Morgunblaðið - 30.12.1986, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGuR 30. ÐESEMBER 1986
Sakharov í sjónvarpsviðtali:
Hefur litla trú á
geimvamaáætluninni
New^York, Reuter, AP.
SOVÉZKI andófsmaðurinn
Andrei Sakharov sagði í sjón-
varpsviðtali í fyrradag, að
áætlun Bandaríkjanna um
varnarskjöld gegn aðvífandi
kjarnorkueldflaugum gæti
ekki tekizt og að það ætti ekki
að tengja hana öðrum samn-
ingum milli Bandarikjanna og
Sovétríkjanna.
„Ég tel ekki, að geimvama-
áætlunin verði nokkru sinni
nægilega virk til þess að stöðva
voldugan andstæðing," sagði
sovézki eðlisfræðingurinn og
nóbelsverðlaunahafinn. „Ég tel,
að í fjarlægri framtíð þá verði
geimvamaáætlunin raunhæfur
möguleiki, en hún verður alltaf
óframkvæmanleg í herfræðilegu
tilliti."
Sakharov, sem er 65 ára að
Andrei Sakharov
aldri, sagði ennfremur, að engin
skilyrði hefðu verið tengd því,
TVÆR ÖRUGGAR
___IFIÐIR _
TIL LÆKKUNAR
SKATTA
úsnæðisreikningur er verð-
J tryggður sparnaðarreikningur
með bestu ávöxtunarkjörum bankans,
ætlaður verðandi húsnæðiseigendum.
Samið er um ársfjórðungslegan sparnað,
4-40 þúsund til eins árs í senn. Spamaðar-
tíminn er 3—10 ár og lántökuréttur að
honum loknum nemur allt að fjórföldum
sparnaðinum. Fjórðungur árlegs
spamaðar á húsnæðisreikningi er frá-
dráttarbær frá tekjuskatti.
tofnfjárreikningur er ætlaður
þeim einstaklingum sem
hyggjast stofna til atvinnurekstrar. Hann
er verðtryggður samkvæmt lánskjara-
vísitölu og bundinn í 6 mánuði. Stofnun
atvinnurekstrar má fara fram hvenær sem
er innan 6 ára frá lokum innborgunarárs.
Innstæður á stofnfjárreikningum eru
frádráttarbærar frá skatti allt að 45.900.-
hjá einstaklingi eða 91.800,- hjá
hjónum.
fl þess að þessar skattfrádráttar-
leiðirnýtistátekjuárinu 1986
þarf að stofna reikningana fyrir áramót.
Allar nánari upplýsingar fást í sparisjóðs-
deildum bankans.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
að hann fékk að fara frá Gorkí,
en þaðan fékk hann að fara í
síðustu viku, eftir að hafa dvalizt
þar sex ár í útlegð. Hann neitaði
fréttum, sem komizt hafa á kreik
í Evrópu þess efni, að Sovétleið-
toginn Mikhail Gorbachev hefði
leyft honum að fara úr útlegð-
inni gegn því, að hann léti í ljós
andstöðu við geimvamaáætlun-
ina.
Sakharov kvaðst vera „nei-
kvæður í reynd“ gagnvart
geimvarnaáætluninni vegna þess
að „hvaða öflugur andstæðingur,
sem ræður yfir nægilega mikilli
tækniþekkingu, getur alltaf farið
fram úr tækniafrekum hins og
þarf jafnvel ekki að leggja jafn
mikið af mörkum til þess og sá
sem framkvæmir geimvarna-
áætlunina".
En Sakharov bætti jafnframt
við: „Ég álít einnig, að það sé
rangt að tengja samninga á öðr-
um sviðum samningi um geim-
varnaáætlunina eins og
Sovétríkin gera nú. Það er of
þröngsýn afstaða og ekki rétt.“
Viðtal þetta var tekið upp í
sovézkri sjónvarpsstöð á laugar-
dag og sjónvarpað til Banda-
ríkjanna í fyrradag af bandarísku
sjónvarpsstöðinni ABC.
Kirkjubruni
Mikill kirkjubruni varð i Buffalo í Bandarikjunum í vikunni.
Mynd þessi sýnir, er turn kirkjunnar fellur logandi til jarðar
úr 45 metra hæð. Talið er, að logandi kerti hafi valdið brunanum.
Tillögurnar frá Reykja-
vík eru fagnaðarefni
— segir í nýársyfirlýsingu sex þjóðarleiðtoga
í gær var gefin út í höfuðborgum
Indlánds, Grikklands, Svíþjóðar,
Mexíkó, Argentínu og Tanzaníu
nýársyfirlýsing þjóðarleiðtoganna
sex þar sem fjallað er um árangur-
inn af fundi Reagans og Gorbachevs
í Reykjavík og hvatt til þess að á
nýju ári verði afvopnunarviðræðum
haldið áfram á þeim grundvelli sem
lagður var í Reykjavík.
