Morgunblaðið - 06.02.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
33
Skátastarf á Akureyri 70 ára:
Stefnt að samein-
ingu skátafélag-
anna á afmælisdegi
Badens Powels
í TILEFNI af 70 ára afmæli skátastarfs á Akureyri á þessu ári
er stefnt að þvi að sameina skátafélögin tvö þann 22. febrúar
nk., eða á afmælisdegi Badens Powell, stofnanda skátahreyfingar-
innar. Þá er fyrirhugað afmælisskátamót á Norðurlandi í sumar,
ennfremur er sitthvað fyrirhugað til hátiðarbrigða. 350 til 400
börn og unglingar taka nú virkan þátt í skátastarfi á Akureyri.
Að sögn Tryggva Marinósson-
ar, eins af forystumönnum
skátastarfsins hér, hefur samein-
ing skátafélaganna tveggja,
Skátafélags Akureyrar og Kven-
skátafélagsins Valkyijunnar,
lengi verið í undirbúningi, og er
nú svo til öll starfsemi sameigin-
leg, þó félögin og stjómir þess
hafí ekki enn verið sameinuð
formlega. Sagði Tryggvi að stefnt
væri að formlegri sameiningu á
afmælisdegi Badens Powels 22.
febrúar nk.
Skátastarf á Akureyri verður
70 ára á þessu ári, en á sama ári
er skátastarf á íslandi 75 ára. í
tilefni af þessu verður mikil af-
mælishátíð 2. nóvember nk., sem
Akureyrarskátar munu taka þátt
í. Þá er fyrirhugað að halda af-
mælisskátamót í sumar, ætlað
norðlenskum skátum og væntan-
lega verður skátum annars staðar
af landinu boðið til mótsins. Þá
er reiknað með fjölskyldudegi á
árinu og að sitthvað fleira verði
gert til að minnast þessa áfanga
í skátastarfi á Akureyri.
Tryggvi sagði ennfremur að
miklar breytingar hefðu átt sér
stað í skátastarfí á Akureyri
síðustu tvö árin og væru nýjungar
í starfínu, sem gefíst hefðu mjög
vel. Auk þess að drengir og stúlk-
ur starfa nú meira saman í
flokkum og sveitum, hefur upp-
eldisstefnu í starfínu verið breytt
í þá veru að gera skáta ábyrgari,
þ.e. að færa ábyrgðina í vaxandi
mæli á herðar bamanna. Enn-
fremur hefur miðstýring verið
minnkuð og byijað er nú strax
við sjö ára aldurinn að venja böm-
in forystuhlutverki, þannig að allir
skátar eigi kost á foringja- og
forystuhlutverki, ekki aðeins
nokkrir útvaldir.
Tryggvi sagði í lokin, að nýja
línan í skátastarfinu hefði verið í
framkvæmd á Akureyri í tvö ár
og gefíst mjög vel. Þetta kvað
hann m.a. verða til umfjöllunar á
skátaþingi í Vestmannaeyjum á
árinu. Þá sagði hann, að áhugi
bama og unglinga væri vaxandi
í skátastarfí, en það sem háði
starfinu væri skortur á húsnæði.
Morgunblaðið/Fríða Proppé
Frá Landsmóti skáta, sem haldið var í Kjamaskógi við Akureyri sumarið 1981.
Menntamálaráðherra svarar fræðsluráði:
73 klukku-
Leggur til skipan nefndar
til athugnnar á samskiptum
HELDUR fanust fræðsluráðs- herra til, samkvæmt heimildum
mönnum, sem rætt var við í gær, Morgunblaðsins, að fræðsluráð
lítið til svars menntamálaráð- og hann skipi sinn hvorn hlut-
herra koma, er það barst í gær lausan aðila í nefnd til að kanna
og hafa þeir boðað til fundar kl. samskipti fræðsluráðsins og
14 í dag. í svari sínu lagði ráð- ráðuneytisins. Ennfremur bauðst
Sjónvarp Akureyri
FÖSTUDAGUR ».
6. febrúar
18.00 Á milli vina (Between Friends).
Bandarísk bíómynd með Elisabeth
Taylorog Carol Burnett í aðalhlutverk-
um. Myndin fjallar um tvær nýfráskild-
ar konur. Önnur hallar sér að flöskunni
en hin skiptir óspart um elskhuga.
Þær styðja hvor aðra í viöleitninni til
að skapa sér lif sem veitir þeim raun-
verulega lífsfyllingu.
19.30 Teiknimynd. Furðubúarnir.
Ofurvoffi.
Kl. 20.10 Dynasti. Eftir dauða Ted, fyrr-
um elskhuga Steven, handtekur
lögreglan Blake Carrington og réttar-
höld hefjast. Krystle snýr heim aftur
til að standa á bak viö Blake.
20.56 Geimálfurinn (Alf), bandarfskur
framhaldsmyndaflokkur. Alf heitir
furöuvera úr geimnum sem brotlendir
geimfari sínu í svefnbæ í Hollywood,
ofan á bílskúr Tannerfjölskyldunnar.
Alf er tekinn inn í fjölskylduna. Þarf
ekki að spyrja að því að heimilislífið
breytist og hver grátbroslega uppá-
koman rekur aðra. Það var hinn
fjölhæfi Tom Patchett — sem m.a.
bjó til Prúöuleikarana — sem á heiöur-
inn af þessari vinsælu undraveru.
