Morgunblaðið - 30.12.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986
11
Ljóðrænt meistaraverk
________Bækur
Arnór Hannibalsson
Mychailo M. Kotsjúbínskí:
Skujrgar feðranna. Astarsaga
frá Ukraínu. Guðmundur Daní-
elsson og Jerzy Wielunski þýddu.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs,
Reykjavík 1986.
Við fyrstu sýn gæti virzt, að ein-
angruð fjallaþjóð í austurhluta
Karpatafjalla ætti lítið sameiginlegt
með bændum og búaliði á Islandi.
En hvað kemur í ljós, þegar við
lesum þetta meitlaða listaverk, sem
segir frá lífi bænda af Húzúl-þjóð-
flokki í Úkraínu? Líf bænda er
hvarvetna svipað. Það er látlaus
barátta við náttúruna og höfuð-
skepnurnar. Þegar frostið nístir,
vindurinn næðir og biksvart myrkr-
ið þrengir sér inn í hvem krók og
kima, læðist þá ekki að manni sú
hugsun að skrattinn sjálfur búi í
myrkrinu og eigi það til að læsa
krumlunum um mann, þegar minnst
vonum varir? En Húzúlar segja
meira en þetta. Það var sá vondi
sjálfur sem bjó til háfjöllin. Þegar
Guði datt í hug að skapa jörðina,
kom sá Vondi til hjálpar. Hann reif
handfylli sína af leir á hafsbotni
og lét Guð fá. Afganginum tróð
hann uppí gúlann á sér. Jörðin tók
að gróa að blessan Guðs, og kölski
varð að skyrpa henni út úr sér. Og
skyrpurnar hrúguðust upp í fjöllin.
Aridnyk — sá Vondi — hefur verið
til frá upphafi heimsins. Hvernig
verður þá mannlífíð í þessum fjöll-
um? ívan og Marítska komust að
raun um það. Ivan fór til selja. Þá
tók vatnsandinn til sinna ráða og
slengdi_ Marítsku niður straum og
fossa. ívan þekkti ekki lík hennar,
þegar það loksins fannst. Hvers
vegna þurftu ætt ívans og ætt
Marítsku að berast hatursfullar á
banaspjót? Enginn vissi það. Enginn
mundi það. En lífið er hart og gef-
ur engin grið. Og þeim sem tekst
að ná tökum á galdri getur margt
myrkraverkið unnið. Hvað er til
ráða? Skuggar forfeðranna fylgja
okkur, og við getum ekki flúið þá.
Ef þeir skuggar eru myrkir og
grimmir og fullir af illum vilja,
sjáum við dauðann læðast á næsta
leiti. Hvers erum við þá megnug,
þegar hann sendir glyðrur og púka
til að væflast um skóga og til að
glotta til okkar úr klettum og lækj-
um?
Við þekkjum huldufólk og álfa,
galdra og grettistök. En þarna aust-
ur í Beskíðfjöllum eru það grimmúð-
ugir Glámar, sem sitja um að ráða
örlögum manna. Þetta má ráða af
bók Kotsúbínskís. Ég veit ekki
hversu trúverðuglega hann lýsir
þjóðtrú Húzúl-manna. Myrkrið og
harkan, sem að lokum ná yfirráðum
í sögunni, tengjast þeim pólitíska
boðskap, sem höfundur vill koma á
framfæri. í hans augum þurfa
bændur á hjálp að halda til þess
að koma lífinu á nýjan grunn sam-
vinnu, samhjálpar og nýrra
hugmynda. Þótt Kotsúbínskí lifi sig
aðdáanlega vel inní hugarheim
söguhetja sinna, leit hann samt svo
á, að líf þeirra væri frumstætt og
bundið í viðjar hefða og þjóðtrúar,
sem samræmist ekki nútíma skyn-
semi. Upplýsing og menntun var
leið til menningarinnar.
Kotsúbínskí vildi þrengja upplýs-
ingu inn í líf fólksins. Hann hreifst
af byltingunni 1905 og þóttist sjá
fram á bjarta daga fyrir Úkraínu-
menn.