í yfirlýsingu þjóðarleiðtoganna
segir m.a.: „Leiðtogafundurinn í
Reykjavík sýndi að hægt er að ná
árangri ef stjómmálalegur vilji og
víðsýni em fyrir hendi. I Reykjavík
var sannað að gamlar kenningar
þurfa ekki að binda hendur manna
og ferskar hugmyndir um stjómun
vígbúnaðar og afvopnun geta opnað
nýjar leiðir. Það er fagnaðarefni að
tillögumar frá Reykjavík eru enn á
viðræðuborðinu og hafa ekki verið
dregnar til baka. Á árinu 1987
gætu leiðtogar Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna nýtt tækifærin sem
sköpuð vom í Reykjavík til að gera
samninga um vemlega fækkun
kjamorkuvopna. Við hvetjum því
leiðtoga Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna tl að byggja á þeim
gmnni sem lagður var í Reykjavík.
Þjóðarleiðtogamir sex, þeir Rajiv
Gandhi, Ingvar Carlsson, Andreas
Papandreou, Miguel de la Madrid,
Raul Alfonsin og Júlíus Nyerere,
harma þá ákvörðun Sovétríkjanna
að hefja á ný tilraunir með kjarn-
orkuvopn um leið og Baridaríkin
sprengja sína fyrstu kjarnorku-
sprengju á árinu 1987. Þeir hvetja
stórveldin til að koma á gagn-
kvæmu hléi á tilraunasprengingum
og ítreka tilboð sitt frá leiðtoga-
fundinum í Mexíkó um að annast
eftirlit með því að slíku banni verði
framfylgt. Segjast þeir vera reiðu-
búnir til að koma eftirlitskerfinu
upp þegar í stað.
Þeir hvetja einnig til þess að
SALT II-samningurinn verði hald-
inn og vara við því að vígbúnaðar-
kapphlaupið verði fært út í geiminn.
Þessi yfirlýsing þjóðarleiðtog-
anna var undirbúin á fundi skipu-
lagsnefndar leiðtogafmmkvæðisins
sem haldinn var í New York um
miðjan desember. Þann fund sótti
Ólafur Ragnar Grímsson sem sæti
á í skipulagsnefndinni. Á fundinum
var einnig rætt um undirbúning að
nýjum leiðtogafundi þjóðarleiðtog-
anna sex sem halda á í Stokkhólmi
á næsta ári. Einnig var fjallað um
nýjar hugmyndir frá sérfræðinga-
hópi sem starfar á vegum þjóðar-
leiðtoganna. Næsti fundur
skipulagsnefndarinnar til að und-
irbúa leiðtogafundinn í Stokkhólmi
og aðrar aðgerðir þjóðarleiðtoganna
sex á nýju ári verður haldinn í Arg-
entínu í febrúar.
I lok yfirlýsingarinnar segir: „Við
hörmum að ríkisstjórn Sovétríkj-
anna hefur nú ákveðið að hefja á
ný tilraunir með kjamorkuvopn um
J
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN MYNDAMOT HF.
leið og Bandaríkin sprengja sína
fyrstu kjarnorkusprengju á árinu
1987. Við vonum að þessi ákvörðun
sé ekki óumbreytanleg og bendum
á að enn gætu stórveldin komið á
gagnkvæmu hléi á tilraunaspreng-
ingum. Það getur ekkert land fært
sannfærandi rök fyrir því að halda
áfram tilraunum með kjarnorku-
vopn. Við beinum þeim tilmælum
til Bandaríkjanna að þau endur-
skoði áætlanir sínar um tilrauna-
sprengingar svo að möguleikar
skapist á gagnkvæmu hléi. Við
ítrekum tillögur okkar frá fundinum
í Mexíkó um að annast eftirlit með
því að slík gagnkvæm stöðvun á
kjamorkusprengingum sé virt í
reynd og erum reiðubúnir til að
koma því eftirlitskerfi upp þegar í
stað.
Við höfum iagt ríka áherslu á
að þróun geimvopna gæti haft í för
méð sér nýtt vígbúnaðarkapphlaup
sem yrði ógnvænlegra en nokkru
sinni fyrr. Það er nauðsynlegt að
samningaviðræður séu frekar mið-
aðar við að útrýma kjamorkuvopn-
um heldur en forsendur sem fela i
sér að kjamorkuvopn eigi um alla
framtíð að ógna tilvem mannkyns-
ins.
Þegar árið 1986 er að renna sitt
skeið á enda viljum við hvetja leið-
toga Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna til að hefja sem fyrst á nýju
ári víðtækar viðræður. Þær viðræð-
ur ættu að taka mið af sameiginleg-
um yfirlýsingum þeirra um að koma
í veg fyrir vígbúnaðarkapphlaup í
geimnum, stuðla að endalokum
vígbúnaðarkapphlaups á jörðunni
og útrýma að lokum öllum kjam-
orkuvopnum sem til em. Gjörvöll
heimsbyggðin væntir að þessum
stefnumiðum verði komið í fram-
kvæmd."