21.25 Stjörnustríð (Star Wars).
Bandarisk kvikmynd frá 1977 með
hinum alkunna Harrison Ford ásamt
Mark Hamill, Carrie Fisher og Alec
Guiness í aöalhlutverkum. Leikstjóri
er George Lucas. Bráöskemmtileg
mynd sem hlaut m.a. sjö Óskarsverð-
laun. Hún er í senn spennandi og
skemmtileg og greinir frá baráttu
Loga geimgengils og vina hans í bar-
áttunni við Surt hinn illa, sem stöðugt
ógnar lífi þeirra.
23.20 Benny Hill. Bráðfyndinn breskur
gamanþáttur sem farið hefur sigurför
um allan heim. Þátturinn þykir minna
að ýmsu leyti á gamanþátt hins kunna
Dave Allens.
23.50 Flótti til sigurs (Escape to Vict-
ory). Bandarfsk bíómynd frá 1981.
Leikstjóri er hinn heimsþekkti John
Huston (Heiður Prizzis) og aðalleikari
Sylvester Stallone. AÖrir leikarar eru
Michael Caine, Pele og Max von
Sydow. Æsispennandi mynd um
strfðsfanga sem fá að keppa í fót-
bolta við þýska landsliðiö. Fangarnir
ákveða að grfpa tækifæriö og freista
þess að flýja með hjálp frönsku and-
spyrnuhreyfingarinnar.
01.40 Dagskrárlok.
hann til að framlengja umsókn-
arfrestinn um stöðu fræðslu-
stjóra. Ekki er minnst einu orði
á Sturlu Kristjánsson. Á Alþingi
kom fram í gær þingsályktunar-
tillaga í málinu frá Stefáni
Valgeirssyni.
„Eg segi ekkert annað en að ég
ræði við mína menn á morgun,"
sagði Þráinn Þórisson, formaður
fræðsluráðsins, er rætt var við hann
síðdegis í gær, en þá hafði honum
skömmu áður borist bréf ráðherr-
ans. „Ekki eitt orð,“ sagði Sverrir
Hermannsson, menntamálaráð-
herra, er rætt var við hann um
miðjan dag í gær.
Þeir fulltrúar úr fræðsluráði, sem
rætt var við í gær voru heldur
óánægðir með svar ráðherra, töldu
það heldur veigalítið og að ráðherra
gæfí lítið eftir til sátta. Menn höfðu
sérstaklega á orði, að ekki væri
minnst einu orði á Sturlu, en ráð-
herrann hefur lýst því yfír, að það
mál sé dómstólamál, ef ekki náist
samkomulag við lögmann Sturlu.
Hann hefur í samráði við fjármála-
ráðherra falið ríkislögmanni að
setjast að samningaborði með lög-
manni Sturlu.
Á Alþingi í gær kom fram þings-
ályktunartillaga frá Stefáni Val-
geirssyni, sem fól í sér að alþingi
álykti að fela menntamálaráðherra
að fara fram á við Hæstarétt að
skipa nefnd til að kanna þetta mál.
Nokkrir þingmenn sem rætt var við
kváðu þennan málatilbúnað Stefáns
orka tvímælis, þ.e. að óljóst sé,
hvort tillagan standist lagalega.
Tillaga sú, sem Steingrímur J. Sig-
fússon og fleiri alþingismenn hafa
boðað flutning á, var stöðvuð af
flutningsmönnum í gærmorgun, en
þá var hún í vinnslu í prentsmiðj-
unni Gutenberg. Sú tillaga felur í
sér, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, skipan rannsóknarnefnd-
ar. Munu flutningsmenn ætla að
bíða og sjá hver viðbrögð fræðslu-
ráðsins verða við bréfi ráðherrans.
stundir
í FRÉTT biaðsins í gær af
samningaundirritun fulltrúa
Launanefndar sveitarfélaga
og starfsmannafélaga brengl-
aðist fyrirsögnin. Þá var
Erlingur Aðalsteinsson sagður
formaður STAK, Starfs-
mannafélags Akureyrarbæjar,
en hið rétta er, að hann er
formaður launanefndar
STAK.
Fyrirsögnin átti að vera sú, að
þriggja ára samningur hafí náðst
eftir 73 klukkustunda fund, en
varð sú að aðeins lægi klukku-
stundarfundur að baki. Hið rétta
kom fram í texta fréttarinnar, en
þetta er hér með leiðrétt.
Þá er Erlingur ekki formaður
STAK nú, eins og að framan
greinir. Ásta Sigurðardóttir er
formaður STAK og eru þau beðin
velvirðingar á þeim misskilningi.
Kaupskip hf.
Innflytjendur athugið!
M.s. Combi Alfa lestartitíslands í Aveiro, Portúgal, 3.-5. febrúar,
í Rotterdam 10. febrúar og í Esbjerg 12. febrúar.
Næsta lestun: Aveiro i 10. viku
Rotterdam i 10. viku
Esbjerg i 11. viku
Nánari upplýsingar í sima 96-27035
Kaupskip hf.
Strandgötu 53, Akureyri,
sími 27035