Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 Hamborg: Sextán Tékkar kusu frelsið Hamborg, AP. SEXTÁN Tékkar leituðu hælis sem pólitískir flóttamenn í Ham- borg á laugardag. Voru þeir allir farþegar á sovézku skipi, sem kom þar til hafnar. Skýrði vest- ur-þýzka lögreglan frá þessu á sunnudag. Níu af Tékkunum voru saman í hópi, sem laumaðist í land frá far- þegaskipinu „Mikhail Kalinin" síðdegis á laugardag og leitaði síðan ásjár lögreglunnar. „Hvar hinir eru, vitum við einfaldlega ekki,“ var haft eftir talsmanni lögreglunnar. Mikhail Kalinin var tvo daga í höfn í Hamborg, en fór þaðan á laugardagskvöld. Flestir af far- þegunum voru frá Tékkóslóvakíu. Ársfundi Sinn Fein lokið: Fulltrúar samtakanna munu taka sæti á þingi Harðlínumenn stofna ný samtök Dublin, AP. TÆSMENN Sinn Fein, stjórn- málaarms Irska lýðveldishersins, lýstu í gær yfir vonbrigðum sínum vegna þeirrar ákvörðunar harðiínumanna að segja skilið við samtökin. Fundi samtakanna lauk á sunnudag og var sam- þykkt að fulltrúar Sinn Fein skyldu taka sæti á írska þinginu. Minnihlutahópurinn telur að með þessu séu samtökin að viður- kenna stjórnarhætti írsku ríkis- stjórnarinnar og þar með yfirráð Breta yfir Norður-írlandi. Eftir harðvítugar deilur sam- þykktu fundarmenn þá tillögu framkvæmdastjórnar Sinn Fein að fulltrúar samtakanna tækju sæti á þingi eftir næstu kosningar. Þrátt fyrir að hvatt væri til samstöðu ákváðu um 30 fulltrúar með Ruairi 0 Bradaigh, fyrrum formann sam- takanna í broddi fylkingar, að yfírgefa fundarsalinn. Nokkrum klukkustundum síðar tilkynnti 0 Bradaigh að harðlínumenn hefðu stofnað með sér ný samtök. Fulltrú- ar harðlínumanna sögðu 130 full- trúa hafa gengið út en Jackie Donnelly, talsmaður Sinn Fein, bar þá tölu til baka. Að sögn Donnelly var enginn andófsmannanna frá Norður-Irlandi. 590 fulltrúar sátu ársfund samtakanna. Garret Fitzgerald, forsætisráð- herra, hvatti í gær alla stjóm- málaflokka til að vinna gegn því að Sinn Fein fengi kjöma fulltrúa í næstu þingkosningum. Sagði Fitz- gerald að ekki kæmi til greina að eiga samstarf við fulltrúa Sinn Fein. „I fyrsta skipti hefur flokkur sem hefur ofbeldisverk á stefnuskrá sinni og krefst þess að stuðnings- menn undirriti sérstaka stuðnings- yfírlýsingu við ódæðisverk liðsmanna sinna ákveðið að bjóða fram til þings og taka þar sæti fái fulltrúamir tilskilið fylgi." sagði Garret Fitzgerald. Stjómmálaskýr- endur telja margir hveijir að Sinn Fein geti fengið tvo til þijá fulltrúa kjöma í næstu þingkosningum. AP/Símamynd David Jacobsen (til vinstri) ræddi við fréttamenn í Larnaca á Kýpur en þar var komið við á leiðinni til Wiesbaden í Vestur-Þýskalandi. Við hlið hans situr Terry Waite, sendimaður erkibiskupsins af Kant- araborg, en hann átti mestan þátt í að fá Jacobsen iausan. Laus úr gíslingu eftir 17 mánuði: „Líf þeirra er eins o g í víti“ - segir David Jacobsen um hlutskipti gíslanna í Líbanon Wiesbaden, Beirut, AP. DAVID Jacobsen, Bandaríkja- maður, sem verið hefur gísl mannræningja í Líbanon í 17 mánuði, kom í gær til Wiesbaden V flárhæfing eiukaritara sem fulltrúa forstjóra Sú ábyrgð sem hvílir á einkariturum sem fulltrúum forstjóra gerir þá fremur að stjórnendum en aðstoðarmönnum. Einkaritarar og fulltrúar vinna með yfirboðurum til að ná settu marki. Vélritun og skjalavarsla eru örlítið brot af starfsumfangi einkaritara og fulltrúa forstjóra. Þetta námskeið leggur áherslu á stöðu einkaritara og fulltrúa for- stjóra sem lykilaðila i hópi stjórnenda fyrirtækisins með þeirri ábyrgð, meðvitaðri stjórnun og starfshvatningu sem stöðunni fylgir. Lögð er áhersla á hvernig samvinna einkaritara og fulltrúa við forstjóra getur styrkt stöðu forstjóra og aukið afköst hans. □ Efni: — Viðskiptaheimurinn: Hlutverk einkaritara/fulltrúa forstjóra. — Stjórnunarhæfileikar og þjálfun. — Sáttahlutverkið. — Þjálfun framkomu og samtalstækni. — Lausn vandamála og ákvarðanataka. — Dreifing starfa: Frá stjórnendum til einkaritara sem fulltrúa, frá einkariturum sem fulltrúum til annarra starfsmanna. — Tímaskipulagning. — Að vaxa í starfinu. Leiðbeinandi: Deanna Scott sem hefur