Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ Framhaidsskólanemendur mótmæla ástandinu í skólum vegna kennaraverkfallsins: Ef þetta gengiir mikið leng- ur fell ég í flestum fögunum - sagðieinn nemandinn, sem styður samt verk- fall kennara NEMENDUR í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu vöktu með ýmsum hætti athygli á því í gær að þeim þætti sú staða sem skólastarf er í vegna verkfalls háskólamenntaðara kennara vera orðin illþolandi. Talsverður hópur nemenda settist að á göngum fjármálaráðuneytisins um hádegisbilið og hluti hópsins dvaldi þar i nótt. Klukkan 15 þeyttu framhaldsskólanemendur síðan bílflautur víðsvegar um Reykjavík í mótmælaskyni. I tilkynningu sem nemendur dreifðu í fjármálaráðuneytinu sagði meðal annars að þjóð sem ætlar að flytja út hugvit í framtíðinni hefði ekki efni á að svelta fræðara sína. Framhaldsskólanemendur hefðu of lengi verið þjófsnautar í kjararáni ríkisvaldsins á kennurum. Við það verði ekki unað lengur og því ætli nemendur að gista fjármálaráðu- neytið þar til ríkisstjómin hefur Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra ávarpaði framhaldsskólanemendur sem búið höfðu um sig á göngum fjármálaráðuneytisins. Geir Haarde aðstoðarmaður fjármálaráðherra fór síðan yfir helstu atriði samn- ingaviðræðnanna við kennara með sendinefnd nemenda. ákveðið einhveija menntastefnu. „Við erum að vekja athygli á því ófermdarástandi sem hefur skapast vegna þess að kennarar fá ekki mannsæmandi laun,“ sagði Margrét Helga Hjartardóttir nem- andi í Menntaskólanum við Hamrahlíð í samtali við Morgun- blaðið, en Margrét var einn þeirra nemenda sem settust að í fjármála- ráðuneytinu. „Við styðjum kennara og stöndum með þeim í þessari baráttu og það er mjög slæmt að það virðist ekki ganga í neina sam- komulagsátt. Önnin fer auðvitað að verða ónýt ef þessu heldur svona áfram,“ sagði Margrét. Margrét sagðist telja að samn- inganefnd ríkisins hefði verið of ósveigjanleg í samningaviðræðun- un. Þar hefði lítið gerst og tilboð ríkisins virtust aðeins vera mismun- andi útgáfur af fyrsta tilboðinu sem ekkert hefði verið hækkað. Margrét sagði að kennsla lægi að mestu niðri í Hamrahlíðarskólan- um. Sumir nemendur væru að reyna að lesa áfram og það væri hægt í sumum fögum, „...en maður veit ekkert hvemig verður í vor og það er erfitt að vinna markvisst þegar ekki er vitað hvert stefnir,“ sagði Margrét Helga. Sigurlaug Siguijónsdóttir nem- andi í MH tók í sama streng: „I Hamrahlíðinni er talsvert af fögum þar sem vinna á önninni kemurí staðinn fyrir próf. Ég á að útskrif- ast í vor þar sem einn áfanginn í íslensku er þannig byggður upp og ég get ekki útskrifast nema að hafa lokið þeim áfanga,“ sagði Sig- urlaug. Þegar Sigurlaug var spurð hvað henni fyndist um það ástand sem MIKLABRAUT- Öskjuhlíð FYRIRHUGAÐUR VEGUR LOÐIRNAR SEM SHELL HEFUR SÓTT UM Núverandi aðstaða SHELL Morgunblaðið/ GÓI MÁVAHLÍЗ —DRÁPUHLÍЗ L BLÖNDUHLÍÐ- Skelj ungur v ill færa sig um set í Öskjuhlíð OLÍUFÉLAGIÐ Skeljungur hefur sótt um lóð til borgar- ráðs undir tvær bensínstöðvar í Oskjuhlíð. Samkvæmt nýjum skipulagstillögum verður Suð- urhlíð þar sem bensínstöð fyrirtækisins er nú blindgata. Framhald Bústaðarvegar verður aðalumferðaræðin og er gert ráð fyrir að hann verði ofar í hlíðinni. í bréfi Skeljungs til borgarráðs segir að bensínstöðin við Suð- urhlíð sé stærsti útsölustaður fyrirtækisins í Reykjavík og að hann muni slitna úr tengslum við umferðina þegar af framleng- ingu Bústaðarvegar að Mikla- torgi verður. Gert er ráð fyrir bensinstöð norðaustan við nýja Bústaðarveginn en félagið sækir um leyfi fyrir bensínsölu beggja vegna vegarins. Umsókninni var vísað til skrif- stofustjóra borgarverkfræðings. Lífeyrissjóðirnir 1986: Raunvirði veittra lána lækkaði um 24,2% RAUNVIRÐI veittra lána lífeyrissjóðanna til sjóðsfélaga Leiðrétting Vakin hefur verið athygli á því að í ljóðið Elska, sem birtist með fréttum frá Kosningavöku fatlaðra í blaðinu í gær, vantaði eina línu fyrra erindið, þegar það var flutt. Rétt er það svona: Ég elska fuglana fuglarnir geta flogið ég get ekki flogið fuglarnir geta sungið ég get sungið fuglamir syngja með mér. Höfundurinn er Ásdís Jenna Ástráðsdóttir og birtist þetta ljóð hennar fyrst í Lesbók Morgunblaðs- ins í desember 1986. á Iiðnu ári lækkaði um 24,2% frá árinu 1985. Lífeyrissjóð- irnir veittu 4.857 lán, alls að fjárhæð 1.486 milljónir króna 1986 og fækkaði lánum um 29,7% á milli ára. Meðalupp- hæð lána á síðasta ári var 306 þúsund krónur, sem er 15,5% hærra að raunvirði en 1985. Þessar upplýsingar koma fram í fréttabréfi Sambands almennra lífeyrissjóða, (SAL), sem nýlega kom út, en SAL gerði könnun meðal lífeyrissjóðanna. Þar kem- ur fram að raunvirði veittra lána á árinu 1985 hafi lækkað um 40% miðað við fyrra ár. Og fjöldi veittra lána 1985 hafi verið 6.913, á móti 10.443 árið 1984. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri SAL, sagði að ástæður minnkandi eftirspumar sjóðsfélaga eftir lánum, væru annars vegar þær að Húsnæðis- stofnun hefði stóraukið lánveit- ingar og hins vegar þær að raunvextir væm hærri. Algeng- ast er að vextir lífeyrissjóðslána séu 6,5-6,75% auk verðtrygging- Könnun SAL náði til 67 lífeyr- issjóða, þ.á.m. vom allir stærstu sjóðirnir. INNLEN'T Sérstakir saumadagar NÚ er verið að taka upp nýju vor- og sumartískuna í efnum og af því tilefni hafa vefnað- arvörukaupmenn um land allt tekið höndum saman um saumadaga 23.- 31. mars. Á, saumadögunum eru sniða- og saumanámskeið í mörgum verslunum og alls konar tilboð í gangi, afsláttur af efnum og tilleggi, auk leiðbeininga með saum og snið. Félag vefnaðar- vörukaupmanna hefur vakið athygli á því hvað hægt er að spara heimilispeningana með heimasaum og bent á að í mörgum tilfellum fáist þijár flíkur fyrir verð einnar tilbú- innar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.