Hugur og sál Úkraínumanna
hafa mótast af harmsögu þjóðarinn-
ar. Þeir búa í landi á stærð við
Frakkland og eru um það bil jafn-
margir. En enn þann dag í dag
hefur þeim ekki tekizt að sigra í
baráttunni fyrir sjálfstæði og full-
veldi þjóðarinnar. Á dögum
Kotsúbínskís (1864—1912) lifðu
menn fullir eftirvæntingar að nú
tæki að rofa til. Nútíminn myndi
halda innreið sína með menntun og
tækni, sjálfstæði og sjálfræði þjóð-
arinnar.
Kotsúbínskí lifði ekki þau áföll,
harðræði og vonbrigði, sem yfir
áttu að dynja. Hann hafði farið í
pílagrímsför til Capri árið 1909 til
að hitta að máli rússneska rithöf-
undinn Maxím Gorkí. Sá maður
átti eftir að lýsa þvf yfír skömmu
fyrir dauða sinn, að fangabúðir,
þrælavinna og fjöldamorð væru
framlag til framfara. Kotsúbínskí
lifði ekki fyrri heimsstyijöld og
úkraínska lýðveldið sem stofnað var
1918, en stóð aðeins stutta stund.
Kannski var það vegna þess, að
úkraínskir bændur voru ekki undir
það búnir og hugsuðu ekki um lýð-
veldið eða úkraínska ríkið heldur
um sveit sína, ætt og hérað.
Kotsúbínskí lifði ekki atförina að
úkraínskum bændum á árunum eft-
ir 1930. Þá voru þeir úkraínsku
bændur, sem kunnu að búa, rifnir
upp með rótum og tvístrað um
Síberíu og Asíu. Ekki færri en 6
milljónir fórust úr hungri. Húzúl-
fólki var þá hlíft við þessum örlög-
um, því að milli heimsstyrjaldanna
tilheyrðu þeir hinu nýfijálsa pólska
ríki. En þeir fengu að kenna á því,
hvar Davíð keypti ölið, eftir að
Vesturveldin aflientu Sovétríkjun-
um austurhelniing Póllands í Jalta
1945.
Ein skáldsaga Kotsúbínskís (I
fjötrum satans) Ij'allar um líf Tatara
þeirra, sem bjuggu á Krímskaga.
Hann lifði ekki það að horfa upp á
örlög þeirra. Skömmu eftir að herir
Hitlers tóku að flæða austur alla
Úkraínu og Rússland skipaði Stalín
svo fyrir, að flytja skyldi alla
Krímtataraþjóðina í útlegð. Dögum
og vikum saman snigluðust langar
fangalestir frá” Krímskaga austur í
miðja Asíu, þar sem fólkinu var
sturtað út og látið mæta örlögum
sínum. Enn þann dag í dag eru
Krímtatarar dreifðir víða og enn
hafa þeir ekki fengið uppreisn æru
né leyfi til að setjast að í heima-
landi sínu.
Harka hins vonda var í rauninni
miklu meiri en Kotsúbínskí gat
ímyndað sér. Hún var ekki í þeim
lifnaðarháttum og hugsun, sem
bændur höfðu tamið sér um aldir,
heldur í þeim stjórnarháttum, sem
menntun og menning byltingarinn-
ar flutti þeim.
Kotsúbínski lifði það heldur ekki,
að kvikmyndaleikstjórinn Sergéj
Paradsjanoff, sem gerði kvikmynd
eftir Skuggvm feðranna, var fang-
elsaður fyrir að standa skakkt að
gerð mynda sinna. Hann sat inni
1973-1977. Þá fékk hann frí um
tíma en var ekki leyft að kvik-
mynda. Hann var aftur fangelsaður
Mychailo Kotsjúbínskí
1982, en var hleypt út 1984 eftir
að kvikmyndamenn víða um heim
höfðu mótmælt fangelsun hans.