á undanförnum 20 árum unnið sem leiðbeinandi, ráðgjafi og þjálfað yfir 20.000 manns á sviði einkarit- ara. Deaanna Scott hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir hæfni sína sem leiðbeinandi og ræðumaður, hún var m. a. valin í hóp helstu ræðu- manna National Speakers Association í Bandaríkjunum. Hún á sæti í ráðgjafarnefnd viðskiptadeilda Winconsin háskóla. Meðal viðskipta- vina hennar eru Exxon, IBM, MacDonalds Corporation, American Express, American Instítute of Bankers og margir fleiri. Deanna Scott hélt þetta námskeið hér sl. vor við frábærar undirtektir. Námskeiðið fer fram á ensku. Tími: 11.—13. nóvember 1986, kl. 09.00—17.00. Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 í Vestur-Þýskalandi. Sagði hann við komuna, að líf vestrænna gisla í Líbanon væri víti líkast og að þá yrði að frelsa. Jacobsen, sem var gísl múhameð- skra öfgasamtaka, Heilags stríðs, var látinn laus á sunnudag og átti Terry Waite, sérstakur sendimaður erkiþiskupsins af Kantaraborg, mestan þátt í að fá hann lausan. Þegar Jacobsen kom til bandarísku herstöðvarinnar í Wiesbaden virtist hann mjög þreyttur og tekinn en sagði sjálfur, að sér liði vel. „Það dýrmætasta, sem lífíð hefur að bjóða, er frelsið og á þessari stundu er ég hreykinn af því að vera Bandaríkjamaður," sagði hann við fréttamenn. „Ég get ekki lýst fyrir ykkur hve feginn ég er en það skyggir á gleði mína að hugsa til vina minna og annarra vestrænna gísla í Líbanon. Líf þeirra er eins og í víti og þá verður að frelsa." Jacobsen sagði, að Terry Waite, sendimaður biskupsins af Kantara- borg, hefði verið „maður vonarinnar á dimmustu stundunum í fangavist- inni“ en Waite hefur íiður tekist að fá látna lausa sjö breska gísla í íran og Líbýu og einn Bandaríkja- mann í Líbanon. Ætlar hann að snúa aftur til Beirut til að reyna að bjarga gíslum í landinu en þeir eru samtals 19, þar af sex Banda- ríkjamenn. Þijú böm Jacobsens ætluðu í dag til fundar við föður sinn í Vestur- Þýskalandi. Carla Forbes, systir hans, kvaðst hafa brostið í grát þegar hún fékk fréttimar. „Ég var svo fegin og eftir að hafa haft áhyggjur af honum í allan þenna tíma var eins og stífla biysti," sagði hún. David Jacobsen var fram- kvæmdastjóri Bandaríska háskóla- sjúkrahússins í Beirut þegar hann féll í hendur mannræningjanna 28. maí í fyrra. Aðstandendur annarra banda- rískra gísla í Líbanon hafa nú öðlast nýja von um að fá að sjá ástvini sína á lífi og í yfírlýsingu samtak- anna Heilags stríðs kemur fram, að umleitanir Bandaríkjastjómar að undanfömu geti e.t.v. leitt til, að gíslamir verði látnir lausir. Franska stjómin fagnaði í gær frelsi Jacobsens og sagði, að unnið væri af kappi að frelsun átta franskra gísla í Líbanon. Gadhafi Líbýuleiðtogi í viðtali: Bandaríkjamönnum hefur verið refsað New York, AP. LÍBÝUMENN hafa hefnt sprengjuárásar Bandaríkjamanna á landið, að sögn Gadhafis leiðtoga Líbýu. í nýjasta hefti tímaritsins News- week er viðtal við Gadhafi og segir hann „frelsissveitir" studdar af Líbýumönnum hafa myrt fjölmarga Bandaríkjamenn frá því að árásin var gerð. synir leiðtogans særðust Iítillega en skýrt hafði verið frá því að þeir væru alvarlega slasaðir. Bandariska tímaritið U.S. News and World Reportbirtir einnig viðtal við Moammar Gadhafí í þessari viku þar sem hann kveðst hafa aukið stuðning við ýmsar hreyfíngar hryðjuverkamanna, sem hann nefn- ir „frelsissveitir", í Ig'ölfar árásar Bandaríkjamanna á Líbýu. Gadhafí kveðst staðráðinn að halda áfram stuðningi við hreyfíngar þessar jafnvel þótt Bandaríkjamenn geri kjamorkuárás á Líbýu. Að sögn Moammars Gadhafí hafa bandarískir fjölmiðlar ekki skýrt frá drápunum en banda- rískum stjómvöldum mun fullkunn- ugt um að Líbýumenn hafí staðið að baki þeim. „Frelsissveitir víða um heim létu til skarar skríða gegn Bandaríkjamönnum og myrtu fjöl- marga til að hefna árásarinnar," segir Gadhafí í viðtalinu. Tímaritið Newsweek hefur enn- fremur eftir líbýskum embættis- mönnum að kjördóttir Gadhafis, sem sögð var hafa látið lífíð í árás- inni, hafi sloppið ómeidd. Tveir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.