Morgunblaðið - 24.09.1986, Page 17

Morgunblaðið - 24.09.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986 17 Tillaga Björns Kristleifssonar hlaut 1. verðlaun í samkeppni, er Landsvirkjun efndi til árið 1981 og er nýlega búið að koma veggskreytingunni fyrir við Sigölduvirkjun. Listaverk sett upp r við Sigölduvirkjun LISTAVERKI hefur verið kom- ið fyrir við Sigölduvirkjun og er höfundur þess Björn Krist- leifsson, arkitekt. Alls bárust 23 tillögur í samkeppni, sem Landsvirkjun efndi til og var dómnefnd skipuð þeim Jóhann- esi Nordal, formanni stjórnar Landsvirkjunar, sem jafnframt var formaður dómnefndar, Guðmundi Kr. Kristinssyni, arkitekti, og Herði Agústssyni, listmálara. Tillögu Bjöms Kristleifssonar er þannig lýst að efnisval þykir gott ef þannig er frá álinu gengið að það veðrist ekki. Myndbygging heilsteypt og tákngildi verksins sannfaerandi. Formstef er einfalt og tengir vel saman hinar þijár einingar veggjarins. Foreldrasamtökín „Vímulaus æska“ stofnuð: „Mikil velvild í garð samtakanna“ - segir Bogi Arnar Finnbogason, form. undirbúningsnefndar FORELDRASAMTOKIN „Vímulaus æska“ voru form- lega stofnuð í Háskólabíói sl. laugardag að viðstöddum hátt í 500 manns. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, var heiðursgest- ur fundarins. Bogi Arnar Finnbogason, formaður undirbúningsnefndar, sagð- ist í samtali við Morgun- blaðið vera mjög ánægður með fundinn og velviid alla í garð samtakanna. „Dómsmálaráðherra, Jón Helgason, sat stofnfundinn með okkur, sté í ræðustól og- fagnaði stofriun sam- takanna. Eg er viss um að bæði heilbrigðisráðherra og mennta- málaráðherra hefðu einnig setið fundinn hefðu þau ekki þurft að sinna öðrum málum þá stundina___ Dómsmálaráðherra hafði samband við okkur fyrir stuttu og bauð okk- ur velkomna í samstarf. Þá hafði Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra, samband við mig og sagðist vera tilbúinn til að gera allt sem i sínu valdi stæði til að vemda Leif Birgander, formaður namtaka foreldra á Norðurlöndum gegn vímuefnum, og Bogi Arnar Finnbogason, formaður undirbúnings- nefnar, á stofnfundi samtakanna „Vímulaus æska“ i Háskólabíói sl. laugardag íslenskan æskulýð gegn vá eitur- lyfja. Landlæknir, Ólafur Ólafsson, Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, var heiðursgestur fundar- sat einn af undirbúningsfundum okkar og lít ég svo á að heilbrigðis- ráðuneytið sé hlynnt starfsemi samtakanna." Leif Birgander, formaður sam- taka foreldra á Norðurlöndum gegn vímuefnum, flutti okkur kveðju Norðurlandasamtakanna á fundin- um og bauð íslendinga velkomna til samstarfs innan þeirra. Bogi Amar sagði að áhuginn væri næg- ur, en þó ætti það eftir að koma f ljós hvort við hefðum efni á því að taka þátt í slíku samstarfi eða ekki. Mikið starf á sér stað víða erlendis í samtökum sem þessum. Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan á vegum Sameinuðu Þjóðanna var haldin í Stokkhólmi í byijun mánaðarins og verður önnur slík ráðstefna haldin að ári í Vínarborg. Þar voru saman- komnir 200 fulltrúar frá 60 löndum víðsvegar um heiminn. Öllum þeim sem heimsöttu mig, sendu mér heillaóskir og gjafir á sextugsafmœli mínu 16. september sl. sendi ég bestu þakkir og góÖar óskir. Svavar Stefánsson, Bakkavör 9. /iGLinGR/KOLinn heldur námskeið til undirbúnings eftirtöldum prófum sem hefjast: 25/9, 30 tonna skipstjórnarpróf og 23/10, hafsiglingar skútuskipstjórapróf (Yacht- master Offshore). Námsefni: Siglingafræði, sjómennska, veður- fræði. Inntökuskilyrði: 30 tonna próf. Kennsla í meðferð seglbáta og notkun siglinga- tækjaferfram næsta sumará nýrri skútu skólans. Upplýsingar og innritun í síma 31092. Siglingaskólinn Meðiimur í alþjóðasam- bandi siglingaskóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.