aður en stjómvöld ákváðu að afnema lögin um bann við fundum verkalýðsfélaga sagði formaður Þjóðarsambands verkalýðsfélaga, Jay Naidoo, að staðið yrði við áform um að efna til eins dags allsheíjar- verkfalls nk. mánudag til að mótmæla setningu neyðarástands- laganna. Formaðurinn sagði þetta í leyni- legu viðtali, en hann er nú í felum. Alls er talið að milli tvö til þijú þúsund manns hafi verið settir í fangelsi síðan neyðarástandslögin voru sett 12, júní. Símamynd/AP Bifreið Karls Heinz Beckurts eftir sprengjutilræði Rauðu herdeildarinnar í gær í Miinchen. Beckurts og bílstjóri hans létu lifið í sprengingunni. Lögreglu-, sjúkra- og slökkviliðsbílar við lögreglustöð í miðborg Parísar í gær, en þar sprakk sprengja með þeim afleiðingum að einn maður lét lífið og 27 særðust. París: Sprengjuárás á lögreglustöð Paris, AP. Rauða herdeildin í Vestur-Þýskalandi: Lýsa yfir ábyrgð á morði iðjuhölds Mllnchen.AP. HRYÐJUVERKASAMTÖKIN Rauða herdeildin (RAF) hafa lýst ábyrgö á hendur sér á morðinu á vestur-þýska iðjuhöld- inum Karl Heinz Beckurts, en sprengjuárás var gerð á bifreið hans í gærmorgun. Bílstjóri Beckurts lét einnnig lífið í sprengingunni. SPRENGJA sprakk í lögreglu- stöð í miðborg Parísar í gær með þeim afleiðingum að einn maður lét lífið og 27 særðust, þar á meðal þrír alvarlega Enginn hefur enn lýst ábyrgð á hendur sér á sprengjutilræðinu, en getum hefur verið leitt að því að hér hafí hryðjuverkasamtökin Act- ion Direct verið að verki. Lögreglustöðin er andspænis skrifstofu Jacques Chirac forsætis- ráðherra Frakklands, en hann gegnir einnig embætti borgarstjóra Parísar. Skömmu eftir að sprengjan sprakk kom Chirac á vettvang, og fundi franska þingsins var slitið svo að þingmenn gætu litið þar á að- stæður. Chirac sagði við fréttamenn að hann væri „þrumu lostinn og æfur af bræði vegna sprengjutilræðis- ins“. Hann bætti því við að kominn væri tími til að stjómarandstöðu- flokkamir létu af þrákelkni sinni og samþykktu tillögu stjómarinnar um hertar öryggisráðstafanir. Talið er að Action Direct hafa staðið að mörgum hryðjuverkum í Frakklandi á undanfömum ámm. Fyrr í vikunni lýstu samtökin t.d. yfír ábyrgð á tveimur sprengjutil- ræðum, sem framin vom í París. gærkvöldi með táragasi og vatni á mikinn mannfjölda sem safnast hafði saman til að fylgja einum Ianda sínum, Rodrigo Roja, til grafar. Roja, sem er með banda- rískan ríkisborgararétt, lést af brunasárum fyrir viku, en óháð mannréttindasamtök í landinu halda því fram að lögreglumenn hafi hellt yfir hann eldfimu efni Að sögn vestur-þýsku lögregl- unnar stóð sveit innan Rauðu herdeildarinnar, sem kennd er við Mara Cagol, að morðtilræðinu. Beckurts, sem átti sæti í stjórn stórfyrirtækisins Siemens og var yfírmaður rannsóknardeildar þess, var leið til vinnu sinnar í úthverfi Munchen þegar sprengjuárásin var gerð. í yfírlýsingu RAF sagði að ástæða þess að Beckerts var myrtur væri sú að hann hefði stundað rann- sóknir í tengslum við geimvamaá- ætlun Bandaríkjamanna (SDI). Talsmaður Siemens sagði hins veg- ar að rannsóknir Beckurts vörðuðu á engan hátt geimvarnaáætlunina. Rauða herdeildin kom sprengj- unni fyrir á þjóðvegi, þar sem bifreið Beckurts átti leið fram hjá. og kveikt í. Lögreglumennimir dreifðu mannfjöldanum, sem safnast hafði vegna útfarar Rojas, en ekki er vit- að hvort einhvetjir slösuðust. Talsmaður Bandaríkjastjómar sagði í gær að stjómvöld litu dauða Rojos mjög alvarlegum augum, og hvatti hann til þess að óháð rann- sóknamefnd yrði skipuð til að rannsaka málið. Fannst fjarstýribúnaður skammt. frá þeim stað, sem sprengjan sprakk. Var sprengjan svo öflug að bfllinn kastaðist út af veginum og varð brátt alelda. Önnur bifreið, sem lífvörður Beckurts ók, fylgdi fast á eftir. Lífvörðinn sakaði þó ekki, en bifreið hans skemmdist nokkuð. Innanríkisráðherra Vestur- Þýskalands, Friedrich Zimmer- mann, sagði á fréttamannafundi í gær að bréf hefði fundist hjá fjar- stýribúnaði sprengjunnar, þar sem Rauða herdeildin lýsti ábyrgð á hendur sér á tilræðinu. Þetta er annað morðið á 18 mánuðum, sem Rauða herdeildin stendur að, en í febrúar á síðasta ári lýsti RAF yfír ábyrgð á tilræðinu á iðjuhöldinum Emst Zimmermann. Telur lögregl- an að um 20 hryðjuverkasveitir séu innan RAF, og eigi þær sér um 200 stuðningsmenn, sem sjái þeim fyrir fjármunum og vopnum. Sjá frétt á bls 30. Annar leiðangur að flaki Titanic hafinn Massachusettð, AP. 56 vísindamenn og sæfarar lögðu úr höfn í Massachusetts í Banda- ríkjunum í gær, áleiðis að flaki farþegaskipsins Titanic, sem fórst árið 1912 utan við strendur Nýfundnalands. Nokkrir úr hópnum eru að leggja í annan leiðangur sinn að Titanic, en i fyrra fann flokkur bandarískra og franskra leiðangursmanna flakið, þar sem það hafði legið á botni Atlantshafsins i 74 ár. Robert Ballard, sem var leið- síðan niður aðalstigann inn í sal- angursstjóri í fyrra, sagðist ekki bjartsýnn á fínna jarðneskar leifar þeirra 1.513 manna sem fórust með skipinu, en það liggur á um 4.000 metra dýpi. Fram á síðustu stundu var unn- ið að undirbúningi þriggja manna kafbáts, Alvin, sem áætlað er að senda niður að flakinu. Áhöfn kafbátsins mun stjóma vélmenn- inu Jason yngra, sem senda á inn í flakið. Er ætlunin að Jason verði sendur inn um gat á skipinu, þar sem áður var glerhvelfing og ma. Á myndum sem teknar voru í leiðangrinum í fyrra, sést að skip- ið hefur brotnað í tvennt og nálægt skutinum fundust vínflöskur, koppar og rúmdýnur. Rannsóknarmennirnir segjast ætla að taka um 100.000 myndir í þessum leiðangri og setja svo tvo bronsskildi á hliðar skipsins, þar sem rituð er þakkarorð til þeirra sem að leiðöngrunum tveimur stóðu. Lögregla í Chile ræðst á líkfylgd Santiagó, AP. LÖGREGLAN í Chile réðst í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.