Hver bók á sín örlög. Skuggar
feðranna voru ritaðir af ást og inn-
lifun til þess að vekja athygli á lífi
og striti úkraínskra bænda og brýna
það fyrir þeim sjálfum og um-
heiminum að þeir þörfnuðust
menntunar og nútímaviðhorfa.
En þegar saga bókarinnar er
rakin, læðist óhjákvæmilega að les-
andanum sú hugsun, að ef til vill
hefði Húzúlbændum farnazt betur,
ef þeir hefðu mátt halda áfram að
fylgja hjörðum sínum til fjalla og
yrkja jörðina í sveita síns andlits í
friði og sátt við guð og menn, eins
og þeir gerðu um aldir. Ef til vill
gaf þjóðtrú þeirra og sögur og nátt-
úrusýn þeim haldbetra veganesti
um lífíð en háþróuð vísindaleg
tæknimenning. Draugar og skóg-
arglyðrur tilheyra ekki hugarheimi
upplýstra manna. En hvað eru þau
í samanburði við þau myrkraöfl,
sem hafa valdið tveim heimsstyij-
öldum á einni öld og morðum tuga
milljóna manna með köldu blóði?
Skuggar feðranna eru langt ljóð,
sem hlýtur að snerta djúpan streng
í bijósti hvers manns, sem leggur
það á sig að lesa það með athygli.
Orlög bókarinnar og örlög þjóðar-
innar, sem hún segir frá, koma
okkur við.
Bréf Bjarna Thoraren-
sens í tveimur bindum
- útgefin á 200 ára afmæli skáldsins
200 ÁRA afmæli skáldsins
Bjarna Thorarensens, yfirdóm-
ara og síðar amtmanns á
Möðruvöllum í Hörgárdal, er í
dag 30. desember. Hann fæddist
þennan dag árið 1786 í Brautar-
holti á Kjalarnesi.
I tilefni þessa afmælis hefur
Hið íslenska fræðafélag í Kaup-
mannahöfn (stofnað 1912) gefið
út heildarsafn allra bréfa Bjarna,
sem kunnugt er um, í tveimur
bindum. Hefur prófessor Jón
Helgason séð um útgáfuna.
Fyrsta bindi bréfanna var gefið
út í Kaupmannahöfn árið 1943
og er löngu uppselt. Hefur það
því verið prentað að nýju, um leið
og síðara bindi kemur nú fyrst
fyrir almenningssjónir. í fýrra
bindi eru bréf til Gríms Jónsson-
ar, amtmanns á Möðruvöllum, og
Finns Magnússonar, leyndar-
skjalavarðar í Kaupmannahöfn. í
síðara bindi eru yfir 30 viðtakend-
ur bréfa, m.a. Grímur Thorkelín,
leyndarskjalavörður, Bjarni Thor-
steinsson, amtmaður á Stapa,
Bogi Benediktsson á Staðarfelli
(tengdafaðir Bjarna), Þórður
Sveinbjörnsson, háyfirdómari,
Baldvin Einarsson og Grímur
Thomsen, auk þess ýmsir Danir,
m.a. Kristján Friðrik prins, síðar
Kristján konungur 8. Alls eru
bréfín 294 talsins, það elsta, sem
er til Gríms Thorkelíns, er skrifað
í Reykjavík 10. september 1811,
þegar Bjarni var 24 ára gamall,
en síðasta bréfið er til Finns
Magnússonar, skrifað á Möðru-
völlum sama daginn og Bjami lést
23. ágúst 1841.
Bréf Bjama Thorarensens er
prentuð stafrétt og þeim fylgja
ýtarlegar athugasemdir útgef-
anda, ennfremur skrá yfir bréfin
í tímaröð, yfirlit yfir viðtakendur
og varðveislustaði, svo og registur
yfir mannanöfn, staðanöfn ofl.
Sem fyrr segir hefur prófessor
Jón Helgason í Kaupmannahöfn
séð um útgáfuna og ber hún glögg
merki lærdóms hans og rómaðrar
vandvirkni. Þar sem hanr lagði
hönd á plóginn, þurfti sjaidnast
að bæta um betur. Er þetta verk
hvort tveggja í senn, eitt af því
fyrsta, sem hann fékkst við, er
hann kom til Kaupmannahafnar
til náms árið 1916, svo og eitt af
síðustu útgáfuverkum hans, en
próf. Jón lést, sem kunnugt er,
snemma á þessu ári. Hefur ekkja
hans, Agnete Leth, mag. art.,
gengið endanlega frá útgáfunni.
í síðara bindi er endurprentað
æviágrip Bjarna Thorarensens
eftir Jón Helgason, sem áður hef-
ur birst í útgáfu hans á kvæðum
Bjarna (Ljóðmæli Bjama Thorar-
ensens I.-II., Hið íslenska fræða-
félag, Kaupmannahöfn 1935). Er
það rækilegasta ævisaga Bjarna
Thorarensens, sem enn hefur ve-
rið rituð.
Bjarni Thorarensen
Fyrra bindi bréfanna er 315
bls. að stærð, prentað í Kaup-
mannahöfn, en síðara bindið er
461 bls. unnið í Prentsmiðjunni
Odda.
Mikill fengur er að útgáfu bréfa
Bjarna Thorarensens. Þau auka
við vitneskju um ævi hins þjóð-
kunna skálds og embættismanna
og gefa góða innsýn í aldarfar á
lokaskeiði einveldistímans, segir í
frétt frá Hinu íslenska fræðafélagi
og Sögufélaginu.
Umboð hérlendis fyrir Hið
íslenska fræðafélag hefur Sögufé-
lagið, Garðastræti 13B (gengið
inn úr Fischerssundi), Reykjavík
og er opið kl. 1-5 daglega.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL
Til sýnis og sölu m.a.:
Ágæt íbúð — laus strax
3ja herb. á 2. hæð 85,6 fm nettó við Engjasel. Ágæt sameign. Full-
gert bflhýsi. Útsýni yfir borgina.
Úrvals íbúð — bílskúr — útsýni
2ja herb. óvenju stór íb. 80,6 fm nettó á 2. haeð við Blikahóla. Stór
og góður bílskúr fylgir. Skuldlaus. Frábært útsýni.
Ein bestu kaup á markaðnum í dag
Stórt og glæsilegt raöhús i byggingu rétt viö Gullinbrú í Grafarvogi.
4 rúmgóð svefnherb. Tvöf. bilskúr. Sólsvalir um 24 fm. Allur frágang-
ur utanhúss fylgir. Húni sf. er byggjandi. Aðeins eitt hús eftir.
Raðhús og einbýlishús
Höfum á skrá nokkrar glæsilegar eignir t.d. í Seljahverfi, Fossvogi og
á Nesinu. Nánari upplýsingar ó skrifstofunni.
k.
........
Birtum á morgun miðvikudag
meðaltal seldra eigna á árinu.
AIMENNA
FASTEIGNASAL&N
LAUGAVEG118 SiMAR 21150-21370
IwaziDl
l, 6 millj. við samning
Höfum traustan kaupanda aö 3ja
herb. nýl. íb. í Vesturbænum, helst
m. bílhýsi eða bílsk.
Einbýlishús í
Vesturborginni
280 fm glæsil. einbhús á mjög góðum
staö. Verð 8,5-8,7 millj.
Hafnarfjörður — 2ja
Ca 65 fm björt og góð íb. á 2. hæö
við Suðurbraut. Laus fljótlega. Verð
1850 þús.
Baldursgata — 2ja
Ca 65 fm mjög fallega stands. íb. á
2. hæö. Verð 1,9-2 millj.
Ásgarður — 2ja
Ca 55 fm góð íb. á jarðhæö. Verð
1,8 þús.
Kleppsvegur — 2ja
Ca 70 fm góð kjíb. i litilli blokk. Verð
1,6 þús. Laus strax.
Næfurás
2ja og 3ja — lúxus
Glæsil. óvenju stórar 2ja (89 fm) og
3ja (119 fm) herb. íb. sem afh. tilb.
u. trév. og máln. íb. eru meö tvennum
svölum. Fallegt útsýni. Mjög hagst.
greiðslukjör.
Víðimelur — 2ja-3ja
60 fm góð kjíb. Sórhiti. Verð 1850-
1900 þús.
Grenimelur — 2ja
65 fm mjög falleg kjíb. Verð 1950-
2000 þús.
Hlíðar — 3ja
82 fm góð íb. í kj. í fjórbhúsi. Verð
2,1 millj.
Lindargata — 3ja-4ra
80 fm góð íb. á 2. hæð í tvíbhúsi.
Verð 1900 þús.
Hverfisg. — hæð og ris
Ca 100 fm íb. sem er hæð og ris í
steinh. Mögul. á 2 ib. Verð 2,5 millj.
Goðheimar — hæð
Vönduö 130 fm björt hæö ásamt
bílsk. Verð 4,5 millj.
Vesturgata — 4ra
117 «m góð íb. i lyftublokk. Verft tllbo*.
Skipti — Melar
Höfum 150 fm góða neðri sórhæö i
sölu, einungis i skiptum fyrir litið einb.
eða raðhús í Vesturbænum.
Eskihlíð - 4ra-5
117 fm björt íb. á 4. hæð ásamt ca
100 fm innangengnu geymslurisi.
Verð 2,9 millj.
Grettisg. — hæð og ris
Ca 140 fm íb. sem er hæð og ris
ásamt sérherb. i kj. m. sérsnyrtiaöst.
Verð 3,3 millj.
Gunnarssund — 4ra
110 fm góö íb. á 1. hæð. Laus fljótl.
Verð 2,2 millj.
Háteigsvegur — einb.
300 fm glæsil. einbhús á þremur
hæöum, alls 40 fm bílsk. Stór og fal-
leg lóö. Teikn. á skrifst.
Logafold — parhús
Ca 170 fm glæsil. parhús á 2 hæðum.
Verð 4,9 millj.
Við miðborgina — einb.
Járnvariö timburhús á steinkj. Húsiö
er kj., hæð og rishæð samt. 120 fm
og hefur veriö töluvert endurn. Verð
3 míllj.
Arnarnes — einb.
Ca 190 fm glæsil. einbhús, mest á
einni hæö ásamt 45 fm bílsk. Verð
8,6 millj.
Langholtsv. — raðhús
Til sölu 3 glæsil. raöhús sem nú eru
í byggingu. Húsin eru á tveimur hæð-
um, alls 183 fm aö stærð. Húsin afh.
fullfrág. að utan en fokh. eða tilb. u.
trév. aö innan. Verð 4,5-5,2 millj.
Á sunnanv. Álftanesi
216 fm mjög glæsil. einbhús við sjáv-
arsíöuna. Einstakt útsýni. Teikn. og
allar nánari uppl. á skrifst. (ekki í
síma). Skipti mögul.
Byggingarlóð
Kóp.
Til sölu eignarlóö á góðum staö í
Vesturborginni fyrir tvíbhús. Uppl. á
skrifst.
Selás — einb.
171 fm fokh. einlyft einbhús ásamt
bílskplötu (48 fm). Verð 3,4 millj.
Arnarnes — einbýli
Gott einbhús á tveimur hæðum við
Blikanes, með mögul. á sóríb. í kj.
Skipti á sérhæð í Reykjavík koma vel
til greina. Verð 9 millj.
Einbhús í Miðborginni
Vandaö einbýlishús á eignarlóö sem
skiptist í hæö, rishæð m. góöum
kvistum og kj. Tilvalið sem skrifst-
húsn. og ib. Laust fljótl.
EiGnfwniÐLunin
ÞINGHOLTSSTR/ETI 3 SIMI 27711
Sölustjóri: Sverrir Kristinsson
Þorloifur Guðrnundtton, tölum
Unnstemn B«ck hrl., aimi 12320
Þórólfur Halldórtson. lögfr.